Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Norræna húsið Myndasýning frá kajakaferð um Angmagsalik sl. sum- ar verður kl. 20. Sýndar verða myndir úr níu daga ævintýraferð Ís- lendinga á sjókajökum um lognsæla firði Austur-Grænlands þar sem borgarísinn er í aðalhlutveki. Á ferð sinni heimsóttu þeir veiðimanna- samfélögin Kulusuk, Kungmiut Sermiligaq og Qernertivartivit og blönduðu geði við innfædda. Goethe-Zentrum, Laugavegi 18 Þýska gamanmyndin Sonnenallee, frá árinu 1999, verður sýnd kl. 20.30. Sonnenallee er gata sem var að hluta í Austur-Berlín og að hluta í Vestur-Berlín. Hér segir frá Micha, 17 ára Austur-Þjóðverja á áttunda áratugnum. Lífið fyrir austan múr- inn einkennist af nákvæmni og reglufestu og stöðugu eftirliti. Leik- stjóri er Leander Haussmann. Í DAG LEIKRITIÐ Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur hefur verið tilnefnt til norrænu leik- skáldaverðlaunanna árið 2002. Leik- ritið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í febrúar í fyrra. Aðalpersónur verksins eru mæðg- ur; leikkonur, sem ráku til skamms tíma tilraunaleikhús. Á sama tíma og rifjuð er upp á kvikmyndatjaldi ör- lagarík sýning í leikhúsinu varpa per- sónurnar á sviðinu ljósi á flókið sam- spil sín í milli sem gerir hvorutveggja í senn, að brjóta niður samband þeirra og binda þær enn fastar hvor annarri. Hrafnhildur Hagalín sagði í sam- tali við Morgunblaðið að tilnefningin væri sér mikill heiður. „Mér finnst þetta eiginlega ennþá skemmtilegra en þegar ég var tilnefnd fyrir tíu ár- um fyrir Ég er meistarinn. Þetta kom flatt uppá mig núna, en alveg í bakið á mér þá. En vegna þess að þetta er bara annað leikritið mitt, og erfitt að fylgja hinu eftir sem gekk svona vel; þá er þetta ekki síður skemmtilegt.“ „Vönduð persónusköpun og áhrifamikil uppbygging“ Í umsögn sinni sagði dómnefnd meðal annars: „Undir einföldu yfir- borði leikritsins býr vandlega útfærð og margræð útlegging á goðsögninni um hina harmi slegnu Elektru, en hún bíður þess að mega hefna dauða föður síns sem móðirin myrti. Í leik- riti Hrafnhildar er lögð megináhersla á glímu dótturinnar við ofurveldi móðurinnar sem virðist hafa öll ráð í hendi sér. Sérhverri tilraun ungu konunnar til þess að eiga óþvinguð samskipti við móður sína, hina síungu gyðju, er svarað með yfirlæti eða móðurlegum umvöndunum. Þar með hallar dóttirin sér að minningunni um föður sinn sem fær sérstakan sess í huga hennar og fyllir hana um leið hefndarþorsta í garð þessarar konu sem hún elskar bæði og hatar. Í Hægan Elektra fer saman vönduð og áhugaverð persónusköpun og áhrifa- mikil uppbygging þar sem form og innihald mynda órofa heild. Texti leikritsins er tilgerðarlaus, en ljóð- rænn og tær. Þótt annað mætti ætla við lestur verksins er það einungis annað leikrit Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur. Hún er ungt en þroskað leikskáld sem skrifar um persónur sínar af alvöru og virðingu. Hún hefur ríka formhugsun, einlæg- an áhuga á leikhúsforminu og reynir með afdráttarlausum hætti á þanþol þess.“ Í dómnefnd, skipaðri af stjórn Leiklistarsambands Íslands, sátu leikhúsfræðingarnir Ingunn Ásdísar- dóttir, Bjarni Jónsson og Magnús Þór Þorbergsson. Hrafnhildur Haga- lín Guðmundsdóttir er að semja sitt þriðja leikrit, að þessu sinni fyrir Leikfélag Reykjavíkur, og verður því væntanlega lokið í vor. Leikritið Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín tilnefnt til norrænu leikskáldaverðlaunanna Erfitt að fylgja „Meistaranum“ eftir Morgunblaðið/Ásdís Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir tekur við blómum úr hendi Bjarna Jónssonar sem sæti á í dómnefndinni. Í bakgrunni er Viðar Egg- ertsson sem leikstýrði Hægan Elektra í Þjóðleikhúsinu. RITHÖFUNDURINN og ljóð- skáldið Bill Holm verður með dag- skrá í Salnum, Tónlistarhúsi Kópa- vogs í kvöld, þar sem hann les úr verkum sínum, segir skemmtisög- ur, syngur og leikur á píanó. Bill Holm er Vestur-Íslendingur, ættaður úr Vopnafirði. Forfeður hans námu land í Minnesota, en þar fæddist Holm árið 1943. Hann kom