Vísir - 23.11.1979, Qupperneq 12

Vísir - 23.11.1979, Qupperneq 12
Föstudagur 23. nóvember 1979 Hringirnir kosta, frá kr. 38 þiisund, kr. 164 þúsund, kr. 211 þúsund og tvær milljónir fjögur hundrubog fimmtiu þúsund. Visismyndir — GVA. Skartgripir á ýmsu veröi: Efra hálsmeniö kostar kr. 114 þúsund en þaö neöra 159 þúsund. Eyrnalokkarnir kosta 139 þúsund. MEDHUS A EINUM OG BIL FINGRI tsiendingar eru nú farnir að Ijárfesta í demönlum, eins og aðrar stórbjóðir Það er kunnara en frá þurfi að segja að I verð- bólgubáli undanfarinna ára hefur fólk farið ýmsar leiðir til að tryggja verðmæti peninga sinna. Til skamms tima var arðvænlegt að fjár- festa i húsnæði og verðtryggð skuldabréf rikis- sjóðs hafa einnig selst vel. Nú hefur enn eitt fjárfestingasvið bæst við, þótt það sé ekki orðið umfangsmikið ennþá, menn eru farnir að kaupa dýra demanta. Skartgripir hafa raunar lengi selst vel hér á landi, en undan- farin eitt eöa tvö ár hefur fariö aö bera á þvi aö þeir eru keyptir meira sem bein fjárfesting en annaö. „Þetta er 1 rauninni ákaflega eölilegt”, segir Siguröur Stein- þórsson, annar eigandi verslunarinnar Gull og silfur. Demantar hækka jafnvel enn meira en veröbólgan hér á tslandi og þeir eru nú orönir tollfr jálsir vegna EFTA samninga okkar. Nú undan- fariö, t.d. meöan veröbólgan hefur veriö 30-50 prósent hefur veröhækkun á demöntum veriö 80—90 prósent. Þaö má segja aö fyrsta áriö sé demanturinn aö borga söluskatt og álagningu, svo og verö- bólguna, eri svo byrjar hann aö vaxa aö verömæti”. Svissneskt umboð ,,En hvaö meö gull?” „Gull er auövitaö keypt lika og þaö hafa oröiö geysilegar I veröhækkanir á gulli á þessu 'a ;. en demantar hækka aö I ....fnaöi töluvert meira”. ,,Er einhver markaöur fyrir jl „notaöa” skartgripi hér á 1 ~_i: o '» „Nei, ekki ennþá. Hinsvegar er enginn vandi aö selja þá er- lendis. Reglurnar hér á landi eru þannig aö þaö má einungis selja þessi verömæti i formi skartgripa. Viö gætum auöveld- lega útvegaö gull og gimsteina sér, ef þaö mætti, þar sem viö erum umboösaöilar fyrir svissneska gullbankann, en þaö rýrir ekkert gildi þessara hluta aö þeir skuli vera i skart- gripum”. 18 milljóna hringur Siguröur sýnir okkur nokkra skartgripi á mismunandi veröi. Dýrasti gripurinn i búöinni er hringur úr hvitagulli (14 karata) meö demanti sem er 0,80 karöt. Þessi gripur kostaöi I sept- ember kr. 2.140.000. Samkvæmt nýrri veröskrá sem Siguröur var aö fá er hann 310 þúsund krónum dýrari i dag. Af þessari upphæö er verö steinsins 1,6 milljónir. En þaö er enginn vandi aö gera stærri fjárfestingu, ef menn eiga aurana. Siguröur nefndi sem dæmi tvéggja karata stein sem er 8,40 mm um sig. Hann kostar hingaö kominn 16,8 milljónir. 1 gullhring yröi söluverö út úr búö 17 eöa 18 milljónir. Þetta gæti veriö at- hugandi fyrir þá sem eru aö flytjast úr landi og ætla til dæmis aö selja hús og bil. Eins og allir vita er mjög tak- markaö þaö fjármagn sem menn mega hafa meö sér þegar þeir yfirgefa ættjöröina og þaö þýöir litiö aö fara meö feröa- tösku af íslenskum krónum til aö skipta erlendis. Hinsvegar er hægt aö fjár- festa þessar krónur hér heima og fara meö þær úr landi á einum fingri. En geta menn veriö vissir um aö fá ósvikna vöru? „Þaö geta menn ekki veriö vissir um erlendis”, segir Siguröur. „Viö höfum oftar en einu sinni þurft aö valda fólki vonbrigöum þegar þaö hefur komiö til okkar meö skartgripi sem þaö hefur keypt erlendis og viljaö láta okkur meta til vonar og vara. Þetta þurfa menn ekki aö óttast hjá islenskum gull- smiöum, þótt ekki væri annaö þá er markaöurinn svo þröngur aö ekki þýöir aö reyna svik af neinu tagi. Þaö fylgja lika skír- teinimeö skartgripum hér, þar sem gullsmiöurinn ábyrgist efnislegt verömæti þeirra. Þaö er þvi óhætt aö segja aö skartgripir sem eru keyptir hjá Islenskum gullsmiöum séu örugg fjárfesting. Og þetta er ekki fjárfesting sem er bundin viö þá sem velta sér i millj- ónum, við eigum demants- hringa alveg niöur i 38 þúsund krónur. Þaö getur þvi hver fjárfest eftir sinni buddu. Það er þó rétt aö taka fram aö stóru steinarnir hækka meira í veröi en hinir minni þvi þaö eru þeir stóru sem þeir stóru spekúlera meö”.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.