Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru Selfoss og Helga RE
væntanleg og út fara
Vædderen, Dettifoss og
Selfoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Carpricorn vænt-
anlegt að losa timbur.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551-4349, flóamark-
aður, fataúthlutun og
fatamóttaka, sími 552-
5277, er opið miðvikud.
kl. 14–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og handa-
vinnustofan opin, kl. 13
spilað, kl. 13–16.30 er
smíðastofan opin. Allar
uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 10 banki,
kl. 13 spiladagur, kl. 13–
16 vefnaður, kl. 14 dans.
Þorrablót verður föstu-
daginn 1. febrúar.
Skráning í s. 568-5052
fyrir föstudaginn 1.
febrúar.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga föstudaga
kl. 11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 hárgreiðslu- og
handavinnustofur opn-
ar, kl. 10–10.45 leikfimi,
kl. 14.30 banki.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 bað,
kl. 10 hársnyrting, kl.
10–12 er verslunin opin,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þorrablótið er
24. jan. kl. 19.30 í Fjöl-
brautaskóla Garða-
bæjar. Rúta frá Hlein-
um og Kirkjuhvoli og
Holtsbúð. Miðvikud. 23.
jan. kl. 11.15 og 12.15
leikfimi, kl. 13.05 róleg
leikfimi, kl. 13.30 handa-
vinnuhornið.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag, miðvikudag, línu-
dans kl. 11, pílukast kl.
13.30 og myndlist kl. 13,
á morgun, fimmtudag,
pútt í bæjarútgerð kl.
10–11.30 og boccia kl.
13.30. Sæludagar á Örk-
inni 3.–8. mars. Verð á
mann í tvíbýli 18.500 +
akstur. Skráning í síma
555 0142. Þorrablót fé-
lagsins verður í Hraun-
seli laugardaginn 26.
jan. nk. kl. 19. Verð
2.500 kr. Skráning í
síma 555 0142. Miðarnir
óskast sóttir.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Söng-
félag FEB, kóræfing kl.
17. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19. Fimmtu-
dagur: Brids kl. 13.
Framsögn hefst fimmtu-
daginn 31. janúar kl.
16.15, skráning hafin á
skrifstofu FEB, leið-
beinandi Bjarni Ingv-
arsson. Brids fyrir
byrjendur hefst í febr-
úar. Stjórnandi er
Ólafur Lárusson.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði í Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB
kl. 10–16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, postulín, mósaík
og gifsafsteypur, kl. 9–
13 hárgreiðsla, kl. 9–16
bað. Opið alla sunnu-
daga frá kl. 14–16, blöð-
in og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 eru vinnu-
stofur opnar. Kl. 10.30
gamlir leikir og dansar.
Frá hádegi er spilasalur
opinn. Veitingar í veit-
ingabúð. Á morgun kl.
13.15 er félagsvist í sam-
starfi við Seljaskóla.
Stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon. Vegleg verðlaun.
Allir velkomnir. Allar
uppl. í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb, kl. 13 gler-
listarhópur, kl. 15.15
söngur. Uppl. í síma
554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró-
leg stólaleikfimi, kl. 13
keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 11 banki, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
bað, föndur – klippi-
myndir, kl. 9 og 10 jóga,
kl. 13.30 gönguferð, kl.
14 dans, kl. 15 frjáls
dans, kl. 15 teiknað og
málað. Fótaaðgerð, hár-
snyrting.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
ætla að hittast á morg-
un, fimmtudag, kl. 10 í
keilu í Mjódd. Spiluð
verður keila, spjallað og
heitt á könnunni. Allir
velkomnir. Nánari uppl.
veitir Þráinn Haf-
steinsson í síma 545-
4500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 er opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl.
9–12 tréskurður, kl. 10
sögustund, kl. 13 banki,
kl. 14 félagsvist, kaffi,
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 postulínsmálun
og myndmennt, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður.
Þorrablót verður
fimmtudaginn 7. febr-
úar. Húsið opnað kl. 17.
Veislustjóri er Gunnar
Þorláksson. Ragnar Páll
Einarsson verður við
hljómborðið. Þorrahlað-
borð. Hljómsveit Hjör-
dísar Geirs leikur fyrir
dansi. Aðgangsmiði gild-
ir sem happdrættismiði.
Uppl. og skráning í síma
562-7077. Verð 2.900 kr.
Getum bætt við fleirum
á bútasaumsnámskeið.
Uppl. og skráning í síma
562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 10 fóta-
aðgerðir, morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 12.30 versl-
unarferð, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 15.30
kóræfing.
Álftanes. For-
eldramorgnar í Hauks-
húsum kl. 10–12 í dag.
Heitt á könnunni.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Fé-
lagsvist kl. 19.30.
Kvenfélag Kópavogs
Fundur í kvöld kl. 20.30
í Hamraborg 10. Fyr-
irlesarar frá Gigt-
arfélagi Íslands, Svala
Björgvinsdóttir og Jón-
ína Guðmundsdóttir.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum, boðið
verður upp á sparidaga
á Hótel Örk dagana 14.–
19. apríl. Áhugasamir
hafi samband við ferða-
nefnd sem fyrst.
