Morgunblaðið - 24.04.2002, Side 52
DAGBÓK
52 MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Dep-
endia Cec Copenhagen,
Discovery og Brúarfoss
koma í dag. Goðafoss,
Arina Arctica og
Brúarfoss koma og fara
í dag. Margrét, Ás-
björn, og Skeiðfaxi
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Högifossur kom í gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551 4349, opin alla
miðvikud. kl. 14–17,
flóamarkaður, fataútlut-
un og fatamóttaka sími
552 5277 eru opin ann-
an og fjórða hvern
miðvikud. kl. 14–17.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað í síma Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800 4040 kl. 15–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa og
postulínsmálning.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl.
13 spilað, kl. 13–16.30
opin smíðastofan. Allar
uppl. í s. 535 2700.
Sumarfagnaður síðasta
vetrardag 24. apríl
dansleikur frá kl.
20.30–kl. 11.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 10
banki, kl. 13 spiladagur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga föstudaga kl. 11.
Kóræfingar hjá Vor-
boðum, kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Uppl. hjá Svanhildi s.
586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslu- og handa-
vinnustofur opnar, kl.
10–10.45 leikfimi, kl.
14.30 banki.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18. Bingó í Gull-
smára 13, föstud. 26.
apríl kl 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska, byrj-
endur.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Línu-
dans kl. 11, myndlist og
glerskurður kl. 13, pílu-
kast kl 13.30. Dans-
leikur í kvöld. „Síðasta
vetrardag“ kl. 20.30,
Caprí Tríó leikur fyrir
dansi. Morgungangan
hefst laugardagin 27.
apríl , farið frá Hraun-
seli kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Kaffi, blöðin
og matur í hádegi.
Miðvikud: Göngu-
Hrólfar fara í göngu
frá Ásgarði Glæsibæ kl.
10. Söngfélag FEB kór-
æfing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15.
Fimmtud: Brids kl. 13.
Söguslóðir á Snæfells-
nesi og þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull 3 daga
ferð 6.–8. maí, gisting á
Snjófelli á Arnarstapa,
farið verður á Snæfells-
jökul, leiðsögn Valgarð
Runólfsson. Skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Baldvin Tryggvason
verður til viðtals mið-
vikud. 8. maí um fjár-
mál og leiðbeiningar
um þau mál á skrifstofu
FEB panta þarf tíma.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12 s. 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt í
Faxafen 12 sama síma-
númer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, postulín, mósaík
og gifsafsteypur, kl. 9–
13 hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun. Opið alla sunnu-
daga frá kl. 14–16 blöð-
in og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn.
Föstudaginn 26. apríl
opnar Hugi Jóhann-
esson myndlistarsýn-
ingu kl. 16, m.a. syngur
Gerðubergskórinn, allir
velkomnir. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10 handavinna, kl.
10. boccia, kl. 11 hæg
leikfimi, kl. 13 fé-
lagsvist FEBK og gler-
list, kl. 15–16 viðtals-
tími FEBK, kl. 16
hringdansar, kl. 17
bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–
17 hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, föndur-
klippimyndir, kl. 9 og
kl. 10 jóga, kl. 14 dans,
kl. 15 frjáls dans, kl. 15
teiknun og málun.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Leikhúsferð föstudag-
inn 5. maí verður farið
að sjá Kryddlegin
hjörtu í Borgarleikhús-
inu. Skráning á skrif-
stofunni og í s. 588 9335
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun
fimmtudag 25. apríl kl.
10 í keilu í Mjódd. Spil-
uð verður keila, spjall-
að og heitt er á könn-
unni. Allir velkomnir.
Upplýsingar veitir Þrá-
inn Hafsteinsson í síma
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerðir,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10 sögustund, kl. 13
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun. Fé-
lagsstarfið er opið öll-
um aldurshópum, allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 postulínsmálun
og myndmennt, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður. Rúta
fer frá Vesturgötu 7 kl.
12:15 á miðvikudögum í
Bónus í Holtagörðum.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 10 fóta-
aðgerðir, morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 12.30 versl-
unarferð, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 15.30
kóræfing.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Félagsvist kl. 19.30.
Aðalfundur Sjálfs-
bjargar félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu
verður laugard. 27.
apríl kl. 14 í félags-
heimilinu, Hátúni 12.
Venjuleg aðalfund-
arstörf og lagabreyt-
ingar
Bústaðakirkja, starf
aldraðra.Kl. 13–16.30
spilað, föndrað,
helgistund og gáta.
Vetur kvaddur.
Þið sem viljið láta
sækja ykkur látið skrá
ykkur hjá kirkjuverði í
s. 553 8500 eða Sigrúnu
í s. 864 1448
Barðstrendingafélagið
Félagsvist í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, kl.
