Vísir - 03.03.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 03.03.1980, Blaðsíða 6
Mánudagur 3. mars 1980 Slofualparós - Rhododendron ■n w m* simsn Alparósir eru rómaðir garö- runnar sakir blómauðgi og blómfegurðar. Blöö margra þeirra eru einnig sérkennilega falleg, oft sigræn leðurkennd og gljáandi svo af ber. Alparósa- cettkvíslin ber heitið Rhodoen- dron, en hún tilheyrir lyng- ættinni. Nákominn ættingi hennar er hinn dvergvaxni sauðamergur, sem vex hér i þúfnakollum i ófrjósömu mólendi og á grýttum melum til fjalla. Hann skartar örsmáum rauðbleikum blómum snemma sumars. Alparósinni tilheyrir urmull tegunda, en flestar vaxa þær villtar i skógi klæddum fjallahlíðum i Austur-Asiu, oft i 3000-4500 m hæð yfir sjávarmáli, þar gætir mikillar úrkomu og loftraka, en jarðvegur er gljúp- ur, loftrikur og súr. Slíkt hentar best flestum alparósum. Snjó- riki er mikið á vetrum, en snjór- inn veitir hlifð gegn frost- hörkum og kuldanæðingum. Ein af viðkvæmari teg- undunum er stofualparósin, sem oftast gengur undir nafninu Aselea i nágrannalöndum okkar. Skal þess þó getið að Asalea-heitiö er ekki hið rétta lengur, en mun þó trúlega hald- ast áfram, sakir þess að það er lipurt bæði i munni og minni. Forfeður stofualparósarinnar bárust til Evrópu frá Japan, Indlandi og Kina 1 byrjun 19. aldar. í Belgiu náði alparósin skjótum vinsældum sem stofu- blóm og þar tóku ýmsir brátt aö kynbæta þær. Siöan fylgdu bjóöverjar á eftir og allt fram á þennan dag hafa þessar tvær brautryöjendaþjóðir staöiö i fylkingarbroddi um framleiöslu á nýjum afbrigðum og smá- plöntum. 1 dag er t.d. svæðið umhverfis borgina Gent I Belgiu eitthvert hiö mikilvægasta og umfangsmesta varðandi ræktun stofualparósa. En þaðan eru plöntur seldar um viöa veröld til garðyrkjumanna, er siðan rækta þær til blómgunar handa kaupendum. Ekki er þetta þó algilt, þvi sumir framleiðendur annast öll stig ræktunar sjálfir. Stofualparósin er mjög lágvaxin runni, með smágerðum leður- kenndurn. þéttstæöum blööum. Myndar hún blómhnappa á endum ársprotanna siðla sum- blóm Óli V a lu r Hansson skrifar ars við 10-15 gr.C, en viö venju- legar aöstæður opna þeir sig siðan aö nokkrum mánuðum liðnum. Stofualparósin hefur smám saman náð aö veröa framúrskarandi vinsælt stofu- blóm, enda hefur mikiö veriö aöhafst til þess aö bæta ýmsa eiginleika hennar, ekki sist lit- skrúð og stærö blómanna. Framboð afbrigöa er fjölbreytt og möguleikar i litavali eru frá hvitu og yfir i rautt eða fjólu- blátt. Einnig tvilit blóm eru al- geng. bar til fyrir 10-15 árum sáust alparósir nær eingöngu á markaði siðla vetrar og fram eftir vori. A þessu hefur orðiö veruleg breyting, vegna auk- innar þekkingar á stjórnun blómmyndunar. Viöa hafa framleiðendur verið fljótir til að hagnýta sér þetta og þannig vikkað blómgunarskeiöið, sem raunverulega mætti láta spanna yfir allt árið. Trúlega verður þaö samt enn um skeið svo, aö stofualparós veröur boöberi hækkandi sólar, vors og yls. Lit- rik, og með afbrigöum blómsæl áminning um, aö bjartar nætur eru fram undan. Mesta ánægja veitir sú sem keypt er á þvi stigi, þegar blómhnappar eru rétt aö byrja að springa út. Siöan þarf að koma henni fyrir á björtum stað og gæta vökvunar vel. Jarðvegur er venjulega mjög torfkenndur og má þvi aldrei þorna, ella skrælna blöð og blóm og hrynja af. Skal þvi daglega aðgæta meö vökvun en forðast samt ofvökvun. Svalt pláss að nóttu lengir mikið blómgunartimann, sem er 4-6 vikur. Alparós þessari má koma fyrir á skyggðum stað úti i garði yfir hásumartimann. Hins vegar er áframhaldandi ræktun vandasöm og aðeins fyrir snjöll- ustu ræktendur aö glima við. Sama gildir um fjölgun. ó.V.H. flskur gerir samning um gæöa- og öjönustueftirlit Askur hefur gert samning við norska fyrirtækið Gastronor og komu tveir sérfræðingar i veit- ingahúsarekstri hingað á vegum þess i siöustu viku. Norska fyrir- tækiö starfar i náinni samvinnu við SARA, sem er stærsta ráö- gjafafyrirtæki i hótel- og veitingahúsarekstri i heimi. Meðal þess, sem sérfræðingarnir, sem heita Willi J. Brunner og Per Vold, unnu aö hér, var úttekt á allri þjónustu beggja veitinga- húsanna og einnig var fariö yfir ( samsetningu og matreiðslu allra rétta á"matseðlinum. Breytingar á rekstri beggja staðanna munu veröa gerðar smám saman á næstu sex mán- uðum og fyrstu framkvæmdir aö Laugavegi 28 eru þegar hafnar. —JM VELJIÐ ÍSLENSKT Nú leysum við VANDANN- Allt í herbergið fyrir unglingana SKRIFBORÐ — HILLA — STEREOBEKKUR VERÐIÐ ER FRABÆRT SAMSTÆÐAN ÖLL KOSTAR AÐEINS KR. 169.000.- • . SVEFNBEKKUR MEÐ 3 PÚÐUM KR. 145.000.- GÓÐ GREIÐSLUKJÖR. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT. ^f^^Laugavegi 166 Simar 22222 og 22229 HÚSG AGN AVERSLUN GUÐMUNDAR Hagkaupshúsinu, Skeifunni 15 Sími 82898 3 viljugir vinnuhestar Sendibifreið Burðargeta 1200 kg. Hliðarhurð ætluð fyrir lyftara með bretti. Vélin er 21 (1982 cc) 75 Din. ha. og eyðslan er ó- trúlega lítil. Verð um kr. 5.700.000 (til einkanota) Vörubifreið Burðargeta 1725 kg Trépallur er: 320 sm lengd, 170 sm breidd, 26 sm hæð Dieselvél (eins og í Dat- sun leigubifreiðum). Verðið um kr. 6.280.000 Pall- bifreið (Pick-Up) Burðargeta 1200 kg Verð um kr. 4.080.000 Bíllinn sem bregst þér ekki — enda mest seldi pallbíllinn (pick-up) á ís- landi undanfarin ár. Datsun ID/SuNI INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.