Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 26

Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. INGA Jóna Þórðardóttir borg-arfulltrúi og oddviti borgar-stjórnarflokks sjálfstæðis-manna, lýsti því yfir á fréttamannafundi í gær, að hún hefði ákveðið að hætta við þátttöku í fyr- irhuguðu leiðtogaprófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Lýsti hún jafnframt stuðningi við að Björn Bjarnason menntamálaráðherra skipaði fyrsta sæti á framboðslista flokksins. Segist hún gera þetta í trausti þess að sjálfstæðismenn sam- einist um að Björn Bjarnason menntamálaráðherra leiði fram- boðslistann. Sjálf sagðist hún vera reiðubúin að taka áttunda sætið á framboðslista flokksins, baráttusæt- ið, ef þess yrði óskað. „Staða flokksins sterk“ Í yfirlýsingu sem Inga Jóna sendi frá sér í gær segir: ,,Sjálfstæðis- menn í Reykjavík eiga sér það sam- eiginlega markmið að sigra í borg- arstjórnarkosningunum í vor og hefja þar með nýja sókn í þágu Reykvíkinga allra. Staða Sjálfstæð- isflokksins er sterk um þessar mundir og sigurlíkur miklar. Ég hef lýst mig reiðubúna að leiða fram- boðslista flokksins í framhaldi af starfi mínu sem leiðtogi hans í borg- arstjórn undanfarin ár. Framundan er spennandi en tvísýn barátta um borgina og því einsýnt að við sjálf- stæðismenn verðum að mæta sam- hentir og einhuga til leiks. Ég hef um árabil verið í góðu sam- bandi við almenna flokksmenn í Reykjavík og lagt eyrun við því sem þeir hafa haft fram að færa bæði á fundum og í einkasamtölum. Á allra síðustu dögum hef ég orðið vör við vaxandi óróa í þeirra röðum og áhyggjur af því að keppni milli stuðningsmanna okkar Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra í fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri gæti orðið harðvítug, skaðað flokkinn verulega og skert möguleika okkar á sigri í vor. Sjálf er ég með öllu óhrædd við þessa keppni og treysti mér til að taka hvort sem er sigri eða ósigri, en ég hlýt að taka mark á þessari sterku tilfinningu sem ég finn hjá því fólki sem fyrst og fremst ber fyrir brjósti styrk og samstöðu flokksins og hagsmuni Reykvíkinga. Þegar svo mikið liggur við eiga forystumenn ekki að sundra liðinu heldur að sameina kraftana. Í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur frammi fyrir því að endurheimta borgina úr höndum R-listans vil ég leggja mitt af mörk- um til að sjálfstæðismenn gangi sameinaðir til þeirrar baráttu. Ég hef því ákveðið að hætta við þátttöku í fyrirhuguðu leiðtogaprófkjöri. Sú ákvörðun er tekin í því trausti að meirihluti sjálfstæðismanna muni sameinast um að Björn Bjarnason leiði framboðslista flokksins. Metnaður minn og sigurvilji fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins er sterkur nú sem fyrr. Í komandi kosningabar- áttu mun ég því leggja fram alla mína krafta og er reiðubúin að skipa áttunda sæti listans, baráttusætið, verði þess óskað af kjörnefnd. Sam- eiginlega getum við tryggt glæsileg- an kosningasigur Sjálfstæðisflokks- ins í vor,“ segir í yfirlýsin Jónu. Meginmarkmiðið er Hún sagðist á fréttamann um vera í góðu sambandi v menn Sjálfstæðisflokksins mark á því sem þeir segðu ekki fyrir nokkurn mun að til einhver sú tilfinning, ei kvíði og þeir erfiðleikar se varpa skugga á og draga m okkur í kosningabaráttun Því megum við aldrei gley stæðismenn, að það sem mestu máli eru borgarstjór ingarnar sjálfar. Það að s lista, að ákveða hverjir hverjir sitja í hvaða sæti mál. Meginmarkmiðið er það er það sem við eigum a leiðarljósi. Það er það sem leiðarljósi og ég tek mark sterku tilfinningu sem ég fi þetta muni geta leitt til ó aðar, verði fremur olía á þ og kyndi undir hjá okkar ingum. Ég ætla að koma í það og ef við Björn Bjarnas höndum saman og vinnum og vel í þessari kosningaba er ég sannfærð um að Sjá flokkurinn vinnur glæsileg vor,“ sagði Inga Jóna. Stend ein að þessari ák Aðspurð hvort ákvörðu þýddi að Björn Bjarnason h ar ákveðið að gefa kost á ystusætið, sagðist Inga J hafa vitneskju um það. ,,É gera þetta í trausti þess Inga Jóna Þórðardóttir dregur framboð s Forystumenn sundr ekki liðinu heldur sameini kraftana Inga Jóna Þórðardóttir hefur ákveðið að draga framboð si leiðtogaprófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík til baka. Se hún gera þetta í trausti þess að þeir sameinist um að Björ Bjarnason leiði framboðslistann. Ómar Friðriksson var fréttamannafundi sem Inga Jóna boðaði til í gær. „ÉG þakka sér- staklega þennan stuðning sem kemur fram í yfirlýsingu Ingu Jónu og ég er henni innilega sammála um það, að lykillinn að því að við sjálfstæðismenn náum árangri í kosningunum í vor er að sjálfsögðu að við stöndum saman,“ sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra um þá ákvörðun Ingu Jónu Þórðardóttur borgarfulltrúa, að draga framboð sitt í leiðtogakjöri sjálfstæð- ismanna í Reykjavík til baka og lýsa stuðningi við Björn í fyrsta sætið. „Ég hef alltaf nálgast þetta mál þannig að stuðla að sem mestri samstöðu um það innan flokksins ef ég ætti að leiða lista flokksins í kosningunum í vor. Og vissulega hefur þetta styrkt enn forsend- urnar fyrir því að ég geri það,“ sagði Björn ennfremur. Kjördæmisþing sjálfstæðis- manna í Reykjavík verður haldið næstkomandi laugardag og segist Björn aðspurður þá ætla að gefa yfirlýsingu um hvort hann taki þátt í leiðtogaprófkjöri sem sam- þykkt hefur verið að halda vegna uppstillingar á lista Sjálfstæð- isflokksins fyrir borgarstjórn- arkosningarnar í vor. Inntur álits á því boði Ingu Jónu Þórð- ardóttur, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn, að taka áttunda sæti framboðslistans í vor, segir Björn það vera kjörnefndar að fjalla um það. Björn Bjarnason menntamálaráðherra Þakklátur fyrir stuðning Ingu Jónu Björn Bjarnason „ÞETTA er mjög mikilvæg og þýðingarmikil yf- irlýsing af hálfu Ingu Jónu. Það er ljóst að hún er ekkert að hugsa um eigið skinn í þessum efnum heldur hagsmuni heildarinnar og að skapa sem best skilyrði þess að það megi leggja grunn að því að koma hér á góðri stjórn í höfuðborg- inni á nýjan leik. Mér þykir vænt um að þetta skuli ganga fram með þess- um hætti,“ sagði Davíð Oddsson for- sætisráðherra um ákvörðun Ingu Jónu Þórðardóttir að taka e leiðtogaprófkjöri en lýsa yfi ingi við Björn Bjarnason. Davíð sagðist ekki vera þ skoðunar að átök í prófkjör dregið úr sigurlíkum Sjálfst isflokksins í kosningunum í fór sjálfur í mjög hart prófk 1981 til þess að undirbúa ko arnar 1982. Þá var mjög har slagur og mjótt á milli mann engu að síður vannst meirih framhaldinu. Hins vegar he það sé betra ef menn ná sam listann án átaka og það hefð þótt árið 1981. Átök í prófkj tímafrek og reyna mikið á f segja má að þetta taki dálíti inn úr baráttunni. Fullt sam milli helstu aðila í þessum e auðvitað farsælla.“ Björn Bjarnason hefur ek gefið formlega yfirlýsingu u boð til borgarstjórnar. „Það vitað hans að ákveða það, en við hvernig mál hafa þróast langt kominn með að ganga því að hann bjóði sig fram.“ Davíð sagðist ekki hafa k lægt ákvörðun um þessi fra mál nema sem áhorfandi. In hefði látið sig vita af ákvörð skömmu áður en hún boðað blaðamannafundar í gær. Davíð sagðist telja að sig Sjálfstæðisflokksins í kosni vor væru góðar og þá hefði urstaða framboðsmála flokk ekki þurft að skipta máli. „B Davíð Oddsson forsætisráðherra Mikilvæg yfirlýsing frá Ingu Jónu Davíð Oddsson BORGARSTJÓRNARFRAMBOÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Inga Jóna Þórðardóttir, oddvitiborgarstjórnarflokks sjálf-stæðismanna, lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær, að hún mundi draga framboð sitt í svo- nefndu leiðtogaprófkjöri sjálfstæð- ismanna, sem fyrirhugað er í febr- úar, til baka og jafnframt lýsti hún stuðningi við Björn Bjarnason menntamálaráðherra sem forystu- mann framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórnarkosning- unum í vor. Borgarfulltrúinn kvaðst enn- fremur tilbúinn til að skipa 8. