Vísir - 26.02.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 26.02.1980, Blaðsíða 4
4 vtsm ÞriOjudagur 26. febrúar 1980 m ww% | Sími 16444 Sýnir: BÖRN SATANS Starnno GENE EVANS SORREL BOOKE SHELLY MORRISON [Rl TIMES FiVE Color By DELUXE 1 'l Executive Producer JORDAN WANK A BARRISTER PRODUCTION A SEYMOUR BORDE — and ASSOCIATES RELEASE Ef taugarnar eru ekki i lagi, þá láttu þessa mynd eiga sig Viöureignin vift „Börn Satans” er enginn barnaleikur.... Bönnuö innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sænska skáidið og sálfræðingurinn TOMAS TRANSTRÖMER kynnir skáldskap sinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 27. febr. kl. 20:30. Verið velkomin NORRÆNA HÚSIO & 17030 REYKJAVIK ÚTBOÐ Stjórn Verkamannabústaða óskar eftir tilboðum í: 1. RAFLAGNIR 2. GLUGGASMIÐI í 60 íbúðir í raðhúsum í Hólahverfi, Breiðholti. útboðsgögn verða afhent gegn 20 þús. kr. skilatryggingu á skrifstofu VB.> Mávahlíð 4. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 3. mars kl. 15.00 á Hótel Esju. TILKYNNING Þeir, sem telja sig eiga bíla á geymslusvæði „Vöku" á Ártúnshöfða, þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir 15. mars nk. Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslu- mann „Vöku" að Stórhöfða 3 og greiði áfallinn kostnað. Að áðurnef ndum f resti liðnum, verður svæðið hreinsað og bílgarmar fluttir á sorphauga á kostnað og ábyrgð eigenda, án frekari viðvör- unar. Reykjavík,20. febrúar 1980. GkTNkMftLASTJÓRINN I REYKJAVIK Hrelnsunardelld veröur hann arftaki Títös Júgóslavíu- forseta? Lazar Kolisevski heitir sá, sem taka skal viö leiötogahlut- verkinu i Júgóslaviu, ef Titó fellur frá eöa dregur sig i hlé. Kolisevski hefur i fjölda ára þótt trúr kommúnisti og Titó mjög handgenginn, og er búist viö bvi, aö hann muni feta dyggilega i fótspor Titós þann tlma, sem hann veröur forseti. — Aö minnsta kosti hvaö varöar þaö, aö láta Belgradstjórnina fylgja utanrikisstefnu óháöri Moskvulinunni. Hinn sextiu og sex ára gamli Kolisevski er varafor- seti i þeirri niu manna nefnd, sem fer meö völd rikisráös eöa Júgóslaviuforseta I veikindum og forföllum Titós. Kolisevski er frá Makedoniu og hverju mannsbarni kunnur i Júgóslavlu, en litt þekktur utan sins heimalands. Ef hann I krafti sins varaforsetaembættis leysir Titó af hólmi, mun hann samt ekki skipa þann sess, sem Titó hefur haft hjá Júgóslövum. Þótt hann sé vel kynntur, nýtur hann samt ekki þjóöhetjuljóm- ans, sem Titó hefur búiö aö, siö- an hann stýröi skæruliöum sin- um i andspyrnu gegn nasistum. Hann mun heldur ekki hljóta þau völd, sem Titó hafði. Titó haföi komiö hlutunum þannig fyrir, aö völdin dreifist á margra manna hendur. Fvrst með þvl aö setja á laggirnar niu manna-nefndina, sem fer með umboö og völd forsetans, og i ööru lagi meö þvi aö haga mál- um þannig, aö I nefndinni sitji enginn lengur en fimm ár i senn. Nefndarmenn skiptast siöan á um aö vera varaforsetar eitt ár I senn. Timi Kolisevskis I varafor- setaembætti rennur út i mai. Cvijetin Mijatovic frá Bosniu, sextiu og fimm ára gamall, á þá að taka viö varaforsteaembætt- inu, ef Titó er enn viö lýöi, ef Kolisevski veröur oröinn for- seti, áöur en aö þvi kemur, mun Mijatovic leysa hann af hólmi sem forseti. — Seta Kolisevskis i forsætisnefndinni á aö renna út árið 1982, þegar fimm ára tima- biliö veröur á enda. Fyrrum andspyrnumað- ur Hver sem veröur forseti eftir mai næsta, þá á Kolisevski aö taka viö formannsstarfi i