Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 19
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 19 2345-23 65785#9:5775 ;< 5775##5 2=32#9:5 9 1345'>'#2?78'1 @  5 )   *, )& ,   * A   , ) /, , (&  ) , ( 6/ (   ,  (     5 )   , & , ,  , $$ ,  , $ /,    )* (( ;   2/   6/ ( >  , 5 BC D /B &( ;   2/  , )            ! " # $""%% &'  ( )* '# ' '+ ,( ,!  -." #  #/ " 0. 1(0 2 ) 2 +3 )   (% ,-.- #  "  1  /" 60 6  . /% '  01#12 ' *   13453- 6- 175.-)-2                   .8 9#12: .-2 5-9: .-2 4 78# 7 :2)-2 932-.-0:9: .-2 8;/19: .-2 8 )-2  :99)-2 04 -23- 3 -1) )3/-2<2 9 9"! ' 8 9 9 : = >>>&' % &!&  @ AB&.! %!   @ 0EF3> B& 6A>  % ("  @ 65G#F37 CD>&' EAD?&EAC&  @ C&.! %!   @ 5'83 5#5695 B >>>&' & &! EAD?&EAC&  F&0   @ >=#2578 FD >>>&' B B>>&% FG>&! "   @ 296H5 A>> >>>&' B>>&% =D&! "   @ 0857 =BD >>>&' A A=D&% ? BH>&! "   @ 9#57 BAD >>>&' ? F GD>&% ? CID&! "   @ H#2578 =ID >>>&' ? B B>>&% ? (&=>>&! "   @ 9#5 FD >>>&' ? !&% 7 & % " &"  "   "  / &J&'&* "&" &<'& &)% !&! "   @ 5-<573>57 B >>>&' !&  @ HI'# B& '  &' AC>&  @ &? =&! "  ?&D&" %    A&" &!&H&+ & J -2;>3 65785#9:5775 A >>>&' &  !&  @ !"  83F<; <5#K35B  E '   # &: "! D>&  @ ?&B&" B&" %  ?&B>&+ & ? J  ' &  %+  "   ;157 )45 67"0/+ A&! "  ? =&" %    B&"&!&AB&+ & " & &2  *&&3" * % -2;>3 65785#9:5775 &$ //   / (  / /    / /  )   /  $          TALIÐ er að um 2.000 börn kunni að hafa misst báða eða annað foreldrið í hryðjuverkaárásinni á World Trade Center í New York og Pentagon. Nú þegar hefur verið komið á fót mið- stöð í Kaliforníu til aðstoðar for- eldralausum börnum. Ekki er vitað til þess að börn hafi misst báða foreldra sína í hryðju- verkaárásinni. Barnaverndarnefndir í Bandaríkjunum hafa ekki fengið beiðni um að koma börnum, sem hafa misst báða foreldra, fyrir á fóst- urheimilum. „Ég hef trú á því að í flestum til- fellum sé um annað foreldrið að ræða,“ sagði Jack Deacy, talsmaður barnaverndarsamtaka í Bandaríkj- unum, við breska dagblaðið The Times. Alls er nú 5.422 manna saknað eft- ir hryðjuverkaárásirnar á World Trade Center og búið er að finna 201 lík, að því er borgarstjóri New York, Rudy Giuliani, tilkynnti á blaða- mannafundi á mánudagskvöld. 2.000 börn kunna að hafa misst foreldra sína VERIÐ er að rannsaka hugsanleg tengsl á milli flugræningjanna sem stýrðu tveimur farþegaþotum á turna World Trade Center í New York og flugumanna á vegum Osama bin Landens, sem hugðust myrða hundruð ferðamanna í Jórdaníu 1. janúar í fyrra. The New York Times greindi frá þessu í gær. Tveir af mönnunum sem talið er að rænt hafi flugvélunum hafa verið tengdir fyrrum leigubílstjóra í Bost- on, sem nú er verið að rétta yfir vegna sprengjutilræðis í Jórdaníu, sem öryggissveitum þar í landi tókst að afstýra. Þessi tengsl, sem banda- rískir lögreglumenn eru nú að rann- saka, eru fyrstu beinu sönnunar- gögnin, sem fengist hafa fram í þá veru að flugræningjarnir hafi unnið með mikilvægum flugumönnum sádi-arabíska hryðjuverkamannsins Osama bin Ladens, sem er efstur á lista yfir þá grunuðu. Og um leið ræðir þar um fyrstu vísbendingarn- ar um að illvirkjarnir sem rændu þotunum hafi tengst mönnum bin Ladens sem yfirvöld vissu að búið hefðu í Bandaríkjunum. Heimildarmenn The New York Times vildu ekki ræða þessi tengsl nánar að öðru leyti en því að þeir sögðu að mennirnir þrír, flugræn- ingjarnir og leigubílstjórinn fyrrver- andi, Raed M. Hijazi, hefðu átt sam- skipti við mann sem talinn er hafa verið á vegum bin Ladens og bjó um skeið á Boston-svæðinu. Það var Na- bil al Marabh, sem aftur hafði verið bendlaður við tvo flugræningjanna. Tveir ræningjar til viðbótar hafa verið tengdir hryðjuverkaneti Osama bin Ladens og höfðu yfirvöld í Bandaríkjunum leitað þeirra áður en illvirkjarnir létu til skarar skríða. Heimildarmenn segja að bin Lad- en hafi lagt á ráðin um hryðjuverk víða um heim um áramótin 1999- 2000 þegar árþúsundamótum var fagnað. Að sögn yfirvalda í Jórdaníu tókst að koma í veg fyrir að menn bin Ladens sprengdu í loft