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins yrði eftir því leitað. Þetta er örlagarík yfirlýsing og með henni hafa nýjar víglínur ver- ið dregnar í þeirri kosningabar- áttu, sem framundan er á milli Reykjavíkurlistans og Sjálfstæðis- flokksins. Gera má ráð fyrir, að framundan sé einhver harðasta kosningabarátta í Reykjavík í langan tíma eða frá því að Sjálf- stæðisflokkurinn endurheimti meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur eftir fjögurra ára tímabil vinstri stjórnar í borginni frá 1978–1982. Með yfirlýsingu sinni sýnir Inga Jóna Þórðardóttir mikinn pólitísk- an styrk. Hún hefur í einu vetfangi höggvið á þann pólitíska hnút, sem skapazt hafði í framboðsmálum Sjálfstæðisflokksins í höfuðborg- inni og komið í veg fyrir þá sundr- ungu, sem fylgt getur harðri próf- kjörsbaráttu. Um ákvörðun sína sagði borgarfulltrúinn á blaða- mannafundi í gær: „Þegar svo mikið liggur við eiga forystumenn ekki að sundra liðinu heldur að sameina kraftana. Í ljósi þess, að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík stendur frammi fyrir því, að endurheimta borgina úr höndum R-listans vil ég leggja mitt af mörkum til að sjálfstæðismenn gangi sameinaðir til þeirrar bar- áttu.“ Inga Jóna Þórðardóttir skýrði ákvörðun sína á þann veg, að hún hefði orðið vör við vaxandi óróa í röðum almennra flokksmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og áhyggjur af því, að keppni milli stuðningsmanna hennar og Björns Bjarnasonar í fyrirhuguðu leið- togaprófkjöri gæti orðið harðvít- ug, skaðað Sjálfstæðisflokkinn verulega og skert möguleika hans á sigri í kosningunum í vor. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra sagði af þessu tilefni síð- degis í gær: „Ég þakka sérstak- lega þennan stuðning, sem kemur fram í yfirlýsingu Ingu Jónu og ég er henni innilega sammála um það, að lykillinn að því að við sjálfstæð- ismenn náum árangri í kosning- unum í vor er að sjálfsögðu að við stöndum saman.“ Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sagði um þessa ákvörðun Ingu Jónu: „Það er ljóst, að hún er ekkert að hugsa um eig- ið skinn í þessum efnum heldur hagsmuni heildarinnar…“ Af þessum ummælum öllum má ljóst vera, að með yfirlýsingu Ingu Jónu Þórðardóttur í gær hefur verið sköpuð sterk samstaða meðal forystumanna Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda kosningabaráttunnar vegna borgarstjórnarkosninganna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sló tóninn af sinni hálfu með þeim orðum, sem hún lét falla í kjölfar yfirlýsingar Ingu Jónu Þórðardóttur, þegar borgar- stjóri rifjaði upp, að sjálfstæðis- menn í borgarstjórn hefðu búið við forystu þriggja oddvita á síðustu átta árum og nú væri enn skipt um forystumann skömmu fyrir kosn- ingar. Hvernig sem á þetta mál er litið fer ekki á milli mála, að framboðs- listi undir forystu Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra með Ingu Jónu Þórðardóttur í baráttu- sæti er mjög öflugur listi. Kjós- endur í Reykjavík geta því ekki kvartað undan því, að þeir eigi ekki góðra kosta völ þar sem eru frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Björn Bjarnason hefur á tæp- lega sjö ára ferli sem menntamála- ráðherra áunnið sér virðingu fólks í menntakerfinu og menningarlíf- inu langt út fyrir raðir stuðnings- manna Sjálfstæðisflokks. Í um- ræðum síðustu daga og vikur hefur mátt greina áhyggjur fólks á þessum sviðum þjóðlífsins yfir hugsanlegri brottför hans úr menntamálaráðuneytinu. Áður hafði menntamálaráðherra skapað sér nafn í stjórnmálaumræðum á Íslandi sem einn helzti sérfræð- ingur landsins í utanríkis- og varn- armálum. Inga Jóna Þórðardóttir á að baki langan starfsferil á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og er einn þeirra forystumanna flokksins, sem hafa ræktað grasrótina mjög vel. Frá því hún tók við forystu borgarstjórnarflokks sjálfstæðis- manna hefur hún smátt og smátt mótað sterkan málefnagrundvöll fyrir Sjálfstæðisflokkinn í minni- hluta borgarstjórnar og skapað meira jafnræði í opinberum um- ræðum um borgarmál á milli minnihluta og meirihluta í borg- arstjórn Reykjavíkur. Það bíður nýs framboðslista Sjálfstæðismanna að móta stefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar og er ekki ósennilegt að hún mótist meir af pólitískum sjónarmiðum en stundum áður. Með þeirri atburðarás, sem orð- in er á vettvangi Sjálfstæðis- flokksins, má segja að sjálfstæð- ismenn hafi tekið ákveðið frum- kvæði í aðdraganda kosninga. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Reykjavíkurlistinn svarar því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.