Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 44
DAGBÓK 44 MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Víðir Tjaldur, Wiesbaden, Thor, og Laugarnes koma í dag. Saturn, Sel- foss og Goðafoss koma og fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss fer á morgun Forn- ax og Dorado koma á morgun Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa sími 5514349, flóamark- aður, fataútlutun og fatamóttaka sími 552- 5277 eru opin miðviku- daga kl. 14 til 17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað er í síma Krabbameinsráðgjaf- arinnar, 800 4040 frá kl. 15–17. Mannamót Aflagrandi 40. Jóga- námskeið hefst í dag kl. 17. Upplýsingar í síma 562-2571. Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-12 op- in handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13-16.30 op- in smíðastofan, kl. 10-16 púttvöllurinn opinn. All- ar upplýsingar í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8- 12.30 böðun, kl. 9-12 vefnaður, kl. 9-16 handa- vinna og fótaaðgerð, kl. 10-10.30 banki, kl. kl. 13 spiladagur, kl. 13-16 vefnaður. Haustlitaferð verður þriðjudaginn 25. september kl. 13. Ekið um Kjósarskarð til Þing- valla. Farið um Grafning og Línuveg heim. Kaffi- hlaðborð í Nesbúð, skráning í síma 568-5052 eigi síðar en þriðjudag- inn 18. sept. María Mar- teinsdóttir, fótaaðgerða- fræðingur byrjar 1. okt. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga kl. 10-13. Matur í hádeginu. Mið- vikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Söng- félag FEB, kóræfing kl. 17. Línudanskennsla Sigvalda fellur niður. Haustlitaferð til Þing- valla 22. september, kvöldverður og dans- leikur í Básnum. Leið- sögn Pálína Jónsdóttir og Ólöf Þórarinsdóttir. Brottför frá Ásgarði Glæsibæ kl. 14. Vinsam- legast sækið farmiða sem fyrst. Námskeið í framsögn og upplestri hefst fimmtudaginn 27. september kl. 16.15. Kennari Bjarni Ingvars- son. Skráning hafin á skrifstofunni. Ákveðið hefur verið að halda námskeið í brids á mið- vikudagskvöldum kenn- ari Ólafur Lárusson, skráning hafin á skrif- stofu. Farið verður til Kanaríeyja 20. nóvem- ber. Upplýsingar og skráning á skrifstofunni. Silfurlínan er opin á mánud- og miðviku- dögum kl. 10-12 fh. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB kl. 10-16 s. 588- 2111. Félagsstarf aldraðra Garðabæ Miðvikudagur kl. 11.15 leikfimi, kl 13 leikfimi. Fimmtudagur kl. 9.45 Boccia, kl 10 ker- amik, Fótaðgerðastofa opin 9-14. Á næstunni: Haustferð kvenfélagsins 19. sept. kl. 13.30. Snyrtinámskeið byrjar 25. sept. kl. 9. Spænska hefst 27. sept. kl. 12.15. Leshringur á Bókasafni Garðabæjar byrjar 1. okt kl. 10.30. Bútasaum- ur byrjar 3. okt. kl. 16 í Garðaskóla. Leshringur á Bókasafni Álftanesi byrjar 10. okt. kl. 15. Nánar www.fag.is. Sími 565 6622. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9-12 aðstoð við böðun, kl. 9- 16.45 hárgreiðslustofan og handavinnustofan opnar, kl. 10-10.45 leik- fimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15-16. Skrifstofan í Gullsmára 9 opin í dag kl 16.30-18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10-12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Pílukast kl. 13:30. Loka- fundur fyrir þátttak- endur í Pragferðina verður kl. 13. Opið hús á morgun fimmtudaginn 20. sept. kl. 14. Dagskrá vetrarins kynnt, Albert Krist- insson rifjar upp sögu rafmagns í Hafnarfirði, Ingibjörg Guðjónsdóttir syngur nokkur lög og Friðrik Guðmundsson stjórnar fjöldasöng. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9-16.30 fótaaðgerð og opin vinnustofa, postulín, mósaik og gifsafsteipur, kl. 9-13 hárgreiðsla, kl. 9-16 böðun. