Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 21 KONGÓMENN úr röðum flótta- manna frá borginni Goma búa sig undir að elda morgunverð í Nkam- ira-búðum sem reistar hafa verið í grannríkinu Rúanda. Eldgos í fjall- inu Nyiragongo 17. janúar olli því að hundruð þúsunda manna flúðu Goma þar sem flest hús eru nú brunnin eða undir hrauni. Hugs- anlegt er að tugir manna hafi farist en engar áreiðanlegar upplýsingar um manntjónið hafa borist. Hætta er talin á farsóttum meðal fólksins en aðstoð er þegar farin að berast. Reuters Morgun- verður flótta- fólksins HÓPUR rússneskra tónlistar- manna vill, að jarðneskar leifar landa þeirra, tónskáldsins Serg- eis Rachmaninoffs, verði fluttar heim til Rússlands en þær hvíla nú í kirkjugarði í New York. „Rachmaninoff unni Rússlandi og vildi snúa aftur,“ sagði Víkt- or Merzhanov, prófessor og formaður Rachmaninoff-fé- lagsins, í viðtali við ITAR- Tass-fréttastofuna. Rachman- inoff og fjölskylda hans flýðu Rússland eftir byltingu bolsév- ika og settust að á Vesturlönd- um. Hann lést 1943, 69 ára að aldri og var þá grafinn í Kens- ico-kirkjugarðinum í Valhalla í New York. Dregur úr sölu hvalkjöts í Japan JAPANSKIR kaupmenn sitja nú í fyrsta sinn uppi með nokk- uð af óseldu hvalkjöti og er það rakið til minni eftirspurnar al- mennt vegna efnahagserfiðleik- anna í landinu. Af 725 tonnum, sem féllu til á vertíðinni í fyrra, hafa um 50 tonn ekki gengið út, aðallega vegna dræmrar sölu í borgunum. Japanir skjóta ár- lega nokkur hundruð hvali í vís- indaskyni og hafa til þess sam- þykki Alþjóðahvalveiðiráðsins. Friðunarsinnar segja megintil- gang veiðanna vera að sjá veit- ingahúsunum fyrir hvalkjöti. Banzer ekki handtekinn OSCAR Crespo, ríkissaksókn- ari í Bólivíu, hefur hafnað kröfu argentínska dómarans Rodolfo Canicoba Corrals um að Hugo Banzer, fyrrverandi forseti Ból- ivíu, verði handtekinn og fram- seldur til Argentínu. Sakar hann Banzer um að hafa tek- ið þátt í samsæri með öðrum einræðisherrum í Suður-Amer- íku á áttunda áratugnum um að útrýma pólitískum andstæðing- um, áætlun sem nefnd var Plan Condor. Banzer var einræðis- herra í Bólivíu frá 1971 til 1978 en var kjörinn forseti 1997. Lét hann af embætti á síðasta ári vegna veikinda. Hann neitar að hafa tekið þátt í mannránunum og morðunum á sínum tíma. Fagna komu Steiners LEIÐTOGAR stjórnmálaflokk- anna í Kosovo sögðust í gær vera fúsir til samstarfs við Þjóð- verjann Michael Steiner en hann hefur verið skipaður yfir- maður bráðabirgðastjórnar Sameinuðu þjóðanna í héraðinu. Tekur hann við af Hans Hækkerup, sem sagði af sér og hætti um áramót. Steiner var áður ráðgjafi Gerhards Schröd- ers, kanslara Þýskaland, og tek- ur við á nokkuð erfiðum tíma. Gengur hvorki né rekur við að koma saman stjórn í héraðinu vegna ágreinings milli flokk- anna og það er enn forsetalaust af sömu ástæðum. STUTT Vilja fá Rachman- inoff heim Hugo Banzer RÚSSNESKIR hermenn börðu, rændu og pyntuðu óbreytta borgara í þorpinu Tsotsín-Júrt í Tsjetsjníu í fjóra daga um síðustu áramót þegar þeir leituðu að tsjetsjneskum upp- reisnarmönnum, samkvæmt nýrri skýrslu frá helstu mannréttinda- hreyfingu Rússlands, Memorial. Að minnsta kosti þrír íbúar þorps- ins voru myrtir og sex annarra er saknað, að sögn hreyfingarinnar. Vestrænar ríkisstjórnir hafa oft gagnrýnt mannréttindabrot rúss- neskra hermanna í Tsjetsjníu. Russ- ell-Johnston lávarður, formaður þing- mannasamkundu Evrópuráðsins, sagði í fyrradag að ekkert lát væri á mannréttindabrotunum. Rússneskir saksóknarar segjast hafa hafið alls 358 rannsóknir á ásök- unum um mannréttindabrot gegn óbreyttum borgurum í Tsjetsjníu. Aðeins um fimmtungur þessara mála hefur í raun verið rannsakaður og mjög fáir hermenn hafa verið ákærð- ir, að sögn mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. Rússneski hershöfðinginn Vladím- ír Moltenskoj, yfirmaður