Vísir - 14.05.1980, Page 9

Vísir - 14.05.1980, Page 9
vísm r-- Miövikudagur 14. mai 1980 9 1 Oslalfstætt, ahrilalaust 09 ðbyrgðarlaust embættl Hvaö er embætti forseta Islands? A fjögurra ára fresti á áO að heita svo, að við kjósum „æðsta embættismann” þjóðar- innar, en gera menn sér raun- verulega ljóst, hvers konar em- bætti forsetaembættið er? Ég er þeirrar skoðunar, að hlutverki forsetaembættisins eigi að gjörbreyta. Tvennt kem- ur til greina: að leggja það niður og færa þau völd, sem for- setinn hefur I orði til þeirra, sem i raun og veru beita þeim. Hinn kosturinn er sá að gera forseta- embættið valdameira en það er f dag. Báðar þessar tiiiögur eru mjög róttækar og sýnist eflaust sitt hverjum, ef gera á upp á milli þeirra. 1 þessari grein minni ætla ég að sýna fram á, að sá tlmi sé kominn að gera þurfi breytingar á forsetaembættinu, en aörar leiðir, en tvær hinar ofangreindu, sé ég ekki I fljótu bragöi. Áhrifalaus og ábyrgðarlaus forseti! 113. grein stjórnarskrárinnar segir, að forsetinn láti ráðherra fara með vald sitt. 1 14. grein segir, að ráðherra beri ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum, og loks segir 111. grein stjórnar- skrárinnar, að forseti lýðveldis- ins sé ábyrgðarlaus á stjórnar- athöfnum. Allt þetta og meira til gerir það að verkum, að forset- inn er að heita má áhrifalaus um allar stjórnarframkvæmdir. Hann á ekki frumkvæði I svo til neinu, og það sem meira er, hann er ekki hafður meö I ráð- um og það er ekki ætlast til þess, að hann eigi frumkvæði, nema i stjórnarmyndunartilraunum. Spurningin er þá sú, hvers vegna er að hafa þetta embætti með ærnum tilkostnaði og fyrir- höfn, ef handhafi þess er bæði áhrifa- og ábyrgöarlaus. Störf forsetans skv. stjórnarskránni. Störfum forsetans samkvæmt stjórnarskránni má skipta niöur i tólf þætti. önnur störf forset- ans skipta minna máli. 1. Forseti fer með löggjafar- valdið ásamt löggjafarþing- inu. 2. Forseti fer með fram- kvæmdarvaldið ásamt rétt- um stjórnvöldum. 3. Forseti skipar ráðherra og veitir þeim lausn. 4. Forseti situr I rikisráði og stjórnar fundum þess. 5. Forseti undirritar löggjafar- mál til þess að þau öölist gildi. 6. Forseti veitir þau embætti, sem lög mæla. 7. Forseti gerir samninga við önnur riki. 8. Forseti stefnir saman Alþingi, frestar þvi, slltur og rýfur. 9. Forseti getur látiö leggja fyrir Alþingi frumvörp til laga og annarra samþykkta. 10. Forseti gefur út bráða- birgöalög á milli þinga. 11. Forseti getur náðaö menn og veitt almenna uppgjöf saka. 12. Forseti getur veitt undan- þágur frá lögum eða faliö öðrum stjórnvöldum að ann- ast slfkt. Eins og sjá má af þessari upp- talningu úr stjórnarskránni, hefur forsetinn glfurleg völd I oröi, en lltum nú á hvernig þessi völd llta út á borði. Hefur forsetinn mikið að gera? Ef þessir tólf þættir eru at- hugaðirhverfyrirsig.þá kemur I ljós aö forsetinn hefur ekki næstum þvl eins mikið að gera og upptalningin gefur til kynna: 1. Alþingi fer eitt meö löggjaf- arvaldið, nema hvað þau lög sem Alþingi samþykkir öðlast ekki gildi fyrr en forseti undir- ritar þau. Þvl hefur forseti aldrei neitað og þess er vart vænst að hann geri sllkt. 2. Ráðherrar eru I raun og veru æðstu yfirmenn fram- kvæmdarvaldsins og forsetinn kemur þvl hvergi nærri, nema til þess að samþykkja það, sem framkvæmdavaldiö hefur þegar tekiö ákvörðun um. 3. Forseti samþykkir einungis tilnefningar I ráðherraembætti en hefur ekkert ákvörðunarvald um það, hverjir veljast til þeirra starfa. 4. Rlkisráð er einungis undir- skriftarsamkunda, þar sem rlkisstjórnin og forseti eru saman á fundi. Þar eru sjaldan rædd nein þjóðmál, hvað þá að forseti ræði þau mál sem hann á að undirrita. 5. Löggjafarmál ölast engu að slður gildi, þótt forseti neiti aö undirskrifa. 6. Forseti veitir aðeins þau embætti, sem framkvæmdar- valdið hefur þegar ákveðiö. 7. Ráðherra gerir samninga við önnur rlki, forseti samþykk- ir aðeins þá samninga sem þeg- ar eru gerðir. 