Morgunblaðið - 14.04.2002, Side 18
18 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
rúst á tuttugustu öldinni. Í
fyrra skiptið 1923 í öflug-
um jarðskjálfta og miklum
eldum sem fylgdu í kjöl-
farið og síðan í seinni
heimsstyrjöldinni.
Á yfirborðinu lítur allt
vel út. Um stræti Tókýó
keyra risastórar glæsibif-
reiðar, flestar innlendar en
einnig dýrustu gerðir
þýskra eðalvagna. Fjöldi
breiðstræta er með inn-
fluttum og innlendum
munaðarvarningi í hundr-
uðum búða. Allir eru óað-
finnanlega klæddir, bygg-
ingarnar glæsilegar,
strætin tandurhrein, ann-
ar hver maður með hvíta
hanska. Heit handklæði
eru á lofti við öll hugsanleg
tækifæri, seturnar á sal-
ernunum heitar. Það er
enginn skítugur í Japan.
Hægt að stilla klukkuna
eftir hraðlestunum. Allt
virkar, hvergi sést neitt bilað. Allir
fram úr hófi kurteisir og bjóða bros-
andi góðan daginn „ohayoo gozaimas“
eða góða nótt „oyasumi nasai“. Ís-
lendingarnir eru fyrr en varir ósjálf-
rátt líka farnir að hneigja sig og
beygja fyrirvaralítið.
Þótt fjallað hafi verið um efnahags-
lífið í Japan í MBA-náminu, sérstak-
lega í námskeiðinu um aðþjóðavið-
skipti, þá dýpkaði sá skilningur
verulega í ferðinni. Hópurinn heim-
sótti fjármálafyrirtæki og verslunar-
ráð í Japan í þeim tilgangi að skyggn-
ast inn í japanska hagkerfið og óhætt
er að segja að margt kom íslenskum
verðbólgubörnum spánskt fyrir sjón-
ir.
Efnahagsvandi
Þjóðarframleiðsla á mann í Japan
er enn ein sú hæsta í heimi en þrátt
fyrir allt ríkidæmið stefnir í óefni.
Hallinn á ríkissjóði er nær óviðráð-
anlegur, ríkið væri sennilega gjald-
þrota ef það hefði ekki nær ótak-
markaðan aðgang að sparifé lands-
manna á nánast 0% vöxtum. Og það
er til nóg sparifé. Japanir spara og
spara, eyða miklu minna en þeir afla.
Í þessari sparsemi er stór hluti efna-
hagsvandans fólginn, það er enginn
reiðubúinn að kaupa allt það sem
Karlmaður í gömlum japönskum búningi. Hefðin
fyrir að klæða sig í þjóðbúning er ekki sterk.
ÞÓTT sumum þyki hið ís-lenska þjóðfélag breytasthratt, sem það vissulegagerir, eru breytingarnarvíða í Asíu miklu stórfeng-
legri. Þjóðfélögin verða sífellt vest-
rænni sem sést glöggt á stórhýsum,
alþjóðlegum verslanakeðjum og
bandarískum skyndibitastöðum. Í því
skyni að kynnast viðskiptaháttum,
menntun og menningu þessara landa
fór hópur MBA-nema frá Háskóla Ís-
lands í upphafi árs í tveggja vikna
ferð til Asíu. Ingjaldur Hannibalsson
prófessor skipulagði ferðina og var
fararstjóri. Óhætt er að segja að
skilningur á efnahags- og mannlífi í
Asíu hafi dýpkað stórkostlega við að
upplifa mannlífið, skoða fyrirtæki og
stofnanir og hlusta á erindi fjölda
manns. Verður nú greint frá því
helsta sem bar fyrir augu og eyru.
Malasía, þjóðfélag á þeysireið
Fyrsti áfangastaður hópsins var
Kuala Lumpur, stærsta borg Malas-
íu. Uppbygging er mikil í Kuala
Lumpur þar sem fjárfesting alþjóð-
legra fyrirtækja hefur verið afar mik-
il síðustu ár og gleggsta merkið er að
allar stærstu hótelkeðjur heims eru
að byggja háa skýjakljúfa í miðborg-
inni. Stjórnvöld í Malasíu standa
einnig í miklum stórræðum á stóru
landsvæði sunnan borgarinnar þar
sem verið er að byggja frá grunni
tvær borgir: stjórnsýsluborgina Put-
rajaya og hátækniborgina Cyberjaya.
