Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 12

Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 12
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fuglinn sækir linnulaust í skelina sem notuð er í undirstöðu fyrir göngustíga. með því þegar nýr skeljafarmur var losaður á svæðið með tilheyr- andi æti fyrir þá. Að sögn verktak- ans í skeljaakstrinum eru þarna hinar ýmsu sjófuglategundir; síla- mávur, grámávur, hettumávur, svartbakur og skegla. Fólkið í nærliggjandi húsum og stofnunum hefur þurft að taka á þolinmæðinni því ónæði og óþrifn- aður er af slíkum fuglahópi og ekki alltaf heppilegt að hengja þvott á snúrur þegar mávagerið er sem mest. Það er loks að taka enda og búið er að moka yfir alla skel í skrúðgarðinum en eftir er þó einhver skeljaakstur í burð- arlag fyrir göngustíga um þorpið, í litlum mæli þó. Áætlað er að gerð skrúðgarðs- ins verði lokið næsta sumar en á þessu ári verða græn svæði þöku- lögð, beðin mótuð og göngustígar fullgerðir. Gróðursetning, lýsing og fleira bíður næsta sumars en búið er að leggja rafstrengi í göngustíga. Mikið gróðurátak er framundan í landi Þórshafnarhrepps en Land- græðslan hefur gefið þúsundir plantna sem verða gróðursettar í sumar og eiga að mynda svokall- aðan gróðurtrefil kringum þorpið og er það aðeins fyrsti áfangi í landgræðsluátaki hjá Þórshafn- arhreppi. Fuglarnir sækja grimmt í skelina Þórshöfn. Morgunblaðið. Á ÞÓRSHÖFN er unnið að gerð skrúðgarðs miðsvæðis í þorpinu og er það Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis sem kostar framkvæmd- ina og lagði til þess um þrettán milljónir. Garðurinn er vel stað- settur, en að honum liggja helstu þjónustustofnanir í plássinu. Byrjað var á verkinu í fyrrasum- ar en Þórshafnarhreppur sér um framkvæmdina og nýtir sinn mannskap og tæki, jafnframt því að fá þjónustu fagaðila eftir þörf- um. Veturinn hefur verið mildur og því hefur verið unnið að skurð- greftri og drenlögnum í garðinum meira og minna í allan vetur. Mikið fellur til af kúskel í tengslum við kúfiskvinnslu Hrað- frystistöðvarinnar og hefur skelin verið notuð í dren og í undirstöðu í göngustíga en það hefur sparað milljónir í verkinu, að sögn fram- kvæmdaraðila. Skelin er mjög hentugt efni til þessa brúks og um stuttan veg að flytja hana. Fuglarnir koma Böggull fylgir þó skammrifi því mávarnir sækja grimmt í skelina svo þessa dagana líkist miðbær Þórshafnar helst sviði í hinni frægu kvikmynd Alfreds Hitch- cocks, Fuglarnir. Þó reynt hafi verið að moka jafnharðan yfir skelina voru fuglarnir samt fljót- ari í förum og virtust fylgjast vel FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ EIGNAMIÐLUNIN ehf. hefur fengið höfuðstöðvar OZ hf. við Snorrabraut 54 og 56, sem áður var húsnæði Osta- og smjörsölunnar, til sölu. Ásett verð er 99 milljónir króna og verða eignirnar lausar fljótlega. Eignin skiptist í tvær húseignir, framhús sem er samtals 800 fer- metrar og um 340 fermetra bakhús á einni hæð. Í fremra húsinu, sem var byggt árið 1929, er 270 fermetra kjallari sem í dag er nýttur undir kaffiaðstöðu, loftkælt tölvuver og geymslurými. Á fyrstu hæð er skrif- stofurými sem skiptist í hol, mót- töku og fundarsal. Önnur hæð skipt- ist í fimm skrifstofur, þrjá vinnusali, snyrtingar og geymslurými. Bak- húsið er innréttað sem skrifstofu- og vinnurými. Húseignirnar hafa verið endurnýjaðar frá grunni. Búið er að endurnýja allar tölvulagnir í báðum húsunum og tengja ljósleiðara á milli þeirra. Lóðin er malbikuð með fjölda bílastæða. Skúli Valberg Ólafsson, fram- kvæmdastjóri OZ, segir að ákveðið hafi verið að selja húsið þar sem til stendur að flytja höfuðstöðvar OZ til Montreal í Kanada. Starfsemi OZ á Íslandi verði eftir flutning höf- uðstöðvanna á efri