Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 1
50. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 1. MARS 2002
AÐ minnsta kosti 40 manns féllu í
óeirðum á Vestur-Indlandi í gær
en þá gengu hópar hindúa ber-
serksgang í kjölfar morðanna á 58
trúbræðrum þeirra á miðvikudag.
Lögregla og her Indlands er í við-
bragðsstöðu en óttast er að alls-
herjar trúarbragðastríð sé í upp-
siglingu í kjölfar atburðanna á
miðvikudag, þar sem múslímar
réðust á lest í bænum Godhra í
Gujarat-ríki og kveiktu í henni
með fyrrgreindum afleiðingum.
Yfirvöld fyrirskipuðu í gær að
útgöngubann skyldi gilda í Ah-
medabad, höfuðborg Gujarat, eftir
að hópur ungmenna gekk ber-
serksgang, olli skemmdum á
moskum í borginni og kveikti í
verslunum og veitingastöðum í
eigu múslíma. Þar voru um 20
manns og hugsanlega miklu fleiri
brenndir inni.
Narendra Modi, ríkisstjóri í
Gujarat, sagði að a.m.k. 40 hefðu
fallið og 18 særst í átökum sem
urðu milli óeirðaseggja og lögregl-
unnar á nokkrum stöðum í Guj-
arat. Sagðist hann hafa farið fram
á að aukið herlið yrði sent á stað-
inn svo hafa mætti hemil á óeirða-
seggjum.
Enn mikil spenna
í Ahmedabad
Lögregla beitti táragasi til að
reyna að hafa hemil á fólki í Ah-
medabad og skaut jafnframt
byssukúlum upp í loftið. Féllu sex
þegar lögreglumenn neyddust til
að skjóta á mannþröngina, að því
er lögreglustjórinn P.C. Pande
greindi frá. „Þetta var slæmur
dagur. Mér líður eins illa og eins
hjálparvana og daginn sem jarð-
skjálftinn reið yfir,“ sagði Pande
og vísaði þar til jarðskjálftans í
Gujarat í janúar 2001 sem varð
tuttugu þúsund manns að bana.
Sagði Pande að mikil spenna væri
enn í Ahmedabad og kvaðst hann
óttast að til frekari átaka kæmi í
dag, föstudag. Útgöngubann er nú
við lýði í 26 borgum í Gujarat og
næstum 700 manns hafa verið
handtekin en yfirvöld leggja
áherslu á að lægja öldurnar og
koma í veg fyrir að ástandið fari
úr böndunum.
Hindúar á Vestur-Indlandi hefna morða á 58 trúbræðrum sínum
Vaxandi ótti við alls-
herjar trúarbragðastríð
AP
Eldur var borinn að mörgum bifreiðum er hindúar hefndu 58 trúbræðra sinna, sem múslímar drápu á miðviku-
dag. Óstaðfestar fréttir hermdu, að 60 múslímar og jafnvel fleiri hefðu týnt lífi í ofbeldishrinunni í gær.
Ahmedabad. AFP.
JOSE Maria Aznar, forsætisráð-
herra Spánar, setti í gær í Brussel
ráðstefnu um umbætur á Evrópu-
sambandinu. Stefnt er að því að
gera það opnara og virkara. Á ráð-
stefnan að koma saman 20 sinnum
næsta árið og vonast er til, að hún
leggi grunn að stjórnarskrá fyrir
Evrópusambandið. Á myndinni er
Aznar (t.h.) með Pat Cox, forseta
Evrópuþingsins.
Reuters
Opnara og
virkara
EINN maður lést og um þrjátíu
meiddust nokkuð þegar lest var ek-
ið á sendibíl, sem ekið hafði verið í
gegnum vegg og fallið um sex
metra niður á lestarteinana.
Slysið átti sér stað í bænum
Nocton í Lincolnskíri en talið er, að
hinn látni sé ökumaður bifreiðar-
innar.
Þeir, sem meiddust, voru allir
farþegar með lestinni en aðallega
var um að ræða skrámur og hnjask
en engin alvarleg meiðsli.
