Morgunblaðið - 01.03.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnulíf, menntun og búseta í Borgarfirði
Með öll heims-
ins tækifæri
SVEITARFÉLÖGINí Borgarfirði norðanSkarðsheiðar,
standa í sameiningu að
málþingi um atvinnulíf,
menntun og búsetu í Borg-
arfirði. Málþingið verður á
morgun, laugardaginn 2.
mars, í Hótel Borgarnesi
og stendur milli klukkan
13 og 18. Hólmfríður
Sveinsdóttir er verkefnis-
stjóri hjá Borgarbyggð og
sinnir m.a. Staðardagskrá
21 og fleiri verkefnum.
Morgunblaðið ræddi við
hana um málþingið.
Hvert er tilefni og til-
gangur málþingsins?
„Tilgangur málþingsins
er að horfa til framtíðar
fyrir Borgarfjörð sem eina
heild. Við viljum skerpa
ímynd svæðisins og gera það að
sýnilegri valkosti til búsetu og fyr-
ir atvinnustarfsemi. Jafnframt má
segja að með því eigi sér stað
ákveðin naflaskoðun sveitarfélag-
anna sem og hugmyndaöflun.“
Hver er staðan í atvinnulífi,
menntun og búsetu í Borgarfirði?
„Staðan er góð þótt alltaf sé
hægt að bæta sig. Þannig viljum
við sjá aukna fjölbreytni í atvinnu-
málum, fjölga hér störfum sem
krefjast háskólamenntunar og
fjölga hálaunastörfum. Hérna eru
góðir leikskólar, grunnskólar og
tveir háskólar, Viðskiptaháskól-
inn á Bifröst og Landbúnaðarhá-
skólinn á Hvanneyri. Hér er ekki
framhaldsskóli og vilja örugglega
einhverjir sjá breytingu þar á. En
á heildina litið er hér blómlegt,
fjölbreytilegt og skemmtilegt
mannlíf.“
Helstu kostir og gallar svæðis-
ins?
„Kostirnir eru óteljandi. Sem
dæmi má taka einstaka náttúru-
fegurð hvert sem litið er. Sagan er
okkur líka mikilvæg og það sem
hún býður upp á. Staðsetning
Borgarfjarðar er auk þess sérlega
heppileg. Hæfileg fjarlægð frá
höfuðborgarsvæðinu og öllu sem
það hefur upp á að bjóða sem og
nálægð við Snæfellsnesið og Dal-
ina, Vestfirðina og Norðurlandið.
Með bættum samgöngum er
Borgarfjörður ein samfelld heild,
eitt atvinnu-, félags- og menning-
arsvæði. Hér eru nokkur stór og
öflug fyrirtæki, auk þess sem
Grundartangi er líka innan okkar
atvinnusvæðis. Ef ég á að nefna
einhverja galla þá er það helst að
hér þyrftu að vera fjölbreyttari
atvinnutækifæri. Ef hægt er að
tala um kvenna- og karlastörf þá
þurfum við að auka möguleika
kvenna á vinnumarkaði og launin
þyrftu líka að hækka. Við erum
enn talsvert á eftir höfuðborgar-
svæðinu hvað það varðar.“
Eru sóknarfæri … og þá hver?
„Já, hér eru heldur betur sókn-
arfæri. Þau eru í raun hvert sem
litið er, enda erum við Borgfirð-
ingar sannfærðir um að við höfum
öll tækifæri í hendi okkar, það er
bara að spila rétt og
skynsamlega úr þeim.
Háskólarnir tveir eru í
raun okkar „stóriðja“ í
mjög jákvæðum skiln-
ingi. Ég sé líka mikla
vaxtarbrodda í ferðaþjónustunni,
sem og í flestri annarri þjónustu.
Nálægð okkar við stærsta markað
landsins og gríðarlega mikil sum-
arhúsabyggð í Borgarfirði veita
okkur endalausa möguleika. Sí-
vaxandi eftirspurn eftir menning-
artengdri ferðaþjónustu gefur
okkur líka sóknarfæri. Þannig
getum við nýtt okkur alla söguna
sem er hér við hvert fótmál. Síðast
en ekki síst vil ég nefna sóknar-
færi Borgarfjarðar til að bjóða
fólki upp á svokallaða tvöfalda bú-
setu. Þ.e. að búa hérna en sækja
vinnu t.d. á höfuðborgarsvæðið.
Ég er sannfærð um að slíkt fyr-
irkomulag eigi eftir að njóta og
vaxandi vinsælda.“
Hvernig byggið þið málþingið
upp?
„Eftir að Bjarni Guðmundsson
á Hvanneyri setur þingið fáum við
sex framsöguerindi, sem öll ganga
út frá því hvernig bæta megi sam-
keppnisstöðu svæðisins, bæði
hvað varðar íbúa og atvinnurekst-
ur. Þeir sem tala eru Stefán Logi
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Vírnets-Garðastáls, Guðmundur
Ólafsson, lektor við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands og
Viðskiptaháskólans á Bifröst, Sig-
urbjörg Ósk Áskelsdóttir, lands-
lagsarkítekt og framkvæmda-
stjóri Landlínu ehf., Jón Sigurðs-
son rekstrarhagfræðingur, Bjarn-
heiður Halldórsdóttir, ferðamála-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Kötlu Travel, og Grétar Þór Ey-
þórsson, forstöðumaður Rann-
sóknarstofnunar Háskólans á Ak-
ureyri og Byggðarannsóknar-
stofnunar.“
Hvernig verður unnið úr því
sem fram kemur?
„Það ríkir mikil eftirvænting
hérna í Borgarfirði vegna mál-
þingsins og þess sem það kann að
leiða í ljós. Hér, sem og annars
staðar á landinu, er að bresta á
með sveitarstjórnarkosningum.
Niðurstöður þingsins
verða því nýjum sveit-
arstjórnum gott vega-
nesti. Jafnframt eiga
Borgfirðingar allir eftir
að geta nýtt sér niður-
stöðurnar með hverjum þeim
hætti sem þeir kjósa.“
Eru Borgfirðingar bjartsýnir á
framvindu sinna mála í framtíð-
inni?
„Ég held að ég geti fullyrt að
Borgfirðingar séu mjög bjartsýn-
ir á framtíðina á öllum sviðum.
Enda ekki ástæða til annars. Við
höfum öll heimsins tækifæri í
hendi okkar.“
Hólmfríður Sveinsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir er
fædd á Akranesi 18. júní 1967 og
alin upp í Borgarnesi. Stúdent
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
1988. BA-próf í stjórnmálafræði
frá Háskóla Íslands 1994, starfs-
maður Vinnumálastofnunar
1994–99, m.a. sem deildarsér-
fræðingur hjá Starfsmenntaráði
félagsmálaráðuneytisins og for-
stöðumaður Svæðisvinnumiðl-
unar Vestfjarða. Verkefnisstjóri
hjá Iðntæknistofnun 2000–2001
og frá 1. nóvember 2001 verkefn-
isstjóri hjá Borgarbyggð.
… það ríkir
mikil eftir-
vænting
Á þessari glærumynd sjáið þið hvernig fer fyrir litla landssímakarlinum
sem kjaftar frá sukki stjórnarformannsins.