hæðinni á Snorrabraut 56, þar sem ÁTVR hafði einu sinni útibú. Skúli segir að í gegnum árin hafi margir sýnt fast- eigninni áhuga, enda sé húsið fallegt og hluti af iðnaðarsögu Íslands. Höfuðstöðvar tölvufyrirtækisins OZ hf. við Snorrabraut Hús OZ við Snorrabraut þar sem ostabúð var áður til húsa. Til sölu fyrir 99 milljónir LEIGA á orlofshúsum Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, VR, hækkar frá 1. júní í sumar um 5 þús- und krónur frá síðasta ári, miðað við vikugjald. Helgarleiga hækkar um 2.500 krónur. Leiga á orlofshúsi með heitum potti fer upp í 17 þúsund krón- ur á viku, sem er 42% hækkun frá síð- asta sumri. Leiga á tjaldvögnum hækkar einnig um 5 þúsund krónur. Á móti fá fullgildir félagsmenn VR orlofsávísun upp á sömu upphæð, eða 5 þúsund krónur, sem þeir geta notað við greiðslu á orlofshúsi eða tjald- vagni. Sæki þeir ekki um, eða fá ekki úthlutað, geta þeir leyst ávísunina út sem innborgun vegna ferðalaga inn- anlands hjá Ferðafélagi Íslands, Úti- vist og Fosshótelunum og vegna ut- anlandsferða hjá Heimsferðum og Heimsklúbbi Ingólfs. Fullgildir félagsmenn í VR eru um 16 þúsund talsins og er verið að senda ávísanirnar til þeirra um þessar mundir. Í boði eru um 50 orlofshús víðs vegar um landið og 37 tjaldvagn- ar. Þar af á félagið sjálft um 40 hús. Þá eru hús áfram í boði á Spáni. Viku- leiga fyrir orlofshús án potts, innan- lands, verður í sumar 15.500 kr. en var um 10 þúsund í fyrra. Leiga á tjaldvagni í sex daga kostar 13.500 kr. og 22.000 í þrettán daga. Einar M. Nikulásson, umsjónar- maður orlofsmála hjá VR, segir að ástæðu hækkunarinnar megi fyrst og fremst rekja til aukins kostnaðar við rekstur þeirra. Húsin séu eftir sem áður mikið niðurgreidd og gjaldskrá hafi ekki verið breytt undanfarin tvö ár. Einar segir að rekstur hefðbund- ins orlofshúss kosti félagið um 40 þús- und krónur á viku. „Við ákváðum að breyta gjald- skránni þannig að hækka vikuleiguna um 5 þúsund krónur. Á móti kemur að öllum félagsmönnum er send ávís- un upp á sömu upphæð sem þeir geta notað. Hækkunin er því engin fyrir félagsmenn en kemur að sjálfsögðu við aðra sem hafa fengið hús hjá okk- ur. Þeir eru sárafáir yfir sumartím- ann, langflestir eru innan VR,“ segir Einar. Um 2 þúsund félagarVR hafa á ári nýtt sér orlofshús eða tjaldvagna. Margir vilja gera eitthvað annað Aðspurður hvort VR sé að stýra notkun orlofshúsanna meira til fé- lagsmanna með hækkun gjaldskrár og útgáfu ávísananna segir Einar mörg dæmi þess að að félagsmenn láni nöfn sín þegar leigt sé út. Þetta sé þó ekki meginástæða breytinganna. „Við vitum sem er að félagsmenn okkar vilja ekki allir fara í orlofshús eða leigja tjaldvagn. Margir vilja gera eitthvað annað og því var ávísunin send til allra félagsmanna. Ef allir nýta sér þær, þá erum við í raun hvorki að minnka niðurgreiðslur í rekstri orlofshúsa né að hækka gjald- skrána. Við erum einfaldlega að gefa fleirum kost á að nýta sér þessa pen- inga úr orlofssjóði,“ segir Einar. VR breytir gjaldskrá orlofshúsa og tjaldvagna Leiga hækkuð en ávísun verður gefin út á móti ÁKÆRA gegn Goða Gunnars- syni, framkvæmdastjóra Costgo, var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í fyrradag. Hann er ákærður fyrir fjársvik en fyrir dómi neitaði hann sak- argiftum. Málið komst í hámæli í kjöl- far auglýsingar í Fréttablaðinu 5. nóvember þar sem fólki var gefinn kostur á að panta sím- leiðis vörur á heildsöluverði sem átti ýmist að afhenda sam- dægurs eða eftir fimm daga. Er hann ákærður fyrir að hafa sama dag og þann næsta blekkt fólk sem hringdi til að leggja 5.000 krónur inn á bankareikn- ing og fá í staðinn svonefndan Costgo-vörulista og aðgang að frekari viðskiptum. Þetta hafi hann gert þrátt fyrir að hann hefði hvorki