Vísir - 04.10.1979, Qupperneq 16
'~U'
TJm sjón:
Sigurveig
.lóns'Jjttir
VÍSIR
Fimmtudagur 4. október 1979
Félagar E1 Comediants frá Barcelona veröa meöal gesta á Listahátiö. Þeir eru þekktir fyrir ýmis
skringileg uppátæki og hér sjáum viö eitt þeirra.
Llslahátíð pantar verk Driggja llstamanna:
Barnaieikrít.
grafíkmyndlr
09 tðnverk
„Viö vildum stuöla aö þvi aö
ný listaverk verði til án þess aö
listamönnum sé otaö saman i
samkeppni”, sagði Njöröur P.
Njarövik, formaöur fram-
kvæmdastjórnar Listahátiðar á
fundi meö fréttamönnum á
þriðjudaginn.
í samræmi við þessa stefnu
var þrem listamönnum falið að
semja verk fyrir næstu lista-
hátið, sem verður 1.-20. júni
1980.
Guðbergur Bergsson fékk það
verkefni að semja barnaleikrit
til flutnings á leiksviði, Ragn-
heiður Jónsdóttir gerir röð
graffkmynda og Gunnar Reynir
Sveinsson semur tónverk fyrir
litla jazzhljómsveit og sinfóniu-
hljómsveit.
Fyrir þessi verk fær hver
listamannanna 1,5 milljónir
króna og verða verkin öll liöur i
Listahátið.
Þau Ragnheiöur og Gunnar
Reynir kváðust ekki vera að
ráði byrjuð á sinum verkum
ennþá, en Guðbergur kvað leik-
ritið næstum tilbúið.
Það fjallar um verur á reiki-
stjörnu, sem vilja komast til
jarðarinnar og um þá ferð
þeirra. Leikurinn endar, þegar
verurnar sjá jörðina og ibúa
hennar sem eru börnin i leik-
húsinu.
„Það er allt i þessu leikriti,
sem börn vilja hafa með”, sagði
Guðbergur, „ævintýri, hættur,
kóngar og drottningar”.
Leikritið verður væntanlega
fært upp i Þjóðleikhúsinu.
Margir kallaðir
Annar undirbúningur Lista-
hátiðar er vel á veg kominn og
kvaöst Njöröur vonast til að
endanleg dagskrá verði tilbúin
um áramótin. Nokkrir heims-
frægir listamenn hafa þegar lof-
að þátttöku. Þeirra á meðal eru
tónskáldið John Cage, gitar-
leikarinn Göran Söllscher,
óperusöngvarinn Lugiano
Pavarotti, sem mun syngja með
Sinfóniuhljómsveit íslands
undir stjórn Kurt Adler, pianó-
leikarinn Alicia de Larrocha og
fiðluleikarinn Paul Zukofsky.
Auk þess kemur spænski leik-
hópurinn E1 Comediants og
irski þjóðlagasöngflokkurinn
The Wolfe Tones.
Framkvæmdastjórn Lista-
hátiöar er með mörg önnur at-
riði i sigtinu á sviöi myndlistar,
popptónlistar, jazz og leiklistar,
en ekkert þeirra er afráðið enn.
Erlendir listamenn hafa sýnt
hátlðinni mikinn áhuga og að
sögn framkvæmdastjórans,
örnólfs Arnasonar, berast dag-
lega bréf frá listafólki, sem vill
koma hingað.
Hátið úti og inni
„Okkur langar til að Lista-
hátiö i Reykjavik setji meiri
svip á bæjarlifið en verið hef-
ur”, sagði Njörður.
1 þeim tilgangi er ætlunin að
hafa ýmiss konar útiatriði og
eins eru uppi hugmyndir um
daglegan vettvang fyrir
hátiðina. Þar væri um að ræða
veitingastað, þar sem fólk gæti
komið hvaða kvöld sem er,
fengið sér bita og ef til vill létt
vin og búist við óvæntum uppá-
komum. Sá hluti hátiðarinnar á
ekki að vera skipulagður i öllum
atriðum fyrirfram.
óbreytt framlög
Kostnaður við Listahátiðina
hefur enn ekki verið áætlaður,
en hætt er við aö hver aðgöngu-
miði verði talsvert dýrari en
Formaður framkvæmdastjórn-
ar Listahátiðar, Njörður P.
Njarðvik, ásamt listamönnun-
um Guðbergi Bergssyni, Ragn-
heiði Jónsdóttur og Gunnari
Reyni Sveinssyni. Visismynd:
JA
siðast. Astæðan er sú, að fram-
lög rikis og borgar hafa verið
óbreytt að krónutölu frá upp-
hafi, eða 3,3 milljónir frá hvor*
um aðila árlega. Að sögn
örnólfs jafngilti upphaflega
framlagið 40 milljónum króna á
núgildandi verðlagi.
Hins vegar ábyrgjast riki og
borg hugsanlegan halla af
Listahátið.
Kvikmyndahátíð í febrú-
ar
Kvikmyndahátíð Listahátiöar
verður haldin 1.-12. febrúar n.k.
Enn er ekki ákveðið hvaða
myndir verða fengnar, en fram-
kvæmdastjórn Listahátiöar
kvaðst hafa allan heiminn undir
i þvi efni.
Sérstakir gestir á hátiðinni
veröa kvikmyndaleikstjórarnir
Carlo Saura og Andrzej Wajda
og koma þeir með eigin kvik-
myndir. Væntanlega kemur
Saura meö alveg nýja kvik-
mynd, sem enn hefur ekki verið
frumsýnd.
