Morgunblaðið - 25.10.2001, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 C 3
Svissneska
ríkið réttir
fram hjálp-
arhönd
Sviss. Morgunblaðið.
SVISSNESKA ríkisstjórnin
ákvað á mánudag með blessun fjár-
málanefndar þjóðþingsins að hlaupa
undir bagga með svissneskum flug-
rekstri. Ríkið er reiðubúið að greiða
1 milljarð svissneskra franka, rúma
62 milljarða íslenskra króna, til að
halda hluta vetraráætlunar Swissair
gangandi fram á vor. Svissnesk stór-
fyrirtæki munu greiða jafn mikið í
von um að flugreksturinn komist aft-
ur á réttan kjöl.
Nýtt fyrirtæki
verður stofnað á
grunni Crossair
og stefnt verður
að því að fljúga
áfram á fjar-
lægar slóðir í
Asíu, Afríku og
Ameríku frá
Zürich.
Bankarnir
tveir, UBS og
Credit Suisse,
héldu í byrjun
mánaðarins að þeir gætu bjargað
flugrekstrinum einir. Þeir keyptu
stóran hlut í Crossair, sem er syst-
urfyrirtæki Swissair með höfuð-
stöðvar í Basel, og ríkisstjórnin lýsti
því yfir að hún tæki ekki þátt í björg-
unaraðgerðunum. Peningar voru
sagðir fyrir hendi til að halda flugi
Swissair áfram út október.
Vöknuðu við vondan draum
Bankarnir, ríkisstjórnin og þjóðin öll
vöknuðu upp við vondan draum þeg-
ar vélar Swissair voru kyrrsettar í
London af því að flugfélagið skuldaði
lendingargjöld og komust ekki í loft-
ið í Zürich af því að það átti ekki fyrir
bensíni. Það stóð á peningayfir-
færslum frá bönkunum til Swissair í
nokkrar klukkustundir og svissneskt
langleiðaflug fór í strand. Þúsundir
farþega komust ekki leiðar sinnar.
Ríkisstjórnin sá sér ekki annað fært
en að rétta Swissair hjálparhönd, þó
ekki væri nema til að koma stranda-
glópum leiðar sinnar. Swissair er
gjaldþrota og spurningin snýst um
hvernig flugrekstri í landinu verður
haldið áfram.
Crossair, sem var stofnað til að
fljúga litlum vélum á smærri flug-
velli í Evrópu, hefur gott áætlunar-
net í Evrópu. Swissair hefur flogið á
fjarlægar slóðir og stærri flugvelli í
Evrópu. Óttast er að Sviss einangr-
ist og ferðaiðnaðurinn, sem og annar
atvinnurekstur, bíði tjón ef innlent
flugfélag sér ekki um áætlunarflug
til og frá landinu vítt og breitt um
heiminn.
Flest stórfyrirtæki Sviss taka þátt
í björgunaraðgerðunum nú. Nestle
fjárfestir til dæmis 100 milljónir
franka, eins og Novartis, Hoffmann-
La Roche, Swisscom og fleiri.
Hleypur undir bagga
með flugrekstrinum
Svissnesk stjórnvöld
hafa ákveðið að koma
Swissair til hjálpar
ásamt svissneskum
fyrirtækjum.