fyrst til Íslands á áttunda áratugn- um en fyrir nokkrum árum festi hann kaup á húsi á Hofsósi í Skaga- firði. Holm starfar við háskóla- kennslu og ritstörf í Minnesota og sækir hann oft efnivið bóka sinna til Vestur-Íslendinga, og kynnum sín- um af Íslandi. „Á upplestrarkvöld- inu mun ég m.a. lesa upp úr nýrri bók minni, Eccentric Islands, þar sem ég lýsi m.a. upplifun minni af því að koma til Íslands árið 1979, en þá dvaldi ég hér við háskóla- kennslu, og að koma síðan aftur ár- ið 1996, í algerlega breytt þjóð- félag. Í hvert skipti sem ég hef komið til Íslands síðan, hefur ný verslunarmiðstöð verið reist,“ segir Bill Holm hress í bragði þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans. Á Hofsósi fann Holm hins vegar af- drep við sjóinn þar sem hann sinnir ljóðaskrifum. „Þeir Bandaríkja- menn sem lesið hafa bókina segjast sannfærðir um að Ísland hljóti að vera einn rómantískasti og bók- menntalega sinnaði staðurinn á jarðarkringlunni. Ég held að þetta sé satt,“ bætir Holm við og hlær. Samhliða upplestrinum mun Bill syngja og leika á píanóið, en hann hefur alla tíð verið mikill áhuga- maður um tónlist, ekki síst djass- tónlist. Aðspurður segist hann munu sitja við píanóið á upplestr- arkvöldinu. „Dagskráin verður að einhverju leyti spunnin af fingrum fram. Sú hefð að flytja ljóð við und- irleik tónlistar er vel þekkt form í Bandaríkjunum. Ég bæti þar við spjalli og frásögnum, en frásagn- argleðin tengist eflaust íslenskum uppruna mínum. Í tengslum við út- komu Eccentric Islands fór ég á ýmsa staði innan Bandaríkjanna til að kynna bókina, og flutti upplestra þar sem ég blandaði saman lestri, spjalli og tónlist. Tökumaður fylgdi mér reyndar eftir, tók upp ýmislegt það sem ég lét út úr mér í þessari kynningarferð og gaf út geisladisk- inn „Holmward Bound“, þar sem gantast er dálítið með nafnið mitt. Vigdís, forstöðumaður Salarins, stakk upp á að ég flytti dagskrá í þessum anda eftir að ég sendi henni eintak af disknum,“ segir Holm. Þó svo að Holm dvelji eftir megni á Íslandi, einkum á sumrin, þar sem hann heldur til á Brimnesi, litlu húsi við höfnina á Hofsósi, en nú hefur hann einungis í skamma við- dvöl. „Í gær fór ég á Ashkenazy- tónleikana í Salnum, og eftir upp- lestrarkvöldið fer ég norður á Þorrablót. Það er sannarlega mikils virði að koma hingað og lesa upp fyrir íslenska áhorfendur í þessari fínu aðstöðu í Salnum. Hljómburð- urinn er þar svo góður og andrúms- loftið svo náið að salurinn er í raun kjörinn fyrir upplestrarkvöld. Það væri því gaman að sjá eitthvað af þeim góðu skáldum sem Íslend- ingar eiga halda upplestrarkvöld af þessu tagi í Salnum,“ segir Bill Holm að lokum. Dagskráin í Saln- um hefst kl. 20 og fer fram á ensku. Að henni lokinni mun höfundurinn árita bækur sínar. Vestur-íslensk frá- sagnargleði í Salnum Morgunblaðið/Steinþór Rithöfundurinn Bill Holm við píanóið á Brimnesi á Hofsósi. ROY P. Mottahedeh, virtur sagn- fræðingur og sérfræðingur í sögu ísl- ams, hefur lagt til að íslamskir fræði- menn semji „íslamska ákæru“ á hendur þeim sem stóðu fyrir hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september. Mottahedeh, sem er prófessor við Harvard-há- skóla, vill að Osama bin Laden og aðrir leiðtogar hryðjuverkasam- takanna al-Qaeda verði ákærðir fyrir glæpi gegn mannkyninu og leiddir fyrir alþjóðlegan dómstól ef þeir nást. Hann segir að hvort sem þeir verði dregnir fyrir alþjóðlegan dóm, borgaralegan dómstól í Bandaríkj- unum eða herrétt eigi að leggja fram ákæru eða yfirlit um hvernig hryðju- verkin brjóti gegn íslömskum lögum. Árásir af ásettu ráði á varnarlaust fólk bannaðar Mottahedeh segir að mjög ólíklegt sé að leiðtogar al-Qaeda verði leiddir fyrir íslamskan dómstól en þeir hafi augljóslega brotið íslömsk lög með hryðjuverkunum 11. september. Anne-Marie Slaughter, prófessor í þjóðarétti við Harvard-háskóla, styður tillögu Mottahedeh og segir þau vona að „íslamskir lögfræðingar og fræðimenn í Bandaríkjunum og erlendis“ semji íslamska ákæru, án afskipta Bandaríkjastjórnar. Þannig hafi