20.30 í kvöld. Allir vel-
komnir.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi. Á vegum
nefndarinn verða farn-
ar tvær ferðir á þessu
sumri að Kirkjubæj-
arklaustri 13.–15. júní, í
Skagafjörð 22.–24.
ágúst. Hvíldar- og
hressingardvöl að
Laugarvatni 24.–30.
júní. Þær konur sem
ekki hafa notið orlofs
síðastliðin 2–3 ár ganga
fyrir um rými. Innr í s.
554 0388 Ólöf , s.
554 2199 Birna frá 18.
apríl–10. maí.
Í dag er miðvikudagur 24. apríl,
115. dagur ársins 2002. Sumardag-
urinn fyrsti. Orð dagsins: Sumir
miðla öðrum mildilega, og eignast æ
meira, aðrir halda í meira en rétt er,
og verða þó fátækari.
(Orðskv. 11, 24.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sauður, 8 ónar, 9 tungu-
mál, 10 litla tunnu, 11
hljóðfæri, 13 peningar,
15 foraðs, 18 Lappar, 21
glöð, 22 eyja, 23 nytja-
lönd, 24 konungur.
LÓÐRÉTT:
2 múlinn, 3 tilbiðja, 4
gista, 5 alda, 6 íþrótta-
grein, 7 at, 12 herflokk-
ur, 14 dveljast, 15 slapp-
leiki, 16 geri ama, 17 í ætt
við, 18 á skipi, 19 drápu,
20 lélegt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bylja, 4 hirta, 7 tugur, 8 andú, 9 sæl, 11 ræði,
13 barr, 14 lokka, 15 skil, 17 króm, 20 err, 22 ræddi, 23
ísing, 24 koðna, 25 totta.
Lóðrétt: 1 bútur, 2 lógað, 3 aurs, 4 hjal, 5 rudda, 6 arður,
10 æskir, 12 ill, 13 bak, 15 strák, 16 ildið, 18 reist, 19
mögla, 20 eima, 21 ríkt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
EFLAUST hefur það komið fyrirfleiri en Víkverja að finna ekki
gleraugun þegar mikið liggur við.
Þegar á að æða út og tíminn orðinn
naumur eða þegar ætlunin er að
horfa á eitthvað merkilegt í sjónvarp-
inu. Þá rífur maður í það sem eftir er
af hárinu og skilur ekkert í því hvar
gleraugun geti verið.
Annars hefur Víkverji mikla reglu
á þessum hlutum. Yfirleitt. Gleraug-
un eiga nefnilega vísan samastað (og
farsíminn líka) sem þau rata á þegar
heim er komið. Hann þarf sem sagt
ekki gleraugna við nema til að sjá al-
mennilega það sem er í meira en fjög-
urra metra fjarlægð. Þess vegna not-
ar hann þau ekki innan dyra enda
ekki svo miklar fjarlægðir innan
veggja heimilisins og á vinnustaðnum
ratar hann líka nokkuð vel án þeirra.
Hann þekkir líka samstarfsfólkið á
lengra færi en fjórum metrum svo
gleraugun fá að hvíla í friði hér á rit-
stjórninni. Þar eru gleraugun líka á
vísum stað á skrifborðinu sem er
heldur ekki svo stórt að hægt sé að
týna hlutunum þar. (Að vísu fann
Víkverji þar nýverið nokkrar myndir
sem hann var næstum búinn að af-
skrifa fyrir löngu. Þær fundust þegar
Víkverji fór yfir óreiðukerfi sitt (sem
er talsverð regla á þótt hann segi
sjálfur frá) enda voru þær komnar í
sambúð með öðru óskyldu dóti sem
fengið hafði að liggja óhreyft lengi.
Það sýnir að kannski er ágætt að fara
yfir dótið öðru hverju bara til að rifja
upp kerfið.)
x x x
FYRIR nokkru varð Víkverji fyrirþessum óþægindum að finna
ekki gleraugun þegar halda átti að
heiman einn morguninn. Svo vildi
raunar til að þá lá ekkert á en kominn
í yfirhöfn og með bíllykilinn í hönd
fannst Víkverja eitthvað vanta. Það
voru gleraugun. Þau voru ekki á sín-
um stað í holinu. Þá var að athuga ná-
grenni sjónvarpsins þar sem þau
gætu hafa orðið eftir frá kvöldinu áð-
ur. Ekki þar heldur. Víkverji fór
nokkra hringi um íbúðina og leit á hin
og þessi borð og hillur þar sem þau
gætu hafa lent. En alls staðar var
gripið í tómt. Nú voru góð ráð dýr.
