Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.01.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ VERKEFNIÐ „Hættu áður en þú byrjar“ er samstarfs- verkefni Lögreglunnar í Reykjavík, Félagsþjónust- unnar í Reykjavík og for- varnar- og hjálparstarfs Marita á Íslandi og er ætlað að fræða nemendur um af- leiðingar fíkniefna. Þegar blaðamaður og ljós- myndari koma í Laugalækj- arskóla þar sem fræðslu- fundur dagsins er haldinn hafa nemendur í 9. bekkjum skólans safnast fyrir á bóka- safninu, ljósin eru slökkt og kvikmynd dagsins sett af stað. Myndin sem er í boði heitir Marita II og er heim- ildamynd með viðtölum við fíkla og aðstandendur þeirra um hættur og afleiðingar fíkniefnaneyslu. Inn á milli viðtalanna eru sýnd atriði úr daglegu lífi fíkniefnaneyt- enda og margir nemendanna líta undan þegar nálaför sprautufíklanna eru sýnd og morgundópskammturinn blandaður rétt eins og verið sé að hella morgunkorni í skál. Hér er sannleikurinn ekki sykurhúðaður heldur settur beint í æð. Boðskapur myndarinnar er sterkur eins og sjá má af viðbrögðum nemendanna. Það heyrist ekki pískur frá hópnum allan tímann sem myndin er sýnd nema ein- staka upphrópanir „oj þetta er ógeð!“ Sumir naga á sér neglurnar og allir eru djúpt hugsi þegar myndin klárast. Magnús Stefánsson starf- ar í Marita, en hann er aðal- fyrirlesari í fræðsluverkefn- inu. Magnús er sjálfur fyrrverandi fíkniefnaneyt- andi og tekur til máls að sýningu myndarinnar lok- inni. Það fær á krakkana í níundu bekkjum A og U í Laugalækjarskóla að sjá að þessi „venjulegi“ maður sem kominn er í heimsókn á bókasafnið sé fyrrverandi fíkill. Hann vinnur strax traust þeirra þegar hann segist í fyllstu hreinskilni hafa verið „edrú í fjögur ár, fimm mánuði og fjóra daga“, eins og hann segir sjálfur eftir langa og mikla hass- neyslu. „Það eru þrír þættir sem allir dópistar eiga sam- eiginlega; fólki líður öm- urlega, það verður þrælar fíknarinnar og á ekki lengur sitt eigið líf og í þriðja lagi ætlar ekkert okkar að vera dópisti,“ segir Magnús með þunga og segir hvern ein- stakling bera ábyrgð á sjálf- um sér. „Þið verðið sjálf að taka afstöðu á móti fíkniefnum og vera tilbúin að velja og hafna. Það er næstum 100% öruggt að ykkur verði boðið dóp einhvern tímann, kannski í næsta partíi, á næstu vikum eða næstu mánuðum. Það eruð bara þið sem getið valið hvort þið segið já eða nei, bara þið sem berið ábyrgð á þessari ákvarðanatöku. Eina örugga leiðin til að verða ekki háður fíkn er að prófa ekki dóp, þess vegna verðið þið að hætta áður en þið byrjið!“ Magnús leggur þannig í fyrirlestri sínum mikla áherslu á að unglingarnir geri strax upp hug sinn gagnvart fíkniefnum og taki ákvörðun um að neita að prófa fíkniefni verði þeim boðið slíkt. „Það er ekkert mál að segja nei við dópista sem býður ykkur eiturlyf. Dóp- istinn er oft sjúskaður og í raun væri frábært að hafa einn steiktan gæja í hverjum skóla því þeir eru lifandi við- vörunarskilti gegn neyslu. En það er miklu auðveldara að segja já við vini sína og miklu meiri líkur á að maður prófi í vinahóp en þiggi af dópista,“ segir Magnús og spyr krakkana hvernig þau myndu bregðast við ef kær- asti eða kærasta myndi bjóða e-töflu. Krakkarnir færast undan að svara en kliðurinn í stofunni er á þá leið að þau myndu nú alveg örugglega segja nei. Ein stelpan réttir upp hönd og segist vita af einum kunningja sínum sem sé að fikta. Hún segist vilja gera eitthvað en hún viti ekki hvernig hún eigi að haga sér, hvort hún eigi að segja einhverjum frá fiktinu og þá hverjum. Magnús bendir henni á að tala við foreldra sína, skólayfirvöld, lögreglu eða félagsþjónustuna því það sé nauðsynlegt að koma við- komandi til hjálpar. Krakk- arnir