Morgunblaðið - 19.09.2001, Side 4

Morgunblaðið - 19.09.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ENDURSKOÐUNARNEFNDIN um stjórn fiskveiða er klofin og ligg- ur fyrir, að mati nefndarmanna, að nefndin hafi endanlega lokið störf- um og muni ekki skila sameiginlegri niðurstöðu eins og að var stefnt. Fjórir nefndarmanna, sem skipa meirihluta í nefndinni, skrifuðu und- ir álit sitt á fundi nefndarinnar síð- astliðinn mánudag og höfnuðu þeir jafnframt tillögum minnihlutans um að fresta afgreiðslu málsins. Þrír nefndarmenn sem skipa minnihluta munu skila sérálitum sínum og bók- unum í síðasta lagi næstkomandi föstudag. Stefnt er að því að niðurstöðurnar verði svo kynntar eftir helgina. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins tókst ekki að leysa úr grundvallarágreiningi innan nefnd- arinnar um þær tvær leiðir sem sett- ar voru fram í skýrslu auðlinda- nefndar fyrir tveimur árum, þ.e. um svonefnda fyrningarleið og veiði- gjaldsleið. Meirihluti nefndarmanna þeir Friðrik Már Baldursson, formaður nefndarinnar, Kristján Skarphéðins- son, skrifstofustjóri í iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu, og þingmenn Sjálfstæðisflokksins þeir Vilhjálmur Egilsson og Tómas Ingi Olrich fall- ast ekki á fyrningarleiðina í áliti sínu. Gera þeir hins vegar að tillögu sinni í meirihlutaáliti sínu að farin verði gjaldtökuleið í sjávarútvegin- um sem taki mið af því sem sjávar- útvegurinn er talinn geta borið. Þar verði um að ræða greiðslu vegna kostnaðar af fiskveiðistjórnuninni og jafnframt er lagt til að tekið verði upp afkomutengt veiðigjald. Á móti verði hins vegar ýmsum þjónustugjöldum létt af sjávarútveg- inum, sem talin eru geta numið um 800–1.000 milljónum króna, skv. heimildum Morgunblaðsins. Nefndarmenn í minnihluta skila sérálitum fyrir helgina Þingmennirnir Kristinn H. Gunn- arsson, Framsóknarflokki, Jóhann Ársælsson, Samfylkingu og Árni Steinar Jóhannsson, Vinstrihreyf- ingunni – grænu framboði, standa ekki að áliti meirihlutans. Þeir munu hafa lýst yfir að þeir væru hlynntir því að reynt yrði að ná samkomulagi um einhvers konar fyrningarleið. Þeir munu þó ekki hafa náð sam- stöðu um sameiginlegt minnihluta- álit og er reiknað með að þeir muni hver um sig skila sínu séráliti eða bókunum við nefndarálitið. Nefndarmenn sem rætt var við í gær vildu lítið tjá sig um ágreining- inn í nefndinni fyrr en sérálitin liggja fyrir og niðurstaðan verður kynnt í heild eftir helgina. Innan minnihlutans mun þó vera litið svo á, skv. heimildum blaðsins, að tillögur meirihlutans þýði í reynd að litlar breytingar verði gerðar á stjórnkerfi fiskveiða, nái þær fram að ganga en þær koma væntanlega til kasta Alþingis í haust. Álit meiri- hlutans sé ekki í samræmi við sam- eiginlega niðurstöðu sem náðist inn- an auðlindanefndarinnar og klofningur nefndarinnar sé ávísun á áframhaldandi úlfúð í kringum sjáv- arútveginn. Markmið að ná sem víðtækastri sátt landsmanna Sjávarútvegsráðherra skipaði endurskoðunarnefndina 28. septem- ber 1999 og fékk hún það hlutverk að endurskoða og koma með tillögur til breytinga á fiskveiðistjórnarlögun- um. Bar nefndinni að taka tillit til hagsmuna sjávarútvegsins og al- mennings í landinu í starfi sínu, skv. erindisbréfi ráðherra. Var markmið hennar að ná fram sem víðtækastri sátt landsmanna um fiskveiðistjórn- unarkerfið en þess yrði þó jafnframt gætt að fórna ekki markmiðum um skynsamlega nýtingu og bætta um- gengni um auðlindir sjávar eða raska hagkvæmni og stöðugleika í grein- inni. Upphaflega átti nefndin að skila niðurstöðum til ráðherra fyrir 1. september í fyrra Það gekk ekki eft- ir og fengu nefndarmenn þá frest til 1. september á þessu ári til að skila niðurstöðum sínum. Reynt var til þrautar ,,Þessu er að ljúka. Þeir sem ekki vilja vera með að öllu leyti í áliti okk- ar eru bara að vinna sína heima- vinnu,“ sagði Vilhjálmur Egilsson í gær. Að sögn Vilhjálms var reynt til þrautar að ná samkomulagi í nefnd- inni en það tókst ekki. Jóhann Ársælsson segir að nefnd- in hafi raunverulega lokið störfum þótt niðurstöðum verði ekki skilað fyrr en á mánudag. ,,Niðurstaða meirihlutans liggur fyrir og mönnum var gefið færi á að skila minnihluta- álitum,“ sagði hann. Að sögn