Vísir - 12.01.1980, Qupperneq 12

Vísir - 12.01.1980, Qupperneq 12
Laugardagurinn 12. janúar 1980. ,* jr • f t * • * » » helgarpopp Eru álfar kannski menn? Stutt spjalt við Magnús Þór Sigmundsson um Álfaplötuna og fleira Eins og flestir vita er Magnús einn af hinum fjölmörgu popp tónlistarmönnum sem komnir eru frá Keflavik. Hann hefur verið í brans- anum i f jölmörg ár, bæði hér á landi og erlendis. Magnús hafði dvalið um skeið i Englandi er hann kom hingað i fyrra og hljóðritaði hér plötuna Álfar. — Magnús, af hverju álfar? Ég fékk hugmyndina a6 Alfa- plötunni fyrir um það bil tveim- ur árum. Það var enskur kunn- ingi minn Colin Stone sem gaf þá út bók sem hann kallaði Leg- end of the Gnomes. Útgefendur settu bókina á markað fyrir börn, en ég hugsa að boðskapur hennar hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim flestum. Það eru töluverðar pælingar sem liggja á bakvið verkið og mjög falleg hugsun. . — Trúir þú á álfa? Colin segir að það sé mikið um álfa i kringum hann, ég ætla ekkert að draga það i efa. Þvi eins og allir vita, þá er svo margt i kringum okkur sem ekki verður skýrt og þvi ekki álfar? Annars er Alfaplatan ekki byggð á neinni álfatrú. Það er veriðað skyggnast inn i hugskot mannsins og tekin fyrir þrá hans eftir betra og fallegra lifi i veröld sem hefur þrifist á spill- ingu og eyðileggingu. Alfarnir koma þarna inn i sem mismun- andi tákn. Þeir túlka hver fyrir sig ákveðinn eiginleika. — Er þetta ekki nokkuð gam- aldags rómantik? Alls ekki. Littu bara i kring- um þig. Ef þú á annaö borö hitt- ir persónu sem gefur sér tima til að hugsa um lifið og tilveruna i kringum sig, þá elur hún slika von sér i brjósti. Það mætti þá jafnvel segja að mörg verk okk- ar gömlu meistara hafi verið gamaldags á sinum tima. Þú getur jafnvel farið þúsund eða tvö þúsund ár aftur i timann og þá hefði slik hugsun verið alveg eins gamaldags. Þetta efni er siferskt og verður jafnferskt næsta ár og það verður eftir hundrað ár. Þetta er bara hlutur sem býr i hverjum manni, sem hugsar eitthvað. — Hvernig var að taka upp hérna á ný? Það var mjög gott. Aöstaða fyrir hljóðfæraleikara hefur batnaö mjög mikið á undanförn- um árum og eru fyrir hendi allir möguleikar að gera góða plötu. Við eigum fjöldann allan af góð- um hljóðfæraleikurum og við upptökuna naut ég góös af nokkrum úr þeirra hópi. Það sem mér fannst skemmtilegast við upptökuna var andrúmsloft- ið sem þar rikti. Hópurinn náði svo vel saman og oft á tiðum myndaðist einskonar andlegt kontakt sem var geysilega sterkt. Maður var eins og hlað- inn einhverri gifurlegri orku þannig að maður lagði allt sem maður átti i upptökuna og var gjörsamlega búinn á eftir. Þetta var allt saman mikil reynsla og skemmtileg. — Hvernig hefur það verið að vcra tónlistarmaður öll þessi ár? Þaðermikil reynsla: Þetta er oft erfitt lif og basl og ekki alltaf svo mikið upp úr þessu að hafa nema ánægjuna, en hún er lika ofar öllu. Ef maður leitast lika við að læra af reynslunni þá farnast manni betur. Það er gaman að geta komið fram með vel unniö verk og ekki er ánægjan minni ef áheyrendur taka vel á móti þvi. — Nú hefurðu aðallega samið texta á ensku þar til nú^hvers vegna? Þaö er nú það. Þetta byrjaði bara svona og þótt islenskan hafi upp á að bjóða mikinn orða- forða, þá er hún erfitt tungumál. Maður var lengi vel smeykur við textagerð á islensku þvi við erum kröfuhörð þjóð i þessum efnum. En mér finnst gaman að hafa byrjað á þvi nú og er