Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 47
ÉG var staddur áheimili einu á Ak-ureyri fyrir mörg-um árum, og var aðhorfa á sjónvarp.
Þar var á sama tíma gest-
komandi þá stundina ungur
maður, um 25 ára gamall.
Hann kom inn í sjónvarps-
herbergi til mín, þar sem ég
var að fylgjast með atburðum
á skjánum, og hann spyr,
hvað þetta sé. Ég gef honum
upp nafn myndarinnar. Eftir
nokkra þögn segir hann allt í
einu, mér til nokkurrar undr-
unar: „Ég horfi aldrei á sjón-
varp, hlusta aldrei á útvarp,
les aldrei blöðin, vegna þess
að mér er nákvæmlega sama
hvað er að gerast úti í heimi.
Annað fólk kemur mér ekk-
ert við.“
Þegar hann sá undrun
mína við að heyra þessi orð
sín, bætti hann við: „Ég er nefni-
lega farinn að stunda jóga, kynnt-
ist manni sem heitir Sri Chinmoy,
og hann opnaði augu mín, kom
mér til að hugsa málin alvarlega,
benti mér á nýjar hliðar á lífinu og
tilverunni.“
Við þessi orð hans minnkaði
ekki undrun mín, heldur þvert á
móti, og ég spurði hann nánar út í
þetta. Hann sagði mér, að þessi
jógi, þessi Sri Chinmoy, væri ákaf-
lega merkilegur og hefði meira að
segja komið til Íslands fyrir tveim-
ur eða þremur árum, og jafnhattað
m.a. þáverandi forsætisráðherra á
Austurvelli, fyrir augum sægs
fólks og myndavéla, og það bara
með annarri hendi. Og hefði
nokkru áður sett heimsmet í að
lyfta geysilegum þunga á sama
hátt, einum þremur tonnum held
ég, eða þaðan af meira. Einhver
nefndi sjö tonn.
Nú fór ég allur að taka við mér
þarna í stólnum, við hinar miklu og
óvæntu fréttir af þessum sterka
jóga. Og þá rámaði mig eitthvað í
að hafa lesið um þetta í einhverju
blaði. Ansi var þetta nú áhuga-
verður lærimeistari, flaug um koll
minn. Og eiginlega stórkostlegur.
Að geta lyft þremur tonnum með
annarri hendi! Þvílíkt og annað
eins hafði ég bara ekki heyrt fyrr!
Þrjú tonn eru nú einu sinni 3.000
kíló! Einnig gat hann skokkað
maraþonhlaup þindarlaust, að
sagt var, og gert margt fleira, sem
undravert þótti. Og ég man, að í
huganum tók ég ofan fyrir þeim
báðum, jóganum og þessum unga
nemanda hans.
Það var ekki fyrr en nokkru síð-
ar, eftir að hann var farinn á brott,
að ég allt í einu kveikti á perunni,
vaknaði til lífsins. Og ég fann roð-
ann læðast um vanga mína.
En hvað var það eiginlega, sem
ég uppgötvaði þarna skyndilega?
Jú, nákvæmlega það, að ég sjálfur
þekkti einstakling með þessa gáfu,
að vera öðruvísi en flestir og
reyndar allir, hafði þekkt hann
lengi og umgengist hann daglega.
Og það sem var grátbroslegast við
þetta allt var kannski það, að mað-
urinn sem ég þekkti var miklu
stórkostlegri en gúrúinn.
Hann lyfti að vísu ekki þremur
tonnum með annarri hendi eða
rann á milli staða, á jarðvist-
arárum sínum, einfaldlega vegna
þess, að slíkt hafði engan tilgang.
En hann gerði annað og meira:
hann læknaði sjúka, með því einu
að snerta þá; hann mettaði 5.000
áheyrendur sína með nokkrum
fiskum og smábrauðum; hann
gekk á vatni og bjargaði þar
drukknandi manni; hann gat
meira að segja þaggað niður í
vindinum og lægt ofsa hafsins, og
kallað dáið fólk til lífsins með orð-
inu einu saman. Og ég gæti talið
áfram, lengi.
Og nú brosi ég, þegar mér verð-
ur litið til heimsku minnar eða
gleymsku áður, því svo gjör-
samlega bliknar Indverjinn í sam-
anburði við meistarann frá Nas-
aret. Og hvers vegna segi ég það?
