Vísir - 06.12.1979, Page 1

Vísir - 06.12.1979, Page 1
Viðræður um stjórnarmyndun hefjast á morgun: „Ég er bjartsýnn” - seglr Steingrímur Hermannsson, sem nú hefur fengið umboð til myndunar meiríhlutastjðrnar ,,Ég er að vona að við getum hist i fyrramál- ið” sagði Steingrimur Hermannsson, formað- ur Framsóknarflokks- ins i morgun, þegar Visir spurði hvenær stjórnarmyndunarvið- ræður hæfust. Steingrimur fékk i gær umboð forseta Islands til stjórnar- myndunar og hefur hann sent Alþýðuflokki og Alþýðubanda- lagi bréf, þar sem hann óskar eftir viðræðum við þá. „Það er best að spá sem minnstu um gang mála” sagði Steingrimur „en ég er bjart- sýnn, þótt ég geti átt von á hverju sem er.” Framsóknarflokkur, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag hafa boðað þingflokksfundi i dag og þá verður tekin afstaða til stjórnarmyndunarviðræðna. í morgun komu svo formenn flokkanna saman til að ræða þingstörfin, en stefnt er að þvi að þing komi saman um miðja næstu viku. Eitt af þvi, sem átti að ræða i morgun, var kjör þingforseta, en að sögn Steingrims torveldar það allar ákvarðanir i þinginu, ef flokkarnir hafa ekki komið sér saman um stjórnarmyndun. fyrir upphaf þings. Formenn Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags hafa lýst sig fúsa til viðræðna um stjórnar- myndun, en mörg ljón munu vera i veginum fyrir þvi, að þær beri árangur. Meðal annars eru skiptar skoðanir hjá flokkunum um visitölukerfið, kjördæma- skipun og utanrikismál. Sjá ennfremur á bls. 14. í morgun var veriö að reisa jólatré viö HafnarbiiBir viB Reykjavikurhöfn. Tré þetta, sem er um 18 metra hátt, er gjöf frá Wikingerrunde, þýskum félagsskap blaöamanna og fyrrverandi sjómanna. Ljósin á trénu veröa tendruö klukkan 16 á laugardaginn. Þetta er i fjórtánda skiptiö sem Wikingerrunde færir Reykjavikurhöfn jólatré. Visismynd:BG Fyrsta verk Karðlínu hjá Sinfóníunni Sinfóniuhljómsveit tslands flyt- ur á tónleikum sinum i kvöld verk eftir Karólinu Eiriksdóttur, Þetta er i fyrsta sinn sem verk er flutt eftir hana hérlendis. Karólina er menntuð I tónsmið- um i Bandarikjunum, og verk eftir hana hafa verið flutt þar i landi og á Norðurlöndum. Verkið sem Sinfóniuhljómsveit- in flytur i kvöld, nefnir Karólina „Notes”. Það samdi hún sumarið 1978. Sjá nánar Lif og list. —KP Karólina Eirlksdóttir er nú aö semja verk fyrir Kammersveit Reykjavikur. 18 dagar til jóla Bíræfnir hlófar í Kópavogi: Brutust inn f aðal- stuðvar Iðgregl- unnar Biræfni innbrotsþjófa á sér litil takmörk eins og best kom i Ijós i nótt þegar tveir menn brutust inn í höfuöstöövar lög- reglunnar i Kópavogi, skrif- stofu bæjarfógetans, en þær eru á efri hæö lögreglustöBv- arinnar. Lögreglumönnum sem voru á vakt á stöðinni þótti sem ekki væri allt með felldu er þeir urðu varir við umgang á skrifstofum fógeta laust fyrir klukkan hálf tvö i nótt. Brugðu þeir við skjótt og fóru upp á efri hæðina. Þar voru fyrir tveir menn um þritugt sem ekki töldust til starfsliðs fóget- ans og komu nokkrar vöflur á þá er þeir voru inntir eftir er- indi. Mennirnir voru þegar hand- teknir og kom i ljós að þeir höfðu klifrað upp á þak bil- skúrs lögreglunnar að húsa- baki og farið siöan inn um glugga fógetaskrifstofunnar. Annar mannanna hafði sést sniglast i afgreiðslu fógeta- skrifstofunnar I gærdag og hefur hann eflaust verið að kynna sér allar aðstæður. Tvimenningarnir eru grunaðir um að hafa fleiri innbrot á samviskunni. Þess má geta að eitt hús er á milli lögreglustöðvarinnar i Kópavogi og húss Rann- sóknarlögreglu rikisins. Hafa þjófarnir þvi verið á ansi heitu svæði. —SG

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.