Enginn annar heima við til að fá að-
stoð við leitina. Ekki var hægt að
hringja í gleraugun eins og farsímann
þegar maður týnir honum og renna
síðan á hljóðið. Sá Víkverji í hendi sér
að gleraugu verða náttúrlega að hafa
þessa eiginleika farsímans. Þetta er
hins vegar algjörlega nauðsynlegt
okkur sem týnum og gleymum.
Önnur aðferð við að passa gler-
augun er auðvitað að skella á þau
bandi og láta þau hanga um hálsinn
daga og nætur. Enn önnur leið væri
að nota linsur en það hefur Víkverji
ekki lagt í.
x x x
EN til að ljúka sögunni af gler-augnaleitinni er rétt að taka
fram að þau fundust vitanlega að lok-
um. Eftir kannski 5 til 10 mínútna leit
og hringsnúning. Á borðstofuborð-
inu. Þeim hafði bara verið skellt þar
niður smá stund. Síðan höfðu þau
lagst undir hrúgu af þvotti sem verið
var að sýsla við. Þá voru þau nátt-
úrlega ekki sýnileg lengur svo allt á
sér sínar skýringar.
En Víkverji beinir því til tækni-
sinnaðra gleraugnahönnuða að þeir
komi fyrir svona neyðarhringibúnaði
í nútíma gleraugum. Hann getur
varla verið svo þungur.
Ekki sammála
JÓHANNES hafði sam-
band við Velvakanda og
sagðist hann ekki sammála
Víkverja sem skrifar í
Morgunblaðið föstudaginn
19. apríl um fæðingarorlof
feðra. Segir hann að þetta
sé ekki auðvelt mál hjá
smærri fyrirtækjum. Það
geti reynst erfitt að starfs-
menn fari í fæðingarorlof
þar sem fáir starfsmenn
séu. Þar sem hann vinnur
eru tveir starfsmenn og
væri það mikið mál að
þjálfa upp nýjan mann til
að leysa þann af sem færi í
fæðingarorlof.
Góður staður
– léleg þjónusta
ÉG kem oft á kaffihúsið
Súfistann. Mér líkar vel við
staðinn og stunda hann
mikið því þangað er gott að
koma, róleg og góð tónlist,
góður matur og fyrst og
fremst er þetta reyklaus
staður.
En það er einn hængur á
staðnum, þ.e. starfsfólkið í
hádeginu tekur illa á móti
fólki, er fýlulegt og með
leiðinlega framkomu.
171050-3329.
Að senda færslurnar
ÉG versla í Bónus vegna
þess að þar er einfaldlega
ódýrara að versla. Þó kem-
ur fyrir að ég neyðist til að
versla í hverfisbúðinni. Ég
bý í vesturbæ Kópavogs og
þar er verslun sem kallast
því skemmtilega nafni
Strax. Verslunin ber ekki
nafn með rentu. Ég hef tví-
vegis á stuttum tíma farið
yfir á reikningnum mínum
vegna þess að Posinn
þeirra sendir ekki færsl-
urnar samdægurs. Sem
sagt í þessi tvö skipti hef ég
þurft að greiða aukalega
kr. 2x725 sem bankinn
minn tekur í kostnað. Dýr
verslun þar!!!! 30. mars
keypti ég fyrirt.d. 2.822,-
krónur og sú færsla er enn
á leiðinni! Hún bókaðist
allavega ekki strax. Hér
með skora ég á verslunar-
stjórann að sjá til þess að
starfsfólkið sendi færslurn-
ar eftir hvern dag.
Húsmóðir í
vesturbænum.
Safnar frímerkjum
VELVAKANDA hefur
borist bréf frá Peter í
Þýskalandi. Peter safnar
frímerkjum og póstkortum
og hefur hann mikinn
áhuga á að eignast notuð ís-
lensk frímerki. Þeir sem
gætu aðstoðað Peter vin-
samlega sendið frímerki til:
Peter Schöne,
Ricarda-Huch-Str. 5,
D-18106 Rostock,
Germany.
Þakklæti fyrir skilvísi
FIMMTUD. 11. apríl s.l.
missti ég veskið mitt á göt-
una f. framan bókabúð
Máls og menningar í Síðu-
múlanum. Einhver heiðar-
leg manneskja fann það og
skilaði því í afgreiðslu
verslunarinnar. Færi ég
henni margfaldar þakkir
fyrir.
Sesselja Guðmunds-
dóttir, kt. 301147-4229.
Tapað/fundið
Sundbakpoki týndist
SUNDBAKPOKI blár og
grár týndist við Vesturbæj-
arlaug eða á Hofsvallagötu.
Finnandi vinsamlega látið
vita af honum gegn fund-
arlaunum á Sólvallagötu
14, sími 552 6604. Jón.
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR flaug inn í
bílskúr í Skriðustekk 3,
Neðra-Breiðholti. Þeir sem
sakna páfagauks geta haft
samband í síma 557-4381.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Nauthólsvík