Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 24

Morgunblaðið - 24.04.2002, Page 24
ERLENT 24 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is GULL ER GJÖFIN HÚSFYLLIR var á fundi sem hald- inn var á mánudag í Háskólabíói undir yfirskriftinni „Stöðvum stríðs- glæpina í Palestínu“. Mátti af því ráða að málefni Mið-Austurlanda eru Íslendingum mjög ofarlega í huga um þessar mundir. Bæði Sveinn Rúnar Hauksson, sem er for- maður félagsins Ísland-Palestína, og Viðar Þorsteinsson, ritari þess, ávörpuðu fundinn en þeir eru ný- komnir frá Palestínu. Viðar sagði í samtali við Morg- unblaðið að það hefði haft sterkust áhrif á sig í heimsókninni til Palest- ínu að hafa fengið tækifæri til að starfa nokkra daga með sjúkraflutn- ingafólki í borginni Ramallah á Vesturbakkanum, en þar hefur Yasser Arafat, forseta heima- stjórnar Palestínu, einmitt verið haldið í herkví af Ísraelsher und- anfarna mánuði. „Meðal annars færðum við fólki mat í hús,“ segir Viðar, „en þegar ég kom í seinna skiptið til Ramallah var búið að eyðileggja sjúkrabíl sjúkra- flutningafólksins. Það þurfti því að sinna starfi sínu fótgangandi.“ Segist Viðar hafa fyllst mikilli að- dáun á palestínsku þjóðinni. „Þetta fólk hefur sýnt ótrúlega þolinmæði. Deilan hefur mjög verið í fjölmiðlum undanfarið en það hefur auðvitað verið brotið á rétti þessa fólks afar lengi og það er ekki annað hægt en dást að æðruleysi þess.“ Undir þetta tekur Sveinn Rúnar. „En það vakti þó sterkust viðbrögð hjá mér að sjá ummerki aðgerða Ísr- aela í flóttamannabúðunum í Jenín – að sjá þann hrylling. Jafnframt var ánægjulegt að kynnast þeim kærleik sem mér fannst einkenna fas fólks- ins þarna mitt í miðri eyðilegging- unni. Þar hitti ég fólk sem tók mér vel, sýndi mér hlýju og gestrisni þrátt fyrir þær hörmungar sem yfir það höfðu dunið. Það var því eins og verið væri að rífa hjartað úr manni þegar ég þurfti að fara þaðan. Eina leiðin fyrir mig var að skunda hratt í burtu og líta ekki um öxl,“ segir Sveinn Rúnar. Hittu Barghouthi aldrei Ferð þeirra Sveins Rúnars og Viðars kom þannig til að neyðarkall barst félaginu Íslandi-Palestínu frá Mustafa Barghouthi lækni og bar- áttumanni fyrir mannréttindum Pal- estínumanna, en hann kom hingað til Íslands í fyrra. Var ákveðið að bregðast við beiðni hans um að senda fólk á staðinn. Kom fram í máli þeirra Sveins Rúnars og Viðars að þeir hefðu notið mik- illar gestrisni á heimili dr. Barghoutis í Ram- allah en samt sem áð- ur aðeins hitt konu hans og dóttur en ekki Barghouti sjálfan. Stafaði það af því að Barghouti hefur á stundum þurft að vera í felum en Ísraelar hafa horn í síðu hans fyrir það starf sem hann vinnur í því skyni að kynna aðstæður á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna er- lendis. Þeir Viðar og Sveinn Rúnar voru þó daglega í símasambandi við dr. Barghouthi meðan á heimsókn þeirra stóð. „Við vorum mikið í samfloti með hópi Ítala frá borginni Napólí. Þar var ekki um neina friðarhreyfingu eða samstöðuhóp að ræða heldur var þetta einfaldlega opinber sendi- nefnd á vegum borgarstjórnar Na- pólí,“ segir Sveinn Rúnar. „Til Palestínu var annars komið fólk hvaðanæva,“ bætir Viðar við. „Eins og Barghouthi sjálfur hefur sagt skiptir það verulega miklu máli að útlendingar séu á svæðinu. Bæði til að flytja fréttir af þeim atburðum sem þarna hafa átt sér stað, en líka til að veita Palestínumönnum skjól. Barghouthi leggur t.d. áherslu á að það sé ávallt útlendingur í sjúkrabíl- um Palestínumanna en það hefur mikil áhrif á það hvernig ísraelskir hermenn koma fram við þá.“ Ekki líku saman að jafna Það er talið að um tvö þúsund manns hafi fallið á undanförnum tuttugu mánuðum í deilu Ísraela og Palestínumanna, þar af er mikill meirihluti Palestínumenn. Deilan á sér þó mun lengri sögu og ódæð- isverk hafa verið drýgð á báða bóga. Bera ekki báðir aðilar ábyrgð á því gegndarlausa ofbeldi sem einkennt hefur síðustu misseri? „Sjálfsmorðsárásir Palest- ínumanna gegn ísraelskum borg- urum eru auðvitað hræðilegar,“ svarar Viðar. „Það er hins vegar ekki hægt að jafna þeim saman við það sem Ísraelsher hefur t.d. gert í Jenín. Þar er ekki bara búið að jafna einstök hús við jörðu heldur heilu hverfin. Svo við minnumst ekki á þau áhrif sem þetta ástand hefur haft á daglegt líf Palestínumanna. Vatn er tekið af húsum þeirra, þeir komast ekki á sjúkrahús og svo hitti ég ungt fólk á mínum aldri sem ekki hefur komist í skóla svo mánuðum