Vísir - 18.08.1979, Blaðsíða 12
Wi
.UÍifcirUi^íitU'
\0,f ** S’
> .<,> *. 3iJ I
'SJtxmMjfL '*. J
li
VÍSIR
Laugardagur 18. ágúst 1979
Sú var tlöin aö ekki þótti til-
tökumál þótt hópur ungra
stúlkna meö túberaö hár og
bleikar varir öskraöioggargaöi
af öllum lifs og sálar kröftum á
rokkhljómleikum. Af hrifningu
auövitaö. Þá stóö bftlaæöiö sem
hæst og Lennon haföi enn ekki
hitt Yoko og þaöanafsiöur keypt
beljustóö til þess aö beita á
Strawberry Fields Forever. Þá
þótti þaö naumast tiöindi þótt
ein og ein stúlkukind félli I öng-
vit eöa mannahendur af vangá
einni saman. Aö ég tali nú ekki
um handvömmina.
Upphaf nýrrar rokk-
bylgju?
Þá var rokkiö ungt og Bitlarn-
ir friskir og ungir strákar meö
sitthár, svohinum eldri féll all-
ur ketill I eld. Núna eiga Bitla-
strákarnir aöeins eftir eins og
aldarfjóröung i fyrstu ellilif-
eyrisgreiöslurnar. Rokktískan
sem þeir innleiddu hefur átt
mismunandi gengi aö fagna og
rokkiö ýmist leikiö á hraöari og
kraftmeiri hátt, ellegar þá
pönklegri, diskólegri, kániri-
legri — eöa hvaö þetta heitir nú
allt saman. Nema hvaö.
Einstaka maöur þykist nú sjá
þess teikn á lofti og listum
(vinsældalistum) aö gamla
góöa rokkiö i stil bresku bitla-
hljómsveitanna svonefndu og
kannski ögn I stil viö þunga-
rokkshljómsveitimar bresku
hér i eina tfö, sé aftur aö ryöja
sér til rúms. Og núna i Banda-
rikjunum.
Þaö er raunar ekki einleikiö
aö Bandarikjamenn hafa tekiö
upp á arma sina svotil allar
rokkhljómsveitir frá Bretlandi
og boriö afuröir þeirra á hönd-
um sér upp alla vinsældalista.
Þannig getum viö nefnt Rolling
Stones, Who, Bad Company og
nú siöast Kinks. Aörar rokk-
hljómsveitir eins og t.d.
Foreigner, Supertramp, Van
Halen og Cheap Trick hafa notiö
viölika vinsælda svo undrun
hefur sætt, þvi diskótónlistin
hefur veriö rikjandi á vinsælda-
listunum undanfarin ár. Og auð-
vitaö er riki hennar enn vold-
ugt. A hinn bóginn verður erfitt
aö neita þvi aö rokkiö kemur æ
meira inn i myndina.
Japanskir pikuskrækir
Aö þvi var vikiö hér I upphafi
greinarinnar aö ungar hnátur
hljóöuöu gjarnan á rokkhljóm-
leikum fyrir fimmtán árum eöa
svo. Þessar hnátur eru nú vel-
flestar orönar viröulegar frúr
sem hrista höfuðiö (gott ef ein-
hverjar eru ekki meö Parruk)
yfir pönktfskunni og óbeislaöri
aðdáun unglinganna á nýjustu
rokkstjörnunum. En svona er
allt í heiminum hverfult.
Iþeirri borg Japans, er Tókió
nefiiist, öskra ungar stúlkur enn
Rick Nielsen gitarleikari —
hann semur öll lög og texta
hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin sem skáeygðu
stelpurnar skræktu á
Bandariska hljómsveitin Cheap Trick sem er stjarnfræðilega vinsæl i Japan. Strákarnir fjórir eru frá
Chicago og nágrenni.
á hljómleikum aö þvi er staö-
festar upplýsingar herma. Þá
leika ekki Bítlarnir fyrir troð-
fullu húsi heldur fjórir undar-
legir Amerikanar, sem helst
viröast sloppnir nýlega út af
geöveikrahælum. Þeir kalla sig
Cheap Trick. Hljómleikahöllin,
þar sem öskrin voru hljóðrituð I,
heitir Budokan og platan heitir
At Budokan, svona einfalt er
þetta nú, þegar þaö er á pappir-
inn komiö.
