Morgunblaðið - 14.04.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 9
Nota›u
frípunktana í sólina
á›ur en fleir
ver›a a› engu (ekkert punktalágmark).
dæmi
Hva› átt flú marga frípunkta?
Far›u á www.frikort.is, kanna›u punktastö›una
og flú ert komin(n) hálfa lei›.
Pala
di
m
Dom
Pa
nc
h
o
Fríkorti› hættir a› veita punkta 1. júní,
en hægt er a› njóta punktanna út ári› 2002.
Fríkorti› kve›ur!
Tilbo›i› gildir í eftirtaldar fer›ir til Portúgals me› Úrvali Úts‡n á Paladim og Plúsfer›um á Dom Pancho:
21. maí*, 28. maí, 2. júlí, 23. júlí, 6. ágúst, 20. ágúst, 3. september og 17. september.
Takmarka› sætaframbo›.
Sími 535 2100 Sími 585 4000
33.00030.000 frípunktar= kr.
*eingöngu hjá Plúsfer›um
Frábært Fríkortstilbo›
til Portúgals. Tvöfalt ver›gildi frípunkta.
MIKIÐ var um að vera á hafnar-
bakkanum í Þorlákshöfn í lok vik-
unnar. Á nýju og stóru plani við nýju
tollafgreiðsluna var búið að koma
fyrir haugum af áburðarpokum og
uppskipun í fullum gangi.
Stefán Símonarson, framkvæmda-
stjóri Áburðarsölunnar Ísafold sem
er í eigu Kaupfélags Árnesinga
sagði, að þeir væru að taka á móti
2300 tonnum af áburði sem kæmi frá
Eystrasaltsríkjunum. Von er á öðru
skipi með annað eins. „Þessi áburður
verður allur blandaður í Þorlákshöfn
ásamt einhverjum lager sem við eig-
um frá því í fyrra. Við erum búnir að
koma upp blöndunarverksmiðju í
gömlu mjölhúsum sambandsins sem
nú er í eigu Jarðefnaiðnaðar. Búið er
að prufukeyra og allt virkaði vel svo
blöndunin hefst á fullu fyrir helgi.
Reikna má með að 6 – 8 manns fái
atvinnu við blöndunina,“ sagði Stef-
án.
Á föstudagsmorgun voru starfs-
menn Kuldabola komnir á fullt við
að losa annað skip sem komið var
með fullfermi af áburði. Guðmundur
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Kuldabola, sagði að þeir væru að
skipa upp fyrir Sláturfélag Suður-
lands sem keypti áburðinn tilbúinn
frá Norsk Hydro. Sláturfélag Suður-
lands er sölu- og dreifingaraðili hér
á landi og fer áburðurinn beint á bíla
og burt frá Þorlákshöfn. Guðmund-
ur sagði að þeir tækju alls á móti um
5000 tonnum.
Ósekkjaður áburður
Þriðji aðilinn sem flytur áburð til
landsins er Áburðaverksmiðjan í
Gufunesi og skipar fyrirtækið öllum
sínum áburði upp í Gufunesi. Sig-
urður Þór Sigurðsson starfandi
framkvæmdastjóri sagði að fyrir-
tækið flytti inn 25 – 30 þúsund tonn
til að blanda í þann áburð sem þeir
framleiða í sinni verksmiðju. Áburð-
arverksmiðjan flytur inn ósekkjaðan
áburð og segjast spara verulega
þannig. Að sögn Sigurðar er áburð-
arverksmiðjan með um 70% af
markaðnum í sölu til bænda lands-
ins.
Samkeppni á áburðarmarkaði
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Skógur áburðarpoka er á hafnarbakkanum í Þorlákshöfn.
Þrjú fyrirtæki
flytja inn áburð
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur óskað eftir því að 26 ára ís-
lenskur karlmaður verði framseld-
ur frá Hollandi vegna gruns um
aðild hans að smygli á verulegu
magni fíkniefna hingað til lands,
m.a. á fimm kílóum af amfetamíni.
Maðurinn hefur verið ákærður
fyrir þrjú fíkniefnabrot hér á landi
en maður sem hefur hlotið dóm
fyrir fíkniefnainnflutning hefur
m.a. borið að hann hafi aðstoðað
við að útvega fíkniefnin.
Að sögn Stefáns Eiríkssonar,
skrifstofustjóra í dómsmálaráðu-
neytinu óskaði ríkissaksóknari eft-
ir því við ráðuneytið að það hefði
milligöngu um að maðurinn yrði
framseldur hingað frá Þýskalandi,
í júlí í fyrrasumar. Þar að baki
lágu ákærur og grunsemdir um
aðild hans að nokkrum fíkniefna-
brotum. Í janúar bættist enn eitt
brotið við en þá var lagt hald á um
fimm kíló af amfetamíni hér á
landi. Fjögur voru í gæsluvarð-
haldi um tíma og mun ein þeirra
vera systir mannsins. Sá sem sá
um sölu og dreifingu efnisins bar
fyrir dómi að maðurinn hefði út-
vegað amfetamínið, 300 grömm af
kókaíni og ótiltekið magn e-taflna.
Þessu afbroti var því bætt inn á
listann yfir ástæður fyrir framsali.
Hinn 14. febrúar sl. handtók hol-
lenska lögreglan hann á Schipol-
flugvelli í Amsterdam. Þegar nafn
hans var slegið inn í Schengen-
upplýsingakerfið kom í ljós að
hann var eftirlýstur af íslenskum
stjórnvöldum sem var tilkynnt um
handtökuna. Maðurinn kom fyrir
dóm í Hollandi á miðvikudag þar
sem framsalsbeiðnin er til með-
ferðar. Mun hann hafa mótmælt
kröfunni.
Óskað eftir
framsali
vegna amfeta-
mínsmygls
25 ÖKUMENN voru stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur á Holta-
vörðuheiði á föstudag. Ein bif-
reiðin mældist á 130 km hraða
en flestir þeirra sem voru
stöðvaðir voru á 110 til 120 km
hraða. Leyfilegur ökuhraði
þarna er 90 km við bestu hugs-
anlegu aðstæður.
Að sögn lögreglunnar í
Hólmavík er ekki um neitt sér-
stakt átak lögreglunnar að
ræða heldur er hún að reyna að
sporna við slysum og virðist
ekki vanþörf á, miðað við hrað-
ann sem var á mönnum.
Hraðakstur
á heiðinni