Morgunblaðið - 24.04.2002, Qupperneq 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 21
Ömmubakstursle ikar
Keppnisgreinar
Smur› flatkaka; besta uppskriftin af flatkökum og áleggi
Smur› skonsa; besta uppskriftin af skonsum og áleggi
Sendu uppskrift á 0mmubakstur.is fyrir 3.maí.
Eina skilyr›i› er a› innsendar uppskriftir geri rá› fyrir heitri
e›a kaldri flatköku e›a skonsu frá Ömmubakstri.
Úrslitin ver›a tilkynnt á Bylgjunni.
Glæsileg ver›laun
1. ver›laun: Ævint‡rafer› fyrir tvo til höfu›borgar
smurbrau›sins, Kaupmannahafnar
2.-3. ver›laun: Smurbrau›sveisla á Jómfrúnni
4.-10. ver›laun: Gjafakarfa frá Ömmubakstri
ommubakstur.is
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
•
s
ia
.is
fyrir 3.
maí
U p p s k r i f t a s a m k e p p n i
ESTIME, skip Atlantsskipa, lagðist
í fyrsta sinn að bryggju í Kópavogi í
gær og þar með er Kópavogshöfn
orðin alþjóðleg flutningshöfn með
reglubundnum siglingum. Koma
skipsins markar tvenn tímamót því
skipið er einnig að sigla fyrstu sigl-
ingu Atlantsskipa í Evrópusigling-
um. Á þessum tímamótum hefja Atl-
antsskip formlega starfsemi sína í
Kópavogi með reglubundnum sigl-
ingum til Evrópu og Bandaríkjanna
ásamt tengiflutningum um allan
heim. Stefán Kjærnested, fram-
kvæmdastjóri Atlantsskipa, segir að
stefnt hafi verið að Evrópusiglingum
undanfarin tvö ár. „Allt frá því að við
hófum siglingar til Ameríku höfum
við stefnt að því að hefja siglingar til
Evrópu líka. Evrópumarkaðurinn er
allt að sjö sinnum stærri markaður.
Hjarta sjóflutninga í Evrópu slær í
Rotterdam og þannig getum við boð-
ið alla þjónustu við tengihafnir sem
Íslendingar eru að versla við.“
20% lægra flutningaverð
Stefán segir að Atlantsskip hafi
með skipulagi sínu í flutningum náð
fram mikilli hagræðingu og geti því
boðið 20% lægra flutningaverð á sjó-
frakt til og frá Evrópu en hingað til
hefur þekkst, sem án efa eigi eftir að
skila sér í lægra vöruverði til ís-
lenskra neytenda eins og þegar hef-
ur gerst vegna lækkunar félagsins á
sjófrakt frá Ameríku undanfarin ár.
„Verð á sjóflutningum hefur hækkað
töluvert að undanförnu og að okkar
mati hefur ekki verið virk samkeppni
í sjóflutningum hér á landi. Okkar
aðalmarkaður er höfuðborgarsvæðið
og helstu hafnir í Evrópu. Við erum
þannig ekki að eltast við allan mark-
aðinn, heldur meginþorra hans. Við
gerum okkur vel grein fyrir því hvar
kostnaðurinn liggur og munum ekki
niðurgreiða flutninga annars staðar
á kostnað hinna. Þannig getum við
boðið lægra verð.“ Estime verður á
Íslandi á 10 daga fresti og segir Stef-
án að markmiðið sé að ná 5% mark-
aðshlutdeild með skipinu á næstu 12
mánuðum. Markaðurinn ráði því síð-
an hvort öðru skipi verður bætt við
eða fleiri höfnum. „Við erum búnir
að koma okkur vel fyrir í Kópavogi
og þar er aðstaðan eins og best verð-
ur á kosið.
Við höfum nýverið flutt aðalskrif-
stofur okkar á hafnarbakkann í
Kópavogshöfn, auk þess sem við höf-
um tekið í gagnið glæsilegt vöruhús
þar og þarna er góður gámavöllur,“
segir Stefán.
Kópavogshöfn verð-
ur alþjóðleg höfn
Morgunblaðið/RAX
Stefán Kjærnested, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, tekur á móti flutn-
ingaskipinu Estime við komu þess til Kópavogshafnar í gær.
Atlantsskip hefja
formlega reglu-
bundnar siglingar
til Evrópu