ákæran meiri áhrif á almenn- ingsálitið og sýni Bandaríkjamönn- um og öðrum, sem ekki eru múslím- ar, að ekki ætti að leggja íslam og hryðjuverk að jöfnu. Slík ákæra myndi einnig sýna múslímum út um allan heim að árásir af ásettu ráði á varnarlaust fólk séu bannaðar sam- kvæmt íslömskum lögum. Mottahedeh, sem sérhæfir sig í sögu íslams á miðöldum en er ekki múslími, kvaðst vilja semja ákæruna í samstarfi við sérfræðinga í íslömsk- um lögum. „Það skiptir ekki mestu máli hverjir semja hana, heldur hverjir undirrita hana,“ sagði hann og kvaðst vona að virtustu sérfræð- ingar í lögum íslams út um allan heim legðu blessun sína yfir ákær- una. Nokkrir virtir íslamskir fræði- menn hafa fordæmt hryðjuverkin 11. september en Mottahedeh segir að enginn hafi útlistað í smáatriðum hvernig þau brjóti gegn íslömskum lögum. Gaf út tilskipanir án þess að hafa vald til þess Mottahedeh lýsti hugmyndum sín- um um slíka ákæru á ráðstefnu um trúarbrögð og átök í heiminum sem haldin var í Flórída á dögunum. Hann sagði að þótt súnníta og shíta- múslíma greindi á um hverjir hefðu vald til að lýsa yfir stríði væru músl- ímar almennt sammála um þær leik- reglur sem hermönnum bæri að fylgja í stríði. Mottahedeh sagði að í fyrsta lagi ætti að ákæra bin Laden og sam- starfsmenn hans fyrir að brjóta bann við því að ráðast af ásettu ráði á sak- lausa borgara. Þetta væri meðal ann- ars byggt á ummælum Múhameðs spámanns um að ekki mætti drepa börn, konur og aldraða menn. John Kelsey, trúarbragðaprófess- or við ríkisháskólann í Flórída og höfundur bókarinnar „Íslam og stríð“, segir að einnig ætti að ákæra bin Laden fyrir að gefa út trúarlegar tilskipanir án þess að hafa vald til þess, t.a.m. árið 1998 þegar hann skoraði á múslíma út um allan heim að drepa Bandaríkjamenn. Kelsey leggur ennfremur til að bin Laden verði ákærður fyrir að hafa valdið saklausum múslímum í Afgan- istan skaða með hryðjuverkunum því þau hafi leitt til hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna í landinu. Khaled Abou el Fadl, prófessor í íslömskum lögum við Kaliforníuhá- skóla í Los Angeles, styður einnig tillögu Mottahedeh og segir að bin Laden hafi gerst sekur um glæp sem kallaður hefur verið hirabah. El Fadl skilgreinir þennan glæp sem „morð af ásettu ráði á fórnarlambi með það að markmiði að valda skelfingu í samfélagi“. Hann sagði að þeir sem gerðust sekir um hirabah væru flokkaðir með sjóræningjum og hægt væri að leiða þá fyrir erlenda dómstóla. „Íslömsk ákæra“ gegn al-Qaeda? The Washington Post. Osama bin Laden FÁTÍTT er að farþegar dveljist á salerni flugvéla gegn vilja sínum en þau urðu samt örlög banda- rískrar konu sem tók sér far með Boeing-767-þotu SAS-félagsins vestur yfir Norður-Atlantshaf á dögunum. Konan gefur SAS ekki háa ein- kunn eftir að hafa setið föst á sal- erni þotunnar í rúmar tvær klukkustundir á leiðinni til New York. Hún átti, sem vart er í frá- sögur færandi, erindi á salerni meðan á fluginu yfir Atlantshafið stóð en rataði í miklar ógöngur. Vandræðin hófust er konan sturtaði niður áður en hún stóð upp. Henni til mikillar skelfingar greip sogkraftur niðurfallsins hana heljartökum og gat hún sig hvergi hreyft. Er konunni varð ljóst að hún sæti klossföst freistaði hún þess að ná athygli áhafnarinnar en hún gat enga björg henni veitt; engin ráð hennar dugðu. Losnaði hún ekki úr prísundinni fyrr en eftir lendingu í New York og áhöfnin hafði kallað tæknimenn af flug- vellinum sér til aðstoðar. Atvikið átti sér stað á nýliðnu ári og staðfestir talsmaður SAS að konan hafi lagt fram formlega kvörtun. Sömuleiðis að flugfélagið muni veita henni bætur vegna mannraunarinnar. Flugliðar hafa að venju augun hjá sér með far- þegum sem halda lengi kyrru fyr- ir á salernum ef ske kynni að þeir tækju upp á reykingum eða ann- arri iðju sem blátt bann liggur við. Hins vegar mun afar fátítt að far- þegar dveljist á salerni gegn vilja sínum. Föst á salerni SAS-vélar Kona fær greiddar bætur fyrir tveggja tíma nauðungarsetu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.