Vísir - 09.06.1980, Page 20
VISIR Mánudagur 9. júnl 1980 20
Visir á lerð i Iran:
,,Það veit enginn hvað
gerist hér i íran á
næstunni. Ástandið er
óljóst og það má segja
að nú séu fimm rikis-
stjórnir i landinu.”
Þetta voru orð
íranskrar konu sem
blaðamaður Visis ræddi
við í Teheran þegar
hann var þar staddur
nýlega. Voru þau lýs-
andi fyrir þau sundur-
leitu öfl, sem þar eru á
ferðinni og vilja ráða
hvert i blóra við annað.
Þa brostu byltingar-
verðirnir i banda-
ríska sendiráðinu
- begar biaðamennirnir sðgðust vera frá íslandi
Viö bandarlska sendiráöiö I Teheran: Byltingarveröirnir i
brostu breitt þegar þeim var sagt aö þar væru tslendingar á ferö.
Það fer ekki hjá þvi að ferða-
maður sem kemur til íran um
þessar mundir verði var við þá
spennu sem þar er i lofti. Það eru
nokkrir sem vilja halda vestur á
bóginn en aðrir vilja halda i
austur. Sumir vilja hverfa aftur
til fortíðarinnar, aðrir til fram-
T e x t i o g
myndir: Hall-
dór Reynis-
son.
tiðarinnar, enn aðrir til hægri eða
vinstri. Það er þvi engin furða
þótt hin sundurleitu öfl irönsku
byltingarinnar vilji halda hvert i
sina áttina og ástandið er vægast
sagt óljóst.
Engin brjóstbirta i öllu
landinu
Þegar ferðalangar með El-
ectra-flugvél Iscargos komu til
Teheran mætti þeim mikið lið af
alls konar embættismönnum á
flugvellinum þar. Hermenn, flug-
vallarstarfsmenn, verkamenn og
aðrir sem virtust ekki hafa neitt
k
Horftyfir Teheran Isuöurátt: Þar standa vlöa hálfreist stórhýsi.en lltiö hefur veriö um framkvæmdir
siöan i islömsku byltingunni.
A „basarnum” I Teheran gnæföi mikilúöleg ásjóna Khomeinis yfir
manngrúanum sem annars staöar I þessu landi.
Timanum skal
snúið við
sérstakt fyrir stafni fylltu alla
ganga i flugstöðvarbyggingunni
en farþegar voru þar hins vegar
sárafáir.
Þrátt fyrir heila herdeild af
starfsmönnum var þjónustan
ákaflega silaleg. Bið hér og bið
þar. Ein biðin var eftir toll-
skoöuninni. Þar var her manns
eins og fyrri daginn en þó gekk
þjónustan hægt. Vorum við
íslendingarnir hálf hræddir við að
tranir færu að fetta fingur út i
myndavélarnar sem við höfðum
meðferðis. Allt gekk þó að óskum
þangaö til kom að Heinz, en svo
hét þýskur ferðafélagi okkar og
umboðsmaður kjúklingaútflytj-
endanna þýsku. Hann fékk á
baukinn þvi hann hafði tekið með
sér eina flösku af léttu vini til að
fara með inn i landið, en nú var
hún tekin af honum þvi algert
áfengisbann er I íran eftir að ís-
lömsku klerkarnir komust þar i
valdastóla.
Heinz bað þá um að flaskan yrði
geymd þangaö til hann færi aftur
úr landinu en það var ekki leyft og
var nú hinum dýru veigum hellt
niður i stóran gám i votta viður-
vist.
Teheran er eins og flestar
borgir i Mið-Austurlöndum
undarleg blanda af vestrænu og
austrænu, nýju og gömlu. Þar má
sjá hin örgustu hreysi og glæstar
hallir I svo til sömu andránni.
Eitt vakti sérstaka athygli
okkar, i borginni var mikið um
hálfbyggðar byggingar. Var þar
um að ræða framkvæmdir er
stöðvast höfðu i kjölfar íslömsku
byltingarinnar i landinu. Stóöu
þar viða ónotaðir bygginga-
kranar eins og risadýr frá for-
sögulegum timum.
Umferðin I Teheran er kapituli
út af fyrir sig. Bilamergð mikil
fyllir göturnar og umferðarlög
eru þar litt i heiðri höfð. Samt
virðist umferðin ganga stórslysa-
laust og enda þótt bilið á milli bila
sé stundum þröngt, þannig að
varla má koma fingri á milli,
sleppa flestir skrámulaust út úr
þeim leik
Það er margt i borgarlifinu sem
bendir til að íslömsku klerkarnir,
vilji snúa timanum við. tran var
I