Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 16
I am Sam frumsýnd
hérlendis um helgina
Sean hinn
snjalli leikur
Sam hinn
þroskahefta
WESLEY Snipes og Kris Krist-
offerson fara eftir sem áður með að-
alhlutverkin í Blade 2, sem væntanleg
er í bíóhúsin í apríl og er framhald
samnefndrar myndar sem frumsýnd
var árið 1998. Leikstjórn annaðist
mexíkóski leikstjórinn Guillermo del
Toro. Óvenjuleg stökkbreyting hefur
orðið innan vampírusamfélagsins.
Komin er fram ný vampírutegund
sem er svo blóðþyrst að hún leggst
ekki aðeins á mannfólkið, heldur hinar
hefðbundnu blóðsugur líka og fórn-
arlömbin, sem eru svo óheppin að lifa
af árásir þessarar nýju tegundar, um-
breytast sjálf í þessar blóðþyrstu
vampírur. Illþýðinu fjölgar hratt og
innan skamms verður ekki nóg af
mennsku blóði í boði fyrir sælkerana.
Skuggaráðið kallar til fundar gam-
alkunna félaga ásamt vopnasérfræð-
ingi sem taka höndum saman við
hópinn Bloodpack sem samanstendur
af sérþjálfuðum bardagavampírum.
Blóðþyrstar vampírur
SISSY Spacek fer með hlutverk
Ruth Fowler, móður ungs háskólanema
sem tekur upp ástarsamband við sér
eldri tveggja barna móður í kvikmynd-
inni In the Bedroom sem væntanleg er
í kvikmyndahúsin um miðjan mars. Eig-
inmanninum fyrrverandi er lítt skemmt
við að horfa upp á fyrrverandi konu
sína með öðrum manni og grípur til ör-
þrifaráða, sem eiga eftir að draga dilk á
eftir sér. Spacek fékk Golden Globe-
verðlaunin sem besta leikkona í aðal-
hlutverki í dramamynd fyrir frammi-
stöðu sína í myndinni og hefur myndin
verið tilnefnd til fimm Óskars-
verðlauna, en Tom Wilkinson fer með
hlutverk fjölskylduföðurins Matts Fowl-
ers. Myndin er byggð á sögu Andre
Dubus og bjó leikstjórinn Todd Field
hana í kvikmyndabúning ásamt Rob
Festingar, en Field er að þreyta frum-
raun sína sem kvikmyndaleikstjóri.
Ást og afbrýði
In the Bedroom: Sissy Spacek og
Tom Wilkinson.
SÖNGVARINN og laga-
smiðurinn Bob Dylan,
sem í fyrra hreppti Ósk-
arsverðlaun fyrir besta
kvikmyndalag (Things
Have Changed í The
Wonder Boys), ætlar ekki
að láta sér nægja að leika
tónlist í kvikmyndum. Nú
ætlar hann að leika hlut-
verk líka. Hann hefur tekið
að sér aðalhlutverk í
frumraun leikstjórans
Larrys Charles, Masked
and Anonymous. Dylan
mun leika Jack Fate,
söngvara sem situr í steininum en er hleypt út til að
spila á lokatónleikum. Að sjálfsögðu koma við sögu
einhver frumsamin lög leikarans, sem ekki hefur
sést á hvíta tjaldinu í fimmtán ár, eða frá því hann
lék við slakan orðstír á móti Rupert Everett í
Hearts Of Fire árið 1987. Helsta leikframmistaða
Dylans til þessa var í Pat Garrett And Billy the
Kid eftir Sam Peckinpah.
Dylan í leiklistina á ný
Bob Dylan: Söngvari
leikur söngvara.
LÁRUS Ýmir Óskarsson kvik-
myndaleikstjóri hefur tekið við
starfi kennslustjóra hjá Kvik-
myndaskóla Íslands og eru ýmsar
breytingar í undirbúningi til að
efla skólann og námsmöguleika
þar. Að sögn Lárusar Ýmis er nú
stefnt að því að skólinn verði „al-
vöru kvikmyndaskóli í september
og bjóði upp á tveggja ára nám í
kvikmyndagerð. Önnur nýjung
verður framleiðslutengt nám, þar
sem fólki býðst að koma hér inn
með verkefni og hugmyndir, fá að-
gang að tækjum, vinnuaðstöðu
og ráðgjöf og ganga út með til-
búna mynd.“
Lárus Ýmir Óskarsson hefur
starfað lengi að kvikmyndagerð
bæði hérlendis og í Svíþjóð, þar
sem hann bjó um árabil. Hann er
ekki ókunnugur kennslustörfum og
hefur kennt kvikmyndaleik og kvik-
myndagerð hérlendis, í Noregi og
Svíþjóð. Hann segist fjarri því að
vera hættur að gera kvikmyndir.
„Ég held áfram að vinna að eigin
hugmyndum og verkefnum, enda
telur skólinn æskilegt að starfs-
menn séu virkir í faginu. Ég hef alls
ekki í huga að mosavaxa hér í
kennarastólnum.“ Hann mun einn-
ig starfa áfram við handritsráðgjöf
fyrir Sjónvarpið, eins og undanfarin
misseri. Hann segir kennslustjóra-
starfið fyrstu föstu stöðuna í þrjá
áratugi. „Það er góð tilfinning fyrir
mig. Ég hef lengi öfundað fólk sem
hefur „aðstöðu“, eins og það er
kallað. Nú hef ég kontór og fæ heil-
mikið „kikk“ út úr því! Annað er að
eftir að hafa verið einyrki um ára-
bil er gaman að koma inn í þann
kraumandi pott af lífi og fólki, sem
hér er.“ Nú eru 18 manns í eins árs
grunnnámi við Kvikmyndaskóla Ís-
lands, auk þeirra sem sækja ýmis
námskeið og tengjast framleiðslu-
fyrirtækinu 20 geitur sem eigandi
skólans, Böðvar Bjarki Pétursson,
rekur í sama húsi. „Hér er því mik-
ið líf og fjör, sem frískandi er að
komast í snertingu við,“ segir
kennslustjórinn.
Lárus Ýmir ráðinn kennslustjóri við Kvikmyndaskóla Íslands
Stefnt að tveggja ára námi í haust
NÝ íslensk bíómynd, Reykjavík
Guesthouse – rent a bike, verður
frumsýnd á skírdag, hinn 28.
mars í Háskólabíói og Smára-
bíói. Myndin er frumraun Unnar
Aspar Stefánsdóttur og Björns
Thors leiklistarnema og Barkar
Sigþórssonar ljósmyndara og
kvikmyndatökumanns, en í aðal-
hlutverkum eru reyndir leikarar
eins og Hilmir Snær Guðnason,
Kristbjörg Kjeld og Margrét
Vilhjálmsdóttir.
„Þetta er persónudrifin mynd,
dramatísk borgarflétta,“ segir
Björn Thors í samtali við Morg-
unblaðið. „Hún fjallar á nokkuð
raunsannan hátt um persónur
sem eru dregnar skýrum drátt-
um og við tökum þar dálítið mið
af leikstjórum eins og Mike
Leigh og Woody Allen.“
Hilmir Snær leikur Jóhann,
þrítugan gistihússeiganda í mið-
borg Reykjavíkur. Hann hefur
einangrað sig frá umheiminum í
kjölfar fráfalls föður síns, heldur
til á gistihúsinu án þess að taka
við gestum, hefur skapað sér
sína eigin veröld og reynir að
komast hjá því að þurfa að kljást
við samfélagið og samborgar-
ana. Inn í hans litlu veröld flétt-
ast Finnur, níu ára nágranni
hans, sem á undir högg að sækja
hjá jafnöldrum sínum og býr hjá
rótlausri ömmu sinni. Þessar
tvær einmana sálir tengjast vin-
áttuböndum, sem fátt fær rofið.
Á meðan Jóhann lætur sem um-
heimurinn sé ekki til hallar und-
an fæti í rekstri gistihússins.
Brátt fer að hrikta í stoðum
þeirrar tilveru sem hann hefur
kosið sér. Aðstandendur mynd-
arinnar segja hana fjalla um ein-
staklinga og ótta þeirra.
Unnur Ösp og Björn leikstýra
myndinni, Börkur annast kvik-
myndatöku og öll þrjú semja
þau handrit og framleiða. Elísa-
bet Ronaldsdóttir klippir, Sig-
rún Birta Þrastardóttir sér um
leikmynd og búninga, tónlist
semur Daníel Bjarnason og Uss
ehf. annast hljóðvinnslu. Meðal
annarra leikenda eru Stefán Ei-
ríksson, Kjartan Guðjónsson,
Brynhildur Guðjónsdóttir,
Björn Hlynur Haraldsson, Pét-
ur Einarsson, María Sigurðar-
dóttir og Baldur Trausti Hreins-
son.
Reykjavík Guesthouse – rent a bike frumsýnd á skírdag
Dramatísk borgarflétta um
einfaldan gistihússeiganda
Gestalaus gistihússeigandi:
Hilmir Snær í hlutverki Jóhanns.
