Morgunblaðið - 01.03.2002, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Ráðherra endurráði
Guðmund
LÍKT og aðrir hluthafar
hef ég áhyggjur af enda-
lausum uppákomum, vand-
ræðagangi og mistökum
varðandi stjórnun og rekst-
ur Landssíma Íslands hf.
Nú er sú tíðin að lands-
feður okkar telja nauðsyn-
legt „að losna við“ og selja
fyrirtæki í eigu ríkisins,
allrar þjóðarinnar, sem
betur eru komin í höndum
dugmikilla forstjóra einka-
fyrirtækjanna, verða að
sæta stífu aðhaldi eigenda
sinna við stjórnun þeirra.
Þegar Landssíminn var í
eigu allrar þjóðarinnar skil-
aði hann dágóðum arði í
ríkiskassann þrátt fyrir að
honum væri stjórnað af
mönnum sem gerðu sér að
góðu þau laun sem kjara-
dómur skammtaði þeim.
Þeir sáu ekki ástæðu til
að stofna einkafyrirtæki til
að geta aukið eigin tekjur
og til að lækka tekjuskatt-
inn hjá sér.
Sá sem var síðasti for-
stjóri Símans áður en hon-
um var breytt í hlutafélag
var Guðmundur Björnsson.
Hann var síðan settur á eft-
irlaun. Ég vil nú skora á
samgönguráðherra að ráða
Guðmund að nýju. Þar með
fengi Landssími Íslands hf.
sinn fyrri sess meðal þjóð-
arinnar og fyrirtækið losaði
sig undan skyldum vegna
starfslokasamnings Guð-
mundar, auk þess þyrftu
stjórnendur fyrirtækisins
ekki að falast eftir ráðgjöf
hjá misstórum einkafyrir-
tækjum til að vera fær um
að halda skammlaust um
stjórnartaumana.
Því eiga allir að geta orð-
ið sáttir með þessa niður-
stöðu.
Hluthafi í
Landssíma
Íslands hf.
Sýnum samstöðu
Í MORGUNBLAÐINU sl.
sunnudag var grein sem
fjallaði um íslenska konu,
Guðríði og Hebu dóttur
hennar, og lífsreynslu
þeirra en fyrrum eiginmað-
ur Guðríðar svipti dóttur
þeirra frelsinu og hugðist
gifta hana í Egyptalandi.
Langar mig að biðja ís-
lenskar konur að sýna þeim
mæðgum stuðning sinn og
láta í sér heyra vegna þessa
máls. Þessi maður á ekki að
hafa leyfi til að dveljast hér
í landi því hann er ógnun
við dóttur sína.
Eins vil ég koma því á
framfæri að mér líkaði vel
hvernig Davíð kom fyrir í
Kastljósi sl. þriðjudag og
að mér líkar ekki stefna
Halldórs Ásgrímssonar í
utanríkismálum.
Anna Kristjánsdóttir.
Eigenda leitað
ÞESSI mynd fannst í tösku
sem var meðal annarra
muna í dánarbúi. Taskan
var eign Svövu Sigurðar-
dóttur. Í töskunni eru ýms-
ir persónulegir munir og
gamlar innrammaðar
myndir. Sú sem fann tösk-
urnar vill koma þeim til
réttra eigenda og eru þeir
beðnir að hafa samband við
Steinunni í síma 555 3489.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
HÉR á landi hafa ýmsir bariztgegn því að skattskrár séu
gerðar opinberar og liggi frammi á
skattstofum í nokkrar vikur á ári.
Ungir sjálfstæðismenn hafa t.d. verið
duglegir að færa rök að því að upplýs-
ingar um skattgreiðslur – og þar með
um tekjur fólks – séu persónuupplýs-
ingar, sem sjálfsagt sé að leynt fari.
Svo eru aðrir, sem segja að birting
skattskránna sé sjálfsagt aðhald og
þáttur í skattaeftirliti; hvatning til að
telja rétt fram og reyna ekki að skjóta
tekjum eða eignum undan skatti.
