Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 C 5
SPRON og Netbankinn hafa opn-
að nýjan fjármálavef, hagur.is, en
honum er ætlað að vera hjálpartæki í
fjármálum heimilisins. Vefurinn er
öllum opinn en sækja þarf um að-
gang inni á honum. Á hagur.is er
hægt að setja sér markmið í útgjöld-
um fjölskyldunnar, skipuleggja
sparnað, endurmeta lántöku og
greiðslubyrði lána. Einnig geta not-
endur vefjarins reiknað út eigna-
stöðu og hversu mikil áhrif ný lán-
taka hefur á fjárhaginn. Leið-
beiningar eru með hverjum hluta á
vefnum til þess að auðvelda notkun-
armöguleika. Notendur vefjarins
geta einnig vistað upplýsingarnar og
fengið ráðgjöf hjá þjónustufulltrú-
um. Á vefnum er einnig að finna
ýmsar upplýsingar frá verðbréfasér-
fræðingum SPRON um hvernig best
sé að skipta eignum milli mismun-
andi verðbréfa út frá gefnum for-
sendum.
Geir Þórðarson hjá Netbankanum
segir að markmið SPRON og Net-
bankans með vefnum sé að veita við-
skiptavinum betri þjónustu. „Það
eru sífellt fleiri sem vilja bjarga sér
sjálfir í gegnum Netið óháð stað og
stund. Fólk vill geta haft yfirsýn yfir
fjármálin og geta séð með einföldum
hætti hvort ráðrúm er til fjárfestinga
eða hvort ástæða er til að endurmeta
fjármál heimilisins.“
Á vefnum er svæði sem opið er öll-
um. Þar er að finna orðasafn yfir al-
geng fjármálahugtök, upplýsingar
um skattamál, almenn atriði um hús-
næðiskaup, lánamöguleika, trygg-
ingar og upplýsingar um sparnað og
ávöxtun og ýmsar reiknivélar.
www.hagur.is
SPRON
opnar fjár-
málavef
FISKISTOFA svipti 28 báta veiðileyfi í
septembermánuði, 7 vegna afla um-
fram aflaheimildir en 21 vegna van-
skila á frumriti úr afladagbók. Skipin
sem svipt voru veiðileyfi vegna afla
umfram aflaheimildir voru Snæbjörg
ÍS, Ellen Sig GK og Siggi Gísla en
þessi skip hafa fengið leyfið að nýju
eftir að aflamarksstaða þeirra hafði
verið lagfærð. Leyfissviptingar Sveins
Sveinssonar BA, Árvíkur RE, Guð-
mundar Þórs SH og Blossa GK gilda
þar til aflamarksstaða skipanna hefur
verið lagfærð. Breki VE, Síldin AK, Vísir
SH, Bryndís SU, Dagrún NK, Sumarliði
SH, Jón Trausti RE, Ljúfur BA, Þytur
MB, Svala GK, Anna RE, Skotta NS og
Íris María SF voru öll svipt veiðileyfi
vegna vanskila á afladagbókarfrumriti
en hafa öll fengið leyfið aftur. Ívar SH,
Uggi HF, Sæfari SH, Hrönn AK, Mardöll
BA, Fríða ÍS, Hafdís ÍS og Lukka KÓ
hafa einnig verið svipt veiðileyfi vegna
vanskila á frumriti úr afladagbók.
28 skip
svipt leyfi
◆
ll FRÉTTIR