Eldri borgarar í
Reykjanesbæ. Nám-
skeið á vorönn. Tölvu-
námskeið bæði fyrir
byrjendur og þá sem
eitthvað kunna. Út-
skurðarnámskeiðið
byrjar 12. mars.
Bútasaumsnámskeiðið
er ekki fullt, hafið sam-
band sem fyrst.
Myndmenntanámskeið
er í athugun. Skráning í
síma 861-2085.
Bústaðakirkja. Samvera
eldri borgara í dag kl.
13-16.30. Spilað, föndr-
að, gáta og helgistund.
Gestir úr barnakórum
kirkjunnar. Þeir sem
vilja láta sækja sig láti
kirkjuverði vita í síma
553-8500 eða Sigrúnu í
síma 553-0448 og 864-
1448. Allir velkomnir.
Í dag er miðvikudagur 23. janúar,
23. dagur ársins 2002. Orð
dagsins: Vertu ekki hrædd, litla
hjörð, því að föður yðar hefur
þóknast að gefa yður ríkið.
(Lúk. 12,32.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 bölvar mikið, 8 syfjuð, 9
trylltum, 10 læri, 11
gamla, 13 vondur, 15
laufs, 18 dreng, 21 fúsk,
22 ósanna, 23 glufur, 24
fugl.
LÓÐRÉTT:
2 slítur, 3 kyrrsævi, 4
skömm, 5 sæg, 6 bílífi, 7
lítill, 12 ró, 14 biblíunafn,
15 þvættingur, 16 flangs-
ast upp á, 17 álögu, 18
listar, 19 afturkallaði, 20
landabréf.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skass, 4 barms, 7 ætlar, 8 refur, 9 orð, 11 torf,
13 gaum, 14 eitra, 15 flet, 17 traf, 20 tal, 22 tolla, 23 jurt,
24 korði, 25 terta.
Lóðrétt: 1 skært, 2 aflar, 3 skro, 4 barð, 5 rofna, 6 sær-
um, 10 rotta, 12 fet, 13 gat, 15 fátæk, 16 eflir, 18 rýrar,
19 flaga, 20 tapi, 21 ljót.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
BYGGING tónlistarhúss íReykjavík hefur enn á ný kom-
ist á dagskrá með úrslitum í sam-
keppni um skipulag svæðisins við
höfnina þar sem húsinu er ætlaður
staður. Þarna er líka áætlað að hafa
ráðstefnumiðstöð og hótel og er víst
að starfsemi slíkra stofnana getur
tengst ágætlega saman.
Reykvíkingar og raunar lands-
menn allir hafa ástæðu til að fagna
þessum áfanga að mati Víkverja. Nú
virðast nefnilega athafnir og fram-
kvæmdir í sjónmáli en fram til þessa
hefur aðallega borið á vangaveltum
og hugleiðingum um staðsetningu og
annað slíkt. Allt það er að baki og
framundan að ljúka nauðsynlegum
samningum þeirra sem formlega
munu eiga mannvirkið og hinna sem
eiga að fjármagna og byggja.
Ekki er efi í huga Víkverja um að
nýtt skipulag og ný og fjölskrúðug
starfsemi í miðborg Reykjavíkur á
eftir að hleypa nýju lífi í þennan
hluta borgarinnar sem hefur dalað
nokkuð síðustu árin. Hlýtur því aftur
að verða hlýtt og bjart um bæinn í
alls konar merkingu og er um að
gera að reyna að hespa þessu stór-
virki af á sem skemmstum tíma.
Bæði til að hægt sé að snúa þar í
gang nýrri og fjölbreyttri starfsemi
og til að umrótið í kringum sjálfar
framkvæmdirnar pirri menn ekki í
of mörg ár. Í lokin hvetur Víkverji
menn til að líta í Tjarnarsal ráðhúss-
ins og skoða allar tillögurnar um
svæðið sem þar hanga uppi. Þar er
margt skemmtilegt að sjá.
x x x
LÆKKUN vöruverðs er mikið tilumræðu um þessar mundir og
ástæða til að fagna aðgerðum fyr-
irtækja til að lækka verð enda Vík-
verji á jákvæðu línunni í dag eins og
yfirleitt. Hvert stórfyrirtækið eftir
annað hefur tilkynnt 2, 3 eða 4%
verðlækkun á línuna og hvort sem
það er auglýsingamennska eða ekki
hljóta neytendur að heimsækja þessi
fyrirtæki öðrum fremur ef verðlag
skiptir þá yfirhöfuð einhverju máli.
Á tímum aðhalds og sparnaðar og
þegar þrengra er á vinnumarkaði
þurfa sjálfsagt margir að herða
sultarólina svolítið. Það gerir al-
menningur og það verða fyrirtækin
líka að gera. Vonandi verður það allt
til þess að verðbólgu verði haldið í
skefjum, vextir lækki, verðlag verði
áfram stöðugt og krónan styrkist.