Vegna þess hvað málið er umdeilt
hér á landi brá Víkverja dálítið í brún
þegar hann var að rápa á Netinu og
rakst á heimasíðu norska blaðsins
Bergens Tidende á leitarvél, þar sem
hægt er að leita í norsku skattskránni
eins og hún leggur sig; fletta upp
hverjum einasta norskum skattgreið-
anda og skoða hvað hann hefur haft í
skattskyldar tekjur á síðasta ári og
hver eignarskattstofn hans er. Norð-
menn eru ekki síður en Íslendingar
uppteknir af persónuvernd, en með
þessu eru persónuupplýsingarnar
orðnar nokkurn veginn eins aðgengi-
legar og hugsazt getur. Blaðið tekur
fram að hin rafræna skattskrá sé
fengin frá yfirvöldum. Hvað ætli fólki
fyndist í okkar agnarlitla samfélagi ef
hægt væri að fletta tekjum þess upp á
Netinu með samþykki yfirvalda?
x x x
VÍKVERJA hefur ekki fundiztsérstaklega mikið til um að taka
eigi upp atriði í næstu James Bond-
myndina hér á Íslandi. Af lestri
norska blaðsins Verdens Gang mætti
hins vegar ætla að Íslendingar ættu
að vera bæði stoltir og glaðir af því að
Jökulsárlón skuli hafa orðið fyrir val-
inu sem tökustaður. Blaðið birti á
dögunum frétt um að framleiðendur
myndarinnar hefðu fallið frá hug-
myndum um að taka upp atriði í
Jostedalen í Luster. Fulltrúi fram-
leiðendanna er þráspurður í fréttinni
hvernig standi á þessu en gefur ekki
önnur svör en þau að Jostedalen sé
ekki lengur til umræðu. Blaðamaður-
inn getur engan veginn leynt von-
brigðum sínum; kallar svörin sem
hann fékk „nedslående“, þ.e. eitthvað
sem veldur depurð eða hugsýki. Það
fylgir sögunni í frétt VG að Skotar
séu álíka daprir og Norðmenn yfir því
að Pierce Brosnan muni ekkert eltast
við vonda kalla í þeirra fagra landi, en
slíkt hafði víst verið nefnt sem mögu-
leiki og vakið miklar vonir í brjósti
skozku þjóðarinnar. Það er gott að Ís-
lendingar hafa a.m.k. val á tökustöð-
um fyrir James Bond til að gleðjast
yfir í skammdeginu og fyllast þjóð-
arstolti.
x x x
ÞEGAR textavarp Ríkissjón-varpsins hóf göngu sína fyrir
nokkrum árum varð mikil rekistefna
vegna þess að ekki réðu öll sjónvarps-
tæki við að birta séríslenzka bókstafi
eins og broddstafi, æ, ð og þ. Nú er
það vandamál væntanlega að mestu
úr sögunni eftir því sem sjónvarps-
tækjakostur landsmanna hefur end-
urnýjast. Textavarpið er hins vegar
líka orðið aðgengilegt á Netinu og þá
bregður svo við að á forsíðu texta-
varpsvefjarins eru séríslenzkir stafir
að þvælast á víð og dreif þar sem þeir
virðast alls ekki eiga heima; á milli
lína og undir texta. Þetta gerir upp-
hafssíðuna dálítið undarlega útlits og
aflestrar. Fyrr má nú rota en dauð-
rota, segir Víkverji bara.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 brumhnappar, 8 hefja
upp, 9 brotna, 10 mánað-
ar, 11 haldist, 13 pílára,
15 karlfugl, 18 sundfugl-
ar, 21 bein, 22 slöngvuðu,
23 mjúkan, 24 geðslag.
LÓÐRÉTT:
2 garm, 3 þurfalingur, 4
tekur, 5 kjánum, 6 feiti, 7
hrun, 12 móðurlíf, 14
greinir, 15 síðast af öllu,
16 rengdu, 17 grasflöt, 18
styrkir, 19 dútla, 20 brún.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 búbót, 4 nýtur, 7 lokið, 8 göfgi, 9 ala, 11 skap,
13 gata, 14 ostra,15 fúlt, 17 tólf, 20 bar, 22 gifta, 23
ábata, 24 niðra, 25 apana.