Putrajaya er ætlað að verða mið-
stöð opinberrar stjórnsýslu í landinu
og til að ná þeim tilgangi verða allar
ríkisstofnanir fluttar þangað. Við
uppbyggingu borgarinnar hefur engu
verið til sparað. Stjórnarráðið sjálft
er stór bygging í miðju hverfisins
með turni á þakinu með útsýni í allar
áttir yfir hverfið. Þar eyðir forsætis-
ráðherra landsins vinnudeginum, en
frítímanum eyðir hann í glæsilegri
höll skammt frá. Á meðan býr hluti af
íbúum Kuala Lumpur borgar í ryðg-
uðum bárujárnskofum. Almúginn
lætur sér þetta þó vel lynda því þessi
forsætisráðherra þykir mikið örlátari
í þeirra garð en sá sem á undan var og
tekur sér ekki alveg eins mikið úr rík-
iskassanum og forveri hans gerði.
Vestrænar hugmyndir um stjórn-
málasiðferði eiga ekki enn uppá pall-
borðið í Malasíu.
Það er ekki bara búið að byggja
húsnæði fyrir veraldlega umsýslu. Í
Putrajaya hefur hin andlega umsýsla
ekki gleymst. Hægt er að finna bæna-
hús fyrir búddista, hindúa og músl-
íma. Í borginni er stórbrotin moska
sem galvaskir Íslendingar voru
spenntir að skoða. Fósturlandsins
Freyjur lentu þó fljótt í vandræðum
bæði vegna of efnislítils klæðnaðar og
hársins sem þurfti að fela undir fag-
urbleikum skuplum. Meðal múslima
er hár kvenna talið mesta prýði
þeirra, enda hrafntinnusvart, sítt og
fallegt. Slíka fegurð þarf að fela til að
trufla ekki einbeitingu karlmanna við
bænaiðkun. Eitt þarf svo yfir allar
konur að ganga.
Hátæknisamfélag
Markmið stjórnvalda í Malasíu
með hátækniborginni Cyberjaya er
að byggja upp upplýsingasamfélag.
Þrátt fyrir að ríkisstjórnin sé aðal-
sprautan á bak við þetta verkefni er
það stutt af viðskiptalífinu og drifið
áfram af fjárfestingu fjölþjóðlegra
fyrirtækja.
Verið er að byggja upp svokallaðað
Multimedia Super Corridor (MSC),
750 ferkílómetra hátæknisamfélag
sem ætlað er að breyta félagslegu- og
hagrænu landslagi Malasíu frá því að
vera landbúnaðar- og framleiðsluhag-
kerfi yfir í þekkingarhagkerfi.
MSC á að fleyta Malasíu inn í upp-
lýsingaöldina. Framtíðarsýn Malas-
íustjórnar er að vera búin að upplýs-
ingatæknivæða landið allt árið 2020.
Verið er að byggja upp viðskiptamið-
stöðvar, hraðbrautir, nútímaíbúðar-
húsnæði, verslanamiðstöðvar, stór-
markaði og afþreyingarsvæði.
Upplýsingatæknilög og reglugerðir,
skattalegir hvatar og fleira í stefnu
stjórnvalda eiga svo að styðja við
þessa uppbyggingu. Með þessu ein-
stæða hátæknisamfélagi reynir Mal-
asíustjórn að laða að stærstu upplýs-
ingatæknifyrirtæki heims.
Tilraunin virðist vera að bera ár-
angur. Á þessu svæði hafa nú þegar
safnast saman nokkur hundruð fyr-
irtæki, þar af um 50 alþjóðleg þrátt
fyrir að fyrsta skóflustungan hafi ver-
ið tekin fyrir aðeins 5 árum. Í
tengslum við þetta átak hefur orðið
stórkostleg fjölgun háskólanema í
námi tengdu upplýsingatækni. Mal-
asía er að mennta 100.000 manns í
tölvunarfræðum til þess að geta þjón-
að þessum tæknifyrirtækjum og öðr-
um sem á eftir kunna að koma.
Malasía er komin af stað á þeysi-
reið inn í öld upplýsingatækninnar
þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar
lifi enn á landbúnaði, að mestu pálma-
olíu og gúmmíi, við aðstæður sem
ættu að mörgu leyti betur heima á 19.
öldinni.
Japan vantar eyðsluklær
Frá Malasíu var haldið til Japan. Í
hugum margra er gamla Japan sveip-
að dýrðarljóma. Fallegar fölmálaðar
konur gangandi um í kímónó með
uppsett hárið, karlmenn í stríðsklæð-
um shogun og samurai-ar eins og við
þekkjum úr bíómyndum, húsin lág-
reist úr timbri og skrautleg Búdda-
hof. En í Tókýó er ekki mikið af
gamla Japan að sjá ef frátaldar eru
konur á stangli í kímónó og endur-
reist Búddahof í gömlum stíl. Tókýó
var tvisvar sinnum svo gott sem lögð í
þjóðin getur framleitt, eftirspurn er
allt of lítil. Þjóðin eldist hratt og allir
vilja eiga nóg til elliáranna. Banka-
kerfið stendur, ef eitthvað er, enn
ótraustari fótum en ríkissjóður. Gíf-
urlegar fjárhæðir hafa verið veittar
að láni til að halda vonlausum fyrir-
tækjum gangandi árum saman. Það
liggur í loftinu að stór hluti þessara
lána verður aldrei endurgreiddur og
afföllin munu þurrka út eigið fé
bankakerfisins. Veð í fasteignum
duga skammt því að verð þeirra hefur
hrunið á síðustu árum. Risavaxnar
fyrirtækjasamsteypur teygja anga
sína út um allt. Reksturinn er svo
flókinn að ógjörningur virðist að átta
sig á stöðu þeirra en margt bendir til
að sumar þeirra standi á brauðfótum.
