Morgunblaðið - 01.03.2002, Síða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 41
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
69
59
02
/2
00
2
vi› elskum vori›
Nýju vorlitirnir eru komnir í snyrtivörudeildina í Debenhams.
Kynningar alla helgina 1. - 3. mars.
Veittu sjálfri þér ánægju. Gefðu lífinu lit.
ið gert á svæðinu eru þó ýmsir van-
nýttir möguleikar eftir fyrir áhuga-
sama frumkvöðla. Bætt aðgengi og
markviss markaðssetning á Þjóð-
garðinum í Jökulsárgljúfrum ásamt
auknum samgöngubótum á Mel-
rakkasléttu og Öxarfjarðarheiði
munu opna nýjar víddir sem ferða-
menn hafa lítið getað nýtt sér fram
að þessu vegna lélegra samgangna.
Þá má hugsa sér að stækka Þjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum upp að
Kverkfjöllum. Með tengingu gljúfr-
anna við náttúruperlurnar Herðu-
breið, Öskju, Kverkfjöll og Ódáða-
hraun verður kominn einstakur
þjóðgarður sem á engan sinn líka.
Fræðslumiðstöð um þjóðgarðinn,
sem staðsett yrði í Ásbyrgi með
útibú við Herðubreiðarlindir, gæti
virkað sem sterkt aðdráttarafl fyrir
ferðamenn sem um svæðið fara.
Ferðaþjónusta sem tengist náttúru-
skoðun, menningu og sögu á eftir að
vaxa hratt á komandi árum því aukin
fræðsla og tenging við mannlífið er
eitt af því sem erlendir og innlendir
ferðamenn sækjast eftir í auknum
mæli.
Ferðamálasamtök Norðurlands-
eystra fagna áætlunum um beint
millilandaflug til Egilsstaða og hug-
myndum um millilandaflug til Akur-
eyrar. Ný Norræna og aðrir nýir
valmöguleikar fyrir erlenda ferða-
menn virka sem vítamínsprauta fyr-
ir ferðaþjónustuna á Norður- og
Austurlandi en ferðaþjónustuaðilar
verða þó að átta sig á að þetta kallar
á aukna þjónustu og samvinnu milli
landshlutanna. Eitt af því brýnasta
sem vinna þarf að á komandi árum
er að styrkja og auka samvinnu á
svæðinu. Það er löngu orðið tíma-
bært að allir þeir aðilar, sem að
ferðaþjónustu koma á Norðurlandi,
standi sameiginlega að markaðs-
setningu landshlutans ásamt því að
skapa svæðinu sterkari ímynd í aug-
um innlendra og erlendra ferða-
manna.
Á síðasta ári var gerð skoðanna-
könnun meðal ferðaþjónustuaðila á
Norðurlandi um stofnun markaðs-
og kynningarskrifstofu. Mikill og al-
mennur vilji kom fram hjá ferða-
þjónustuaðilum um framgang þessa
máls og nú hefur verið samið við
Ferðamálasetur Íslands um að halda
áfram með þá vinnu sem hafin var á
síðasta ári. Sveitarstjórnamenn og
ferðaþjónustuaðilar verða að koma
að þessu máli með opnum huga því
hér er um gríðarlega mikilvægt
hagsmunamál fyrir svæðið í heild að
ræða.
Um leið og stjórn Ferðamálasam-
taka Norðurlands eystra óskar
ferðaþjónustuaðilum á Norðurland-
ieystra til hamingju með 10 ára af-
mælið vonast hún eftir áframhald-
andi góðu samstarfi á komandi
árum.
Ferðir
Fjölmörg ný fyrirtæki
hafa sprottið upp, segir
Ásbjörn Björgvinsson,
og skapað nýja
valmöguleika fyrir
ferðamenn.
Höfundur er forstöðumaður
Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík.
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum