Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 52

Morgunblaðið - 19.09.2001, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er nú í opinberri heim- sókn í Grikklandi. Meðal dag- skrárliða var heimsókn forsetans og föruneytis hans á mat- vörumarkaðinn í miðborg Aþenu þar sem nokkur fyrirtæki hafa um langt árabil selt íslenskar sjávarafurðir og þá fyrst og fremst saltfisk. Forsetinn heim- sótti m.a. fyrirtæki sem selja vörur frá Sölku sjávarafurðum, Jóni Ásbjörnssyni hf., B. Bene- diktssyni ehf. og jafnframt versl- un sem selur saltfisk frá SÍF Hellas í Aþenu. Fyrirtækið er í 34% eigu Lyberopoulos-fjölskyld- unnar en þrír ættliðir fjölskyld- unnar hafa selt íslenskan saltfisk í Grikklandi frá því á fyrri hluta 20. aldar. Fyrirtækið er nú rekið af systkinunum Yannis, sem er framkvæmdastjóri SÍF Hellas, og Irenu Lyberopoulos en þau eru börn Constantine Lyberopoulos, ræðismanns Íslands í Grikklandi, og hinnar íslensku konu hans, Emilíu Kofoed-Hansen. Morgunblaðið/Kristinn Á ferskfiskmarkaðnum í Aþenu. Lengst til vinstri er grískur fiskkaupmaður, þá Constantine Lyberopoulos, ræðismaður Íslands í Grikklandi, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff og Yannis Lyberopoulos, framkvæmdastjóri SÍF Hellas. Forsetinn á fisk- markaði í Aþenu  Efla þarf samskipti/6 MARGSLUNGIN hlutabréfavið- skipti í tengslum við kaup Olíufélags- ins og Olís á Samskipum í gær höfðu það að höfuðmarkmiði að koma í veg fyrir meinta yfirtöku á Olíufélaginu, Olís og VÍS samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins en eignarhald allra þessara félaga er innbyrðis mjög tengt. Tilkynnt var um kaup Olíufélagsins hf. (ESSO) á hlutabréfum í Samskip- um hf. að nafnverði 445 milljónir króna, sem eru 42% af hlutafé félags- ins. ESSO átti fyrir 7,7% í Samskip- um þannig að félagið á nú 49,7% af heildarhlutafénu. Kaupverðið verður greitt með hlutabréfum í eigu ESSO. Jafnframt var í gær tilkynnt um kaup Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) á 10% af hlutafé Samskipa, þ.e. 105 milljónir króna að nafnverði. Seljendur hlutabréfanna í Sam- skipum eru Jón Þór Hjaltason, kenndur við Jóna, Jón Kristjánsson í Sund hf. og Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa. Þá var tilkynnt í gær að ESSO hefði gengið frá kaupsamningi um sölu á eigin bréfum, þar með töldum eigin bréfum sem ESSO mundi eign- ast við slit á Traustfangi ehf. Um er að ræða 6,3% af heildarhlutafé félags- ins að nafnverði 62.239.827 krónur. Kaupendur eru áðurnefndir Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólaf- ur Ólafsson, sjálfir og fyrir hönd aðila sem þeir hafa umboð frá. Fyrir eiga Kjalar ehf., sem er í meirihlutaeigu Ólafs Ólafssonar, 6,9% hlut í ESSO, og Sund hf., sem er í eigu Jóns Kristjánssonar og fjölskyldu hans, 5,2% hlut í ESSO. Ennfremur var tilkynnt í gær að Jón Þór Hjaltason, Jón Kristjánsson og Ólafur Ólafsson hefðu sjálfir og fyrir hönd aðila sem þeir hafa umboð frá, samtals keypt um 22,4% í Vinnslustöðinni, m.a. af ESSO. Kaup Straums í olíu- félögunum vekja athygli Þó að yfirlýstur tilgangur kaup- anna sé að stofna til samstarfs Sam- skipa hf. og Olíudreifingar ehf., dreif- ingarfyrirtækis ESSO og Olís, í rekstri dreifikerfa félaganna og að ná með því fram sparnaði og hagræð- ingu, þá segja heimildir Morgun- blaðsins höfuðmarkmiðið hafa verið að koma í veg fyrir meinta yfirtöku á Olíufélaginu og Olís, og jafnvel Vá- tryggingafélagi Íslands, VÍS. Olís er að hluta til í eigu Olíufélagsins og mikil eignatengsl eru milli Olíufélags- ins og VÍS. Samskip og aðilar þeim tengdir eru hins vegar meðal stærstu hluthafa í Olíufélaginu og með kaup- unum á Samskipum er samkvæmt heimildum blaðsins verið að tryggja sem besta nýtingu á hlutabréfaeign núverandi meirihlutaeigenda til að standast áhlaupið. Athygli hefur vakið að Fjárfestinga- félagið Straumur, sem er í eigu Ís- landsbanka, hefur að undanförnu stór- aukið hlut sinn í báðum olíufélögunum, og er sagt vera komið með um eða yfir 20% hlut