hersveit- anna í Tsjetsjníu, sagði fyrr í mán- uðinum að hann teldi ekki að hermennirnir hefðu ráðist á saklausa þorpsbúa. Rússneskir embættismenn segja að markmiðið með aðgerðum hersins, sem stóðu frá 30. desember til 3. janúar, hafi verið að hrekja upp- reisnarmenn frá fjallavígjum þeirra. Talsmaður rússnesku stjórnarinnar sagði að hermennirnir hefðu fellt eða handtekið meira en 90 uppreisnar- menn. Eyru, nef og kynfæri skorin af líkunum Rússneska mannréttindahreyfing- in segir að aðgerðin hafi ekki borið eins mikinn árangur og stjórnvöld létu í veðri vaka. Hún fann þó engar vísbendingar um að tugir óbreyttra borgara hefðu verið myrtir eins og Glasnost-Media, hreyfing sem fylgist með rússneskum fjölmiðlum, hafði haldið fram. Aðgerðin hófst 30. desember þegar hermenn handtóku mann í húsi við út- jaðar þorpsins. Þeir hótuðu að hrinda móður hans, sem var viti sínu fjær af hræðslu, ofan í kjallara hússins og kasta handsprengju á eftir henni. Hermennirnir notuðu síðan mann- inn og nágranna hans sem „skjöld“ þegar þeir réðust inn í annað hús þar sem þrír tsjetsjneskir uppreisnar- menn höfðu falið sig. Mennirnir tveir lifðu af skotbardaga milli her- mannanna og uppreisnarmannanna en þorpsbúar fundu síðar lík þeirra nálægt bækistöðvum hermannanna. Að sögn mannréttindahreyfingarinn- ar höfðu eyru, nef og kynfæri mann- anna verið skorin af þeim. Meira en 100 þorpsbúar voru hand- teknir og margir þeirra urðu fyrir barsmíðum, að sögn skýrsluhöfund- anna. Hermenn eru sagðir hafa sett plastpoka yfir höfuð nokkurra þorps- búa til að fá þá til að viðurkenna að þeir væru uppreisnarmenn. Einn þeirra kvaðst hafa spurt hermennina hvers vegna þeir berðu fólkið og svar- ið var: „Vegna þess að þið eruð Tsjetsjenar.“ Þorpsbúarnir sögðu að hermenn- irnir hefðu stolið af þeim bílum, verk- færum, skartgripum, fötum, matvæl- um og peningum. Einn þorpsbúanna sagði að hermenn hefðu ráðist inn í hús hans, kastað fótalausri konu úr hjólastól og neitað að afhenda hann nema þeir fengju allt sparifé hennar, andvirði rúmra 30.000 króna. Sagðir hafa pyntað og myrt þorpsbúa Ný skýrsla birt um aðgerðir rúss- neskra hermanna í Tsjetsjníu Moskvu. The Washington Post. YFIRVÖLD í Rússlandi lokuðu óháðu sjónvarpsstöðinni TV6 í miðri útsendingu í fyrrakvöld. Starfsmenn stöðvarinnar og fréttaskýrendur sögðu að útsendingarnar hefðu verið stöðvaðar til að þagga niður í síðustu sjónvarpsstöðinni sem nær til mest- alls Rússlands og hefur gagnrýnt Vladímír Pútín forseta og aðra ráða- menn í Kreml. Míkhaíl Y. Lesín, fjölmiðlunarráð- herra Rússlands, kvaðst ekki hafa átt annars úrkosti en að loka TV6 eftir að dómstóll úrskurðaði í fyrra- kvöld að svipta bæri stöðina leyfi til útsendinga. „Ráðamenn í Kreml eru að und- irbúa næstu forsetakosningar og vilja að allar stóru sjónvarpsstöðv- arnar fjórar syngi sama lag hollustu og velþóknunar,“ sagði Ígor M. Kljamkín, framkvæmdastjóri fé- lagsfræðilegrar rannsóknarstofnun- ar í Moskvu. Hann spáði því að hroll- ur færi um alla þá sem hygðust gagnrýna ráðamennina í Kreml. „Þeir sýndu öllum fjölmiðlunum, öll- um blaðamönnum, að þeir geta lokað stórri sjónvarpsstöð, rétt sisvona.“ Er þetta í fyrsta sinn frá árinu 1991 sem engin sjónvarpsstöð, sem nær til mestalls Rússlands, heldur uppi gagnrýni á stefnu stjórnvalda. Hinar stóru stöðvarnar eru annað- hvort í eigu eða undir stjórn ríkisins eða sýna aðeins afþreyingarefni. Dómstóll í Moskvu úrskurðaði fyrr í mánuðinum að TV6 væri gjald- þrota. Úrskurðurinn byggðist á lög- um, sem heimila að minnihluti hlut- hafa geti krafist gjaldþrotaskipta. Sjaldan hafði reynt á þessi lög og þeim hefur nú verið breytt. Lífeyr- issjóður olíufélagsins Lukoil, sem á 15% hlut í TV6, krafðist gjaldþrota- skiptanna. Síðustu óháðu sjón- varpsstöðinni lokað Moskvu. Los Angeles Times. Taska aðeins 750 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.