Einn lést í
lestarslysi
London. AFP.
KANADÍSKAR orrustuþotur
fylgdu í gær farþegaþotu frá
Air India til lendingar í New
York en talið var, að grun-
samlegur farþegi væri um
borð.
Vélin, Boeing 747, lagði
upp frá London með 378 far-
þega og 19 manna áhöfn. Þar
vöknuðu grunsemdir um, að
einn farþeganna væri á lista
yfir grunaða hryðjuverka-
menn, en vélin var farin í loft-
ið áður en það var kannað
nánar. Talsmaður flugfélags-
ins í New York sagði, að
fylgst væri með manninum
um borð en ekki virtist neitt
grunsamlegt við hegðun hans.
Fulltrúar FBI, bandarísku al-
ríkislögreglunnar, ætluðu að
taka á móti manninum við
komuna.
Grun-
samlegur
farþegi
New York. AP.
TÓLF Palestínumenn og einn
Ísraeli féllu og um 135 Palest-
ínumenn særðust, þar af 10 al-
varlega, er ísraelskir hermenn
gerðu stórárás á þrennar flótta-
mannabúðir á Vesturbakkanum í
gær. Fyrir aðeins fáum dögum
kynntu Sádi-Arabar nýjar tillög-
ur um frið í Miðausturlöndum en
árás Ísraela í gær þykir ekki
boða neitt gott fyrir framhaldið.
Sex palestínskir lögreglumenn
og einn palestínskur borgari
féllu í skotbardögum er brutust
út þegar Ísraelar gerðu áhlaup á
Jenin-flóttamannabúðirnar á
Vesturbakkanum, að sögn palest-
ínskra heimildarmanna. Ísra-
elskur hermaður og þrír Palest-
ínumenn féllu í átökum í
Balata-búðunum skammt frá
borginni Nablus og ísraelskar
fallbyssuþyrlur réðust með skot-
hríð á Aida-flóttamannabúðirnar
að sögn ísraelska hersins og pal-
estínskra sjúkrahússtarfsmanna.
Marwan Barghuti, yfirmaður
Fatah-samtaka Palestínumanna
á Vesturbakkanum, hótaði því að
samtökin myndu hefna „fjölda-
morða“ Ísraela í Jenin og Balata.
„Við viljum vara Ísraela við því,
að ef þeir kalla ekki lið sitt til
baka á næstu klukkustundum
munu Palestínumenn hefna sín á
Ísraelum hvarvetna á herteknu
svæðunum,“ sagði Barghuti.
Javier Solana, yfirmaður utan-
ríkismála hjá Evrópusamband-
inu, sagði í Kaíró í gær að hann
myndi halda til Washington á
mánudaginn til viðræðna um
Miðausturlönd og friðartillögur
Sádi-Araba. Í grófum dráttum
hljóða þær upp á að arabaríkin
taki upp eðlileg samskipti við
Ísrael gegn því að Ísraelar verði
á brott frá öllu arabísku landi
sem þeir hafa hertekið síðan
1967.
Ísraelar hafa látið í ljós nokk-
urn áhuga á að ræða tillöguna
frekar og palestínskir leiðtogar
hafa fagnað henni. Þau samtök
múslíma sem neita að viðurkenna
ríki gyðinga hafa aftur á móti
hafnað tillögunni. Utanríkisráð-
herrar Persaflóaríkjanna og Evr-
ópusambandsins áttu með sér
samráðsfund í Granada á Spáni í
gær og segja í sameiginlegri yf-
irlýsingu, að vilji Ísraelar sýna
friðarvilja í verki verði þeir að
draga her sinn til baka, hætta af-
tökum án dóms og laga, hætta
ólöglegri landtöku og hætta að
takmarka ferðafrelsi Palestínu-
manna og leiðtoga þeirra, Yass-
ers Arafats.
Hóta hefndum fyrir
„fjöldamorð“ Ísraela
Jerúsalem, Gazaborg. AFP.
Stórárásir á
þrennar flótta-
mannabúðir