Morgunblaðið - 01.03.2002, Side 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
15%
afs
látt
ur
af ö
llum
vör
um
á lö
ngu
m l
aug
ard
egi
Laugavegi 23 • Sími 551 5599
LAGERSALAN
hefur opnað aftur
Gífurlegt magn af skóm frá ýmsum merkjum, fótboltaskór,
hlaupaskór, götuskór, inniskór. Verð frá 500 kr.
Ýmislegt fleira. Komið og gerið góð kaup!
Nýjar
vorvörur
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Mikið úrval
af sængurgjöfum
fyrir krakka frá 0-12 ára
Fullt af flottum
stelpu- og
strákafötum
Laugavegi 54
Sími 552 5201
Ferming í Flash
Mikið úrval af fallegum
fermingarfötum
• kjólar
• skyrtur
• pils
• toppar
• buxur
UM tuttugu Kúbumenn héldu í
gær kyrru fyrir í mexíkanska
sendiráðinu í Havana en hópur
fólks hafði á miðvikudagskvöld
ekið rútubifreið í gegnum girð-
ingu er umlykur sendiráðið. Er
talið að tilgangur fólksins með
athæfinu hafi verið sá að leita
hælis í Mexíkó sem pólitískir
flóttamenn.
Nokkrir farþeganna slösuð-
ust er bíllinn keyrði í gegnum
hliðið að sendiráði Mexíkó en
aðrir sáust hrópa vígorð gegn
stjórnvöldum á Kúbu frá þaki
sendiráðsins. Vopnaðir her-
menn og stuðningsmenn
stjórnvalda dreifðu mannfjölda
sem safnast hafði saman við
sendiráðið eftir að hliðið var
brotið niður og fylgdu þessu
nokkrir pústrar, að sögn er-
lendra fréttamanna.
Fidel Castro, forseti Kúbu,
kom á staðinn eftir að búið var
að dreifa mannfjöldanum í
fyrrakvöld. Hann ræddi ekki
við fréttamenn eftir heimsókn
sína í sendiráðið en talið er að
sögusagnir um að stjórnvöld í
Mexíkó séu reiðubúin til að
taka við flóttafólki frá Kúbu
hafi verið fólkinu hvatning til
að ráðast inn í sendiráðið.
Stjórnvöld í Mexíkó segja sögu-
sagnirnar hins vegar byggðar á
misskilningi.
NORSKA dagblaðið Aftenposten
birti í vikunni grein þar sem sagt er
að umræðan um ESB-aðild hafi snú-
ist á Íslandi. Hugsanlegt sé að Íslend-
ingar sæki um aðild að ESB fyrir árið
2005 þegar næst fara fram þingkosn-
ingar í Noregi.
Í greininni segir höfundurinn, Lars
Hellberg, allt benda til þess að Sam-
fylkingin verði fyrst íslenskra flokka
til að marka þá stefnu að Íslendingum
beri að leita eftir aðild að ESB. Telur
höfundurinn líklegt að Framsóknar-
flokkurinn geri hið sama eftir að Sam-
fylkingin hefur tekið upp þetta
stefnumál, sem gerðist eftir atkvæða-
greiðslu innan flokksins í haust.
Sagt er frá því að Davíð Oddsson
forsætisráðherra sé andvígur aðild að
sambandinu en hins vegar sé klárlega
meirihluti fyrir því á Íslandi að hafnar
verði viðræður við Evrópusambandið.
Hafi það komið fram í skoðanakönn-
un, sem birst hafi í Morgunblaðinu, að
tæp 68% vilji hefja aðildarviðræður
við ESB. Að vísu verði að hafa í huga
að slík könnun segi ekkert til um það
hvernig menn myndu verja atkvæði
sínu þegar niðurstaða aðildarvið-
ræðna liggi fyrir. Lars Hellberg upp-
lýsir hins vegar að kosningar til Al-
þingis fari næst fram í september og
að jafnaðarmenn séu í sókn á Íslandi.
Höfundurinn gerir grein fyrir af-
stöðu flokka og fjallar um frumkvæði
Halldórs Ásgrímssonar á vettvangi
Evrópuumræðu á Íslandi. Hann velt-
ir því fyrir sér hvernig staða Norð-
manna myndi breytast gagnvart ESB
ef Íslendingar bættust í hóp aðildar-
þjóða. Tekur hann sérstaklega fram
að Norðmenn gætu ekki vænst þess í
eigin aðildarviðræðum að auðveldara
yrði að ná samkomulagi við ESB á
vettvangi sjávarútvegsmála þótt Ís-
lendingar yrðu þá í hópi aðildarríkj-
anna. Hins vegar sé hugsanlegt að
auðveldara yrði að fá fram meirihluta
við ESB-aðild Noregs væru Íslend-
ingar fyrir í bandalaginu.
Lars Hellberg segir að útilokað
megi telja að Íslendingar hefji aðild-
arviðræður við ESB fyrr en núver-
andi stækkunarferli þess sé lokið. Það
starf gangi hins vegar vel og því sé
hugsanlegt að Ísland sæki um aðild
áður en Norðmenn ganga næst til
þingkosninga árið 2005.
Annar norskur blaðamaður, Gunn-
ar Johnsen, segir í grein í sama blaði í
vikunni að norskir stjórnmálamenn
bíði eftir því að „ný staða komi upp“ í
samskiptum Norðmanna og ESB.
Vísar hann með þessu til ummæla
Jans Petersens utanríkisráðherra.
Johnsen segir að „ekki [muni] koma á
óvart“ að það verði Íslendingar sem
skapi þá nýju stöðu.
Thorbjörn Jagland, leiðtogi norska
Verkamannaflokksins, hefur einnig
vísað til þess að Íslendingar kunni að
sækja um aðild að ESB á undan
Norðmönnum. Jagland hefur að und-
anförnu gagnrýnt norsku ríkisstjórn-
ina fyrir það sem hann nefnir
„ábyrgðarleysi“ í Evrópumálum.
„Komi Ísland til með að sækja um að-
ild mun það hafa fremur dramatískar
afleiðingar fyrir Norðmenn,“ hefur
NTB-fréttastofan eftir Jagland.
Íslensk ESB-umsókn sögð
hugsanleg fyrir 2005
Kúba
Gerðu
áhlaup að
sendiráði
Mexíkó
Havana. AFP.
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Til þjónustu reiðubúnir!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
ATVINNA mbl.is