Það þarf að taka til í stórum hluta
efnahagslífsins og stokka heilu at-
vinnugreinarnar upp. Við hlið skil-
virkustu bíla- og raftækjaverksmiðja
í heimi starfar verst rekni landbún-
aður í heimi. Verndaður í bak og fyrir.
Smásala er lítið betur rekin og flækt í
reglugerðavef sem á fáa sína líka. Til-
gangurinn virðist einkum vera að
vernda einyrkja í stéttinni. Verðlag í
Japan er eftir þessu. Ódýr raftæki en
flest annað rándýrt, jafnvel frá sjón-
arhóli innkaupaglaðra Íslendinga
sem eru ýmsu vanir.
Árin frá stríðslokum til upphafs tí-
unda áratugarins voru einstök vel-
sældarár fyrir Japan. Landið reis úr
rústum síðari heimsstyrjaldarinnar
og byggði upp hverja atvinnugreinina
á fætur annarri sem lögðu undir sig
heimsmarkaðina. Japanska efna-
hagsundrið skelfdi önnur iðnríki, nær
ómögulegt virtist að keppa við Japani
í framleiðslu. Japanskar ofurverk-
smiðjur með ofurstarfsmönnum sem
unnu myrkranna á milli hratt og fum-
laust bjuggu til óaðfinnanlegar há-
tæknivörur sem flæddu yfir heims-
byggðina.
Bestu fyrirtækin eins og Sony og
Toyota áttu vart neinn sinn líka. Út-
flutningsvélin gekk svo vel að Japanir
eignuðust sífellt digrari sjóði erlend-
is. Gátu jafnvel strítt óttaslegnum
Bandaríkjamönnum með því að
kaupa af þeim sum helstu kennileiti
landsins, fræg fyrirtæki og bygging-
ar. Japanski hlutabréfamarkaðurinn
virtist bara geta farið í eina leið, upp,
og sömu lögmál virtust gilda um fast-
eignaverð.
Þrátt fyrir stöðnun í áratug eru
Japanir þó enn forrík þjóð. Japanska
útflutningsvélin hefur lítið hikstað,
Sony og Toyota eiga enn enga sína
líka og sjóðir Japana erlendis verða
sífellt digrari, þeir flytja mun meira
út en inn.
Toyota og bílaverksmiðjurnar
Farið var með Shinkansen-hrað-
lestinni frá Tókýó til borgarinnar
Nagoya í þeim tilgangi að skoða bíla-
verksmiðjur Toyota. Borgin Nagoya
er fjórða stærsta borg í Japan. Hún
er mikil iðnaðarborg og er höfnin í
Nagoya ein sú stærsta í Japan. Í mið-
borginni eru eins og víðast hvar hótel,
veitingastaðir og verslanir en þegar
betur var að gáð kom í ljós feykilega
stór „borg undir borginni“ nokkurs
konar neðanjarðarborg þar sem úði
og grúði af verslunum og veitinga-
stöðum.
Toyota er borg nálægt Nagoya og
þar eru staðsettar 12 verksmiðjur.
Við skoðuðum eina þeirra, Takaoka
verksmiðjuna, en þar eru framleiddar
tegundir eins og Corolla og Yaris auk
tegunda sem eingöngu eru smíðaðar
fyrir Japansmarkað. Verksmiðjan hóf
framleiðslu árið 1966 og hefur fram-
leitt til ársins 2001 20 milljónir bíla.
Verksmiðjan er staðsett nálægt öðr-
Spennandi
skoðunar-
ferð til Asíu
Kinkakuji-hofið. Tvær efri hæðirnar eru þaktar 18 karata gulli.
Götumarkaður. Matvæli eru dýr í Japan en raftæki ódýr.Japönsk ungmenni klædd hefðbundum kimono-fatnaði.
Hraðar breytingar hafa orðið víðast hvar í Asíu und-
anfarna áratugi og verða þjóðfélögin sífellt vestrænni þó
enn séu áhrif austrænnar menningar og sögu sterk.
Nemar í MBA-námi við H́áskóla Íslands kynntu sér
undur Austurlanda.