Lóðrétt: 1 belgs, 2 bukka, 3 taða, 4 naga, 5 tafla, 6 reika,
10 litla, 12 pot, 13 gat,15 fegin, 16 lyfið, 18 óraga, 19
flasa, 20 bala, 21 ráma.
K r o s s g á t a
Í DV fyrir nokkrum
dögum var sagt frá því
að Pétur Blöndal og
Katrín Fjeldsted ætluðu
að leggja fram tillögu á
þinginu um niðurfell-
ingu skattaafsláttar sjó-
manna. Ef þau leggja
fram þessa tillögu
skrifa þau sig út af
borði íslenskra stjórn-
mála.
Allir sjómenn á Ís-
landsmiðum fengu að
vita af þessari vænt-
anlegu tillögu þeirra.
Sjómenn og fjölskyldur
þeirra fylgjast grannt
með.
Pétur og Katrín. Það
eru sjómenn sem leggja
sig í lífshættu hvern
einasta dag til að halda
þjóðinni á floti. Und-
anfarið hefur sjórinn
höggvið stórt skarð í
raðir íslenskra sjó-
manna, eiginkonur,
börn, heilu byggð-
arlögin syrgja. Sjómenn
eru langdvölum frá fjöl-
skyldum sínum.Væri
ykkur ekki nær að
hjálpa sjómönnunum
okkar að ná fram ýms-
um kröfum sínum? T.d
ef að bátur ferst og sjó-
menn bjargast fá þeir
engin laun frá útgerð-
inni frá þeim degi er
bátur ferst, ekki krónu.
Það er ótrúlegt hvað
sjómenn þurfa að ganga
í gegnum til að fá stöðu
sína metna að verð-
leikum. Þegar þing-
menn missa sjónar af
lífi fólksins í landinu,
hafa ekki hugmynd um
um hvað það snýst, er
kominn tími til að að
þeir dragi sig í hlé.
Sjómannaafslátturinn
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Laug-
arnes kemur í dag,
Mánafoss og Árni Frið-
riksson fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Plato kemur á morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 12.45 dans, kl. 13
bókband, kl. 14 bingó.
Árskógar 4. Kl. 13-16.30
opin smíðastofan. Allar
upplýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9-12 bókband, kl.
9-16 handavinna, kl. 10-
17 fótaaðgerð, kl.13
frjálst að spila og gler-
list. Félagsvist kl. 13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13-16.30, spil og fönd-
ur. Kóræfingar hjá Vor-
boðum, kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17-19. Jóga á
föstudögum kl. 11. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014, kl. 13-16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8-16.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Kl. 9-12 aðstoð við
böðun, kl. 9-16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl. 9
opin handavinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó í Gullsmára 13 kl.
14. Opið hús verður í
Gjábakka laugardaginn
2. mars kl. 14. Á dag-
skrá er upplestur, dans-
sýning o.fl.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10-12
verslunin opin, kl. 13
„Opið hús“, spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Fimmtud. 7
mars kl. 20 Borgarleik-
húsið, Íslenski dans-
flokkurinn, miðapant-
anir í síma 565-6622
eftir hádegi. Föstud. 1.
mars kl. 11 dans.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Myndlist
og brids kl. 13.30.
Sæludagar á Örkinni 3-8
mars. Þátttakendur láti
vita um hvort þeir ætli
að notna rútuna er fer
sunnudaginn 3. mars kl.
16.30 í síma 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ.
Kaffistofan opin virka
daga frá kl. 10-13. Kaffi,
blöðin og matur í há-
degi. Leikfélagið Snúður
og Snælda sýnir í Ás-
garði í Glæsibæ, félags-
heimili, söng- og gam-
anleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ – minningar
frá árum síldarævintýr-
anna. Einnig „Fugl í
búri“, dramatískan
gamanleik. Sýningar
eru miðviku- og föstu-
daga kl. 14 og sunnu-
daga kl. 16. Miðapant-
anir í s: 588-2111,
568-8092 og 551-2203.
