Vísir


Vísir - 09.06.1980, Qupperneq 12

Vísir - 09.06.1980, Qupperneq 12
Mánudagur 9. júni 1980 SKRIFSTOFUR STUÐNINGSMAIMNA ALBERTS OG BRYNHILDAR Reykjavík: Nýja húsinu við Lækjartorg. Símar: 27833 — 27850. Opið frá 9—22 alla daga. Akranes: Félagsheimilinu Röst. Sími: 93-1716. Opið frá 17—22 virka daga og 14—18 um helgar. Hvammstangi: Verslunarhúsn. Sigurðar Pálmas. Sími 95-1350, opið virka daga kl. 17—19, um helgar kl. 13—19. Akureyri: Geislagötu 10. Sími 96-25177 og 25277. Opið frá 14—19 alla daga. Vestmannaeyjar: Strandvegi 47. Sími: 98-1900. Opið 14—18 alla daga. Selfoss: Austurvegi 39. Sími: 99-2033. Opið 18—22. virka daga og 14—18 um helgar. Keflavík: Hafnargötu 26. Sími: 92-3000. Opið 20—22 virka daga og 14—18 um helgar. Hafnarfjörður: Dalshrauni 13. Sími: 51188. Opið 20—22 virka daga og 14—18 um helgar. Kópavogur: Hamraborg 7. Sími: 45566. Opið virka daga frá 18—22 og 14—18 um helgar. Seltjarnarnes: Látraströnd 28. Sími: 21421. Opið 18—22 virka daga og 14—18 um helgar. Blönduós: Húnabraut 13, sími 95-4160. Opið á miðvikudögum og sunnudögum kl. 8—10. Hella: I Verkalýðshúsinu. Sími 99-5018. Opið dag- lega kl. 17—19 og 20—22. Stykkishólmur: í Verkalýðshúsinu. Opið þriðju- daga og fimmtudaga kl. 8—23. Sími 93-8408. Garðabær: Skrifstofa Safnaðarheimilisins, sími 45380. Opið virka daga f rá kl. 17—20 og um helgar 14—17. Skrifstofurnar veita allar upplýsingar um kjör- skrá, utankjörstaðakosningu og taka á móti frjálsum framlögum í kosningasjóð. Maður fólksins Kjósum Albert Fyrirliggjandi plastrennur ásamt niðurföllum og fylgihlutum á góðu verði andri hf. ' I ImknAr O kt/\í IjIiiah*Ihm Umboös- & heildverslun Armúli 28. Pósthólf 1128. Reykjavík. Sími: 83066. Óeirðirnar i Miami voru fyrstu meiriháttar átökin i bandarfskum borgum um nokkurtárabil. Barátta blokkumanna í Bandaríkiunum San Diego, 28. mai 1980. Fyrir tuttugu og þremur ár- um varð litil borg i suðurikjum Bandarikjanna miðdepill heimsfréttanna. Blökkumenn voru farnir að leita réttar sins i rikari mæli og átökin risu hæst þegar yfirvöldin i Little Rock I Arkansas, undir forystu Faubusar rikisstjóra, beittu lögregluvaldi til að meina niu svörtum nemendum aðgang að gagnfræðaskóla staðarins. Her og alrikislögregla voru kvödd á vettvang og varðsveitirnar stóöu gráar fyrir járnum and- spænis hvor annarri og allur heimurinn fylgdist með þessum ógnvekjandi og óvanalega at- burði. I dag sýnist þrákelni hvita meirihlutans i suðurrikjunum næsta óskiljanleg svo sjálfsagt sem það er að fólk njóti sama réttar án tillits til litarháttar. Og vissulega hafa bandariskir blökkumenn náð langt i rétt- indabaráttu sinni og viðhorfin tekið miklum breytingum á þeim tveimur áratugum sem liðnir eru. Óeirðirnar i Miami Engu að siður er langur vegur frá aö blökkumenn sitji við sama borð og hvitir menn i þessu landi. Óeiröirnar i Miami á dögunum sanna, svo ekki verður um villst, aö mikiö skortir á, að fullt lýöræði sé komiö á. Tildrög uppþotsins voru þau aö lögreglumenn i Miami börðu svartan mann til bana, eftir að hann hafði ekið á mótorhjóli yfir gatnamót á móti | rauðu ljðsi. Kviðdómur skip- aöur hvítum mönnum einvörð- | ungu, sýknaði lögreglumennina ■ af ákærum, þótt sannanir og vitnisburöir um híð gagnstæða ■ lægju fyrir. ■ Þvi miður er þessi málsmeð- ferö ekki einsdæmi. Alltof viða ■ gætir hlutdrægni i meðferð lög- reglu og dómstóla þegar blökkumenn eiga i hlut. Enn eru blökkumenn almennt illa menntaöir og I lélegustu og 1 ve.rst launuðu störfunum Og I enda þótt allt virðist meö felldu m á yfirborðinu hér „djúpt i suðr- inu” fer ekki framhjá neinum aðkomumanni i Little Rock að I stéttamunur og aðskilnaður set- , ur svip sinn á samfélagiö og | samskipti manna. Samviskan nagar þá Þaö hefur að visu margt breyst til batnaöar frá þvi