Jú, annar fæst við hluti, sem engu
máli skipta, á meðan hinn veigrar
sér iðulega við að gera kraftaverk,
því hann vill ekki sýnast töframað-
ur, vill ekki láta misskilja kraft
Guðs, en lætur þó undan á tíma
mikillar neyðar.
Annar segir nemendum sínum
að vera ekki að fylgjast með at-
burðum í heiminum, eins og þeir
eru bornir fram í sjónvarpi, út-
varpi og blöðum, slíkt komi þeim
hreinlega ekkert við, en hinn segir
við lærisveina sína: Gætið að
náunga ykkar, aðstoðið hann ef á
bjátar, elskið hann og virðið.
Af þessum litlu dæmum má sjá,
að þeir geta tæpast verið ólíkari,
þessir tveir lærimeistarar. Þeir
eru eins og svart og hvítt, vetur og
sumar, nótt og dagur. Og sama er
um aðra af líkum toga.
Annars hef ég ekkert upp á Sri
Chinmoy að klaga, enda þekki ég
manninn lítið. Hann er sagður
einn frægasti núlifandi jógameist-
ara heims og er sannarlega um
margt eftirtektarverður. Því verð-
ur ekki neitað. Hann fæddist í
Bengal á Indlandi 27. ágúst 1931
og er nú sagður hafa ritað meira
en 1.000 bækur, málað 5.000.000
fuglamyndir, samið 13.000 lög og
kunna að spila á 150 hljóðfæri.
En hann er enginn Jesús.
Fyrir nokkrum árum heyrði ég,
að ungi maðurinn hefði yfirgefið
jógann og gengið í kristinn söfnuð.
Ég veit ekki um íverustað hans
núna; kannski einhver annar hafi
kallað bjartari raust. Það væri
ekki í fyrsta skipti.
Boðskapur minn í dag er sumsé
þessi: Láttu ekki glepjast af hinum
fögru klæðum hinna ótalmörgu
nýju herra þessarar aldar, sem eru
á nánast hverju strái. Það er ekk-
ert grænna hinum megin við læk-
inn, eða bjartara handan fjallsins.
Líttu þér nær, greindu hismið frá
kjarnanum, veldu áfram birtuna,
sumarið og daginn. Jesú Krist.
A.m.k. nægir hann mér. Og
raunar tveimur milljörðum jarð-
arbúa að auki, þriðjungi alls mann-
kynsins.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Ég er góði hirðirinn,“ sagði Jesús forðum. Og hann
sagði líka „Varist falsspámenn“, og tæplega að ástæðu-
lausu. Sigurður Ægisson rifjar hér upp gamlan atburð,
sem tengist þessum varnaðarorðum meistarans.
Kristur nægir
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði ARNARSMÁRI - KÓP. - LAUS STRAX
Vorum að fá í sölu á þessum fráb. útsýnisstað
120 fm íb. í góðu litlu fjölb. 3 svefnherb. Fall-
egt eldh. Stórar s-svalir. Ákv. sala. Laus strax.
Verð 15,4 millj. 51573
BLIKAHJALLI - KÓP. - PARHÚS
Nýkomið í einkasölu stórglæsilegt tvílyft par-
hús með innbyggðum bílskúr (2ja bíla) samt.
ca 225 fm. Fullbúin vönduð eign í sérflokki.
Glæsilegur garður. Frábær staðsetning og út-
sýni. Stutt í alla þjónustu. Áhv. húsbréf. Verð
28,9 millj.
BREKKUHJALLI - KÓP - SÉRHÆÐ
Nýkomin í einkas. sérl. falleg 102 fm neðri
sérh. í 2-býli í suður hlíðum Kópavogs. mikið
endurnýjuð eign, sérinngangur, frábær stað-
setning innst í botnlanga, mjög fallegur garð-
ur m. trjám. Sjón er sögu ríkari. Áhv. hagstæð
lán. Verðtilboð.
HUGVEKJA
Listi Sjálf-
stæðismanna í
Sveitarfé-
laginu Ölfusi
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
félagsins Ægis í Þorlákshöfn vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí
2002 hefur verið lagður fram.