í Olíufélaginu, rétt undir 10% í Olís en upp undir 13% með bréfum aðila sem ætla hefur mátt að væru þessum áformum hliðhollir. Í hópi núverandi meirihlutaeigenda olíufélaganna og fyrrum Sam- bandsfyrirtækjanna, Samskipa og VÍS, hefur verið talið að Straumur væri ekki að kaupa þessi bréf fyrir eigin reikning heldur standi öflugir aðilar í viðskiptalífinu á bak við yf- irtökutilraunina, þótt ekki hafi komið fram hverjir það eru. Tilgangur þeirra er sagður hafa verið að leysa félögin upp, selja arðbærar einingar út úr þeim en sameina aðrar öðrum félögum eða fyrirtækjum. Kaup Olíufélagsins og Olís á meirihluta í Samskipum Mikil viðskipti til að hindra yfirtöku  Markmiðið/17 Í GREINARGERÐ borgarlög- manns, sem lögð var fyrir borgarráð í gær, er mælt með því að rekstr- arformi Orkuveitu Reykjavíkur verði breytt og fyrirtækið gert að sameignarfélagi eða hlutafélagi. Hlutafélagsformið er hins vegar mun æskilegra að hans mati. „Ég held að hlutafélagaformið sé að mörgu leyti mjög heppilegt form í svona fyrirtækjarekstri. Það má hins vegar kannski segja að sporin hræði. Það eru mjög margir sem ekki treysta því að þegar verið er að breyta opinberum fyrirtækjum í hlutafélög ætli sá aðili að eiga fyr- irtækið áfram. Menn líta oft á það sem fyrsta skrefið í átt til einkavæð- ingar, en við í meirihluta borgar- stjórnar Reykjavíkur höfum engan áhuga á að einkavæða fyrirtækið,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Ágreiningur í borgarráði Í áliti Hjörleifs Kvaran borgarlög- manns segir að nauðsynlegt sé að breyta rekstrarformi Orkuveitunnar samhliða því að nýir aðilar eignist hlut í félaginu. „Almennt verður að telja að sameignarformið eða hluta- félagaformið henti vel starfsemi fé- lagsins en hlutafélagaformið hefur ótvíræða kosti þegar til framtíðar er litið. Þá þykir ennfremur ljóst að byggðasamlag getur ekki á sama hátt komið til móts við þarfir Orku- veitu Reykjavíkur né hentar það rekstrarform fyrirtæki á samkeppn- ismarkaði,“ segir í greinargerðinni. Sjálfstæðismenn hafa lagt fram tillögu í borgarstjórn um að þegar í stað verði hafinn undirbúningur að því að breyta Orkuveitunni í hluta- félag og að þriggja manna undirbún- ingshópi verði falið að vinna tillögur og leggja fyrir borgarráð. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðis- manna, segir óeðlilega að málum staðið af hálfu borgarstjóra. Hún hafi með stuttum fyrirvara lagt fram í borgarstjórn greinargerð borgar- lögmanns og tillögu um málsmeð- ferð. Eðlilegt hefði verið að fresta málinu þar sem fyrir hafi legið til- laga um málið í borgarstjórn. Tillag- an verður rædd á borgarstjórnar- fundi á morgun. Álit borgarlögmanns um rekstrarform Orkuveitunnar Mælir með að Orku- veitan verði hlutafélag  Stjórn veitustofnana/28 NÝR tölvuormur fór eins og eldur í sinu um heiminn í gær og gerði m.a. usla hér á landi. Friðrik Skúlason tölvufræðingur segir að ormurinn sé að mörgu leyti merkilegur. Þeir sem bjuggu hann til reyndu að fela slóð sína og m.a. var reynt að láta líta svo út að ormurinn hefði verið sendur frá tölvu Friðriks. Fram kom á CNN í gær að bandaríska leyniþjónustan FBI væri að rannsaka dreifingu ormsins. „Þetta er að mörgu leyti þræl- merkilegur ormur. Hann sameinar það að vera venjulegur ormur, sem sendir sjálfan sig í tölvupósti, og það að vera hljóðskrá. Sum tölvupóstfor- rit eru þannig að ef þú færð hljóð- skrá senda í pósti á vissan hátt þá er hún keyrð sjálfkrafa.“ Friðrik sagði að ormurinn nýtti sér galla í tölvupóstforritinu og þar sem hann væri að finna dygði ekki þessi almenna ráðlegging að smella ekki á viðhengi. Hann sagði að ein- hverjir væru skipulega að dreifa orminum úti í heimi með því að senda falsaðan tölvupóst. „Þannig voru einhver skeyti send út þar sem ég var gefinn upp sem sendandi.“ Friðrik sagði að ormurinn galopn- aði allar tölvur þannig að trúnaðar- upplýsingar lægju opnar fyrir hverj- um sem vildi skoða þær. Nýr tölvu- ormur gerir usla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.