2 plötur á 5 vikum
Hljómleikaplata Cheap Trick
var gefin út I Japan og engu
ööru landi, nema hvaö banda-
riskar útvarpsstöövar fengu I
hendur nokkur lög af umrædd-
um hljómleikum til aö senda út
áljósvakans öldum. Þessaröld-
ur skoluöu ekki bátskeljum á
land eins og öldur hafsins, held-
ur þúsundum óska um endur-
spilun þessara laga. Hljóm-
plötufyrirtækiö var tilneytt til
aö gefa plötuna út á Bandarikja-
og Evrópumarkaði og haréi,
nota bene, gefið út aöra plötu
meðhljómsveitinni fimm vikum
Robin Zander söngvari.
Bun E. Carlos trommuleikari.
Gunnar Saívarsson skrifar
áöur. Cheap Trick var i þann
veginn aö slá I gegn.
Þaö er oft sagt um hljóm-
plötubransann að þar séu regl-
urnar þær aö fulikomiö reglu-
leysi gildi. Þetta dæmi ætti að
renna stoöum undir þá fullyrö-
ingu. En plata Cheap Trick, At
Budokan, hefur verið meöal
fimm mest seldu platnanna i
Bandarlkjunum siöasta mánuö-
inn og allt vegna þess aö slatti af
skáeygöum gulleitum pium meö
silkisvart rennslétt hár nennti
aö þenja raddböndin I april. Þá
var vor i Tókió.
Cheap Trick
Um þessa hljómsveit er fátt
vitað og næsta vist aö meölimir
hennar hafi einhvern tima verið
sveipaöir huliösblæju. Uppruni
þeirra er semsé á huldu, utan
hvaö vitaö er aö Bandarikin eru
fööurland þeirra og Robin
Zander söngvari þeirra er ann-
aö hvort fæddur I Kansas City
eða Boston. Skltt meö þaö.
Þeir eru fjórir og heita Robin
Zander, Rick Nielssen, Bun E.
Carlos og Tom Petersson.
Zander er söngvarinn, Nielsen
er gi'taristinn, Carlos er tromm-
arinnog Peterssoner bassaleik-
arinn. Tveir þeirra eru mjög
aulalegir og hegða sér einatt
eins og hundaklyfberar, það er
Nielsen og Carlos, annar slána-
lega vaxinn og hrekkjóttur og
hinn bangsalega vaxjnn og rolu-
legur.
Gamansemi og soðnar
pylsur
Hinir tveir — og þó einkum
söngvarinn Zander — eru töff-
arar grúppunnar og fá stúlkurn-
ar til þess aö kikna I hnjáliöun-
um. Þetta eru sætu strákarnir I
Cheap Trick.
„Þetta er hundraö sinnum
betra en hjá TedNugent”, segir
Rick og svifur um sviðið meö
þrjá gitara og slær hljóma meö
hægri hendinni og siöan meö
þeirri vinstri og segir: „Næst-
um þvi eins gott og hjá Jimmy
Page”.
Cheap Trick er gamansöm
hljómsveit og liðsmenn hennar
eru iðnir viö aö koma fóiki aö
óvörum. Þaö er eitt af höfuöein-
kennum þeirra. Hljómsveitin
þykir skemmtileg á sviöi og tón-
listin einkennist mjög af kraft-
mikilli rödd Zanders og góöum
gítarleik Ricks. Þaö er annaö
einkenni þeirra.
Og ef þaö skyldi hafa fariö
fram hjá þérer það Cheap Trick
sem leikur lagiö, ,1 Want You To
Want Me” og þetta er rokk-
hljómsveit fyrst og siöast.
Öborganleg segja sumir, fram-
úrskarandi segja aörir. „Viö er-
um I listinni listarinnar vegna”,
segir Rick Nielsen, „og tónlist
okkar mun kannski ekki flýta
suöunni á pylsunum ykkar, — en
okkur er skemmt”.
-Gsal
Tom Peterson bassaleikari.