Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 35
ingin verður ávallt undirstaða heil-
brigðs líkama. Vandamálið er því mið-
ur að ekkert okkar er fullkomlega
heilbrigt. Auk meðfæddra erfðagalla
er líkami okkar eins og borgvirki í
stöðugu umsátri. Það er hér sem
fæðubótarefnin koma við sögu.
Listin að halda sjúkdómum í skefj-
um er svipuð því að verja kastala fyrir
óvinum innan frá og utan. Mín
reynsla er sú að afurðir lyfjaiðnaðar-
ins séu minnsti hluti varnarkerfisins,
kannske 5–10%! Næringin er marg-
falt mikilvægari, kannske fjórum
sinnum öflugri ef ekki meira. Afgang-
urinn af varnarsveitunum eru fæðu-
bótarefnin, yfirleitt aldrei undir 50%
og oftast mun meira!
En ekki nóg með það! Þótt ótrúlegt
sé gæti framlag lyfjaiðnaðarins
minnkað enn frekar! Ástæðan er
barnaleg oftrú hans á gerviefnum.
Jafnvel ítarlegar eiturvirkniprófanir
réttlæta sjaldnast notkun gerviefna
(með sínýjum og óvæntum aukaverk-
unum, sumum lífshættulegum!) ef til-
gangurinn er ekki að ráðast að rótum
sjúkdómanna heldur aðeins að halda
einkennum þeirra í skefjum!
Náttúrulækningar í sókn!
Það er kaldhæðnislegt að fæðubót-
arefnin og náttúrulyfin, sem í
kennsluskrá læknaskóla og næring-
ardeilda eru aðeins virt til nokkurra
neðanmálsgreina, eru grundvöllurinn
að sjúkdómavörnum framtíðar, a.m.k.
næstu 100 árin. Í nýjum heimi 21. ald-
ar þar sem heilnæmið drottnar verða
fæðubótarefnin í ekilssætinu.
Undrar þá engan þótt einu meðulin
sem duga í baráttunni við nýjasta og
stærsta óvin okkar, offituna, sé fæði
hlaðið fæðubótarefnum og bætt vít-
amínum, steinefnum og öðrum nær-
ingarefnum. Einungis ef fæðubótar-
efnin eru með í farteskinu er smávon
að okkur takist að yfirvinna þennan
skuggalega faraldur, sem er að
drekkja heilum heimsálfum í blóði og
fitu!
Þeir sem eru hissa ættu að vera
þess minnugir að það er ekki aðeins á
sviði fæðubótarefna, heldur í öllum
greinum, sem við verðum að vinna
með náttúrunni. Ef mannkynið lærir
ekki að vinna með – í stað þess að
vinna gegn – henni gætu heilsukrepp-
an og gjaldþrot velferðarríkisins orð-
ið sem vinalegt klapp á kinn í sam-
anburði við rothöggið sem siglir í
kjölfarið!
Sem betur fer fjölgar þeim stöðugt
sem skilja þessi sannindi. Jafnvel
meðal lækna, lyfjafræðinga, mat-
vælafræðinga, næringarfræðinga,
markaðsfræðinga, meira að segja í
röðum lyfja- og fæðufyrirtækja heyr-
ast nú raddir fólks sem sér í gegnum
áróðursþokur lyfja- og fæðuframleið-
enda og heimtar að fæðubótarefnum
og náttúrulyfjum verði meiri gaumur
gefinn.
Byltingin!
Enda þótt offitufaraldurinn sé al-
heimsfaraldur sýnir þróunin í Banda-
ríkjunum best gang hans. Árið 1980,
þegar fyrirtæki að nafni Herbalife
var stofnað í Los Angeles, voru 30%
Bandaríkjamanna of feitir og 13%
hættulega feitir (e. „clinically obese“).
Nú, 22 árum seinna, eru 63% Banda-
ríkjamanna of feitir og 27% – eða nær
helmingur af þeim – hættulega feitur!
Mest af þessari aukningu hefur orðið
á síðustu 5 árum!!