Árshátíð FEB verður í
kvöld í Versölum, Hall-
veigarstíg 1, húsið opn-
að kl. 19 og borðhald
hefst kl. 19.30. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB. Sími: 588-2111.
Námskeið í framsögn
og upplestri hefst
fimmtudaginn 7. mars
kl. 16.15, leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson.
Framtalsaðstoð frá
Skattstofu Reykjavíkur
verður þriðjudaginn 19.
mars á skrifstofu fé-
lagsins, panta þarf tíma.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9-16.30
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9-13 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14. brids. Op-
ið alla sunnudaga frá kl.
14-16, blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, myndlist-
arsýning Braga Þórs
Guðjónssonar stendur
yfir. Vetingingar í veit-
ingabúð. Mánudaginn 4.
mars bankaþjónusta kl.
13.30-14.30. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15
rammavefnaður, kl. 13
bókband, kl. 13.15
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 10 glerlist, bingó
kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
11 spurt og spjallað. Kl.
14 verður góukaffi,
gestur Þuríður Krist-
jánsdóttir, sem ræðir
um Góuna. Sýndir
verða íslenskir bún-
ingar. Veislukaffi. Allir
velkomnir. Spilað bingó.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9-13
tréskurður, kl. 9-17 hár-
greiðsla, kl. 10 boccia.
Félagsstarfið er opið
öllum aldurshópum, all-
ir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9-16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í að-
alsal. Laugardaginn 2.
mars kl. 20-23 verður
opið hús í tilefni vetr-
arhátíðar Reykjavík-
urborgar Ljós í myrkri.
Dagskrá. Róbert Arn-
finnsson leikari les ljóð.
Guðný Helgadóttir leik-
kona kynnir og stýrir
einnig fjöldasöng. Guð-
laug Erla Jónsdóttir
flytur gamanmál. Dans-
að við undirleik feðg-
anna Inga og Karls Jón-
atanssonar. Veitingar.
Allir velkomnir. Kl 15
ferðakynning á vegum
Úrvals-Útsýnar. Reb-
ekka Kristjánsdóttir
kynnir vor- og sum-
arferðir. Ferðavinn-
ingar, pönnukökur með
rjóma í kaffitímanum.
Dansað við lagaval Sig-
valda. Framtalsaðstoð
verður veitt mánudag-
inn 18. mars, skráning í
síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 leikfimi og fótaað-
gerðir, kl. 12.30 leir-
mótun, kl.13.30 bingó.
Háteigskirkja aldraðir.
Samvera í Setrinu kl.
13-15. Kl. 13.30 teflt,
spilað og rabbað, kaffi á
eftir. Söngur með Jónu,
kl. 13.30 vöfflur með
kaffinu.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16-25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard.
kl.15-17 á Geysi, Kakó-
bar, Aðalstræti 2.
(Gengið inn Vesturgötu-
megin.) Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Breiðfirðingakórinn
heldur árlega dags- og
söngskemmtun í Breið-
firðingabúð laugard. 2.
mars og hefst kl. 21,
Svarfdælingakórinn
kemur í heimsókn og
tekur lagið. Happdrætti.
Vetrarhátíð Reykjavík-
ur, Ljós í myrkri.
Kvöldvaka í Ráðhúsinu
kl. 20. Þjóðdansar,
kveðnar rímur, sagðar
draugasögur, Árni
Björnsson þjóðhátta-
fræðingur ræðir um
hvað er skemmtilegt í
myrkrinu og tekur lagið.
Hljómsveitin Vinaband-
ið leikur fyrir dansi.
Kvæðamannafélagið
verður á staðnum. Allir
velkomnir.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótekum.
Gíró-og kreditkorta-
greiðslur.
Í dag er föstudagur 1. mars, 60.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Sú
þjóð, sem í myrkri sat, sá mikið ljós.
Þeim er sátu í skuggalandi dauðans,
er ljós upp runnið.
(Matt. 4, 16.)