ekki smeykur við þaö lengur. Ég naut lika góðrar aðstoðar og það hjálpaði mikið. — Nú hefur heryst að þið Jó- hann Helgason hafið verið að starfa saman á ný? Jú, við höfum tekið upp efni fyrir hljómplötu þar sem við verðum bara tveir. Hluti af þvi er efni sem við komum fram með i fyrra,annað er nýtt. — Ætlar þú aö starfa áfram hér á landi eöa hyggstu kannski fara út á ný? Það er ómögulegt að segja. Það verður bara að fara eftir aðstæðum og timinn einn getur skorið úr um það. — Ertu mcð eitthvað sérstakt á prjónunum fyrir framtiðina? Það er mjög margt sem mig langar til að gera. Ég hef veriö að vinna að ýmsu,meðal annars verki sem nefnist Mandroid. Það er heilsteypt saga og yrði þá i óperuformi. Verkið er nokkuð langt og ef það yrði gefið út þyrfti það helst að vera á tveimur plötum. Þema sögunn- ar er sigilt en i nokkuð ó- venjulegu formi á mjög skemmtilegan máta. Annars vonar maður bara aö framtiðin verði ánægjurik, þvi hvaö annaö er betra? — K.R.K. „Maður var lengi vel smeykur við textagerö á Islensku, þvl viö erum kröfuhörð þjóö I þessum efnum” Sameinud poppskrif Poppskrif Helgarblaös VIsis hafa meö þessum laugardegi verið sameinuð á eina siöu undir heitinu Helgarpopp. l'ndanfarna mánuði hafa poppgreinar I Helgarblaöi veriö tvær, þar af önnur um hljómplötu vikunnar svo- nefnda. Sá þáttur fellur niöur núna og Istaö hans verða birt- ar stuttar umsagnir um tvær nýjar (eða nýlegar) plötur á- samt einkunnagjöf, — ekki stjörnugjöf — heldur I hinu vlðkunna einkunnakerfi frá einum upp i tiu. Aðeins verða þð gefnar einkunnir i heilum og hálfum tölum. Við undirritaðir, sem að þessari siðu stöndum, vonum aö breytingarnar mælist vel fyrir og poppunnendur finni hér sitthvað við sitt hæfi. Gunnar Salvarsson Kristján Róbert Kristjánsson 12 „Þetta var mikil reynsla og skemmtileg” Commodores — Midnight Magic Motown STMA 8032. Commodores, bandarlska soul-rokk hljómsveitin, vakti fyrst umtalsverða athygli árið 1977, en bætti um betur i fyrra- sumar meö laginu „Three Times A Lady” — af ýmsum talið i hópi bestu popplaga siðari ára. Breiðsklfa þeirra Natural High seldist einnig i stórum upplögum. Þessum vinsældum fylgir Commodores vel eftir á Midnight Magic og frægðin hef- ur sist rénað. Stórlag á borð við „Three Times...” finnst að sönnu ekki en tvö rólegu lag- anna, „Sail On” og „Still” hafa náð mikilli hylli og platan er jafnbetri en sú fyrri. Soul-rokk hljómsveitir hafa i seinni tiö orðið býsna diskólegar, Commodores eru þar engin undantekning, en áberandi er hversu vel þeim tekst að laöa fram það besta i rólegu lögun- um. — Gsal Mike Batt & Friends — Tarot Suite Epic EPC 86099. Sinfóniuhljómsveit Lundúna hefur bæði að ejgin frumkvæði og annara fengtst við flutning á sinfóniskri popptónlist. Nægir aö nefna Classic Rock og War Of The Worlds i þessu sambandi, hvort tveggja geysi vinsælar plötur. A Tarot Suite liösinnir Lundúnasinfónian Mike Batt og félögum, sem eru m.a. Roger Chapman (fyrrum söngvari Family) og Colin Blunstone. Tarot svitan er frá höfundarins hendi byggð f tónum og tali á hinum kunnu Tarot spáspilum og er merkingu helstu spilanna gerö m.a. nokkur skil á innra hulstri. Mike Batt hefur tekist ótrúlega vel aö blanda saman rokki og klassik (þær tilraunir eru nú orðnar æði margar), tón- listin er ljóðræn, textarnir Ijóm- andi og efnið einkar áhugavert. þegar viö bætist lýtalaus flutn- ingur er ekki að sökum að spyrja.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.