Til allrar hamingju hefur vaxandi
minnihluti kosið að brjótast út úr víta-
hring offitunnar. Í stað draslfæðis og
gervilyfja valdi hann margfalt árang-
ursríkari kost. Með hjálp óhefðbund-
inna læknisaðferða, vítamín- og fæðu-
bótarfyrirtækja, líkamsræktar- og
slökunarmiðstöðva, fegrunarlækn-
inga og -tannlækninga – svo eitthvað
sé nefnt – hefur hann hrundið af stað
byltingu sem er að breyta heiminum.
Hagfræðiprófessorinn Paul Zane
Pilzer hefur reiknað út að hinn nýi
heilnæmisiðnaður (e. wellness ind-
ustry) í Bandaríkjunum einum velti
nú þegar um 200 milljörðum dala!
Hann áætlar að þessi nýja grein vaxi
svo hratt að árið 2010 verði hún orðin
jafnplássfrek í efnahagslífinu og allt
„heilbrigðis“kerfið fyrir aðeins 5 ár-
um, eða um 1 billjón dala!
Árið 2010 verða „heilbrigðis“kerfi
flestra iðnríkja hrunin til grunna. Í
stað þeirra verða komin trygginga-
kerfi sem stuðla að því að hver ábyrg-
ist eigin heilsu. Þeir sem skaða hana
með heimskulegu líferni læra fljótt að
heilsutryggingin er orðið ofviða
buddu þeirra. Þá fyrst munu þeir
skilja hversu margfalt hagkvæmara
(og skemmtilegra) það er að byggja
upp heilsuna en rústa henni.
Lokaorð
Afleiðingin af gagnslausum lyfjum,
vanabindandi draslfæðu, ábyrgðar-
lausum læknum og enn óábyrgari
rekstraraðilum heilsugeirans er sú að
hið svokallaða „heilbrigðis“kerfi hef-
ur breyst í ofvaxið skrímsli sem með
hverju ári skilar minni heilsu og meiri
sjúkdómum á sama tíma og hann ryk-
sugar ríkisjötuna og sökkvir hverri
þjóðinni af annarri dýpra í skuldafen-
ið.
Og lyfja-, draslfæðu- og sígarett-
umafurnar eru ekki dauðar úr öllum
æðum. Eins og í gamla Sovét er sér-
hver sótt hörðust undir batann. Síðan
bandarísk lyfjafyrirtæki eins og sér
greiddu yfir $150 milljónir í kosninga-
sjóð núverandi Bandaríkjaforseta
hefur ekki linnt árásum á brimbrjóta
heilnæmisbyltingarinnar og héðan
hafa þær borist um allan heim. En
eins og sannaðist í Sovét og Steinn
Steinarr minnti okkur á forðum og
mun sannast hér áður en langt um líð-
ur: það vinnur enginn sitt dauðastríð!
Því heilnæmisbyltingin er hafin.
Kjarni málsins eru ekki lyf eða vítam-
ín eða jafnvel fæðubótarefni heldur að
við skiljum þá einföldu staðreynd að
aðeins ein persóna á jörðinni getur
tekið ábyrgð á þinni eigin heilsu: Þú!
Ekki fyrr en við höfum kerfi sem
hvetur einstaklingana til að axla þá
ábyrgð mun heilnæmisbyltingin hefj-
ast fyrir alvöru. Sem betur fer er
styttra í það en við þorðum að vona
fyrir aðeins örfáum árum!
Höfundur er fyrrv. dósent og yf-
irmaður matvæla- og næringar-
fræðináms við Háskóla Íslands.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 35
I n n r é t t i n g a r
Glæsilegar innréttingar
Fjölbreytt úrval baðinnrétt-
inga, sérhannaðar fyrir bað-
herbergið þitt.
Mikill fjölbreytileiki í
hönnun og útliti.
Fataskápar í miklu úrvali,
staðlaðar og sérhannaðar
lausnir.
Mikið úrval skápahurða. Borgartúni 28 • Sími 562 5000 • www.bjorninn.is
Komdu með þína hugmynd
og fagmenn okkar aðstoða
þig við að útfæra hana.
•••••••••••
Stuttur afhendingartími.
Innréttingar í þremur gæða-
flokkum. Björninn B-Grand
Lína, Björninn standard og
Björninn DK Lína.
Geirsnef
Ártúnshöfði
Sæ
va
rh
öf
ði
M
a
la
rh
ö
fð
i
Ártúnsbrekka
Ingvar
Helgason hf.
HREYSTI
heildversl.
Þórðarhöfði