8. Forseti hefur ekkert frum- kvæöi i þvl, aö setja, fresta, slita eða rjúfa Alþingi. Frum- kvæðiö er hjá forsætisráðherra. 9. Ráðherra ásamt alþingis- mönnum, hefur frumkvæði að þvi að leggja frumvörp fyrir þingiö. Forseti hefur aldrei neöanmóls Sigurður Sigurðarson stud. júr. veltir hér fyrir sér starfsviði forsetaem- bættisins og telur ástæðu til breytinga á hlutverki embættisins. neytt frumkvæöisréttar sins I þessu tilviki. 10. Rlkisstjórnin gefur út bráðabirgðarlög og forseti sam- þykkir aðeins eftirá. 11. Ráðherra náðar menn og vieitir almenna uppgjöf saka með samþykki forseta, sem kemur eins og áður eftir að ákvörðun hefur verið tekin. 12. Undanþáguvaldið sam- kvæmt lögum er I raun hjá ráð- herra og hefur hann frumkvæði I beitingu þess valds en ekki for- seti. Eins og af þessu má sjá ber allt aö sama brunni. Forseti er og veröur með óbreyttri stjórn- arskrá aöeins ómerkilegt af- greiðslutæki. Hann styðst við atbeina annarra stjórnvalda, og i raun og veru er ekki ætlast til annars. Forsetinn er að visu öryggistæki! Hér á undan hafa veriö færö rök fyrir þeirri staðreynd, aö embætti forseta lýöveldisins er ekki eins valdamikið og þaö sýnist i oröi. Þess vegna ætti annaö hvort aö leggja þetta em- bætti niöur eða gera það valda- meira. Ég geng þess þó engan veginn dulinn, að forsetaem- bættiö, eins og þaö er nú, er viss varnagli, nokkurs komar öryggishemill, sem getur komið I veg fyrir misnotkun ófyrirleit- inna stjórnmálamanna á meiri- hlutavaldi sinu eða aðstöðu. Meirihluti á Alþingi er nefnilega engin trygging fyrir þvi að leik- reglur lýöræðisins séu I heiðri hafðar. Ráðamenn geta mis- beitt valdi slnu á margvislegan hátt, mismunaö þegnum lands- ins, landshlutum, þjóðfélags- hópum o.s.frv. 1 slfkum tilfell- um ætlast stjórnarskráin til þess, að forsetinn grlpi I taum- ana. Hér á landi hafa sllkar aö- stæður aldrei komiö upp, en dæmi erlendis frá sýna og sanna að sllkt er ekki óhugsandi. Þessu öryggiskerfi þarf þó ekki að varpa fyrir róöa, þótt em- bættið sé gert valdameira eöa það lagt niður. 1 slðarnefnda til- vikinu væri hægt aö færa öörum stjórnvöldum, einum eða fleir- um, þennan öryggishemil. Hin brennandi spurning er þó þessi: Er forseti landsins þess tilbúinn að eiga frumkvæðið, þegar óvenju alvarleg mál koma upp I stjórnsýslunni? Spyrja má, hvort forseti sé til- búinnað standa upp og segja viö ráðherra landsins: Þessi lög undirrita ég ekki, þvl þau eru óréttlát að mlnu mati???? Forseti er ósjálf- stæður embættismað- ur! Varðandi svar við þessari spurningu, verður að taka fram, að engu máli á að skipta hver sé forseti landsins á þessum tlma, er álitamálið kemur upp, né heldur á öðrum timum. Spurn- ingin fjallar um embættið sjálft og það, hvort handhafi þess sé sjálfstæður embættismaður, sem ekki þurfi að reiða sig á ráðgjöf hlutdrægra aðila. Áður en viö svörum spurning- unni skulum við velta forsend- um svarsins nokkuö fyrir okkur. Forsetinn hefur enga ráðgjafa, nema stjórnmálamenn, og ef tií vill einstaka embættismenn. Þetta hljóta að teljast hlutdræg- ir ráögjafar. Ráðherra getur ekki ráðið forseta heilt, þar sem ráðherrann ætlast til þess að forsetinn samþykki erindi sitt. Hvar eru þeir ráögjafar sem forseti getur leitað til og lita á málin hlutlausum augum. Ráö- herrar hafa heilan her em- bættismanna I kringum sig, sem ráða þeim heilt um hvað sem fyrir ber. Forsetinn stendur einn, og er þó hvort tveggja hluti löggjafavaldsins og fram- kvæmdavaldsins. Þegar nánar er að gáö kemur I ljós, að nú I dag skiptir þvl miöur miklu máli, hver sé for- seti, hvaö hann heiti og hvað hann hafi gert áöur. Likur eru til þess, að stjórnmálamaður eða embættismaður geti staöiö sig betur heldur en maöur, sem kemur I starfiö einhvers staöar annars staöar úr þjóðfélaginu af þeirri einföldu ástæðu að sá slð- arnefndi hefur ekki þá reynslu til að bera, til þess að geta stað- iö einn og óstuddur I þessu em- bætti. Svariö við spurningunni er þvi: Nei! Forsetinn hefur enga ráð- gjafa, það eru engir embættis- menn