skiptir. Það sem er verið að gera fólki á hernumdu svæðunum er einfaldlega á allt öðrum skala en einstakar árás- ir í Ísrael. Tala látinna segir sína sögu, hlutfall Palestínumanna sem hafa beðið bana er mun hærra,“ seg- ir Viðar. Sveinn Rúnar segir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hafa notað sjálfsmorðsárásir sem átyllu til að hrinda í framkvæmd löngu ákveðnum áætlunum á svæðum Pal- estínumanna. „Sjálfsmorðsárásirnar eru fyrst og fremst viðbrögð Palest- ínumanna. Arafat getur ekki stjórn- að þjóð sinni frekar en forseti Ís- lands þó að hann geti haft áhrif. Hann ákallaði þjóð sína í desember, hvern einasta mann, að nota ekki vopn, ekki einu sinni í sjálfsvörn. Orð hans þá höfðu þau áhrif að eng- inn féll í um tvær vikur, eða allt þar til fimm börn biðu bana í skóla í Gaza-borg í aðgerðum Ísraela. Það er því eins og Viðar segir, hér er ekki líku saman að jafna. Sjálfs- morðsárásirnar eru framdar af öfga- hópum sem lúta ekki forræði Ara- fats,“ segir Sveinn Rúnar. Það á ekki við um Al-Aqsa- hreyfinguna – hún er vopnaður arm- ur Fatah-hreyfingar Arafats sjálfs, ekki satt? „Jú, það er rétt. En Arafat stjórn- ar henni ekki. Þetta eru lauslega tengd samtök og hann getur ekki stjórnað gjörðum manna þar á bæ,“ segir Sveinn Rúnar. „Það þarf held- ur ekki að vera neitt feimnismál,“ bætir Viðar við, „að ég held að undir þessum kringumstæðum hafi Yasser Arafat miklu meiri áhyggjur af ör- yggi sinnar eigin þjóðar.“ Sveinn Rúnar og Viðar eru sam- mála um að ef takast eigi að stilla til friðar þurfi að koma til aukinn þrýstingur umheimsins á Ísraela um að hætta óhæfuverkum á heima- stjórnarsvæðum Palestínumanna. Hvorugur er trúaður á að Banda- ríkjamenn séu heppilegur aðili til að miðla málum í deilunni. „Við verðum bara að horfast í augu við að Banda- ríkin eru stríðsaðili, þau styðja Ísr- ael og þennan hernað Ísraela beint,“ segir Sveinn Rúnar. Ljósmynd/Sveinn Rúnar Hauksson Eyðileggingin í flóttamannabúðum Palestínumanna í Jenín er gífurleg. Palestínu- menn hafa sýnt ótrúlega þolinmæði Sveinn Rúnar Hauksson læknir og Viðar Þorsteinsson nemi komu á sunnudag úr níu daga för sinni til Palestínu. Davíð Logi Sigurðsson ræddi við þá um ástandið í Mið-Austurlöndum. Íbúar Jenín hafa sýnt mikið æðruleysi, að sögn Viðars og Sveins. Sveinn Rúnar Hauksson Viðar Þorsteinsson HÁTTSETTUR al-Qaeda-maður, sem handtekinn var í Pakistan, hefur sagt við yfirheyrslur, að hryðjuverkasamtökin ráði yfir þekkingu til að smíða geisla- sprengju og hafi unnið að því verk- efni. Haft er eftir bandarískum emb- ættismönnum, að þessar upplýs- ingar frá Abu Zubaydah, sem áður sá um að skipuleggja hryðjuverka- starfsemina, hafi ekki komið á óvart. Bandaríkjamenn hafi áður verið orðnir þess vissir, að al- Qaeda vildi komast yfir geisla- sprengju eða „skítuga sprengju“ eins og hún er oft kölluð. Geislasprengja er einfaldlega sprengja, sem er umvafin geisla- virkum efnum. Þegar hún springur dreifast þau yfir nálæg svæði. Ekki er um að ræða eiginlega kjarna- sprengju, sem er miklu flóknari smíð. Embættismennirnir sögðu ekk- ert um hve langt al-Qaeda hefði verið komið í tilraunum sínum til að komast yfir geislasprengju eða hvort fyrirhugað hefði verið að beita henni í Bandaríkjunum. „Ómetanlegur fengur“ Fréttir um þetta komu fyrst á sjónvarpsstöðvunum CBS og NBC og staðfesta enn betur en áður, að Zubaydah, sem er Palestínumaður, hefur ákveðið að hafa samstarf við Bandaríkja- menn. Hann slasaðist alvar- lega þegar hann var handtekinn í Faisalabad í Pakistan 27. mars ásamt öðr- um al-Qaeda- mönnum en hef- ur nú náð sér að mestu. Banda- ríkjamenn segja, að hann sé „ómetanlegur fengur“, enda var hann meðal æðstu manna hryðju- verkasamtakanna. Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að upplýsingarnar frá Zub- aydah sýndu, að ekki væri of mikið gert úr hættunni, sem stafaði af hryðjuverkamönnum og ríkjum, sem virtu einskis alþjóðalög. Stríð- ið gegn hryðjuverkum væri þýð- ingarmeira en nokkru sinni fyrr og þar mætti andvaraleysið ekki taka völdin. „Það þarf því miður ekki mikið ímyndunarafl til að átta sig á, að víða um heim leynast menn, sem eru tilbúnir til að myrða þús- undir saklausra manna,“ sagði Rumsfeld á fréttamannafundi að loknum fundi með Jerzy Szmajdz- inski, varnarmálaráðherra Pól- lands, í Washington. Al-Qaeda vildi komast yfir geislasprengju Washington. AFP. Donald Rumsfeld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.