taka undir orð bekkj- arsystur sinnar og segjast yfirleitt ekki vita hvert þau myndu snúa sér ef svona vandi kæmi upp og það væri örugglega auðveldara að þegja heldur en segja eitt- hvað. Þau eru á viðkvæmum aldri og vinirnir spila stóra rullu í lífi þeirra, þau vilja því ekki hætta á að spilla kunningjahópnum. Önnur stúlka spyr um skaðsemi rítalíns, örvandi lyfs sem notað er við of- virkni. Hún segist hafa heyrt einhvers staðar að lyfið gangi kaupum og sölum á skólalóðum og langar að vita um áhrif þess á þá sem ekki eru ofvirkir. Henni bregður þegar hún fær þau svör að rítalín virki eins og amfeta- mín, læknalyf notað sem eit- urlyf hjá skólakrökkum. Öllu fórnað fyrir fíknina Magnús segir hass vera aðalefnið sem herji á krakka á þessum aldri og segist að fenginni reynslu vera al- gjörlega ósammála þeim sem vilji lögleiða kannabis- efni. Hann predikar ekki yf- ir unglingunum heldur beitir fyrir sig tungutaki ungling- anna sjálfra, notar orð og frasa sem þeim eru töm. Fyrir vikið er andrúmsloftið afslappað jafnvel þótt verið sé að ræða mál sem annars gætu virst viðkvæm og jafn- vel hallærisleg í augum krakkanna. Sjálfur segir hann afleiðingar hassreyk- inga miklar á líf sitt, skammtímaminnið sé ónýtt og hann verði fyrir þung- lyndisáhrifum svo sem kvíða- og hræðsluköstum. „Þetta eru áhrif sem fara ekkert, því meira hass sem maður reykir því minna líf á maður,“ segir Magnús og segir krökkunum frá hvern- ig hassreykingarnar lögðu fjölskyldu hans í rúst. „Ég átti konu og tvær dætur. Þegar konan mín setti mér úrslitakosti og sagði við mig að annaðhvort færi ég í með- ferð eða hún myndi skilja við mig þá var ég fljótur að svara og sagðist auðvitað velja skilnað því hún gæti ekki tekið af mér það sem mér þætti best í lífinu. Þann- ig fórnaði ég konunni sem ég elskaði og dætrum mín- um tveimur fyrir hassið.“ Magnús segist enn þurfa að takast á við fíknina á hverjum degi, sumir dagar séu auðveldari en aðrir, en sá dagur hafi enn ekki kom- ið þar sem fíknin sé ekki það fyrsta sem kemur upp í hug- ann. „Ég get því ekki annað en verið algjörlega ósam- mála þeim sem segja hass skaðlaust, það er mjög skað- legt og ávanabindandi.“ Rík áhersla er lögð á að nemendur taki virkan þátt á fræðslufundnum. Spurðir hvort þeir þekki einhvern sem hefur prófað fíkniefni koma nokkrar feimnislegar hendur á loft. Krakkarnir segjast sumir vita af jafn- öldrum sem hafa prófað að reykja og það fer hrollur um strákana í hópnum þegar einn þeirra deilir vitneskju sinni með þeim um áhrif hassreykinga á kynfæri ungra stráka. Magnús tekur undir þetta og segir rétt að hassreykingar hafi neikvæð áhrif á karlhormóna- starfsemina en reykingarnar hafi jafnframt áhrif á þroskaferli móðurlífsins hjá stúlkum. Það eru þessar af- leiðingar og aðrar og verri sem Magnús leggur áherslu á að unglingarnir horfist í augu við. „Dópistar velja sjálfir hvaða leið þeir fara og þess vegna eigið þið ekki að vorkenna dópistum!“ seg- ir hann og ítrekar enn einu sinni mikilvægi þess að „hætta áður en þú byrjar“. Þegar tæplega tveggja tíma fyrirlestri um fíkni- efnaforvarnir lýkur virðist engum vera farið að leiðast, krakkarnir eru áhugasamir og þegar þau streyma út af bókasafninu er mikið rætt um það sem fyrir augu og eyru bar. Sunna Sigurð- ardóttir, nemandi í 9. A, seg- ir fyrirlesturinn hafa verið fræðandi. „Það er gott að fá svör... þetta kemur öllum við,“ segir Sunna aðspurð hvernig henni hafi þótt þessi óvenjulega morgunstund á bókasafninu. „Mér brá samt því þetta var svo ógeðslegt, það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu og það eina sem ég get eiginlega sagt er að ég ætla ekki að gera þetta.