Auk þeirra hefur Berto Lucci
verið boðið að koma, en hann
hefur ekki gefið svar ennþá.
Kvikmyndahátiðin verður i
Regnboganum, en þar veröa
möguleikar á að hafa 25 sýning-
ar daglega eftir að fimmti salur
hússins hefur veriö tekinn i
notkun.
—SJ
The Wolfe Tones eru um þessar mundir einn vinsælasti þjóðlagahópurinn I Irlandi.
11 Colllngwood-
myndir bætast l
ÞjóDmlnjasafniD
Þjóðminjasafn íslands fékk ný-
lega afhentar úr dánarbúi Mark
M. Watsons i Lundúnum ellefu
vatnslitamyndir eftir enska
málarann W.G. Collingwood, sem
hann málaði hér á ferð sinni 1897.
Þessar myndir eru hluti hinnar
stóru gjafar Mark Watsons til
Þjóðminjasafnsins frá árunum
1964-65, en þá gaf hann safninu
allar myndir Collingwood, sem
hann hafði getað komið höndum
yfir. Flestar myndirnar afhenti
hann þá strax, en þessar ellefu
óskaði hann að hafa á heimili sinu
meðan hann lifði, en þær má telja
með albestu myndum Colling-
woods af söguslóöum hér á landi.
Mark Watson lést hinn 12. mars
sl„ en hann hafði alla tið sýnt
Þjóðminjasafni Islands sérstaka
velvild og gefið þvi rausnarlegar
gjafir. Hann var mikill Islands-
vinur, kom oft hingað til lands og
hafði mikinn áhuga á að kynnast
islensku þjóðlifi.
Árið 1939 skoðaði hann Glaum-
bæ i Skagafirði og varð svo hrif-
inn af þessum stóra og merka
torfbæ, að hann gaf 200 sterlings-
pund, sem þá var stórfé ef verða
mættu bænum til björgunar. Varð
það til þess aö hafist var handa
um viðgerð hans.
Um langt árabil auglýsti Mark
Watson stöðugt i blöðum ytra
eftir myndum Collingwoods og
eignaðist smám saman mikinn
meirihluta þeirra mynda, sem
hann málaði hér á ferð sinni með
dr. Jóni Stefánssyni um sögu-
slóðir Islendingasagna áriö 1897.
Gaf hann Þjóðminjasafninu siðan
myndirnar, svo sem fyrr getur,
alls 162 vatnslitamyndir og eitt
oliumálverk, þar af 135 afarvand-
lega innrammaðar. Siðar gaf
hann svo safninu 8 myndir eftir
enska málarann Edward Dayes,
sem geröar voru eftir frum-
teikningum úr Stanley-
leiðangrinum 1789 og 4 myndir
eftir enska málarann Nicholas
Pocock frá sama tíma og enn-
fremur 6 pennateikningar eftir
danska málarann H.A.G. Schiött
frá um 1865. Meðal gjafa Watsons
ereinnig oliumálverk frá Reykja-
vik 1862 eftir A.W. Fowles. Þá gaf
hann siöar stækkaðar og vand-
lega frágengnar ljósmyndir, sem
Collingwood tók i ferð sinni, svo
og allmargar myndir, sem Wat-
son tók sjálfur i ferð sinni um
landið 1937-38.
Þessar myndir, sem Mark Wat-
son hefur þannig gefið safninu,
eru ein stærsta og verðmætasta
gjöf, sem safnið hefur nokkurn
tima fengið. Margar þeirra eru
prýðisgóð listaverk, en allar hafa
þær griðarmikið heimildargildi
um þjóðlif fyrrum, byggingar at-
vinnuhætti, klæðnað fólks og
margt annað sem fáar myndir
aðrar eru til af frá þessum tim-
um. Verða þessar gjafir Mark
Watsons seint fullþakkaðar.
Hinum nýfengnu myndum hef-
ur verið komið fyrir i sýningarsal
Þjóðminjasafns Islands, þar sem
einnig eru sýndar myndir úr fyrri
gjöfum Mark Watsons.
A skátadaginn n.k. sunnudag veröur starfsemi skáta kynnt við Réttar-
holtsskóla og væntanlega verður ekki minna fjör en hjá ungu skátunum
á myndinni.
Skátatjaldbúð við
Réttarholtssköla
Skátadagur fyrir ibúa i Smá-
ibúða-, Bústaða og Fossvogs-
hverfi er sunnudaginn 7. okt. n.k.
við Réttarholtsskóla kl. 14-18.
Skátafélagið Garðbúar vill með
þessum skátadegi kynna skáta-
starfið i sérstakri skátatjaldbúð
sem reist verður við skólann.
Skátarnir vilja hvetja alla ibúa
hverfisins til að koma og skoða
tjaldbúðirnar og fá sér skátakakó
i leiðinni. Skátar munu sýna al-
menn skátastörf. Innritun nýrra
félaga fer fram á sama tima en
ársgjald fyrir 9-10 ára er kr. 4000
en fyrir 11 ára og eldri er kr. 5000.
Allir „gamlir” skátar eru einnig
velkomnir.
DíoMínan
Það er alltaf mikið um að
vera á haust og vetrartisku-
sýningunum i Paris. Myndin er
frá sýningu tiskuhúss Christian
Dior, en þar voru sýndir margir
skemmtilegir kjólar. Kjóllinn á
myndinni er gott dæmi um þá
tiskulinu sem verður i vetur.
Breið belti og þröngar ermar
voru áberandi og ekki vantaði
viddina i pilsin.