Morgunblaðið - 01.03.2002, Page 22
!"#
$ %&#
'$!%
'%("
'&$#
$ $#(
&) )$
#$&
&#*"+
& ,&"
!
" #
" #
" #
!
!
HAGNAÐUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hf. á síðasta ári
var rúmlega fjórfaldur á við hagn-
að ársins 2000 og nam 641 milljón
króna. Hagnaður ársins 2000 nam
152 milljónum.
Vörusala nam 55,2 milljörðum
og kostnaðarverð seldra vara 49,3
milljörðum. Umboðslaun og aðrar
tekjur námu 242 milljónum króna.
Hreinar rekstrartekjur námu því
6,1 milljarði króna. Vörusala jókst
um 27% á milli ára.
Innan við 2% tekna
vegna sölu hér á landi
Um 31% teknanna má rekja til
sölu í Ameríku, 27% til Bretlands-
eyja, 16% til Asíu og 26% til meg-
inlands Evrópu og Íslands. Innan
við 2% umsvifanna voru vegna sölu
hér á landi, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Sölumiðstöðinni.
Skuldir Sölumiðstöðvarinnar
jukust úr 17,7 milljörðum í 22,8
milljarða eða um 29%. Viðskipta-
skuldir jukust hlutfallslega mest
eða úr 3 milljörðum í 5,4 milljarða
en fjárþörf var að öðru leyti mætt
með aukningu skulda við lána-
stofnanir. Veltufjárhlutfall um síð-
ustu áramót var 1,10 en 1,05 ári
áður.
Eigið fé jókst um 39% á milli
ára. Endurmat eigna að frádreg-
inni verðbreytingarfærslu nam 729
milljónum króna. Arðsemi eigin
fjár reyndist 19% á árinu en var
um 5% ári áður.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur þau markmið að auka velt-
una um 5-6% að raungildi þannig
að hún verði um 60 milljarðar
króna. „Að sama skapi er stefnt að
því að hagnaður aukist og hann nái
að endurspegla svipaða arðsemi
eigin fjár og á nýliðnu ári,“ segir í
tilkynningu SH.
Áætlanir um 800 milljóna
króna hagnað á þessu ári
Áætlun ársins hljóðar upp á 800
milljóna króna heildarhagnað, þar
af er áætlaður söluhagnaður 170
milljónir króna. Aðalfundur SH
verður haldinn 8. mars nk. Fyrir
fundinum liggur tillaga um heimild
til kaupa á eigin hlutabréfum, enn-
fremur tillaga um greiðslu 8%
arðs.
Hagnaður SH
fjórfaldast frá 2000
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HRÓBJARTUR Jónatansson, lög-
maður fjárfestis sem skráði sig fyrir
hlutafé í útboði MP BIO hf. í nóv-
ember 2000, lagði í vikunni fram
kröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur um
að MP Verðbréf verði skylduð til að
leggja fram áreiðanleikakönnun fyr-
ir MP Verðbréf hf. og MP BIO hf.
vegna fjárfestinga í BioStratum In-
corporated.
Forsaga þessa máls er sú að MP
Verðbréf hafa höfðað mál gegn fjár-
festi vegna vanskila hans á greiðslu
hlutafjár sem hann skráði sig fyrir í
útboði MP BIO hf. Mál þetta var tek-
ið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
hinn 23. janúar síðastliðinn og var
málsaðilum veittur frestur til 26.
febrúar til að fara yfir þau gögn sem
lögð voru fram í málinu, m.a. 4 blað-
síður af áreiðanleikakönnun sem
LOGOS lögmannsþjónusta sf. og
A&P Árnason ehf. gerðu fyrir MP
Verðbréf hf. og MP BIO hf. vegna
fjárfestingar í BioStratum Incor-
porated, í tilefni af útboði á nýju
hlutafé í MP BIO auk lista yfir
einkaleyfi BioStratum. En ágrein-
ingur er m.a. um það hvort fullyrð-
ingar í útboðslýsingu um einkaleyfi
BioStratum Inc. séu réttar. Í fram-
haldi af því skrifaði Hróbjartur Jón-
atansson bréf til Sigurmars K. Al-
bertssonar, lögmanns MP
Verðbréfa, þar sem hann óskaði eftir
að fá áreiðanleikakönnun í heild
sinni.
Hróbjartur segir að samkvæmt
tilkynningu MP Verðbréfa til Verð-
bréfaþings Íslands 4. september
2001 hafi afkoma BioStratum Incor-
porated verið mun lakari en áætlanir
hafi gert ráð fyrir. Einnig segi í til-
kynningunni að það þurfi að auka
hlutafé BioStratum til að standa
straum af frekari rekstrarkostnaði á
næstunni.
