Morgunblaðið - 19.09.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í
DAG eru 20 ár frá því að
flutningaskipið Tungufoss
fórst í aftakaveðri við suð-
urströnd Englands, en allri
áhöfn var bjargað á giftu-
samlegan hátt. „Við gleymum þessu
aldrei,“ segir Gísli Níelsson, þáver-
andi háseti en nú verkstjóri hjá
Eimskip í Sundahöfn, og aðrir skip-
verjar taka í sama streng.
Mikið óveður gekk yfir suður- og
vesturhluta Bretlands laugardag-
inn 19. september 1981. Fjölmörg
skip og bátar sukku og menn
drukknuðu auk þess sem mann-
skaði varð í landi. 11 manns voru í
áhöfn á Tungufossi og lentu flestir
skipverjanna í hrakningum við
björgunina í myrkrinu og óveðrinu
og stóð mjög tæpt að það næðist að
bjarga sumum, en skömmu eftir að
öllum skipverjum var bjargað fyrir
mikla hetjudáð breskra björg-
unarmanna á sjó og úr lofti, sökk
skipið.
Merkilegur atburður
„Þetta var merkilegur atburður
sem vakti mikla athygli,“ segir
Ragnar Kjærnested, sem var báts-
maður á Tungufossi en er nú yf-
irverkstjóri í skipaafgreiðslu Eim-
skips í Hafnarfirði. Í
Morgunblaðinu þriðjudaginn 22.
september 1981 segir hann við
Árna Johnsen blaðamann að hann
hafi náð að krækja fótunum utan
um sigmann úr þyrlu, eins og hann
hafi sagt sér að gera, og haldið sér í
taugina með annarri hendi. Á leið-
inni upp í þyrluna hafi hann í raun
hangið á hvolfi með þessum tökum.
„Það var langur aðdragandi að
slysinu og eftirköstin töluverð og
því held ég að þetta sé djúpt í minn-
ingunni hjá öllum. Þetta kemur oft
upp í hugann, sérstaklega þegar
greint er frá sjóslysum í blöðum,“
segir hann nú, 20 árum síðar, „og
ég held að við munum þetta allir
eins og það hafi gerst í gær. Það
var mikið skrifað um þetta og með-
al annars gerði Óttar Sveinsson at-
burðinum skil í einni slysabókinni.“
Allir hættir á sjó
Ragnar segir að skipverjarnir
hafi hist fyrir 10 árum og þeir ætli
að hittast á ný um helgina, en allir
séu á fullu í þjóðfélaginu, þótt þeir
hafi lagt sjómennsku á hilluna.
Hann segir að fljótlega eftir heim-
komuna hafi áhöfnin farið í allar
áttir. Sumir hafi haldið áfram sjó-
mennsku og aðrir komið í land en
nú væru allir hættir á sjónum. Hann
fór sjálfur í tvo túra eftir slysið en
hætti til sjós sama ár.
Að sögn Ragnars hafa skipverjar
ekki haft neitt samband við björg-
unarmennina. „Við höfum ekki haft
tök á því,“ segir hann og bætir við
að á þessum tíma hafi áfallahjálp
ekki þekkst. „Áfallið breytti starfs-
ferlinum og lífsins gangi. Menn
hættu á sjó og sneru sér að öðru en
hjúskaparstaðan hefur haldist
óbreytt hjá öllum nema einum –
þeir sem voru komnir með konu eru
með sama maka.“
Hann bætir við að ári síðar hafi
Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi
forseti, farið í opinbera heimsókn
til Bretlands og sæmt björg-
unarmennina orðum, sem væru
mjög sjaldgæfar.
Gísli Níelsson hafði verið veikur
um borð í nokkra daga þegar slysið
varð. Í fyrrnefndu Morgunblaði er
eftirfarandi haft eftir honum: „„Og
þegar ég var búinn að hanga úti á
þilfari í nær klukkutíma,“ sagði
hann, „var ég alveg búinn að vera.
Svo kom að því að ég varð að
20 ár frá björgunarafreki er öllum skipverjum Tungufoss var bjargað við England
Við gleym-
um þessu
aldrei
Fyrir 20 árum björguðu breskar björg-
unarsveitir ellefu manna áhöfn á Tungu-
fossi á giftusamlegan hátt. Steinþór
Guðbjartsson hitti þrjá úr áhöfninni og
fékk meðal annars að vita að skipverj-
arnir ellefu eru allir hættir til sjós og að
sjóslysið hafði mikil áhrif á líf þeirra.
Morgunblaðið/RAX
20 árum síðar bregður fjölskyldan á leik. Hallur Helgason ýtir syninum Halli, nema við Háskólann í Reykjavík,
út í óvissuna og móðirin Sæunn Klemenzdóttir, forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands, stendur álengdar.
Morgunblaðið/RAX
Hallur Helgason kyssir Hall, rúmlega eins árs gamlan son sinn, í gegn-
um glerið í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli eftir flugið frá London
fyrir 20 árum, en eiginkonan, Sæunn Klemenzdóttir, fylgist með.
ÞAÐ styttist óðum í að verslunarmið-
stöðin í Smáralind verði opnuð. Þær
verslanir sem eru komnar lengst á
veg eru Hagkaup og Debenhams en
þar er byrjað að raða vörum í hillur.
„Hagkaup og Debenhams eru
stærstu verslanirnar í verslunarmið-
stöðinni og er vinna við þær komin
lengst enda tekur vöruáfylling um
fimm vikur í Hagkaupi,“ segir Þor-
valdur Þorláksson, markaðsstjóri
Smáralindar.