vörurnar á boð- stólum né stæði í nokkrum við- skiptasamböndum um öflun þeirra. Þannig hafi hann blekkt 85 manns til að greiða rúmlega 450.000 krónur. Blekið hvarf Þá er hann ákærður fyrir að hafa svikið út vörur fyrir hátt í 700 þúsund úr verslun Byko í Kópavogi. Hann skrifaði m.a. tékka upp á um 500 þúsund með bleki sem hvarf þremur dögum síðar. Eyðublaðið var í eigu húsfélagsins þar sem Goði var búsettur og var tékkinn gefinn út í óleyfi. Fram- kvæmda- stjóri Costgo neitar sak- argiftum Haraldur stefnir á 3. búðir á föstudag HARALDUR Örn Ólafsson Everest-fari stefnir á þriðju búðir í 7.500 metra hæð á Ever- est á föstudag þar sem hann mun gista eina nótt áður en hann lækkar sig aftur niður í aðrar búðir eða grunnbúðir. Aðspurður um hæfni fólks í öðrum leiðöngrum á fjallinu þetta árið segir Haraldur að nokkuð sé um óvana, eins og er á öllum vinsælum fjöllum því „það er ekki fjallið sem velur fólkið, heldur öfugt“, sagði Haraldur úr öðrum búðum. Hann sagði flesta þó mjög hæfa fjallgöngumenn á yfirstandandi klifurtímabili. Reynir í annað sinn Til fróðleiks má nefna að ferðafélagi Haralds er John Tasker, sem reyndi uppgöngu á Everest vorið 1996 þegar 33 fjallgöngumenn úr þremur leið- öngrum lögðu til atlögu við tind- inn aðfaranótt 10. maí. Áður en sólarhringur var liðinn voru sjö manns látnir úr kulda og þreytu í ofsaveðri sem skall á skyndi- lega og fimm manns til viðbótar létust í kjölfarið. Nokkrar bæk- ur hafa verið skrifaðar um þessa atburði og er þekktust þeirra Into Thin Air eftir bandaríska blaðamanninn Jon Krakauer þar sem Tasker kemur við sögu. Tasker bjargaði lífi sínu með því að snúa við frá tindinum í tæka tíð, en er nú mættur á nýjan leik, 62 ára að aldri og mjög öflugur fjallgöngumaður að sögn Har- alds. Tasker er þó ekki aldurs- forsetinn á fjallinu því 68 ára maður mun ætla að verða elsti maðurinn til að klífa Everest nú í vor. Ársreikningur Fjarða- byggðar staðfestur Skatt- tekjur 3,5% lægri en áætlað var ÁRSREIKNINGUR Fjarðabyggð- ar fyrir árið 2001 var staðfestur ný- lega í bæjarstjórn eftir seinni um- ræðu. Skatttekjur bæjarsjóðs námu 788 milljónum króna, sem er 3,5% lægra en áætlun gerði ráð fyrir. Al- menn rekstrargjöld námu 1,1 millj- arði sem er um 1% umfram áætlun. Tekjur málaflokka Fjarðabyggðar námu 427 milljónum á síðasta ári og því voru tekjur umfram rekstrar- gjöld rúmar 90 milljónir kr. Á launa- skrá sveitarfélagsins voru alls 708 starfsmenn í fyrra í 215 stöðugildum. Launagreiðslur námu alls 502 millj- ónum, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Fjarðabyggð. Fjárfest fyrir 290 milljónir Rekstur málaflokka nam um 690 milljónum, eða 87,6% af skatt- tekjum, en áætlun ársins gerði ráð fyrir 683 milljónum í rekstur. Stærsti málaflokkurinn var sem fyrr fræðslumál en í hann voru veitt 34% af skatttekjum. Þar á eftir koma fé- lagsmál með 15%, æskulýðs- og íþróttamál með 8% og svo yfirstjórn sveitarfélagsins með rúm 7%. Fjarðabyggð fjárfesti á síðasta ári fyrir tæpar 290 milljónir króna. Þar vega þyngst byggingarframkvæmd- ir við Grunnskóla Eskifjarðar og Nesskóla, endurbygging sundlaug- ar, nýbygging gatna og holræsa og framkvæmdir við vatnsveitu. Fjár- festingar voru í samræmi við áætlun ársins. Peningalegar eignir bæjarsjóðs og allra bæjarfyrirtækja námu 618 milljónum króna um síðustu áramót en voru um 680 milljónir ári áður. Heildarskuldir, án lífeyrisskuldbind- inga, námu rúmum 2 milljörðum kr. í lok árs 2001 og neikvæð peningaleg staða án lífeyrisskuldbindinga var tæpir 1,5 milljarðar. Að meðtöldum skuldbindingum lífeyris var neikvæð peningaleg staða bæjarsjóðs og bæj- arfyrirtækja Fjarðabyggðar tæpir 1,8 milljarðar um síðustu áramót.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.