Það hlýtur að koma flestum til góða.
x x x
LÍTIL frétt frá Stykkishólmi íMorgunblaðinu í gær vakti at-
hygli Víkverja. Þar greindi bæjar-
stjórinn frá sex íbúa fjölgun í bænum
á síðasta ári og sagði hann að þessi
íbúafjölgun gæti hafa orðið meiri ef
nægt húsnæði hefði verið fyrir
hendi. Þetta er þriðja ánægjuefni
Víkverja í dag þar sem meira hefur
borið á að íbúum fjölgi á höfuðborg-
arsvæðinu en fækki út um landið.
Þetta á að sjálfsögðu ekki við um
öll bæjarfélög eða allar byggðir út
um land. Víða er nefnilega gott að
búa og engin ástæða til að gefa sér
að allir vilji flytja á mölina. Eflaust
er gott að búa í Stykkishólmi eins og
víðar, næga vinnu að hafa og svo er
ekki heldur svo langt á suðvestur-
hornið ef menn þurfa að sækja eitt-
hvað þangað. Það er kannski grund-
vallarspurningin. Hvað telja menn
sig þurfa að sækja til höfuðborgar-
svæðisins?
EFTIR lestur á bréfi frá
Háskóla Íslands um að búið
sé að taka frá númer fyrir
viðtakanda bréfsins hefur
láðst að nefna í bréfinu að
bæði seld og óseld númer
eru dregin út í næsta
drætti háskólans. Ekki var
tekið fram í bréfinu að
þannig væri gert. Eru þetta
mistök eða er þetta vísvit-
andi gert að sleppa því að
geta þessa? Það sæmir síst
Háskóla Íslands að draga
fólk á asnaeyrum ef þetta
reynist rétt að því hafi ver-
ið sleppt að birta ofannefnt.
Lesandi.
Rás 2 og
aumingjadómur
Framsóknar
BJÖRN Bjarnason
menntamálaráðherra hefur
mælt svo að heilladrjúgt
væri nú fyrir þjóðarhag,
þrátt fyrir mikinn kostnað
og lítil efni Ríkisútvarpsins,
að flytja Rás 2 til Akureyr-
ar.
Og ekki stendur á aum-
ingjadómi Framsóknar að
hlaupa til með skottið á
milli lappanna og fram-
kvæma dýra hugmynd ráð-
herrans. Gerir það nokkuð
til, þjóðin borgar bara vit-
leysuna.
Ég vil þakka því frábæra
starfsfólki sem valist hefur
að Rás 2 í gegnum tíðina og
spilað tónlist jafnt þekktra
sem óþekktra og gefið sem
flestum tækifæri að komast
að með tónlist sína.
Mér þykir miður að Rás
2 skuli vera lögð niður í nú-
verandi mynd.
120734-4749.
Góðir og ódýrir
ÉG vildi taka undir með
Þorbjörgu, sem skrifaði
hér fyrir nokkru, að rétt-
irnir taílensku sem seldir
eru í Nýkaupum og Hag-
kaupum undir merkjum
Thai Choice eru með ein-
dæmum góðir og ódýrari
en gerist. Mikil hagsbót
fyrir heimili sem leggja
mikið upp úr góðum mat en
hafa lítinn tíma eða knöpp
fjárráð. Réttirnir frá Taí-
landi eru svo sannarlega
tælandi.
Jens Þórðarson,
Hellulandi 10.
Vantar lýsingu
MIG langar til að benda á
að það mætti alveg setja
útiljós eða einhvers konar
lýsingu við göngustíginn á
Ægisíðunni. Mér finnst
þetta viss galli að þarna
skuli ekki vera upplýst, því
eins og skammdegið er þá
veitir ekkert af að hafa
upplýst, væri bara
skemmtilegra líka.
Kt. 260376-6169.
Lög úr söngleikjum
MARGRÉT hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hún hlusta mikið á gömlu
gufuna og hafa gaman af en
hún segist aldrei heyra
nein lög úr söngleikjum
eins og t.d. lög eftir Andr-
ew Loyd Webber. Spyr hún
hvernig standi á þessu.
Hækkun í strætó
Í FYRRA gátu aldraðir
keypt 20 strætómiða fyrir
1.000 kr. Í dag kosta þeir
1.600 kr. Er það Strætó
sem stendur fyrir þessum
hækkunum?
Vilhjálmur K.
Sigurðsson.
Tapað/fundið
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND týndist
laugardaginn 12. janúar,
trúlega á leiðinni frá Húsi
verslunarinnar í Kringluna.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 568-8515.
Dýrahald
Páfagaukur
í óskilum
KONAN sem hringdi í
Norðurbrún 1 sunnudaginn
21. janúar er vinsamlegast
beðin að hringja aftur í
síma 568-6960.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Eru þetta
mistök?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Krakkar leika sér við Ísaksskóla.