Vísir - 26.02.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 26.02.1980, Blaðsíða 9
vísm ■■■■■ Þriöjudagur 26. febrúar 1980 Um íslenska landbúnaOarstefnu, í. grein: Mikilvægi trausts land- búnaðar. Enginn hugsandi maöur dregur i efa mikilvægi öflugs og trausts landbúnaöar. Hann er einn helsti hyrningarsteinn hins islenska þjóöfélags, grundvöllur sjálfstæörar þjóöar. Fráleitar eru hugmyndir um aö íslend- ingar skulibyggja á innflutningi erlendra landbúnaöarafuröa. Þær hugmyndir eru frávik frá þeirri grundvallarstefnu, aö lslendingar, eyþjóö, veröi aö vera sjálfum sér nógir um flestar neysluvörur. Eöa hafa menn gleymt erlendri áþján og frelsissviptingu, verslunar- höftum og heimskreppu: Og islenskur landbúnaöa öur framleiöir ekki eingöngu neysluvörur, heldur er hann grundvöllur blómlegs iðnaöar, er skapar verömæti úr ull og skinnum og veitir miklum fjölda atvinnu. Röng landbúnaðar- stefna. En hvers vegna allar þessar deilur og átök um land- búnaöinn? Landbúnaöarstefna a.m.k. siöustu tveggja áratuga hefur veriö röng og hættuleg. Hún hefur gert landbúnaö aö ölmusugrein. Hún hefur valdiö þvi, aö margfalt meira er fram- leitt en þjóöin getur torgaö. Hún hefur valdiö þvi, aö islenskir skattborgarar greiöa ár hvert milljaröa króna til aö fá útlend- inga til aö boröa gæöafæöu, sem greitt er meö. Þetta er afleiöing landbúnaöarstefnu Sjálfstæöis- og Framsóknarflokks. Forystu- menn þessara flokka I land- búnaöarmálum hafa hrópaö til bænda, og hvatt þá til aö stækka Bbú sin og auka framleiösluna, án þess aö huga aö afleiðingum. Nema þeir hafi reiknaö dæmiö svo, aö stór hluti smábænda gæfist upp. Sú varö hins vegar ekki raunin, enda mörg meðal- búin haft bestu afkomuna. Afleiðingarnar. Mörg hörmuleg dæmi um afleiöingar þessarar stefnu má sjá og lesa um. Útflutningsupp- bætur hafa stöðugt veriö aö aukast, og þær eru komnar langt fram úr þvi marki, sem Framleiösluráöslögin heimila. Dr. Gylfi Þ. Gislason benti á þaö i blaðagrein áriö 1978, aö þaö ár heföu islendingar greitt útlend- inum 300 krónur fyrir aö boröa hvert kilógramm af dilkakjöti, eða um 40% kostnaðarverösins. Þá greiddu islendingar útlend- ingum 578 krónur fyrir aö boröa hvert kilógramm af óöalsosti, eö 49% af kostnaöarveröinu. Og Islendingar greiddu útlend- ingum 860 krónur fyrir aö boröa hvert kilógramm af gouda- osti.eöa 73% af kostnaöarverö- inu. Dr. Gylfi benti á athugun, sem gerð haföi veriö á þvi hversu mikill gjaldeyrir heföi veriö notaöur til framleiöslu á hverri einingu nautgripaafuröa, og hversu mikiö heföi fengist fyrir þær viö útflutning. Gjald- eyriskostnaöurinn reyndist meiri en útflutningsveröiö. Þetta jafngildir þvi, aö öll vinna innanlands og öll fjármagns- notkun var gefin hinum erlendu neytendum. Fleiri dæmi. . I sömu blaðagrein benti dr. Gylfi á þaö meö skýru dæmi, aö rekstur landbúnaöar á Islandi væri hvorki hagkvæmur neyt- endum né bændum. A árunum 1970 til 1976 var vinnuafl i land- búnaöi 10.7% af heildarvinnuafli þjóöarinnar. Miöaö viö þaö væri eölilegt, aö hlutdeild land- búnaöar i þjóöarframleiöslunni væri 10-11%. En hún var aðeins 6.5%. Ariö 1976 var fjármagn i landbúúaöi 80.2 milljaröar króna Það haföi aukist um 34% frá árinu áöur. En landbúnaöar- framleiöslan jókst aöeins um 7.5% . Fjármagnsaukningin haföi ekki skilaö aröi. Þegar höfö er hliösjón af þvi, aö áriö 1976 var fjármagn I sjávar- útvegi 83 milljaröar, geta menn leitt hugann aö þvi hve viða Fleiri og fleiri bændur skilja, aö stefnan er aö leiöa landbúnaöinn f ógöngur. Sem erfltt veröur aö komast út úr, segir Arni m.a. Igrein sinni. framsýni hans og Alþýöuflokks- ins er nú aö veröa mönnum skýr, ekki siöur bændum en öörum. Steingrimur Hermanns- son, fyrrverandi landbúnaöar- ráöherra, er fyrsti forystu- maöur Framsóknar, sem gerir ærlega tilraun til aö spyrna viö fótum. Kvótakerfi og fóöur- bætisskattur varö niöurstaöan, þótt hvort tveggja sé mjög umdeilanlegt. En Steingrimur naut ekki sannmælis fyrir til- raunir sinar hjá hópi sérstakra hagsmunaaöila, sem siöar veröur vikiö aö. Fleiri og fleiri bændur skilja, aö stefnan er aö leiöa land- búnaöinn i ógöngur, sem erfitt veröur aö komast úr. Stefnunni er vel lýst i bréfi, sem mér barst fyrir nokkrum dögum frá virtum og velmetnum bónda. Þar segir hann ma.a. orörétt.: .