Annað efni áreiðanleikakönnunar
gæti haft þýðingu
Hróbjartur segir að þetta séu allt
vísbendingar um að það hafi legið
fyrir við útboðslýsinguna að rekstr-
arfé BioStratum hafi ekki verið til
staðar nema í tiltekinn skamman
tíma, en þess ekki getið. Þess vegna
hafi hann óskað eftir því að fá um-
rædda áreiðanleikakönnun til þess
að fá fram hvað hafi legið fyrir í
henni um rekstrarstöðu BioStratum
Inc. þegar útboðið fór fram.
Að sögn Hróbjarts barst honum
símbréf frá lögmanni MP Verðbréfa
síðastliðinn föstudag þar sem til-
kynnt var að áreiðanleikakönnunin
yrði ekki afhent því um trúnaðar-
upplýsingar væri að ræða. Þess
vegna hefði verið óskað eftir því við
Héraðsdóm Reykjavíkur að MP
Verðbréf yrðu skylduð með dómsúr-
skurði að afhenda könnunina í heild
sinni enda kunni annað efni hennar
að hafa þýðingu við úrlausn málsins
en þær 4 blaðsíður sem MP Verðbréf
hefðu kosið að leggja fram fyrir
dóminn.
Málið verður tekið fyrir aftur 20.
mars og liggur þá fyrir afstaða
dómsins til kröfu um að leggja fram
áreiðanleikakönnunina.
MP Verðbréf
krafin um
áreiðanleika-
könnun
HRAÐFRYSTIHÚSIÐ - Gunnvör hf.
skilaði rúmlega 114 milljóna króna
hagnaði á árinu 2001 og er það
fimmföldun hagnaðar frá árinu áð-
ur, en þá nam hagnaður félagsins 23
milljónum króna. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði,
EBITDA, jókst um 39% á milli ára
og var 968 milljónir króna.
Rekstrartekjur félagsins jukust
um rúm 7% á milli ára og rekstr-
argjöld drógust saman um 3,6%.
Fjármagnsgjöld jukust um 213
milljónir króna og er sú aukning
rakin til veikingar íslensku krón-
unnar. Í tilkynningu frá félaginu
eru gengisbreytingar íslensku krón-
unnar sagðar hafa haft jákvæð áhrif
á tekjur félagsins enda séu nánast
allar tekjur þess í erlendum mynt-
um, en neikvæð á skuldir þess sem
eru að langmestu leyti í erlendum
myntum.
Þá er haft eftir Einari Val Krist-
jánssyni, framkvæmdastjóra félags-
ins, að árið 2001 hafi líkast til verið
eitt besta rekstrarár félagsins í 61
árs sögu þess og miðað við svipaðar
ytri aðstæður megi gera ráð fyrir að
árið 2002 verði félaginu hagstætt.
Aðalfundur HG verður haldinn
19. mars nk.
$!
%
-
, )&
, "&#
#(!
$,)
'%&
',!#
&
'&&
&#)
& "##
%$#
"*,"+
&*"%
+
&+
+
+
&+
+
+
&+
+
+
+
+
+
!
" #
" #
" #
!
!
Hraðfrystihúsið – Gunnvör
Fimmföldun
hagnaðar
SÆTANÝTING í vélum Flug-
leiða var 2,4 prósentustigum
betri í janúar í ár en á sama
tíma 2001, þrátt fyrir fækkun
farþega, einkum meðal þeirra
sem fljúga um Ísland yfir hafið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum fækkaði farþegum í
millilandaflugi um 18,9 % í jan-
úar í samanburði við sama mán-
uð á síðasta ári. Þeir voru
63.424 nú en 78.170 í janúar
2001. Farþegum sem áttu er-
indi til Íslands eða frá Íslandi
fækkaði um 2,9%, en þeim sem
fljúga yfir Norður-Atlantshafið
um Ísland fækkaði um 34%.
Farþegum á almennu farrými
fækkaði um 18,4% en á við-
skiptafarrými fækkaði farþeg-
um um 24,8%.
Framboð lagað að
minnkandi eftirspurn
Félagið hefur lagað framboð
sitt að minnkandi eftirspurn og
í janúar minnkaði sætaframboð
Flugleiða um 25,2% og salan
um 21,9%, sem leiddi til þess að
sætanýting var í mánuðinum
2,4 prósentustigum betri en í
janúar 2001. Hún var 57,5% í
janúar í ár, en 55,1% á síðasta
ári.
Farþegum í innanlandsflugi
Flugfélags Íslands, dótturfyrir-
tækis Flugleiða, fækkaði í jan-
úarmánuði um 21,3%, úr 20.512
farþegum í fyrra í 16.147 í ár.
Þá fækkaði fluttum tonnum hjá
Flugleiðum-Frakt, dótturfyrir-
tæki Flugleiða, um 15,7%.
Batnandi
sætanýt-
ing en
fækkun
farþega