Vísir - 03.03.1980, Blaðsíða 17

Vísir - 03.03.1980, Blaðsíða 17
Mánudagur 3. mars 1980 Nemendur 6. bekkjar M.A. í starfskynningu á Vísi: „ATTUM ekki AD FA NEINA STARFSVIKU” ,,Það verður tvímælalaust að auka tengslin milli náms og atvinnulifs, þvi að unglingarnir vita svo litið, hverra kosta er völ i þjóðfélaginu”, sagði Birgir Thorlacius, i ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins, i samtali við Visi um aðstöðu nemenda i framhaldsskólum til að kynna sér þá möguleika, sem þeir hafa á vinnumarkaði að námi loknu og hugsanleg framtíðarstörf. Dagana 25.-29. febrúar er starfsvika hjá 6. bekk Mennta- skólans á Akureyri. Þá fá nemendur fri frá námi i vikutima og fara út á vinnumarkaðinn til þess að kynna sér störf sem þeir hafa áhuga á. Þessa viku hafa nemendur þurft að skipuleggja og fjármagna algjörlega sjálfir, en þeirra skoðun er að skólinn eða menntamálaráðuneytið ætti að koma til móts við þá á einn eða annan hátt. Sagði Birgir að í grunnskóla- lögum væri greinilega tekið fram, að tengja ætti námið atvinnulifinu og einnig væri gert ráð fyrir þvi i framhaldsskólafrumvarpi. Vand- inn væri bara hvernig ætti að fara að þvi, en þetta væri mál sem þyrfti að leysa sem allra fyrst. 1 haust þegar nemendur M.A. fóru að ræða fyrirhugaða starfs- viku, kom I ljós, að skólameistari var ekki mjög hrifinn af hug- myndinni. Bar hann fyrir sig, að ekki fengjust styrkir frá mennta- málaráði og einnig, að alltaf væru nemendur sem heföu ekki áhuga á slíkri kynningu og vildu því ekki taka þátt f henni. Hann gaf þó sitt leyfi fyrir þessu en með því skil- yrði að nemendur ynnu algjör- lega sjálfir að öllum undirbúningi og stæðu straum af kostnaði. Siðustu ár hefur skólastjórn séð um að útvega vinnu fyrir nemendur og styrkt að einhverju leyti þá, sem hafa þurft aö fara út á land en vegna timaleysis og fjárskorts var þetta nú afnumið. Vegna þessa var skipuð nefnd nemenda og hefur hún að undan- förnu eytt miklum tfma frá námi sfnu til undirbúnings þessarar viku. Rúmlega 100 nemendur eru i 6. bekk M.A. og þurfti að útvega þeim öllum vinnu. Má þakka góð- um undirtektum hjá flestum vinnuveitendum sem til var leit- að, hversu vel það tókst. Ef dæmi er tekið um kostnað nemenda f þessu sambandi er augljóst mál að hann er gifurleg- ur, þar sem um 70 manns þurftu að sækja vinnu til höfuðborgar- svæðisins og ferðalög hér á landi eru alls ekki af ódýrasta taginu. En hvað eiga nemendur að gera? Námsfólk úr Háskóla íslands hef- ur farið norður undanfarna vetur og kynnt hinar ýmsu deildir skól- ans fyrir nemendur M.A. en þetta árið var sú kynning einnig lögð niður vegna fjárskorts. Virðist þvi málunum þannig háttað nú, að menntaskólanemar eiga á hættu að missa einu starfs- kynninguna, sem þeir eiga völ á og einangrast þannig algjörlega frá atvinnulifinu, ef frá er talin sumarvinnan. En hún gefur ekki rétta mynd af atvinnulífi landsins vegna þess aö þá er takmarkið að vinna sér inn sem mest á stuttum tima. Hvernig eiga t.d. nemend- ur, sem hafa unnið 6-7 sumur I frystihúsi að velja sér framtiðar- starf? I viðtalinu við Birgi Thorlacius kom fram, að nota mætti sjón- varpið meira en nú er gert til þess að kynna nemendum möguleika þeirra. Jafnvel kæmi til greina að at vinnurekendur greiddu nemendum laun á meðan á starfskynningu stæði. Að sjálf- sögðu yrði þar ekki um fullar launagreiðslur að ræða, en þaö myndi þó vega mikið upp I feröa- kostnað nemenda utan af landi. Hættan við þetta væri sú, að þá myndu atvinnurekendur ekki vilja taka við nemendum I fyrir- tæki sin. Það er samdóma álit nemenda 6. bekkjar M.A. að illa sé aö þessum málum staðið og skora þeir þvi á hlutaðeigandi aðila að ráða bót á þessu vandamáli sem allra fyrst. íslenskt stereoútvarp: „Verður að bæta úl- senúingarskilyröin" - segir ingvar Gíslason. menntamáiaráðherra „Það er ljóst, að það verður að bæta útsendingarskilyrðin, en engin ákvörðun hefur verið tekin um það og hvenær að þvi veröur staðið” sagði Ingvar Gislason, menntamálaráð- herra, I samtali við Visi, þegar hann var inntur eftir, hvort vænta mætti sterfóútvarps á næstunni. „Aðalumræðan i sambandi við málefni útvarpsins fer nú fram um hækkun afnotagjalda og nýtt útvarpshús” sagði Ingvar. Breytingar á innheimtu af- notagjalda hafa oft verið rædd- ar og þá t.d. að gjöldin væru greidd um leið og simariekning- ar. „Það hefur ekki komið til um- ræðu við mig aö breyta inn- heimtufyrirkomulaginu nú, en útvarpsmenn hafa lagst gegn breytingum og vilja halda út- varpinu fjárhagslega sjálf- stæðu”, sagöi Ingvar. -kp Siðustu viku störfuðu fjórir nemendur Menntaskólans á Akureyri I starfskynningu á ritstjórn Visis og skrifuðu þau grein þá, sem hér birtist. Þau eru f.v.: Dan Brynjarsson, Tómas Lárus Vilbergsson, Asta Björnsdóttir, Björg Gisladóttir. Tllboðsverð: 410.000.- þús. kr. Áður: 574.000.- þús. kr. o 4 .............-- Viö höfum fengiö eina sendingu af hinum afarvinsælu Electrolux kæliskápum meö sérstökum kjörum. Þess vegna getum við boöið kæliskápa á lægra veröi en áöur. Ath. Tilboðsverðiö á aöeins við kæliskápa úr þessari einu sendingu. Electrolux heimilltæki Akranes: Þórður Hjólmsson, Borgarnes: Kf. Borgflröinga, Patreksfj.: Baldvin Kristjónsson, ísafjöröur: Straumur hf., Bolungarvík: Jón Fr. Einarsson, Blönduós: Kf. Húnvetninga, Sauöórkrókur Hegri sf., Siglufjöröur: Gestur Fanndal, Ólafsfjörður: Raftækjavinnustofan Akureyri: K.E.A., fóst ó þessum útsölustööum: Húsavlk: Grlmur & Ámi, Vopnafjöröur Kf. Vopnfiröinga, Egilsstaöir: K.H.B., Seyöisfjöröur: Stólbúöin, Eskifjöröur: Pöntunarf. Eskfiröinga, Neskaupsstaður: Kr. Lundberg, Höfn: K.A.S.K., Þykkvibær Fr. Friöriksson, sf., Vestmanneyjar: Kjarni sf., Keflavík: Stapafell hf. Vörumarkaðurinn hl. ARMÚLAIa S:86117

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.