Vísir - 29.01.1980, Qupperneq 9
Þriðjudagur 29. janúar 1980
9
Hvergi er almennt tekiö jafnmikið tillit til fúlks, sem reykir ekki, eins og i farþegaflugi um heim allan
RETTUR ÞEIRRA SEM EKKI
REYKJfl ER Æ VfDAR VIRTUR
Það þykir ekki lengur sjálfsagt að reykingamað-
urinn geti dregið upp sígarettu og kveikt sér í nær hvar
sem vera skal. Takmörkun og bann við reykingum fer
hvarvetna vaxandi á samkomustöðum og í almennum
farartækjum. Réttur þeirra sem ekki reykja fer stöð-
ugt vaxandi og sífellt f leiri gera sér grein fyrir því að
reykingamenn hafa ekki rétt til að valda öðrum
heilsutjóni og óþægindum með því að eitra andrúms-
loftið hvar sem þeir fara.
L
Fyrsta flokks veitingahús i
Paris og New York, svo dæmi
séu tekin, bjóða nú mörg hver
upp á reyklaus borð. A þau eru
sett skilti sem banna reykingar
og hart er gegnið eftir þvi að
þessum reglum sé framfylgt.
Reykingar i almennings-
farartækjum eru víða bannað-
ar til dæmis i strætisvögnum,
og járnbrautarfyrirtæki leggja
áherslu á þaö i auglýsingum
sinum að bestu vagnarnir séu
reyklausir vagnar.
Bestu sætin reyklaus
Flugið er einn algengasti
ferðamáti nútimans og þar
hefur orðið mikil breyting á
siðustu árum til að koma i veg
fyrir að reykingamenn spilli
andrúmsloftinu fyrir þeim sem
ekki reykja. Algengasta að-
ferðin er að fremri hluti flug-
véla sé reyklaus en að öllum
jafnaði er einmitt þægilegra aö
sitja framarlega i hinum stóru
farþegaþotum sem nú eru i
notkun. Þetta hefur orðiö til
þess að margir sem reykja
kjósa að sitja i hinum reyk-
laus a hluta flugvéla og s tilla sig
alveg um að reykja þann tima
sem flugferöin tekur. Þá er það
einnig svo, að þegar margir
sitja þétt saman i flugvél og
reykja, veröur loftið svo ó-
hreint að mörgum reykinga-
manninum liður beinlinis illa.
Farþegar fyrri til
Margir hafa viljað koma á
banni við reykingum i áætl-
unarflugi, bæði af öryggis- og
heilsufarsástæðum. En svo
getur farið að flugfarþegar
verði á undan yfirvöldum i aö
stemma stigu við reykingum
meðan á flugferð stendur.
Flug Delta 436 frá Wes t Palm
Beach á Florida til Atlanta i
Georgiu sólfagran sumardag i
íyrrasumar, gefur bendingu
þar um. Hver af öðrum báðu
farþegar um sæti i reyklausum
hluta farþegarýmisins og
mörkin fyrir reyklausa svæðið
voru stöðugt færð aftar og aft-
ar. Þegar allir farþegar höfðu
gefið sig fram.kom i ljós, að a!i-
ir sem einn höföu óskaö eftir
sæti þar sem reykingar voru
ekki leyfðar, en flugvélin var
fullsetin. Flugtiminn til Atlanta
var 88 minútur. Yfirmaður hjá
Delta flugfélaginu i West Palm
Beach sagði að þetta væri i
fyrsta skipti sem flugvél frá
félaginu hæfi sig á loft frá flug-
vellinum án þess að nokkur
farþegi óskaði eftir að fá að
reykja meðan á ferð stæði. en
hér var um venjulegt áætlunar-
flug að ræða.
Frakkar haröir
Það er orðið algengara i
mörgum löndum að leigubil-
stjórar setji upp skilti i bilum
sinum þar sem óskað er eftir
þvi að farþegar reyki ekki. I
opinberum byggingum er nú
viöa farið að beita miklum tak-
mörkunum við reykingum og
sums staðar hafa þær jafnvel
verið bannaðar. Frakkar hafa
til dæmis bannað reykingar i
pósthúsum og öörum opinber-
um byggingum þar sem börn
innan 16 ára aldurs koma.
Heimilt er aö beita sektum allt
að sem svarar til sjö þúsund
islenskra króna ef bannið er
ekki virt.
—S.G.
Talar dýramái og fær
dýrln til að hlýða sér
Francisco Duarte sem á heima nálægt Sao Sebastiao i Brasiliu er 17 ára
gamall seinþroska unglingur á stærð við 10 ára dreng. Hann hefur þó þann
einstæða hæfileika að geta talað við dýr og fengið þau til að hlýða sér, sem
fæstir eða jafnvel enginn jafnaldri hans getur státað sig af.
Duarte getur látið býflugur,
vespur, kóngulær, snáka, fiska,
froska, rottur og krókódila
hlýða sér án þess að verða bit-
inn eöa stunginn.
Margir af þekktustu dulsál-
fræöingum heims hafa rannsak-
að þessa hæfileika hans og eru
þeir allir sammála um að hér sé
furðulegur hæfileiki á ferðinni.
Einn þeirra Gary D. Richman,
bandariskur dulsálfræðingur og
ráðgjafi Brasilisku dulsálar-
fræðistofnunarinnar, sagði aö ef
hann hefði ekki séð þetta með
slnum eigin augum og heyrt
með eigin eyrum, þá hefði hann
ekki trúað þessu. Hann sá
Duarte fara að býflugnabúinu
og segja þeim að setjast á hand-
legg sinn og þær gerðu það. Sið-
an sagði hann: „Stóra býfluga,
fljúgðu i lófa minn” og drottn-
ingarílugan flaug strax I hendur
honum. Hann tók hana þá og
setti hana á handlegginn og
sagði öllu býflugnabúinu að
fylgja henni. Samstunids flugu
þúsundir býflugna á handlegg-
inn. Duarte sagði þeim að fara
upp handlegginn og hylja and-
litið, svo lét hann allar fara
nema sex og að lokum sagði
hann þeim að fara llka. Ollum
þessum skipunum hlýddu þær á
meðan að hann talaði til þeirra i
hljóðlátu hvisli.
En hæfileikar Duartes eru
ekki eingöngu takmarkaðir við
býflugurnar. Annar þekktur
dulsálfræðingur, Martha Baros
frá Rio de Janeiro sá hann fara
niöur að tjörn og stinga hendinni
I vatnið. Nokkrir fiskar syntu að
hendinni. Hann tók þá höndina
upp úr vatninu og lagði handar-
bakiö við vatnsyfirborðiö og
sagði einum fisknum að synda
upp i höndina, sem einn þeirra
oggerði. Hann sagði fisknum að
opna og loka munninum, hreyfa
uggana og siðan vera kyrr. Allt
þetta gerði fiskurinn. Að lokum
sagöi hann fiskinum að fara.
Svipaða sögu er að segja um
önnur dýr eins og t.d. ban-
eitraða snáka sem hann getur
skipað að reka út úr sér tung-
una, hringa upp á sig og vefja
sig utan um hálsinn á honum.
Duarte er einn 13 barna fá-
tækrar fjölskyldu og vinnur að
hluta fyrir fjölskyldunni með
þessum hæfileikum. Dulsál-
fræðingarnir hafa enga
skýringu á fyrirbærinu, en Du-
arte segir að hæfileikinn sé guðs
gjöf.
Býflugur hylja handlegg og háls Francisco Duartes, eins og hann
skipaði þeim að gera. Ekki varð honum meint af.