upp ýmsa helga staði og stórt hótel í Jórdaníu en tilgangurinn var sagður að myrða sem flesta Bandaríkjamenn, Ísraela og ferðamenn frá fleiri þjóðum. Raed Hijazi var síðar dæmdur að honum fjarstöddum fyrir að hafa lagt á ráðin um tilræðið. Hann var handtekinn í Sýrlandi og framseldur til Jórdaníu þar sem réttarhöld yfir honum fara nú fram, að því er fram kemur í The New York Times. Flugumenn bin Ladens tengdir flugræningjum ÖRYGGISEFTIRLIT hefur verið hert um gjörvöll Bandaríkin sök- um grunsemda um að samverka- menn flugræningjanna, sem flugu þremur farþegaþotum á World Trade Center í New York og Pentagon-bygginguna í Wash- ington, leiki enn lausum hala þar vestra. John Ashcroft, dómsmálaráð- herra, hefur sagt að vera kunni að það kerfi sem hryðjuverkamenn- irnir studdust við og nutu aðstoðar frá geti enn verið við lýði í Banda- ríkjunum. Kom fram í máli ráð- herrans í gær að hann og yfirmað- ur Alríkislögreglunnar (FBI), Robert Mueller, hefðu rætt „fyr- irliggjandi hættumat“ og þar hefði m.a. komið fram sú sameiginlega niðurstaða þeirra að samverka- menn flugræningjanna, sem tengdust hryðjuverkasamtökum, kynnu enn að vera á kreiki í Bandaríkjunum. Robert Mueller sagði að alls hefðu um 50.000 vís- bendingar, sem tengdust hryðju- verkinu síðastliðinn þriðjudag, borist Alríkislögreglunni um Net- ið. Um 8.000 hefðu borist í sérstakt símanúmer sem tekið hefur verið í notkun og svæðisskrifstofur FBI víðs vegar um Bandaríkin hefðu fengið um 26.000 til viðbótar. Kvað hann 500 manns vinna allan sólar- hringinn að rannsókn málsins í Washington og víðar. Þá kæmu meira en 30 skrifstofur FBI og leyniþjónustustofnanir á vegum lögreglunnar að rannsókn málsins. Rannsóknin hefur einnig tekið til annarra landa, m.a. Kanada, Japans, Þýskalands, Ekvador, Belgíu og Hollands. Húsleit hefur farið fram á 19 heimilum í Þýska- landi þar sem leitað er upplýsinga um þá Mohammed Atta, Marawan Al-Shehhi og Ziad Amir Jarrah, sem talið er að hafi lært flug í Bandaríkjunum eftir að hafa stundað nám í Hamborg. Tölvugögn rannsökuð Rannsóknin beinist og að sam- skiptum hryðjuverkamannanna um Netið. Heimildarmaður AP- fréttastofunnar greindi frá því að FBI hefði farið þess á leit við Microsoft-fyrirtækið að það léti í té útskriftir af samskiptum sem fram hefðu farið um tiltekna áskrift hjá Hotmail netþjónum. Svipuðum beiðnum hefði verið komið á fram- færi við America Online og Earth- link. Þá er talið að nokkrir hinna grunuðu hafi nýtt sér almennings- bókasöfn í Flórída til að halda uppi tölvusamskiptum við samverka- menn sína. Fleiri hryðjuverkamenn taldir ganga lausir Washington. AFP, AP. SAMTÖK flugmanna í Bandaríkjun- um vilja að farþegar gegni framvegis hlutverki í vörnum gegn flugránum, og verði reiðubúnir til að láta til skarar skríða gegn mönnum sem reyni að taka völdin um borð í flug- vélum. Gengur þessi afstaða þvert á þá stefnu sem hingað til hefur verið fylgt, að láta að vilja flugræningja og fara með þá þangað sem þeir vilja fara, og tryggja með þeim hætti ör- yggi farþega og áhafnar. Þessi stefna er að breytast í kjöl- far flugránanna fjögurra í síðustu viku, þegar flugræningjarnir notuðu flugvélarnar sem árásarvopn við hermdarverk. Svo virðist sem fólkið um borð í þotu United Airlines hafi barist við flugræningjana með þeim afleiðingum að þotan hrapaði á óbyggðu svæði í Pennsylvaníu, en ekki í Washington-borg, eins og flug- ræningjarnir virðast hafa ætlað sér. Samtök flugmanna í Bandaríkjun- um (ALPA) vilja koma þeim skilað- boðum á framfæri við farþega að þeir geti komið í veg fyrir flugrán. Steve Luckey, fyrrverandi flugstjóri og yfirmaður öryggismálanefndar samtakanna, segir að við slíkar kringumstæður þurfi að nýta alla hugsanlega krafta. Farþegar geti gert gæfumuninn. „Farþegar þurfa að axla mun meiri ábyrgð,“ sagði Luckey. „Það erum við [áhöfnin] sem þurfum á hjálp að halda.“ Farþegar komi til hjálpar Washington. AP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.