ÞEGAR slökkt var á sýningarvélum
bíósins í síðasta sinn eftir að 10-
sýningu á kvikmyndinni Original
Sin með strípalingunum Angelinu Jol-
ie og Antonio Banderas var lokið hafði
kvikmyndahúsið verið órjúfanlegur
hluti af menningarlífi borgarinnar í
52 ár og 5 mánuði. Í ríflega hálfa öld
höfðum við gengið að því vísu að
geta sótt þar sýningar á nýjum og
oft á tíðum spennandi kvikmyndum
– innlendum og erlendum.
Það var 29. september 1949 sem
fyrsta kvikmyndasýningin í hinu
nýreista kvikmyndahúsi við Lauga-
veg 94 fór fram. Reyndar voru sýn-
ingarnar þrjár þann daginn, kl. 5, 7
og 9 (muniði eftir þessum fornald-
arlegu sýningartímum?) Opn-
unarmyndin var Sagan af Karli
Skotaprinsi (Bannie Prince Charlie)
en skv. bíóauglýsingu í Morg-
unblaðinu þennan dag var þar á ferð
„[e]nsk stórmynd í eðlilegum litum,
um frelsisbaráttu Skota og æv-
intýralega undankomu Karls prins“
og voru aðalhlutverk í höndum þeirra
Davids Nivens og Margaret Leighton.
Myndinni og nýja kvikmyndahúsinu
var vel tekið enda mál manna að þar
væri hin glæsilegasta bygging.
Framkvæmdir við hana höfðu samt
gengið brösult og meira að segja leg-
ið niðri um tveggja ára skeið, að-
allega sökum skorts á byggingarefni
í landinu vegna innflutningshafta og
skömmtunarstefnu yfirvalda um þær
mundir. Fyrsti bíóstjórinn var Hjalti
Lýðsson kaupmaður en hann stofnsetti
bíóið í félagi við þá Tómas Tómasson og
bræðurna Grím, Hróbjart og Harald
Bjarnason.
Stjörnubíó varð sjöunda kvik-
myndahús borgarinnar og með því
voru ríflega 3.500 sæti í boði en fyrir
voru Gamla og Nýja bíó, Tjarnarbíó,
Trípólíbíó, Austurbæjarbíó og Hafn-
arbíó. Hin öra kvikmyndahús-
afjölgun á 5. áratug síðustu aldar
varð einfaldlega til þess að auka að-
sókn jafnt og þétt og það var því klárt
að þörf hafði verið fyrir bíóið föngu-
lega á Laugaveginum.
Talað hefur verið um að álög hafi
hvílt á lóðinni númer 94 við Lauga-
veg. Tvisvar sinnum lenti bíóið í í
bruna. Í fyrra skiptið árið 1953
skemmdist það töluvert án þess þó að
leggja þyrfti sýningar niður en 19.
desember 1973 gereyðilagðist það í
stórbruna og lágu sýningar niðri í
hálft ár á meðan það var endurbyggt
frá grunni.
Myndavalið í Stjörnubíói í gegnum
árin ber greinilegt höfuðeinkenni –
það að bróðurpartur myndanna var
frá Hollywood-risanum Columbia
Pictures og dótturfyrirtækjum. Þar í
hópi voru nokkrar af mest sóttu og
þar af leiðandi eftirminnilegustu
myndum síns tíma, myndir á borð við
vagg og veltu-myndina Rock Around
the Clock sem æsti dansþyrsta æskuna
svo að armar voru rifnir af og sætin
útbíuð eftir hverja sýningu, Brando-
klassíkina On the Waterfront, eina af
stórmyndum David Lean The Bridge
Over River Kwai, stjörnum prýddan
Alistair McLean-hasarinn The Guns of
Navarone, Ókindareftiröpunina The
Deep, dellurnar Stir Crazy með Gene
Wilder og Richard Pryor, Stripes með Bill
Murray og að sjálfsögðu Karate Kid,
sem hafði að geyma svo rosalegan
lokabardaga að önnur eins viðbrögð
hjá yngri áhorfendum höfðu vart sést
síðan kúrekarnir riðu um héruð á
þrjú sýningunum eða jafnvel á áð-
urnefndri Rock Around the Clock.