að Faubus stóð i skólahliðinu forð- um. Skólastjórinn er svartur og skólastarfið er til fyrirmyndar aö flestra dómi. Samviskan nagar ennþá ibúa þessarar borgar og þeir gera sér grein fyrir, hvaða orð fer af borginni og leggja sig fram um aðbreyta þeirri imynd. Þetta er vingjarnlegt fólk, eins og aðrir Bandarikjamenn, en hvort sem það er af sögulegum eða tilfinn- ingalegum ástæðum, þá rikja hér i Little Rock annars konar lifshættir og lifsviðhorf en þekkjast viða hér um slóðir aðutan Ellert B. Schram, skrifar frá Bandarikjun- um Suöurrikin eru heimur útaf fyrir sig. Aristókratiskar fjöl- skyldur standa á gömlum merg. Hverfi auðkýfinga, klúbbar yfirstéttarinnar, samfélag hinna hvitu og betur megandi, er að meira eða minna leyti lok- aö hinum svörtu. öflug verka- lýðshreyfing þekkist ekki, ibúa- hverfi blökkumanna, eru ekki hreinsuð, kosningaþátttaka þeirra er i lágmarki og þriðji hver svertingi hér i Little Rock er sagður ólæs og óskrifandi. Suðurrikjamenn eru ihalds- samir, hafa imugust á stjórn- inni i Washington og skattar eru með lægsta móti. Enn er þaö svo, að Republikanaflokkurinn á ekki upp á pallboröið þótt hug- myndafræði þess flokks fari að mörgu leyti saman við hugsunarháttinn hér, einfald- lega vegna þess, aö Republik- anar beittu sér fyrir afnámi þrælahaldsins fyrir meira en hundrað árum. Hitti marga forystu- menn Ég hef átt þess kost að hitta fjölmarga forystumennn blökkumanna hér i Banda- rikjunum.Upp til hópa eru þeir sterkir persónuleikar, leiftrandi vel gefnir og glæsilegir i fram- komu, málflutningur þeirra er áhrifamikill og augun skjóta gneistum af baráttuhug og lifs- krafti. Þeir eru sammála um, að barátta þeirra hafi breyst, áherslan liggi ekki lengur á kosningarétti eða öðrum borg- aralegum réttindum, heldur á bættum efnahag og afkomu hins svarta minnihluta. Atburðirnir I Miami eru, að þeirra mati, aðeins forspil að þvi sem koma skal, vegna þess að uppþotið þar var afleiðing ástandsins almennt. Það mun koma betur I ljtfs siðar i sumar. Atvinnuleysið sem herjar á Bandarikjamenn og versnandi efnahagur, bitnar fyrst og fremst á svörtu fólki. Þeir fá fyrstir allra uppsagnarbréfin og nú þegar er einn af hverjum átta blökkumönnum at- vinnulaus. Enda þótt 4000 blökkumenn gegni nú kosnum trúnaðarstörfum hér vestra, er það aðeins 1% af þeim embætt- um, sem kosið er til. Hitt er rétt að taka fram, að afstaðan til hinna 20 milljóna blökkumanna er afar mismunandi eftir þvi hvaða riki á i hlut. Tilvera þeirra og jafnrétti er hvað mest virt á austurströndinni og enn viðar gætir áhrifa þeirra i rik- um mæli. Þannig gegnir svartur maður borgarstjórastarfinu i New Orleans sem telst til suður- rikjanna (Louisiana) og kosning hans byggist á stuöningi hvitra manna, en það hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum 1 Michigan hafa verið settar á fót sérstakar stofnanir, til að rétta hlut blökkumanna, sem beittir eru misrétti eða þurfa á aðstoð að halda i einu eöa öðru formi. Vondaufir um árangur Svo er að heyra, að leiðtogar blökkumanna séu vondaufir um mikinn árangur á næstunni. Það var til að mynda athyglisvert, að þegar allir helstu leiðtogar blökkumanna komu saman fyrirnokkrum vikum, lét enginn forsetaframbjóðendanna sjá sig, þó var þeim ölium sérstak- lega boðiö. Astæðan er sögð sú, að enginn þeirra gerði ráð fyrir að atkvæöi hinna svörtu muni ráða úrslitum i komandi kosn- ingum Verðbólgan hefur rýrt kjör blökkumanna og niöurskurður á fjárlögum kemur niður á fjár- veitingum til félagslegrar þjón- ustu, sem blökkumenn hafa einna helst notið góðs af. Þrátt fyrir lagalega og siðferðilega viðurkenningu á jafnrétti og jafnræði er ljóst, að enn er langt i land i baráttu blökkumanna i Bandarikjunum.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.