Morgunblaðið - 24.04.2002, Síða 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 29
www.ef.is
Skoðaðu þessa
frábæru pönnu!
Fást grunnar eða
djúpar og sem
grillpönnur.
24-26-28-30 sm.
Feitislaus steiking.
Hagstætt verð!
3 viðurk
enningar
„Frábær“
hjá
þýskum
neytenda
samtöku
m
Besta steikarpannan
í Evrópu....
samkvæmt dómi þýskra
neytendasamtaka
Hafið samband við hópsölu deild
Icelandair í síma 50 50 406.
groups@icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
17
53
3
0
4/
20
02
Árshátíða- og hópferðir
London
Frá 47.730 kr.
Alltaf gaman saman
á mann í tvíbýli í 2 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Forte Posthouse Kensington,
morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Kaupmannahöfn
Frá 45.110 kr.
á mann í tvíbýli í 2 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Palace Hotel, morgun-
verður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Glasgow
Frá 36.720 kr.
á mann í tvíbýli í 2 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Premier Lodge, morgun-
verður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Wiesbaden
Frá 52.330 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Crown Plaza,
morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Tallinn
Frá 59.950 kr.
á mann í tvíbýli í 4 nætur
Innifalið: flug, ferja, gisting í 2 nætur á ferjunni,
gisting í 2 nætur á Scandic Hotel Palace, morgun-
verður, einn kvöldverður á ferjunni, flugvallarskattar
og þjónustugjöld. Flogið til Stokkhólms, ferja yfir til
Tallinn og sömu leið til baka.
Verð miðast við 20 manns í hópi.
París
Frá 49.965 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Home Plazza St. Antoine,
morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Luxemborg
Frá 54.640 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur
Innifalið: flug, rúta til Lux, gisting á Alvis Park,
morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
(flogið til Frankfurt og rúta þaðan til
Luxemborgar, u.þ.b. 3 klst. akstur).
Minneapolis
Frá 51.660 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur.
Innifalið: flug, gisting á Holiday Inn nr 2 eða
Clarion Hotel, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Verðdæmi 1.október-15.desember.
Leitið tilboða fyrir önnur tímabil.
Verðdæmin miðast við að flugsæti
og hótelgisting fáist staðfest.
Verðdæmin gilda ekki þegar
sýningar eru í borgunum.
Lágmark 20 í ferð.
ÉG virðist hafa
snert snöggan blett á
Ísfirðingnum Berg-
ljótu Halldórsdóttur
með greinarkorni sem
ég skrifaði í Morgun-
blaðið fyrir skömmu, ef
marka má kveðjuna
sem hún sendi mér í
sama blaði. Það er
óþarfi að amast við
konuna þótt hún taki
upp hanskann fyrir
landsbyggðina, en
verra þykir mér að hún
skuli að mestu hafa
misskilið tilefni grein-
arinnar, því það var til-
viljun ein að umræddur þáttur var
sendur út frá Ísafirði. Ég er sam-
mála henni um að fólkið sem ég
hlustaði á í þættinum „Í vikulokin“
er ekki eitt um að tjá sig með þeim
hætti sem það gerði. Það afsakar
hins vegar ekki neitt. Að elta for-
dóma annarra eykur á engan hátt
gildi þeirra.
Ég vona að Bergljót geti verið
mér sammála um mikilvægi þess að
fólk geti greint hugtök rétt. Það er
nefnilega hugtakavilla í grein henn-
ar sem þarf að svara. Skilgreiningin
á því hvað er skoðun og hvað eru for-
dómar. Bæði orðin eru tiltölulega
gegnsæ og endurspegla í raun að-
eins það sem þau segja. Því ætti ekki
að vera neinum ofraun að nota þau
rétt. Umræðuþáttur eins og „Í viku-
lokin“ ólíkt „Þjóðarsálinni“ sálugu
hefur innbyggt í uppsetningunni að
vera vettvangur skoðanaskipta, ekki
sleggjudóma. Fólk er spurt hvort
það vilji koma og taka þátt í umræðu
um atburði liðinnar viku. Lýsi það
skoðun verður hún að byggjast á
skoðun ólíkra þátta og sjónarhorna
annars kallast það ekki skoðun held-
ur fordómar og þeir eiga ekkert til-
kall til þögullar lotn-
ingar.
Einfaldast er að
segja að fordómar séu
leið hins lata. Með því
að koma sér upp for-
dómum getur fólk talið
sér trú um að það hafi
skoðun, þegar það hef-
ur aldrei gert annað en
að grípa eitthvað á lofti
í umræðunni og tjasla á
það því sem hentar.
Margir telja að ein-
ungis þær örfáu undan-
tekningar sem varðar
eru í Stjórnarskránni
flokkist sem fordómar.
Það er mikill misskilningur, því nán-
ast allt okkar líf er umvafið fordóm-
um, þeir laumast aftan að okkur úr
öllum hornum. Jafnvel lítið barn
sem segir „oj bara“ þegar því er boð-
ið eitthvað nýtt sýnir fordóma-
bundna hegðun. Lífið er of flókið til
að hægt sé að brjóta alla hluti til
mergjar, þess vegna getum við látið
eftir okkur að daðra dálítið við for-
dómana. En við verðum að vera
meðvituð um hvenær við látum for-
dóma ráða ferð og hvenær ekki.
Flókin mál eins og deilurnar í Mið-
Austurlöndum eiga skilið að í þau sé
eytt einhverri hugsun. Fólk deyr
unnvörpum þarna og einhver karl-
nagli vestur í ballarhafi sýnir því þá
fyrirlitningu að hafna einu raunhæfu
aðstoðinni sem í stöðunni var. Við
getum þakkað Guði fyrir að lausn
deilunnar er ekki á hans höndum. Í
þættinum sem ég hlustaði á var ekki
minnsta tilraun gerð til að réttlæta
yfirlýsinguna sem ég gagnrýndi í
fyrri grein minni. Hún var klippt og
skorin, heilagur sannleikur og
hallelúja. Hverju þurfti maðurinn að
fórna til að geta lifað í svona svart-
hvítum heimi? Ég læt Bergljótu eft-
ir að geta sér til um það.
Skýring Bergljótar á slúðursög-
unni sem ég deildi á er varla svara
verð, en tel mér þó skylt að benda á
að slúður er slúður hvar sem það
verður til. Menn þurfa líka að átta
sig á að Sameinuðu þjóðirnar eru
ekki yfirskilvitlegt fyrirbæri. Þetta
samband þjóða, sem Bergljót var
svo væn að uppfræða mig um, er
samansett af fólki. Venjulegu fólki
sem fellur í allar þær gryfjur sem
við getum fallið í. Sumir telja, og
með nokkrum rökum, að átökin sem
urðu uppspretta þessara greina-
skrifa megi jafnvel rekja til ákvarð-
ana sem teknar voru af þessu ágæta
fólki.
Enn af fordómum
Ragnhildur
Kolka
Höfundur er meinatæknir.
Fólk
Með því að koma sér
upp fordómum, segir
Ragnhildur Kolka, get-
ur fólk talið sér trú um
að það hafi skoðun.
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5