Vísir - 18.07.1979, Page 24
Miðvikudagur 18. júlí 1979
síminner 86611
Spásvæði Veðurstofu islands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiðafjörð-
ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður-
land, 5. Norðausturland, 6.
Austfirðir, 7. Suðausturland,
8. Suðvesturland.
Veðurspá
dagsins
SV mið: NV gola eða kaldi
og skýjað fyrst. Gengur i SV
kalda og siöan stinningskalda
og rigningu þegar líður á dag-
inn. SV og V stinningskaldi og
skúrir á morgun.
SV land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiða-
fjarðarmið: Breytileg átt og
skýjað fyrst. Gengur i SV
stinningskalda og rigningu
siðdegis, en SV og V stinnings-
kaldi og skúrir á morgun.
Vestfirðir og Vestfjarða-
mið: S gola og siðan kaldi og
rigning fyrst, en SA stinnings-
kaldi og rigning þegar liöur á
daginn. SV og V stinningskaldi
og skúrir á morgun.
N land og N mið: Hæg
breytileg átt og skýjað fyrst.
Gengur I SV og sunnan kalda
og stinningskalda og fer að
rigna þegar liöur á daginn. SV
stinningskaldi og viða skúrir á
morgun.
NA land og NA mið: Minnk-
andi NV átt og viða þoka eða
súld fyrst, SV og siðan sunnan
gola eöa kaldi og skýjað og úr-
komulaust i kvöld og nótt.
Austfirðir og Austfjarða-
mið: N gola eða kaldi og viða
léttskýjað i dag. V og Sv kaldi
og léttskýjað i nótt.
SA land og SA mið: N og NA
gola og sumstaðar léttskýjaö I
dag. Gengur i SV og sunnan
kalda og þykknar upp i nótt.
veðrið hér
og par
Veðrið kl. 6 i morgun:
Akureyri alskýjað 4, Bergen,
skúrir 12, Helsinki, skýjað 15,
Kaupmannahöfn, alskýjað 13,
ósló, alskýjað 11, Reykjavik,
skýjað 6, Stokkhólmur, létt-
skýjað 17, Þórshöfn.skýjað 10.
Veðrið kl. 18 i gær:
Aþena, léttskýjað 25, Berlin,
léttskýjað 17, Chicago, skýjaö
22, Feneyjar, léttskýjað 25,
Frankfurt, skýjað 20, Nuk,
skýjað 6, London, léttskýjað
25, Las Palmas, skýjaö 21,
Luxemburg, skýjað 18,
Mállorka, heiðskirt 25,
Loki
segir
Svavar Gestsson segist
alveg forviða á þeirri ákvörð-
un Kjartans Jóhannssonar að
taka til baka leyfi Svavars
fyrir innflutningi á tveimur
skuttogurum.
Það er auðvitað gott að iáta
lita út sem hann hafi ekki haft
hugmynd um ákvörðun Kjart-
ans fyrirfram.
Deilt um skipan skðlamála á Slolullrðl:
BÆJARSTJÚRN ÁTELUR VINNU-
BRÖGÐ MENNTAMÁLARÁÐHERRA
„Mörgum hérna finnast vinnubrögð mennta-
málaráðherra harla einkennileg i þessu máli
enda er ákvörðun hans i ósamræmi við vilja
meirihluta þeirra aðila sem tengdir eru skóla-
málum hér!” — sagði Skúli Jónasson, skóla-
nefndarmaður á Siglufirði i samtali við Visi
vegna ákvörðunar ráðherrans um skipan skóla-
stjórnarmála þar i bæ.
Samkvæmt ákvörðun
Ragnars Arnalds, menntamála-
ráðhera, á að sameina barna-
skólann og gagnfræðaskólann i
einn skóla: Grunnskóla Siglu-
fjarðar með einum skólastjóra
og einum yfirkennara og er
þessi ákvörðun tekin i kjölfar
þess, að skólastjóri barnaskól-
ans Jóhann Þorvaldsson lætur
af störfum fyrir aldurssakir
hinn 1. september n.k. Gunnar
Rafn Sigurbjörnsson, skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans hefur
samkvæmt þessari ákvörðun
verið ráðinn skólastjóri Grunn-
skólans.
Þessum ráðstöfunum hafa
ýmsir aðilar á Siglufirði mót-
mælt, þ.á.m. fastir kennarar við
barnaskólann, bæjarstjórn
Siglufjarðar, meirihluti skóla-
nefndar beggja skólanna og
fræðslustjóri Norðurlandsum-
dæmis vestra. Eru mótmælin
m.a. byggð á þeim forsendum
að skólahúsin eru tvö á sitt
hvorum .stað i bænum og hvor
skóli tiltölulega fjölmennur.
Hafa þessir aðilar þvi farið fram
á, að ráðinn verði skólastjóri
sérstaklega við barnaskólann
eins og verið hefur. Kennara-
félag Siglufjarðar, þar sem
gagnfræöaskólakennarar eru i
meirihluta, hefur hins vegar
lýst yfir samþykki við ákvörðun
menntamálaráðherra.
Vegna þessa máls var
samþykkt á fundi bæjarstjórnar
Siglufjarðar hinn 9. júli sl. svo-
hljóðandi ályktun:
„Bæjarstjórn Siglufjarðar á-
telur að menntamálaráöherra
skuli ekki taka tillit til
samþykktar skólanefndar,
bæjarstjórnar, meirihluta
fastra kennara við barnaskól-
ann og álits fræðslustjóra um-
dæmisins um skipan skóla-
stjórnarmála á Siglufirði.
„Akvörðun min er I anda
grunnskólalaganna”, segir
Ragnar Arnalds menntamála-
ráðherra. — Sjá bls. 3.