sem starfa með honum, vegna þess að forsetinn hefur ekkert það starf með höndum sem máli skiptir. Hlutdrægir aðilar leiðbeina forsetanum þurfi hann ráðgjafar við. Varla les forsetinn nákvæmlega þau lög sem hann á að undirrita eða kannar réttmæti þeirra. Ekki fylgist forseti með störfum Al- þingis og aldrei á forseti frum- kvæði að þvl að leggja fram lagafrumvörp fyrir Alþingi. Niðurlag Þessi fámenna þjóð hefur ekki efni á þvl, aö eyða starfskrafti I jafn fánýtt þing sem embætti „veislustjórans á Bessastöð- um” má með sanni kallast. Þvl er þaö skoöun mln og hvatning um leiö að við virkjum frekar það afl sem I fólki býr til annars en veisluhalda á kostnað hins opinbera, hvort sem menn eru stjórnmálamenn, sáttasemjar- ar, sendiherrar, iðnaðarmenn eða leikhúsmenn. Siguröur Siguröarson, blaöamaöur. Dellt „Fjármálaráöuneytiö túlkar samningana á allt annan veg en BSRB og forsvarsmenn kennar- anna,”,” sagöi Helga Einars- dóttir formaöur félags bóka- safnafræöinga, þegar Vlsir spuröi hana um ágreining um kjör skólasafnvaröa. „Þeir vlta lltlO um hvaO Delr eru aö tala. Diessaöir” „Fjúrmálaráöuneytiö hefur túlkað þetta þanngi að árlegur vinnustundafjöldi væri ákveö- inn, mig minnir 1683, en þori ekki aðfullyrða um töluna. Slð- an hafa þeir tekiö sig til og skipt þessum vinnutlma niður á kennsludaga og fengiö þannig út að skólasafnverðir ættu að Tvlræð ákvæðl grunnskðlalaganna: um klör skúlasafnvarða vinna frá 47 upp I rúma 50 tlma á viku, til að halda fullum laun- um. Jafnframt vilja þeir standa á þvl að skólasafnveröir ættu að skila allri sinni vinnuskyldu á starfstlma skólans og á staðn- um, þ.e.a.s. á opnunartlma safnsins. Þar með hafa þeir sýnt það, blessaöir, að þeir vita ákaf- lega lltiö um hvað þeir eru að tala, vegna þess að það er ekki hægt að skila allri skólasafns- vinnu á þeim tlma, sem safnið er opiö, þá veröur svo margt út- undan, svo sem skráning, flokk- un, frágangur, gerð bókalista o.s.frv. — sem að vlsu er mis- mikið eftir I hvaða safni er — en á opnunartlma er svo mikiö að gera á mörgum söfnum við af- greiðslu og aöstoö viö nemendur að annað veröur ekki gert á þeim tima.” „Þaö er rðönlngar formlö, sam allt snýst um” Guðni Jónsson á skrifstofu Sambands grunnskólakennara sagði VIsi að tæpast væri hægt að tala um deilu i þessu sam- bandi, en það væri nokkur ágreiningur um hvort skóla- safnverðir verði ráðnir á sama hátt og kennarar eða hvort þeir eiga að vera eingöngu ráðnir af sveitafélögunum. „Það er sem sagt ráðningarformiö, sem allt snýst um I augnablikinu,” sagði Guöni. Samkvæmt grunnskólalögun- um átti að koma upp skólasöfn- um og setja reglugerö um þau og Guðni telur að fyrir höfund- um grunnskólafrumvarpsins hafi vakaö aö safnverðir yröu ráðnir á sama hátt og kennarar, en lögfræðingar túlki ákveðna grein I lögunum þannig að safn- veröirnir skuli vera starfsmenn sveitafélaganna, en rlkiö borgi hluta af launum þeirra. Guðni sagði að allt benti til að orsök þessa ágreinings væri klaufa- legt orðalag i grunnskólalögun- um. Guðni taldi að vinnutilhögun safnvarpa hlyti i flestu að fara saman við vinnutilhögun kenn- ara og þeir þyrftu aö taka þátt I ýmsu skólastarfi, svo sem kennarafundum og þvl útilokað fyrir þá að ljúka starfsdegi sln- um á opnunartlma safnanna. „Fastur vlnnutlmr Þorsteinn Geirsson I fjór- málaráöuneytinu staðfesti að svolitiH skoöanamismunur væri á milli ráðuneytisins og safn- varöanna um vinnutilhögun, ráðuneytið teldi aö safnveröir ættu að geta lokiö starfsdegi slnum á ákveönum afmörkuð- um tíma eins og væri um flest störf, en þyrftu ekki að binda sig við kennslustundir. Hann sagði að það væri ekki alveg réttur skilningur hjá Helgu að róðu- neytiö vildi binda vinnutimann við opnunartlma safnanna, en eins og fyrr sagöi, ættu safn- verðir að geta haft fastan vinnu- tlma. Annars voru Guöni og Þor- steinn sammála um að þessi mál væru varla komin til um- ræðu og þvl litið hægt um þau að segja. SV

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.