“ Númi Sigurðsson í 9. U tekur undir orð skólasyst- ur sinnar. Honum er líka brugðið en segist ánægður með hversu hreinskilin og opinská fræðslan var. „Við erum orðin alveg nógu göm- ul til að fá að vita sannleik- ann, hvernig eigum við ann- ars að geta tekið afstöðu ef okkur verða boðin eiturlyf?“ Að kveldi dags er svo haldinn fundur með kenn- urum, foreldrum og for- ráðamönnum unglinganna þar sem þeim er kynnt það sem rætt var við börn þeirra fyrr um daginn. Anna El- ísabet Ólafsdóttir, verkefn- isstjóri fræðsluverkefnisins, segist telja það helsta styrk- leika verkefnisins að börn og foreldrar fái sömu fræðsluna, með ólíkum nálg- unum þó, og verkefnið sé þannig ein heild sem skapi góðan umræðugrundvöll milli barna og foreldra um þetta málefni sem snertir svo mörg heimili í landinu. „Þið verðið sjálf að taka afstöðu á móti fíkniefnum“ Morgunblaðið/Júlíus Sunna og Númi, nemendur í 9. bekk Laugalækjarskóla, voru sammála um að forvarnarfræðslan skilaði árangri, þau ætluðu í það minnsta ekki að prófa eiturlyf. Morgunblaðið/Júlíus Magnús Stefánsson segir fíkniefnadrauginn fylgja sér enn í dag. Laugarneshverfi HITT HÚSIÐ, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks, flyst í Pósthússtræti 3–5 1. mars næstkomandi samkvæmt leigutilboði sem samþykkt var í borgarráði í gær. Forstöðumaður Hins hússins segist hæstánægður með þessa lausn á húsnæðis- málum miðstöðvarinnar. Talsverð óvissa hefur ríkt um framtíðarhúsnæði Hins hússins eftir að ljóst varð að leigusamningur þess í Geys- ishúsinu yrði ekki endurnýj- aður en hann rennur út í haust. Sú óvissa er nú á enda því tilboðið sem borgarráð samþykkti í gær gerir ráð fyrir 10 ára leigusamningi. „Við erum með þessu að festa Hitt húsið í sessi í mið- borginni sem er gott fyrir stafsemina því það er alltaf vont að vera með svona hluti í uppnámi,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formað- ur íþrótta- og tómstunda- ráðs. „Við höfum verið að leita að húsnæði í miðborg- inni og það má segja að þetta hafi verið mjög góður kostur. Ég held einnig að það styrki jákvæða ímynd miðborgar- innar í hugum ungs fólks að fá húsnæði á þessu horni.“ Leiga um 1.250.000 krónur á mánuði Steinunn segir að með þessu gefist tækifæri til að þróa starfsemi Hins hússins enn frekar. „Á sínum tíma var aðaláherslan í Hinu hús- inu á atvinnumálin en svo datt sá þáttur upp fyrir með bættu efnahagsástandi og minnkandi atvinnuleysi. Núna er kannski lag að leita að nýjum verkefnum og fara í stefnumótunarvinnu um það hvað það er sem við vilj- um leggja áherslu á í starfi ungs fólks í framtíðinni.“ Húsnæðið í Pósthússtræt- inu er rúmlega 1.500 fer- metrar að stærð. Í bréfi framkvæmdastjóra ÍTR til borgarráðs segir að sam- kvæmt leigutilboði sé gert ráð fyrir að húsaleiga verði 13 milljónir fyrir árið 2002 og síðan 1.250.000 krónur á mánuði frá fyrsta janúar 2003. Gert er ráð fyrir ein- hverjum leigutekjum á móti þar sem Hitt húsið mun geta leigt frá sér hluta rýmisins. Að sögn Steinunnar er eftir að útfæra nánar með hvaða hætti það verður. Þá kemur fram í bréfinu að áætlaður kostnaður vegna breytinga og flutningsins sé um 3 milljónir króna. Starfseminni sýnd virðing með þessu Markús H. Guðmundsson, forstöðumaður Hins hússins, segist vera mjög sáttur við þessa lausn. „Þetta er flott hús og frábær staðsetning. Nú er verið að vinna í að- gengi fyrir fatlaða þannig að við erum sátt og í rauninni hæstánægð. Mér finnst að þessari starfsemi hafi verið sýnd mikil virðing með þessu.“ Hitt húsið flytur í gömlu lögreglustöðina Morgunblaðið/Ásdís Pósthússtræti 3 er betur þekkt sem gamla lögreglustöðin en að auki verður Hitt húsið að hluta til í gamla pósthúsinu sem er í Pósthússtræti 5. Miðborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.