hans komu fram tvær til- lögur á fundinum á mánudag um að nefndin héldi áfram störfum en þær voru báðar felldar. Að sögn Jóhanns er langt á milli skoðana nefndar- manna. ,,Það sýndi sig í þessari nefnd að menn fundu ekki leið,“ sagði hann. Nefndin klofnaði um grundvallaratriði ,,Meirihluti nefndarinnar er búinn að afgreiða sitt meirihlutaálit en eins og gerist í vinnu af þessu tagi er okk- ur gefinn kostur á að vinna okkar bókanir eða sérálit eftir því hvað menn kjósa. Ég geri ráð fyrir að vera einn með sérálit en við höfum tímann fram á föstudag til að skila því. Svo er gert ráð fyrir að þetta verði kynnt fjölmiðlum á mánudag eða þriðjudag í einu lagi,“ segir Árni Steinar Jó- hannsson. Að hans sögn klofnaði nefndin um grundvallaratriði. ,,Það var tekist á um þessar tvær leiðir sem voru sett- ar fram í skýrslu auðlindanefndar, gjaldtökuleið og fyrningarleið. Þetta er náttúrlega stórmál og erfitt,“ sagði hann. ,,Við sem ekki skrifuðum upp á álit meirihlutans vildum reyna að halda þessu starfi áfram og gera alvarleg- ar tilraunir til að koma heildstæðir út úr þessu. Ég lagði mikla áherslu á það á fundinum í gær. Formanninum þótti einsýnt að það væri tilgangs- laust og það þýðir ekkert annað en að þeir hafi ekki viljað nálgast okkur í þessu máli,“ sagði Árni Steinar. Tillaga gerð um afkomu- tengt veiðileyfagjald Endurskoðunarnefnd um stjórn fiskveiða klofin og meirihlutinn hefur undirritað álit sitt og hafnar frestun ÞJÓÐMINJASAFN Íslands mun kynna verkefnið „Aðhlynning og kynning á friðlýstum fornleifum“ á Menningarminjadegi Evrópu næst- komandi laugardag, 22. september. Verkefnið, sem Landsvirkjun hefur styrkt felst m.a. í uppsetningu frið- lýsingarmerkja við friðlýsta forn- leifastaði. Að sögn Ragnheiðar Trausta- dóttur, fornleifafræðings hjá Þjóð- minjasafni Íslands, eru rúmlega 500 friðlýstir fornleifastaðir á land- inu en ætla má að fjöldi fornleifa sé um og yfir 700. „Við höfum í sumar sett friðlýsingarmerki við nær 30% af þeim rúmlega fimm hundruð stöðum sem eru friðlýstir,“ segir hún. Sérstakar merkingar með m.a. sögulegum upplýsingum hafa verið settar við ellefu þessara staða. Þeir staðir eru: Laugarnes í Reykjavík, Þingnes við Elliðavatn, Dóm- hringur og leiði Heggs í landi Heggstaða í Borgarfjarðarsveit, Litlibær í Skötufirði, Ingimund- arrústir í Þverárhreppi í Vestur- Húnavatnssýslu, Vaðlaþing í Litla- Eyrarlandi í Eyjafirði, Krakalækj- arþing við Lagarfljót, Eyvindarkofi í Þjórsárverum, Rútshellir í landi Hrútafells í Austur-Eyjarfjalla- hreppi og fornar rústir í Húshólma á Reykjanesi. Fornminjar fara forgörðum Að sögn Ragnheiðar hefur merk- ing af þessu tagi annars vegar þann tilgang, að varðveita friðlýsta staði; koma í veg fyrir að þeir verði fyrir skemmdum eða hverfi sjónum manna og hins vegar að upplýsa ferðamenn. Hún segir að flestir þessara staða hafi verið friðlýstir á árunum 1920– 1940 en þeir hafi margir hverjir þó ekki verið skoðaðir nánar heldur hafi Mattías Þórðarson, þáverandi þjóðminjavörður, friðlýst þá eftir ábendingum, til að varðveita þá. „En það var kannski ekkert þar,“ segir Ragnheiður og bætir því við að hún sé þó viss um að margir fornleifastaðir hafi farið for- görðum á síðustu 20 til 30 árum. Starfsmenn Þjóðminjasafnsins og borgarminjavörður verða með leið- sögn um staðina ellefu n.k. laug- ardag frá kl. 13 til 16. Friðlýsingar- merki við fjölda fornleifastaða Morgunblaðið/Þorkell Ragnheiður Traustadóttir við friðlýsingarmerki við Gjárétt. Skilti með sögulegum upplýsingum hefur verið komið fyrir á ellefu stöðum á landinu. Eitt þeirra er að finna á Laugarnesi í Reykjavík. UNDIRBÚNINGUR að sölu á ráðandi eignarhlut í Lands- banka Íslands er kominn vel á veg en framkvæmdanefnd um einkavæðingu stendur að söl- unni í samstarfi við HSBC- bankann í London. Valgerður Sverrisdóttir, við- skiptaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri langt að bíða frétta af mál- inu. „Það verður þá tilkynnt op- inberlega enda er um skráð fé- lag að ræða. Tíminn fer hins vegar að verða naumur því að ætlan ríkisstjórnarinnar er að stigið verði ákveðið skref á þessu ári.“ Undir- búningur kominn vel á veg Einkavæðing Landsbankans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.