Morgunblaðið - 10.03.2002, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 B 13
bílar
Barna fjölvítamín
FRÁ
Tuggutöflur í formi dýra og
með margvíslegu bragði.
MeðGMP gæðaöryggi.
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Apótekin
FRÍHÖFNIN
Á BÍLASÝNINGUNNI í Genf má
sjá hversu framleiðendur bjóða sí-
fellt meira úrval en hinn hefð-
bundna fólksbíl. Segja má að mest
þróun sé í fjölnotabílum og sport-
legum bílum. Fjölnotabílar eru ekki
síst ætlaðir fjölskyldum með breyti-
legar þarfir og sportlegu bílunum
er ætlað að gefa eigendum sínum
tækifæri til að ferðast víðar en um
venjulega vegi án þess að þeir séu
neinir ofurjeppar.
Toyota sýnir í fyrsta sinn í Evr-
ópu hugmyndabílinn p.o.d. og tók
upp samstarf við Sony-rafeindafyr-
irtækið við þessa hugmynd. Bílnum
er ætlað að vera eins konar þátttak-
andi í ferð ökumanns en ekki bara
tæki til að flytja hann milli staða.
Hann á að geta hugsað, talað og
brosað og dillað rófunni í þokkabót
en rófan sú er loftnetið á skottlok-
inu. En aðalatriðið er að bílnum er
ætlað að sýna ákveðin viðbrögð
varðandi öryggi og þægindi þeirra
sem í honum ferðast.
Aðlagar sig hverjum bílstjóra
Búnaði p.o.d. er ætlað að nema
aksturslag bílstjóra síns. Kjósi hann
t.d. hálfgert kappaksturslag um
bugðótta vegi bregst bíllinn við með
stífari fjöðrun og sneggri skiptingu
sjálfskiptingarinnar. Þannig þarf
bílstjórinn ekki að hreyfa við nein-
um rofum til að búa bílinn undir
þessa eiginleika. Kjósi hann af-
slappaðan akstur launar bíllinn fyr-
ir sig með sparneytni. Ekki verður
sagt að p.o.d. sé laglegur bíll, hann
er eins konar kassi á hjólum en inn-
réttingin er lífleg.
UUV er önnur nýjung frá Toyota,
hugmynd sem er í útliti nokkuð
venjulegur bíll. Hann er liður í
þeirri þróun Toyota að finna nýja
markaðsmöguleika og bjóða mönn-
um bíl sem uppfyllir nýja drauma.
Hann er ætlaður þéttbýlisfólki sem
hefur ekið stórum fjölskyldubílum
en er nýjungagjarnt. Er þetta með-
al niðurstaðna markaðsrannsókna
Toyota en bíllinn er hannaður í
Evrópu hönnunarmiðstöð fyrirtæk-
isins. Bíllinn er 4,43 m langur og
1,82 m á breidd og með aldrifi. Eins
og fyrr segir er hann nokkuð venju-
legur í útliti en með skemmtilega
brotnum línum á hliðum. Framrúð-
an er mjög hallandi og hliðarglugg-
ar lágir en hjól eru stór og voldug.
Skoda Superb er nýjasta viðbótin
við Skoda-línuna og þar blandar
fyrirtækið sér í slaginn í meðalstór-
um bílum með góðum búnaði.
Greinilegt er að Skoda-fyrirtækið
lagði mikla áherslu á að enginn
missti af þessari nýjung á bás sín-
um enda bíllinn vel þess virði að
gefa honum gaum. Hans er von til
Íslands seinna á árinu og verður
hann ekki síst álitlegur fyrir þá sök
að búast má við hagstæðu verði.
Það tilheyrir Skoda.
Boðnar verða þrjár bensínvélar,
tvær fjögurra strokka 115 og 150
hestafla, og V6 vél sem er 193 hest-
öfl. Dísilvélar eru tvær, fjögurra
strokka 130 hestafla vél og sex
strokka 155 hestafla vél. Bíllinn er
4,8 m langur og 1,76 m breiður.
Það sem er ekki síst áhugavert
við Superb er plássið. Þægilegt er
að setjast í fram- sem aftursætin og
þar er rúmt til höfuðs og fóta. Þá
hefur mælaborðið og öll innrétting
bílsins á sér yfirbragð vandaðs bíls.
Skoda gerir ráð fyrir að selja 35
þúsund Superb árlega, þar af 25
þúsund í löndum Vestur-Evrópu en
fyrirtækið er reiðubúið að auka
framleiðsluna ef eftirspurn krefst.
Eins konar hliðarafsprengi Sup-
erb er Skoda Tudor, fjögurra sæta
sportbíll með 2,8 lítra og 260 hest-
afla vél. Með þessum bíl er Skoda
eingöngu að sýna dug sinn í hönnun
og mögulegri framleiðslu hraðakst-
ursbíls. Engar ákvarðanir hafa þó
verið teknar um fjöldaframleiðslu.
Porsche-jeppinn Cayanne var
sýndur á myndum í Genf og kynnt-
ur lauslega á blaðamannafundi fyr-
irtækisins. Bíllinn er hannaður sem
sportlegur hraðakstursbíll með ald-
rifi og sem jeppi. Framendinn sver
sig nokkuð í ætt Porsche en að öðru
leyti ber bíllinn algjörlega eigin
svip. Rannsóknar- og þróunarmið-
stöð Porsche í Weissach hannaði
bílinn og er ráðgert að hleypa hon-
um formlega af stokkunum á hausti
komanda.
Þá má nefna sport-hugmyndabíl-
inn Yanya frá Nissan. Eins og aðrir
slíkir hefur hann sinn sérstaka svip.
Sætin fjögur vekja sérstaka athygli
og eru mjög þunn og virðast hagnýt
því þau eru á brautum sem ná eftir
endilöngu innanrýminu og má því
aka þeim langt fram og aftur. Þá er
sérstaklega tekið fram að við hvert
og eitt sæti sé búnaður til að stýra
útvarpi og öðrum tækjum sem í
bílnum eru en það sé ekki aðeins
ætlað ökumanni eða bílstjóra í
framsæti.
Frá Toyota kemur hugmyndabíllinn p.o.d. sem er mjög líflegur að innan og er þeim hæfi-
leika gæddur að geta lagað aksturseiginleika sína að hverjum og einum ökumanni.
Porsche kynnti lúxusjeppa sinn í máli og myndum en raunveruleg að-
alkynning verður í haust og sala hafin í framhaldi af henni.
Morgunblaðið/jt
Hér eru þeir Bogi Pálsson (t.h.) og Emil Grímsson við UUV-bílinn frá Toyota.
Meira í boði en venju-
legir fjölskyldubílar
Sjá má úrval venjulegra bíla og hugmyndir að framtíðarbílum á
bílasýningunni í Genf sem stendur til næsta sunnudags. Jóhann-
es Tómasson kom þar við þar sem margt var um bíla og fólk.
Von er á Skoda Superb til Íslands síðar á þessu ári. Nissan Yanya er sport-hugmyndabíll með aldrifi.