for- sætisnefndinni, þegar hann læt- ur af varaforsetambættinu. Þaö embætti er þó meir viröingartit- ill, heldur en aö þvi fylgi nokkuö meiri völd en hjá öðrum nefndarmönnum. Svo er um hnútana búiö, að forsætisnefnd- in verður aö vera einróma I á- kvöröunum sinum til þess aö þær gildi, svo aö hver hinna niu fulltrúa I henni hefur i reynd neitunarvald. aðutan Umsjón: | Guömundur ’ Pétursson Eins og Titó gekk Kolisevski i kommúnistaflokk Júgóslaviu á árunum fyrir siöari heimstyr- jöldina, en flokkurinn var þá bannaður meö lögum. Hann er fyrrverandi málmiönaöarmaö- ur og gekk i andspyrnuhreyfing- una, meöan hann starfaöi i verksmiöju i Serbabænum, Kragujevac. Eftir aö Júgóslavia gafst upp fyrir Þjóöverjum 1941, sendi neðanjarðarhreyfing kommúnistaflokksins Kolisevski heim til Makedoniu. Ritari flokksins i þessu suölæga Tltó. Lazar Kolisevski hefur fylgt. titó allar götur frá árum and- spyrnunnar gegn nasistum. héraöi haföi tekið upp samstarf meö búlgörskum kommúnist- um, og likaöi miöstjórn júgó- slavneskra kommúnista þaö illa. Vonast var til þess, aö Koli- sevski gæti bundiö enda á þá þróun. í september 1941 var ákveðið af ráöamönnum kommúnista i Moskvu, sem stýröu þá leynt og ljóst minni flokkunum annars staðar i Evrópu, aö kommúnistaflokkurinn i Make- doniu skyldu aftur lúta undir júgóslavneska kommúnista- flokkinn. Kolisevski varð ritari fram- kvæmdastjórnar flokksdeildar- innar i Makedoniu og yfirmaöur herráös héraösins, svo aö hann bar ábyrgð á skipulagningu andspyrnuhreyfingar fööur- landsvinanna, eins og skæru- liöar kommúnista kölluðu sig. Þeir fylgdu Titó. Dæmdur til dauða Einhverjir flokksfélaganna i Skopje héldu þó áfram i laumi tryggð sinni viö búlgarska kommúnistaflokkinn. 1 viðleitni til þess aö grafa undan júgó- slavneska kommúnistaflokkn- um sögöu þeir búlgörsku lög- reglunni til Kolisevskis I nóv- ember 1941. — Þegar þarna var komiö sögu, var Búlgaria i bandalagi við Þýskaland og haföi hernumiö Makedoniu eftir innrás nasista. Kolisevski var dreginn fyrir rétt og dæmdur af búlgörskum dómstól til dauða. Þeim dómi var siðan breytt i lifstiðarfang- elsi. Kolisevski tókst aö flýja og imars 1943 var hann hann aftur kominn til júgóslavnesku and- spyrnuhreyfingarinnar. Eftir stríð Aö styrjöldinni lokinni var Kolisevski leiötogi flokks- deildarinnar i Makedoniu og lét raunar viöar i Júgóslaviu að sér kveöa innan kommúnistaflokks- ins. Hann var um hrið forseti héraðsþings Makedoniu og sat þrjú kjörtimabil i æðstaráði júgósalvneska kommúnista- flokksins. I mai 1979 var hann kjörinn varaforseti i forsætisnefnd rikisins, sem hann gegnir enn, eins og áöur var sagt. Hann á einnig sæti i framkvæmdastjórn flokksins. Týndur farangur Samtök flugfélaga, IATA og SITA, hafa nú þróaö nýtt kerfi til þess aö hafa uppi á týndum farangri farþega og bæta úr þjónustu i farþegaflutningum. Þetta kerfi er kallað ,,Bag- trac” og styöst viö tölvuþjón- ustu, sem gera á kleift aö finna fljótt týndan farangur, og það hvort sem töskurnar hafa lent meö réttri flugvél á skökkum staö, eöa fariö i ranga flugvél og kannski meira aö segja hjá allt ööru flugfélagi. Meö þvi aö staðla og sam- ræma merkingar á farangri á aö vera unnt, að finna fljótar en áöur, hvert farangurinn hefur fariö á mis — og þaö þótt villtist meö ööru flugfélagi meira aö segja. IATA mun hafa yfirumsjón með þessari þjónustu, en SITA leggur til tölvubúnaöinn og fjar- ritakerfiö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.