Efsta sæti listans skipar Hjörleif-
ur Brynjólfsson, núverandi oddviti
og framkvæmdastjóri Humarvinnsl-
unnar og Portlands, í öðru sæti er
Sigurður Bjarnason, núverandi for-
maður bæjarráðs og framkvæmda-
stjóri Hafnarness. Þriðja sætið skip-
ar nýr maður á listanum, Stefán
Guðmundsson viðskiptafræðingur
sem starfar sem skrifstofustjóri hjá
Ljósavík HF. Fjórða sætið skipar
Sesselja S. Pétursdóttir, sem setið
hefur í bæjarstjórn síðastliðið kjör-
tímabil. Aðrir á listanum eru: 5. Ingi-
björg Kjartansdóttir, ritari 6. Guðni
Birgisson, sjómaður 7. Jóhanna M.
Hjartardóttir, kennari 8. Þorsteinn
Pálsson, tannlæknir 9. Valdimar
Jónasson, tölvunarfræðingur 10. Ár-
mann Einarsson, skipstjóri 11.
Ágúst Örn Grétarsson, nemi 12.
Anna Margrét Káradóttir, nemi 13.
Þorvaldur Garðarsson, skipstjóri 14.
Ásta Júlía Jónsdóttir, kennari
Námskeið um
vistkerfi
GARÐYRKJUSKÓLINN og Land-
græðsla ríkisins standa að námskeið-
inu „Að gera við skemmd vistkerfi“
miðvikudaginn 17. apríl kl. 10–16 á
Skúlagötu 21, Reykjavík.
Fjallað verður um vistkerfi, upp-
byggingu vistkerfa og með hvaða
hætti megi meta ástand þeirra (land-
læsi). Einnig verður fjallað um
hvernig gera megi við „skemmd“
vistkerfi, svo og tilgang og markmið
hvers konar landbóta. Leiðbeinend-
ur verða Ása L. Aradóttir og Kristín
Svavarsdóttir, sérfræðingar hjá
Landgræðslu ríkisins og Guðmund-
ur Halldórsson, sérfræðingur hjá
Rannsóknastöð Skógræktar á Mó-
gilsá.
Námskeiðið er ætlað þeim, sem
með einhverjum hætti vinna að
skipulagi, áætlanagerð og meðferð
lands, s.s. landslagsarkitektar, um-
hverfis- og tæknideildir sveitarfé-
laga, umhverfis- og garðyrkjustjórar
og verkstjórar í landgræðslu og
skógrækt.
Skráning og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Garðyrkjuskólans
eða í gegnum netfangið; mhh@reyk-
ir.is, segir í fréttatilkynningu.
Skagafjarðar-
listinn sam-
þykktur
Á FÉLAGSFUNDI hjá Skagafjarð-
arlistanum er haldinn var 10. apríl sl.
á Sauðárkróki var eftirfarandi fram-
boðslisti samþykktur einróma fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar 25. maí.
Listann skipa: 1. Snorri Styrkárs-
son, Sauðárkróki, 2. Gréta Sjöfn Guð-
mundsdóttir, Víðidal II, 3. Helgi
Thorarensen, Hólum, 4. Sveinn Allan
Morthens, Garðhúsum, 5. Anna
Kristín Gunnarsdóttir, Sauðárkróki,
6. Stefanía Hjördís Leifsdóttir,
Brúnastöðum, 7. Guðbjörg Særún
Björnsdóttir, Hofsósi, 8. Jón Karls-
son, Sauðárkróki, 9. Jón Arnljótsson,
Ytri-Mælifellsá, 10. Ingibjörg Haf-
stað, Vík, 11. Margrét Sigurðardóttir,
Sauðárkróki, 12. Heiða Lára Egg-
ertsdóttir, Sauðárkróki, 13. Þórarinn
Leifsson, Keldudal, 14. Pétur Valdi-
marsson, Sauðárkróki, 15. Ingvar
Guðnason, Merkigarði, 16. Herdís
Jónsdóttir, Sauðárkróki, 17. Guð-
björg Guðmundsdóttir, Sauðárkróki,
18. Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sauðár-
króki.
Skagafjarðarlistinn hefur verið í
meirihluta í sveitarstjórn Skagafjarð-
ar frá miðju síðasta ári og hefur nú
tvo fulltrúa í sveitarstjórn, þau Ingi-
björgu Hafstað og Snorra Styrkárs-
son.