Íslenskar myndir voru sýndar í
Stjörnubíói allt frá upphafi starfsemi
þess. Reyndar var þriðja myndin
sem tekin var til sýningar þar ís-
lensk, en það var Björgunarafrekið
við Látrabjarg, heimildarmynd, eða
öllu heldur fréttamynd, sem Óskar
Gíslason gerði fyrir Slysavarnafélag
Íslands. Margar íslenskar myndir
voru síðan sýndar í Stjörnubíói og þá
sérstaklega á tíunda áratug síðustu
aldar þegar segja má að Stjörnubíó
hafi á tímabili verið heimili íslenskra
mynda er þar voru sýndar myndir á
borð við Börn náttúrunnar, Bíódaga
og Cold Fever Friðriks Þórs, Magnús
og Einkalíf Þráins Bertelssonar, Eins og
skepnan deyr og Tár úr steini Hilmars
Oddsonar, svo einhverjar séu nefndar.
Það væri að bera í bakkafullan
lækinn að fara að lýsa þeirri synd
sem það er að þetta sögufræga bíó
skuli vera liðið undir lok. Und-
anfarna viku hafa margir kvatt
Stjörnubíó með trega í brjósti og um
leið lýst áhyggjum sínum yfir þeirri
þróun að gömlu bíóin í miðborginni
séu að deyja drottni sínum eitt af
öðru og víkja fyrir stórum fjölsala
verslunarkjarnabíóum í úthverf-
unum. Þær áhyggjur eru fullkomlega
skiljanlegar. Ekki bara í rómantísku
tilliti, heldur einnig vegna þess að
íbúar heilu hverfanna þurfa þar með
að fara að leggja á sig vænar bílferðir
til þess að geta sótt bíósýningar. Þró-
un sem skýtur svolítið skökku við
þegar hugsað er til þess að fyrsta út-
hverfabíóið Bíóhöllin þjónaði að
stórum hluta þeim tilgangi að færa
bíóið nær borgurum sem höfðu þurft
að leggja á sig vænar bílferðir til þess
að geta sótt bíósýningar. Að sögn
bíóstjóra hefur kvikmynda-
húsareksturinn í miðbænum verið
æði þungur og svo sem lítil ástæða til
að rengja það, þótt mér þyki það
sjálfum óskiljanlegt. En getur vand-
inn ekki legið hjá bíóunum sem fyrir
eru en ekki í staðsetningunni sem
slíkri, að aðdráttarafl gömlu bíóanna
sé horfið? Vantar ekki bara nýtísku-
bíó í miðborgina?
Ég veit að þetta er ofsalega óróm-
antísk pæling, og er síður en svo
hlyntur henni, en það verður að gera
eitthvað til að bíóin hverfi ekki fyrir
fullt og allt úr þessum stóra borg-
arhluta.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stjörnubíó árið 1989, fyrir tíma flenni-
stóru veggspjaldanna, þegar enn sást
í sjálfa bygginguna.
Far vel Stjörnubíó
Það hefur vart farið framhjá nokkrum
sem fylgist með að fyrir rúmri viku,
nánar til tekið 28. febrúar, var merki-
legur dagur í bíósögu þjóðarinnar. Í aug-
um margra sorgardagur en aðra skiptir
hann nákvæmlega engu máli. Þennan
dag fóru fram síðustu kvikmyndasýn-
ingar í Stjörnubíói.
SJÓNARHORN
Skarphéðinn Guðmundsson
BRESKI leikstjórinn Mike Newell hefur lagt
gjörva hönd á mörg ólík verkefni, allt frá einni vin-
sælustu gamanmynd allra tíma í Bretlandi (Four
Weddings And a Funeral), búningadrama (En-
chanted April) til bandarískrar glæpamyndar
(Donnie Brasco). Nú hættir Newell sér enn lengra
inn á bandarískt yfirráðasvæði, þar sem er stór-
vestri eftir handriti Johns Milius. Myndin mun
kosta 80–100 milljónir dollara og gerist í villta
vestrinu snemma á þessari öld. Þar segir frá hausa-
veiðara, sem er hálfur indjáni og er gerður út til að
fanga síðasta mikla Apache-stríðsmanninn.
Breskur leikstjóri gerir
stórvestra
REESE Witherspoon
fylgir á þessu ári eftir vel-
gengni sinni í gamanmynd-
inni Legally Blonde með leik
í gamansömum stelputrylli
sem heitir Original Gangsta
Bitches og er að hætti
Hollywood lýst sem „Rush
Hour hittir Thelma and
Louise“. Í myndinni fer
Reese með hlutverk ungrar
millistéttarkonu sem sætt
hefur kúgun og niðurlæg-
ingu og rís upp til varnar og sóknar með aðstoð
svartrar kynsystur sinnar. Eitthvað hljómar þetta
líkt uppreisn ljóskunnar í Legally Blonde …
Reese rís upp II
Reese Wither-
spoon: Hætt að láta
vaða yfir sig.