Að hans sögn er í Hagkaupi verið
að raða vörum upp í hillur að und-
anskildum ferskvörum. Þá segir hann
að verið sé að leggja lokahönd á allar
innréttingar í Debenhams. „Starfs-
fólkið þar er í þjálfun og situr á skóla-
bekk þar sem verið er að fara yfir at-
riði eins og söluþjálfun og
vörumerkjaþekkingu. Þá er einnig
farið yfir öryggisþætti,“ segir Þor-
valdur.
Aðspurður segir hann að auk Hag-
kaups og Debenhams séu fleiri fyr-
irtæki komin langt á veg. Margir eru
byrjaðir að mála og leggja gólfefni og
í allnokkrum verslunum er hafin upp-
setning á innréttingum. Þá er verið að
ljúka klæðningu á loftinu í Vetrar-
garðinum og flísalögn á gólfi komin
langt á veg. Þorvaldur segir fram-
kvæmdum við Smárabíó einnig miða
vel áfram og þar sé núna verið að
setja upp hljóðkerfi, sýningarvélar og
palla fyrir bíósæti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verslanir farnar
að taka á sig mynd
AÐ minnsta kosti eitt íslenskt
vitni, sem sætt hefur rannsókn
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra í tengslum við fjár-
svikamál Norðmannsins Haavald
Heide Schjerven, þarf að mæta fyr-
ir rétt í Noregi á næstunni til að
bera vitni.
Vitnið er meðal nokkurra Íslend-
inga sem sættu rannsókn efnahags-
brotadeildar vegna umfangsmikilla
fjársvika og fjárdráttar Schjerven
á árunum 1898-1996 en hann var
starfsmaður á skrifstofu Barna-
hjálpar SÞ (UNICEF) í Kaup-
mannahöfn. Mál Schjervens teygði
anga sína til 15 þjóðlanda m.a.
hingað til lands með því að hann lét
UNICEF borga fyrir sig jeppa til
eigin nota í tengslum við önnur inn-
kaup UNICEF hérlendis.
Rannsókn af hálfu efnahags-
brotadeildar er lokið en á grund-
velli hennar m.a.var ákæra á hend-
ur Schjerven gefin út í Noregi.
Nokkrir Íslendingar sættu rann-
sókn vegna málsins en þeir eiga
ekki yfir höfði sér ákæru.
Íslenskt
vitni þarf
að mæta
fyrir norsk-
an rétt„VIÐ munum taka ákvörðun umframhaldið í samráði við okkar lög-
mann,“ segir Þóra Þrastardóttir,
eigandi veitingarekstursins Jarlsins,
þegar hún er innt eftir viðbrögðum
við niðurstöðu samkeppnisráðs um
að Eignarhaldsfélag Kringlunnar hf.
og síðar Þyrpingar hf. hafi brotið
gegn ákvæðum samkeppnislaga með
því að meina skyndibitastaðnum
Jarlinum í Kringlunni að selja ham-
borgara í nýrri viðbyggingu Kringl-
unnar.
Þóra segist sátt við niðurstöðu
samkeppnisráðs. „Niðurstaðan er sú
að það var á okkur brotið,“ segir hún
og bætir því við að rekstur Jarlsins
hafi orðið fyrir miklu fjárhagslegu
tjóni vegna þessa. Hún vill þó ekki
gefa upp hve hátt tjónið hafi verið
metið. „Við urðum fyrir verulegum
skaða og það er eðlilegt að sá bæti
skaðann sem honum valdi. Það er
aðalatriði málsins,“ segir hún enn-
fremur. „Ég geri ekki ráð fyrir öðru
en að þeir [forsvarsmenn Þyrping-
ar] virði þessa niðustöðu samkeppn-
isráðs.“
Í niðurstöðu samkeppnisráðs seg-
ir að það sé mat ráðsins að Jarlinn
hafi a.m.k. frá október 1997 mátt
vænta þess að fyrirtækið fengi að
selja hamborgara á veitingastað sín-
um í nýrri viðbyggingu Kringlunnar,
þ.e. á hinu svokölluðu Stjörnutorgi
skyndibitastaða.
„Er það mat samkeppnisráðs að
sú hegðun Þyrpingar að banna síðan
Jarlinum að selja hamborgara og
ganga til samninga við annan veit-
ingastað [McDonalds] um það rými
sem Jarlinum var á sínum tíma lofað
hafi falið í sér óréttmæta viðskipta-
hætti í skilningi 20. gr. samkeppn-
islaga,“ segir m.a. í niðurstöðunni.
„Við áttum engra annarra kosta
völ en að labba út enda var Jarlinn
aldrei svipur hjá sjón eftir að ekki
fékkst leyfi til að selja þar hamborg-
ara,“ segir Þóra. Hún kveðst að-
spurð ekki búast við því að Jarlinn
verði aftur settur upp í Kringlunni
jafnvel þótt heimild fáist til þess að
selja þar hamborgara. „Við höfum
ekki áhuga á því að opna í Kringl-
unni. Við ætlum frekar að einbeita
okkur að skyndibitastaðnum Jarlin-
um á Smáratorgi í Kópavoginum.
Við erum ánægð með þann stað.“
Ekki náðist í talsmenn Þyrpingar
í gær þegar þessi frétt var í vinnslu
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Ræða framhaldið í
samráði við lögmann
Eigandi Jarlsins um ham-
borgarasölu í Kringlunni