Vísir - 12.01.1980, Qupperneq 13

Vísir - 12.01.1980, Qupperneq 13
vísm Laugardagurinn 12. janúar 1980. Vefslulok i Stúdíó 54? Nú er fokið i flest skjól fyrir hinu viðfræga diskóteki Stúdió 54 i New York. Eigendurnir hafa verið dregnir fyrir dómstóla, ákærðir um skattsvik og eitur- Ókeypis kynferðis- fræðsla Við húsleit fannst á skrifstofu Stúdió 54 fjöldi upplýsinga um gesti sem haldið var uppi á marjúana og kókaini á kostnað hússir.s. Einn þeirra hljóðar svo: „Kókain fyrir ... og ... ör- vandi fyrir Biöncu”, sem nátt- úrlega er Bianca Jagger, einn máttarstólpanna i glansveröld- inni. Þá höfðu þeir innréttað sérherbergi þar sem álika merkum aðilum var veitt ókeypis kynferðisfræðsla, aö sögn ákaflega tæknileg. Rubell og Schrager hafa reynt að klóra i bakkann með þvi að saka Hamilton Jordan, starfs- mannastjóra Hvita hússins, um að hafa neytt kókains meðan hann var gestur i diskótekinu og vilja vafalaust draga með þvi athyglina frá eigin afbrotum. Þetta hefur ekki tekist sem skyldi, Jordan hefur harðneitað þessum ásökunum og fengið stuðning Carters forseta. Það er nokkuð ljóst aö Stúdió 54 verður ekki mikið lengur i_ eigu þerra Rubells og Schragers | og jafnvel talið að þeir verði . settir undir lás og slá. En hvað | verður þá um glansstað „fina” i fólksins? Um það er engin leið | að segja nokkuð með vissu. Verði staðurinn ekki hreinlega _ lagður niður þá verða hinir nýju eigendur að sanna rækilega að . þeir beiti ekki jafnvafasömum viðskiptaháttum og þeir kump- ánar tveir. Þessir herramenn virðast hinir hressustu og i diskóstuði. lyfjamisferli, og svo kann að fara að þeir tapi diskótekinu og jafnvel að það verði hreinlega lagt niður. Stúdió 54 hefur um nokkurra ára skeið verið miðstöð „fina” fólksins í skemmtanaiðnaðin- um, leikara, söngvara, skemmtikrafta, rika fólksins og ýmiss konar fugla annarra. Þetta fólk stendur, eins og kunnugt er, i þeirri mjög svo hæpnu trú að það sé bæði betra, skemmtilegra og fallegra en annað fólk og tók því fegins hendi við Stúdió 54 þar sem það gat sýnt i verki hversu gott, skemmtilegt og fallegt það er. Þó diskótekið hafi náttúrlega átt að vera fyrir alla alþýðu manna fór þó fljótt svo að þangað safn- aðist „fina” fólkið í hrönnum og skemmti sér — undir þetta ýtti að dyraverðir eru sjálfráðir um það hverja þeir velja inn. Eigendur Stúdió 54 eru tveir menn, Steve Rubell og Ian Schrager og er sá siðarnefndi sonur „fjármálaráðherra” mafiunnar um langt árabil. Þeim tókst að gera diskótekið sitt mjög vinsælt sem áöur segir en beittu til þess ýmsum óprútt- num ráðum. Útveguðu eiturlyf Meðal annars leikur grunur á að þeir hafi séð völdum hópi sinna viðskiptavina fyrir ókeypis eiturlyfjum og þá aöal- lega kókaini. Liggur auðvitað i augum uppi að það voru helst einhverjir stórmerkir aðilar samkvæmisllfsins sem þeirrar þjónustu nutu, þannig gátu þeir Rubell og Schrager tryggt sér nægilegt magn af sliku fólki á staðinn og þá jafnframt að „venjulegt” fólk streymdi líka á staðinn i þeirri von að fá að berja einhvern snillinginn aug- um. Þá eru þeir kumpánar grun- aðir um að hafa beitt mútum og ógnunum til að tryggja diskó- tekinu sem hagstæöastan við- skiptagrundvöll og ljóst er að skattsvik þeirra nema tugum ef ekki hundruðum milljóna króna. Tengsl þeirra við mafiuna eru og i rannsókn. Útlit þeirra, sem sækja Studio 54 og aðra svipaöa staði, er oft hið furðulegasta eins og þessi mynd ber meö sér. J ff#%*1 *** * i;|| »*!**»* * **<»»«, *#** J« í« ^ * f I í * » * i| «* #»*«*' 4:44*¥ *H***uh< Annar eigenda Studió 54, Steve Rubell, fyrir utan dómhúsið i New York eftir að hann og Ian Schrager höfðu játað á sig skattsvik. K MOKKA FATNAÐUR SEMVEKUR ATHYGLI AFBORGUNARSKILMÁLAR GRAFELDUR HE BANKASTRÆTI SÍMI26540.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.