„Stefnan i landbúnaðarmálum hefur veriö sú, aö láta hlutina velta áfram samkvæmt ráöandi kerfi i þeirri von, aö málin leysist einhvernveginn. Gagn- rýni Alþýöuflokksins hefur veriö réttmæt, en flokknum hefur þó ekki tekist aö benda á raunhæfar leiöir til úrbóta. „STEFNAN HEFUR VERIO AD LÁTA HLUTINA VELTA ÁFRAM SAMKVÆMT RÁÐANUI KERFI” pottur er brotinn. — Kenningin um aukna arðsemi meö stærri búum viröist ekki hafa staöist, enda engin tilraun gerö til aö haga búgreinum eftir land- gæöum, engin tilraun gerö til aö draga úr fjármagnskostnaöi, engin tilraun gerö til aö draga úr milliliöakostnaöi, sem er nú bændum þyngri baggi en margan grunar, en þeim þætti þyrfti aö gefa meiri gaum en gert hefur veriö. Alþýðubandalagið og bændur. Fyrir kosningarnar 1978 geröist sérkennilegur atburöur I Islenskri stjórnmálasögu. Alþýöubandalagiö gekk til liös viö Framsóknarflokk og Sjálf- stæöisflokk. Bandalagiö predikaöi hina röngu land- búnaðarstefnu af enn meiri krafti ai hinir flokkarnir höföu gert. Gefiö var út sérstakt land- búnaöarblaö, þar sem bændum voru birtar töframyndir af framtlðarrikinu. I hnotskurn var ein „patenf’-lausnin þessi: Við hækkum laun verkalýösins svo hann geti keypt og boröaö meira af landbúnaöarafuröum, og þar meö eyöum viö umfram- framleiöslunni. Alltof margir bændur trúðu á töfrasprotann. Þessi kúvending Alþýöu- bandalagsins er þvi sérkenni- legri þegar vitnaö er til bókunar Asmundar Stefánssonar, fram- kvæmdastjóra ASl á fundi Framleiðsluráöslaganefndar I nóvember 1978. Þar segir hann: „Skapast hefur hreint vandræöa ástand vegna vaxandi umfram- framleiöslu sauöfiár- oe naut- gripaafuröa. Á árinu 1977 var u.þ.b. þriöjungur kindakjöts- framleiöslunnar fluttur út og um sjötti hluti framleiddra mjólkurafuröa. Fyrir þessar afuröir hefur fengist allsendis ófullnægjandi verö, eöa aöeins 25-50 % af grundvallarveröi. A árinu 1978 stefnir framleiöslan i enn meira óefni. Ljóst má vera, aö umframframieiösian veldur þjóöinni ailri lifskjaraskeröinfiu bæöi I bráö og lengdog að brýna nauösyn ber til aö nú þegar veröi spyrnt viö fótum og dregiö úr framleiöslu þessara búgreina.” Leiktjaldasmíö Alþýöubandalagsins þarf þó ekki aö koma á óvart þeim mönnum, er kynnst hafa henti- stefnu flokksins i nær öllum málum. Samanburður. En áöur en lengra er haldiö er rétt aö lita örlitiö á saman- buröartölur um framlög til landbúnaöar, iönaðar og sjávarútvegs á siöustu árum. A siöasta ári námu framlög til landbúnaöar um 4.3 milljöröúm kröna. Þá eru ekki taldar meö útflutningsuppbætur aö fjárhæö 5.4 milljaröar né niöurgreiöslur, neðanmóls Árni Gunnarsson aiþingis- maöur skrifar I þessari grein um isiensk landbúnaðarmál m.a.: „Fráleitar eru hug- myndir um, að islendingar skuli fiyggja á innflutningi erlendra landbúnaðarafurða... En hvers vegna allar þessar deiiur og átök um landbúnaðinn? Land- búnaöarstefna a.m.k. siðustu tveggja áratuga hefur veriö röng og hættuieg. Hún hefur gert iandbúnað að ölmusu- grein... Hún hefur vaidið þvi, að isienskir skattborgarar greiða ár hvert milljaröa króna til að fá útlendinga til að borða gæða- fæðu, sem greitt er með”. er námu tæplega 19 milljöröum króna. Lesendum til fróöleiks er rétt aö telja aö nokkru upp skipt ingu framlaga. Búnaöarfélag Islands 293 milljónir, veiöistjóri 38 -milljónir, Rannsóknar- stofnun