—Sv. G.
Erfitt er að hemja bátana viö bryggju, ef einhver gjóla er. (Vlsism. ÞG).
Smábátum bjargað með snarræðí
„Það hefðu a.m.k. tveir bát-
ar, að verðmæti kannski 5
milljónir hvor, eyðilagst þarna
ef ekki hefði tekist að bjarga
þeim á land. Viljum við Snar-
faramenn þakka bæði lögregl-
unni, sem tilkynnti að bátarnir
væru I hættu, og svo starfs-
mönnum Sementsverksmiðj-
unnar sem björguðu öðrum á
land” sagði Hörður Guðmunds-
son, einn Snarfaramanna i sam-
tali við Visi.
Aðfararnótt þriðjudags sleit
óveður upp smábáta i aðstöðu
sem Snarfari hefur nálægt af-
greiðslu sementsverksmiðjunn-
ar en tókst að bjarga þeim sem
áður sagði.
Hörður sagðist vona að borgin
sæi nú sóma sinn i að láta smá-
bátaeigendur hafa aðstööu þá
sem þeim hefði eitt sinn verið
lofað. „Það þarf litla peninga
til” sagði hann, „og má vinna á
löngum tima.
Aðalatriðið er að þetta er fjöl-
skyldusport allra stétta sem
ekki má falla niður.”
-Ij
Sædýrasalnið:
Starfsleyfið helur enn
ekki verið endurnýjað
Starfsleyfi fyrir Sædýrasafnið
I Hafnarfirði rann út um siðustu
áramót og þrátt fyrir að nú sé
miður júli, hefur það leyfi ekki
enn'verið endurnýjað. Starfar
þvi safnið án nokkurs leyfis frá
opinBerum aðilum. Aö sögn
Sigriðar Asgeirsdóttur, sem
sæti á I Dýraverndunarnefnd
rikisins, skortir mikiö á að safn-
ið fullnægi reglugerð um dýra-
garða og sýningar á dýrum og
hefur i raun og veru aldrei gert
þaö.
„Min skoðun er sú, að vegna
þess að aðbúnaður safnsins er
ekki nógu góöur þá vilji dýra-
verndunarnefnd rikisins ekki
halda fund. Formaður nefndar-
innar og yfirdýralæknir draga
þaö á langinn að ganga frá
þessu, vegna þess að ekki er
hægt að veita leyfi til safnsins
eins og það er i dag”, sagði
Sigriður Asgeirsdóttir.
Formaður Dýraverndunar-
nefndar rikisins er Þór Guð-
jónsson, veiðimálastjóri.
Að sögn Sigriðar kannaði
Dýraverndunarnefnd rikisins
aðbúnaðinn I safninu I mai sið-
astliðnum og stóð siðan til að
halda fund með nefndinni,
stjórn safnsins og einhverjum
ábyrgum aðila. Þessi fundur
hefur ekki verið haldinn, þrátt
fyrir itrekaðar óskir Sigriöar og
ber formaður nefndarinnar þvi
við að hann sé of upptekinn við
önnur störf.
Héraðsdýralæknir hefur ný-
lega kannað ástand safnsins og
lýsir hann yfir aö mikið vanti á
að reglum um dýragarða sé
framfylgt i safninu. Mesta
vandamálið sé það að neyslu-
vatn sé ofanjarðar og siðasta
vetur þá fraus i öllum vatns-
pipum og olli það tjóni á ýmsum
dýrategundum. Frárennslið frá
safninu hefur einnig laskast
eitthvað, sagði Sigriður.ogrenn-
ur ekkert frá safninu núna.
Samband dýraverndunarfé-
laga kærði starfsemi safnsins
um siðustu áramót og einhver-
staðar i'kerfinu situr sú kæra og
biður opinberrar meðhöndlun-
ar.
Sigriður Asgeirsdóttir sagðist
hafa skrifað menntamálaráðu-
neytinu um málefni safnsins, en
það hefur yfirstjórn þessara
mála með höndum.
-SS-
BsiarríD Rkureyrar:
Biður rlkis-
stjðrnlna
aé styðia
ullariðnað
Bæjarráð Akureyrar
samþykkti á fundi sinum nýlega
ályktun til forsætisráðherra þar
sem þeim tilmælum er beint til
hans að rikisstjórnin geri nú
þegar nauðsynlegar ráðstafanir
til stuðnings ullariðnaðinum.
Telur bæjarráðið að atvinnu-
lif á Akureyri sé i yfirvofandi
hættu vegna erfiðleika þeirra
sem ullariðnaðurinn i landinu á
við að etja. Sat Hjörtur Eiriks-
son framkvæmdastjóri Iðnaöar-
deildar SIS þennan fund ráösins
og skýrði frá þeirri slæmu stöðu
sem ullariðnaðurinn væri i um
þessar mundir.
—HR
Atvinnubilstjórar mótmæltu fyrir
nokkrum árum með akstri stórra
bfla um miðbæinn.
MDImall
atvlnnubllstiora:
Skipuleggja
umferðarteppu
Samtök atvinnubilstjóra hafa
skipulagt mótmælaakstur i mið-
bænum ogvið stjórnarráðið til aö
sýna hug sinn til bensinhækkun-
arinnar sem þeir telja beinar
skattaálögur á atvinnutæki sin.
Aðgerðirnar hefjast klukkan tvö i
dag en þá ætla bflsjórarnir að
safnast saman við BSI.
í framhaldi af þessum aðgerð-
um eru bifreiðaeigendur hvattir
til að stöðva bifreiðar sinar á
morgun i tvær minútur klukkan
17.50, hvar sem þeir eru staddir.
— JM.