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10-17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Söngfluglarnir taka lagið kl. 15.15. Gullsmári, Gullsmára 13. Nokkur sæti laus í keramikmálun, kín- verska leikfimi og mynd- list og hatajóga.Upplýs- ingar í s. 564-5260 og í Gullsmára 13. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9- 12 útskurður, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 11-12 pútt, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl 15 teiknun og málun. kl. 10:30. Sam- verustund, spjallað um félagsstarfið framundan. Allir velkomnir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun, fimmtudag, kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð verður keila, spjallað og heitt á könnunni. Allir vel- komnir. Upplýsingar veitir Þráinn Haf- steinsson í síma 5454- 500. Norðurbrún 1. Kl. 9- 16.45 opin vinnustofa, kl. 9-16 fótaaðgerðir, kl. 9- 12 tréskurður, kl. 10-11 sögustund, kl. 13-13.30 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Leir- námskeið hefst fimmtu- daginn 4. október, frá kl. 10-15. Innritun stendur yfir, takmarkaður fjöldi. Upplýsingar í síma 568- 6960. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10 sund, kl. 9-16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15-16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13-14 spurt og spjallað, kl. 13- 16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, hárgreiðsla, kl. 9.30 handmennt, kl. 10 morg- unstund, fótaaðgerðir og bókband, kl. 13.30 bók- band, kl. 13 kóræfing, kl. 14.30 verslunarferð. Álftanes. For- eldramorgunn í Hauks- húsum kl. 10-12 í dag. Heitt á könnunni. Félag áhugafólks og að- standenda alzheimers- sjúkra og annarra minn- issjúkra. Fræðslufundur verður haldinn fimmtu- daginn 20. september kl. 20 á Sólvangi við Sól- vangsveg í Hafnarfirði. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Fé- lagsvist kl. 12.30. Aflagrandi 40 og Hraunbær 105. Sameig- inleg haustferð um stór Reykjavíkursvæðið á vegum félagsmiðstöðv- anna verður fimmtudag- inn 27. september. Brottför frá Aflagranda kl.13.30 og frá Hraunbæ kl. 13.45. Ekið um borg- ina og nágrannabæina undir leiðsögn Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur. Nýju og gömlu hverfin skoðuð. Í lok ferðarinnar verður stoppað í Fjöru- kránni í Hafnarfirði, þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Skrán- ing í Aflagranda s. 562- 2571 og Hraunbæ s. 587- 2888. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spila- salur opinn kl. 13.30 Tónhornið. Kl. 13.30 lagt af stað í ferðalag til Hafnarfjarðar. Föstu- daginn 23. september kl. 16 opnar Valgarð Jörg- ensen myndlistarsýn- ingu, m.a. syngur Gerðu- bergskórinn undir stjórn Kára Friðriks- sonar. Í dag er miðvikudagur 19. sept- ember, 262. dagur ársins 2001. Imbrudagar. Orð dagsins: En hann sagði við þá: Þér eruð þeir, sem rétt- lætið sjálfa yður í augum manna, en Guð þekkir hjörtu yðar. Því það, sem hátt er að dómi manna, er við- urstyggð í augum Guðs. (Lúk. 16, 15.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 gaffals, 4 ganga ójafnt, 7 góðmennska, 8 skjálfa, 9 ráðsnjöll, 11 ró, 13 uppmjó fata, 14 saumaði lauslega, 15 þráður, 17 hendi, 20 trylla, 22 poka, 23 þáttur, 24 ræður við, 25 undirnar. LÓÐRÉTT: 1 tónverkið, 2 skurður- inn, 3 handfæraveiðar, 4 bjarndýrsungi, 5 gladdi, 6 dýrin, 10 heldur, 12 greinir, 13 skil, 15 næða, 16 auðugan, 18 rándýr, 19 eldstó, 20 guðir, 21 hags. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bardaginn, 8 játar, 9 akkur, 10 kot, 11 meina, 13 Teits, 15 hæsin, 18 sigla, 21 ern, 22 groms, 23 atóms, 24 staðfasta. Lóðrétt: 2 aftri, 3 dýrka, 4 glatt, 5 nakti, 6 hjóm, 7 gras, 12 nýi, 14 efi, 15 hagl, 16 skolt, 17 nesið, 18 snara, 19 gróft, 20 assa. K r o s s g á t a NÚ VILL dómsmálaráð- herra stuðla að fækkun á lögreglumönnum í sparn- aðarskyni. Á sama tíma er varla hægt að fletta dag- blöðum eða horfa á sjón- varp vegna frétta af glæp- um af öllu tagi hér í okkar litla þjóðfélagi. Það virðist vera mikið um að fíkniefna- gengi séu að færa út sína starfsemi og eru farin að vinna með skipulögðum hætti að fjármögnun fíkni- efnainnflutnings. Innbrota- faraldur er búinn að vera viðvarandi í langan tíma í hús, fyrirtæki og bíla og eru þar að verki vinnumenn fíkniefnaheildsala. Hand- rukkarar eru orðnir á hverju strái og eru þar að verki vinnumenn fíkniefna- heildsala. Á sama tíma og viðskiptin eru blómleg og standa sem hæst hjá þess- um glæpamönnum þá er það eina sem stjórnvöldum kemur í hug að fækka í lög- reglunni í sparnaðarskyni. Þá spyr ég: Í sparnaðar- skyni fyrir hvern? Enginn getur grætt neitt á því ef glæpir aukast í þjóðfélag- inu né þegar fleiri og fleiri ungmenni verða fíkniefn- um að bráð. Það kallar á fleiri meðferðarheimili og aukinn kostnað hjá hinu op- inbera. Einstaklingar, fyr- irtæki og tryggingafélög verða fyrir tjóni vegna inn- brota af ýmsu tagi og vegna handrukkara sem einskis svífast. Það er nokkuð ljóst hverjir fara með sigur af hólmi verði fækkun í liði lögreglu. Sigurvegarinn er númer eitt, fíkniefnaheild- salar landsins svo og þjófar og handrukkarar. Sölu- menn dauðans vinna og þeir sem tapa er öll þjóðin. Það hefði verið mun gleði- legra ef stjórnvöld hefðu nú ætlað að taka virkilega á málunum og ráðast til at- lögu gegn glæpastarfsem- inni í landinu. Mig minnir að það hafi verið á stefnuskrá ríkis- stjórnarinnar að útrýma fíkniefnunum. Það verður ekki gert með slagorðum. Innheimtumenn sem bera starfsheitið handrukkarar eru orðnir á hverju strái og virðist svo vera að lögregl- an sé vanmáttug lagalega séð gagnvart þessum glæpamönnum. Þeir geta setið um fólk og fjölskyldur vikum og mánuðum saman og hrellt fólk án þess að lögreglan fái rönd við reist. Það þarf lagabreytingu í þessum efnum strax sem fórnarlömb þessara glæpa- manna geta nýtt sér án ein- hverra takmarka. Ef til fækkunar í lögreglu kemur, vil ég tafarlausa lagabreyt- ingu um þyngingu dóma í opinberum málum. Dómar í opinberum málum eins og t.d. í fíkniefnamálum eru allt of vægir miðað við önn- ur lönd. Oft eru þetta sömu aðilarnir sem standa að glæpum aftur og aftur vegna þess að þeir eru úti í þjóðfélaginu í stað þess að vera á bak við lás og slá. Að lokum vil ég skora á hæstvirtan dómsmálaráð- herra að taka á þessum málum með myndarskap og bæta löggæsluna í landinu. Einnig að stuðla að breyt- ingu á lögum í opinberum málum á þann veg að dóm- urum landsins verði gert kleift að dæma glæpamenn til lengri fangelsisvistar. Með von um aðgerðir. Ómar Arnarson, 150666-3419. Enn um umferðarteppu ÉG ER sammála Sigur- laugu sem skrifar í Velvak- anda sl. laugardag um um- ferðarteppu í Garðabæ. Ég er ein af þeim sem sitja föst í umferðarteppu á hverjum morgni á leiðinni úr Hafn- arfirði til Reykjavíkur og virðist sama hvenær ég legg af stað í vinnuna, ég lendi alltaf í umferðar- teppu. Fyrsta umferðarteppan sem ég lendi í er á ljósunum við Lækjargötu/Reykja- nesbraut, næst er það í Engidalnum og alveg í gegnum Garðabæinn. Þeg- ar komið framhjá ljósunum í Garðabænum gengur um- ferðin mjög vel alveg þar til komið er á Kringlumýrar- braut í Fossvogi. Ég tel að það sé löngu orðið tíma- bært að gera eitthvað í þessum málum og mætti t.d. bæta við akreinum í gegnum Garðabæinn. Ég hef reynt að prófa að fara Reykjanesbrautina, fram- hjá Vífilsstöðum, en þar er ástandið ekkert betra. Hef ég tekið eftir því að á Reykjanesbrautinni er mikið af þungaflutningabíl- um sem draga umferðina niður, eru þessir bílar t.d. mjög lengi að taka af stað á ljósunum og halda þar af leiðandi umferðarhraðan- um niðri. Einn daginn sem ég prófaði að fara þá leið voru fyrir framan mig fjór- ir vörubílar, fulllestaðir, og fyrir aftan mig voru tveir flutningabílar og ein rúta. Komu þessir bílar allir að sunnan eftir Reykjanes- brautinni. Dettur mér til hugar að ef sett væri tak- mörkun á þessa þunga- flutninga á þessum mesta álagstíma á morgnana myndi ástandið kannski lagast. Helga. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Bætum lög- gæsluna í landinu Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur aldrei veriðneitt sérstaklega hrifinn af Hamraborginni. Þá er ekki verið að tala um ágæta verslunarmiðstöð í Kópavoginum né heldur fagra klettaveggi víðs vegar um landið. Nei, hér er Víkverji að tala um söng- lag eitt mikið sem tenórar þessa lands hafa keppst við að kyrja. Hefur lagið þótt einstaklega vel til þess fall- ið að sýna glæsileika og styrk radda þessara háróma söngmanna enda hefur það minnt einna helst á íþróttakappleik að verða vitni að því þegar lagið atarna hefur verið flutt. Nýlega brá svo við að Víkverji skellti sér á tónleika. Var þar enginn ómerkari söngmaður en Kristinn Sigmundsson sem þandi gullbarka sinn við undirleik Jónasar Ingimund- arsonar. Varð Víkverji forviða er hann sá að á dagskránni var þessi einkennissöngur tenóranna en Krist- inn er sem kunnugt er barrítón- söngvari mikill og djúpur. Víkverji andaði þó léttar á upp- hafstónum söngsins þegar honum varð ljóst að lagið hafði verið flutt niður um tóntegund svo ekki kom til ótilhlýðilegrar raddstrekkingar söngvarans. Þvert á móti kom fljót- lega í ljós að texti lagsins hafði að geyma töfraheim sem hingað til hafði verið eyrum Víkverja hulinn. Í með- förum þessara heiðursmanna spruttu fram álfar og huldufólk í stórkostlegu landslagi Hamraborg- arinnar sem hafði bæði að geyma töfrandi fegurð og hrikalegar hættur en hafa verið svo vandlega faldar á bak við íþróttamannslega tilburði tenóranna. Víkverji gæti verið miklu skáld- legri en hvetur þess í stað Kristin til að taka fleiri tenóralög á sína söng- lagaskrá hið fyrsta. x x x SÉRÐU þetta bleika, sagði lítillfrændi Víkverja eitt sinn dreym- andi á svip þegar honum var hrósað fyrir það hversu fínn hann var með nýju gleraugun sín. Sá stutti hafði haft uppi mótmæli gegn því að þurfa að ganga með þessi sjóntæki í andlit- inu en sættist loks á það með því skil- yrði að hann fengi bleika umgjörð. Móðir piltsins var ekki par ánægð því einhvern veginn fannst henni bleikt ekki vera alveg rétti liturinn fyrir litla stráka og kveið því óskap- lega að sonurinn spígsporaði um göt- ur og torg með gleraugun á trýninu, til óræks vitnisburðar um hversu ósmekklega foreldra hann ætti. Þetta atvik kom upp í huga Vík- verja á dögunum þegar hann rök- ræddi við félaga sína um það hvort raunverulegur munur væri á kynj- unum frá fæðingu eða hvort þetta væri bara allt saman lært. Á hinn bóginn fékk sonur Víkverja eitt sinn leikfangakúst og fægiskóflu í afmælisgjöf og var Víkverji bara nokkuð ánægður með hvursu nú- tímalegt uppeldi drengurinn fengi þar sem hann lærði bæði að sópa og fægja gólf frá blautu barnsbeini. Draumurinn varði þó ekki lengi. Skipti engum togum að í meðförum drengsins breyttist kústurinn í stór- hættulegt barefli sem húsbúnaður og annað lauslegt á heimilinu fengu að kenna á. Leið ekki á löngu þar til hreinsunartækin voru komin inn í læsta geymslu og eru ekki tekin það- an út nema þá helst þegar litlu frænkur eigandans koma í heimsókn. Hið jafnréttismeðvitaða uppeldi verður að bíða betri tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.