landbúnaöarins 477 milljónir, Landgræösla 715 milljónir, Landnám rikisins 87 milljónir, mat á landbúnaöar- afuröum 17 milljónir, sauöfjár- veikivarnir 89 milljónir, Verö- lagsnefnd landbúnaöarafuröa llmilljónir, Veiöimálaskrif- stofan 102 milljónir, önnur land- búnaöarframlög 1.6 miUjaröur, ýmis starfsemi á sviöi land- búnaöarmála 51 milljón. Hækkun frá fyrra ári nam 35.8%. Framlög til lánasjóöa og annarra sjóöa voru: Land- græöslustjóður 19.4 miUjónir, Stofnlánadeild landbúnaöarins 643.5 milljónir, Framleiöni- sjóöur landbúnaöarins 31 milljón og Veödeild Búnaöar- bankans 10.3 milljónir. — Þannig voru heildarframlög til landbúnaöar á siöasta ári 4.3 milljaröar króna, en viljandi eru útflutningsuppbætur og niöurgreiðslur ekki taldar meö, en þeir tveirliöir námu samtals rúmlega 25 milljöröum króna. Ef ýmis framlög til land- búnaöar eru sundurliöuö eru tölur þessar: fyrirhleösla og landþurrkun 56.8 milljónir króna, jaröræktar- og húsa- geröarsamþykktir 13 milljónir, búfjártryggingar 200 þúsund krónur, nautgripasambönd 500 þúsund, mjólkurbú 2 milljónir, einangrunarstöö holdanauta 13 milljónir og búfjárrækt 188 milljónir. Ljóst er, aö af ýmsu er aö taka. Ef heildaarframlög til land- búnaöar eru svo borin saman viö iönaö og sjárvarútveg, kemur eftirfarandi I ljós áriö 1979: Landbúnaöur 4.3 milljaröar tæpir, eöa 2.02% af fjárlögum, — sjávarútvegur tæpir 4.3 milljaröar eöa 2.06% af fjárlögum og iönaöur 951 milljón, eöa 0.46% af fjárlögum. Þó er iönaöi ætlaö aö taka viö mestum hluta þeirrar vinnu- aflsaukningar, sem veröur hér á landi á næstu árum. Alþýðuflokkurinn og landbúnaðurinn. Fyrir a.m.k. tveimur ára- tugum byrjuðu Alþýöuflokks- menn aö vara alvarlega viö viösjálli landbúnaöarstefnu. Þeir fengu heldur betur til tevatnsins. Dr. Gylfi Þ. Gisla- son, sem var einn helsti and- stæöingur landbúnaöarstefn- unnar, var harölega atyrtur og raunverulega svivirtur, Jiegar hann lét skoöanir sinar i ljos. En Þaö fer ekki á milli mála, aö útflutningsuppbótakerfiö er sprungiö. Þaö var aö visu mjög æskileg trygging á sinum tima, en hún hefur veriö misnotuö undanfarin ár. Fjármagni þvi, sem nú fer til útflutningsupp- bóta mætti verja miklu betur til annars, en hvernig á aö draga úr þeim?” Sföan rekur þessi bóndi hugmyndir sinar um aöferöir til úrbóta, en segir: „Bændur viöurkenna nú nauð- syn þess aö skipuleggja fram- leiösluna, en þá greinir á um leiöir aö þvi marki”. Tillögur Alþýðuflokks- ins. 1 bréfi áðurnefnds bónda er sagt, aö Alþýöuflokknum hafi ekki tekist aö benda á raun- hæfar leiöir til úrbóta. Alþýöu- flokkurinn hefur bent á ýmsar leiöir, en vera má aö ekki séu allir sammála um hversu raun- hæfar þær séu. Gerö veröur grein fyrir tillögum flokksins I næstu grein minni um land- búnaöarmál i þessu blaöi. Hvað er framundan. Þegar þessar linur eru skrifaöar hafa oröiö mikilátök á þingi vegna frumvarps til laga um ábyrgöarheimildir og greiðsluheimildir vegna lántöku Framleiösluráös landbúnaöar- ins. Þaö var ekki Alþýöu- flokkurinn, sem stöövaöi fram- gang þess máls, en aö sjálf- sögöu flutti hann breytingatil- lögu. Þaö voru innbyröis deilur i Framsóknarflokki, sem stöövuöu máliö. En þeir þrir milljaröar, sem frumvarpiö gerir ráö fyrir aö rikissjóöur ábyrgist vegna útflutningsupp- bótaþarfar, eru bara brot af þeirri fjárhæð, sem skortir. Hinn nýi landbúnaöarráöherra, Pálmi Jónsson, lagöi nýlega drög aö áframhaldandi skelf- ingarstefnu I landbúnaöi. Útflutningsuppbótaþörfin I ár er á sjöunda milljarö króna. En ráöherrann boöaöi allt aö 11 milljaröa aukafjármagnsþörf. — Og hvar á aö taka þá pen- inga? Þeir eru ekki til og fást aöeins meö aukinni skattlagn- ingu eöa lántöku og kemur I sama staö niöur, þvi aö lokum eru þaö skattborgararnir, sem greiða.-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.