Vísir - 09.07.1980, Blaðsíða 22

Vísir - 09.07.1980, Blaðsíða 22
vlsm Mibvikudagur 9. júli 1980 „Hún er svo sérstök „sveiflan” hjá örvari”. örvar Kristjánsson meö nikkuna. „Byriaöi 9 ára að Denja níkkuna” Hijómplata með Orvarí Krlstjánssyni, har- monikkuleikara væntanleg „Ég er sjálfmenntaður harmonikkuleikari, byrjaði að þenja nikkuna 9 ára gamall og 14 ára var ég farinn að spila fyrir dansi á Hornafirði”, sagði örvar Kristjánsson, harmonikkuleikari i samtali við Visi. A næstunni kemur fjórða hljómplatan með leik örvars á markaðinn. Veröur hún meö liku sniöi og sú siöasta. A plöt- unni veröa gömul og ný lög, m.a. frumsamin lög eftir örvar sjálfan og Pálma Stefánsson, framkvæmdastjóra Tónaútgáf- unnar. Og Pálmi er ekki alveg nýr i „bransanum”, þvi hann stjórnaöi hinni vinsælu hljóm- sveit Póló á sinum tima. örvar þenur nikkuna á plöt- unni og syngur meö, en honum tilaöstoöar eru Grimur Sigurös- son.sem leikur á gitar og bassa, Kristján Guömundsson á pianó og Július Fossberg á trommur. Hljóöriti sá um upptökuna. „Þetta veröur góö plata”, sagöi Pálmi, „sennilega sú besta sem örvar hefur sent frá sér. Fyrri plötum hans var vel tekið, sérstaklega þeirri siö- ustu”. ,,A hann þá ekki inni hjá þér gullplötu”, skaut Steindór G. Steindórsson, kvikmyndatöku- maður, þá inn i samtaliö. „Nei, en það munaði þó litlu aö hann næði þvi marki”, svar- aði Pálmi. „Eigum viö þá ekki aö stefna i gullplötu núna”, sagöi örvar. Örvar er fæddur og uppalinn á Hornafiröi, en hefur komiö viö- ar viö. t fjögur ár var hann 1 Reykjavik og nam bifvélavirkj- un og þandi nikkuna þess á milli. Þaðan lá leiðin til Akur- eyrar og þar bjó örvar i rúm- lega 10 ár. Þar vakti hann strax athygli á sér meö harmonikku- leik og starfrækti lengst af eigin hljómsveit. Létu noröanmenn vel af þvi aö stiga dansinn viö undirleik hljómsveita hans, sögöu aö sveiflan i nikkunni hjá örvari væri svo einstök. En nýt- ur nikkan vinsælda? „Þegar ég var aö byrja aö spila á böllum 14 ára gamall var ég oftast einn, þaö var hátiö ef ég haföi trymbil meö mér”, sagöi örvar. „Þá var nikkan allsráöandi, en slöan lenti hún i öldudal, þótti gamaldags. Þó áttihún alltaf trygga aödáendur og undanfariö hefur sá hópur stækkaö, ekki sist meðal unga fólksins”, sagöi örvar i lok samtaisins. G.S. "v'ið", Tííú ðliiif ök Kup" 1 eins og atvinnumenn”! Spjaliað við Krístján Hjartarson. lormann Leikfélags Dalvíkur Leikarar Leikfélags Dalvíkur i Saumastofunni. „Kristján Hjartarson, vinnur hann hér?” „Já, ég er hann”, svaraði ungur maöur með brúskandi hár og ræktarlegt skegg, þar sem hann var að slá upp fyrir einbýlishúsi á Daivik á dög- unum. „Þú ert formaöur Leikfélags Dalvikur, ekki satt”? „Jú, siðan á aðalfundinum I gærkvöldi”. „Ég er blaðamaður hjá VIsi, ert þú ekki til með að segja les- endum eitt og annað um ykkar hagi?” „Jú, alveg sjálfsagt”. Það kom fram i spjallinu viö Kristján, aö starfsemi Leikfé- lags Dalvikur hefur verið llfleg að undanförnu. Saumastofan var sýnd á fyrra leikari og sýn- ingar teknar upp aö nýju s.l. haust. Siöan sýndi félagið Gisl i Kristján Hjartarson, formaöur Leikféiags Dalvikur. uppsetningu Sólveigar Hall- dórsdóttur og einnig var frum- sýndur léttur farsi, „Landa- brugg og ást”. A s.l. leikári var félagiö þvi meö þrjú verk i tak- inu. Allt var unniö af áhuga og launin voru ánægjan. „Viö vorum óneitanlega svo- litiö montin af þessu, enda 30 manna liö sem haföi nóg aö gera I kring um sýningarnar. Viö „fíluöum” okkur þvi rétt eins og atvinnumenn I listinni”, sagði Kristján. Félaginu hefur veriö boðið aö taka þátt i móti áhugaleikfélaga frá Noröurlöndunum, sem haldiö veröur i Viborg i Dan- mörku i sumar. „Viö höfum tekið boðinu og erum ákveöin i aö fara”, sagði Kristján. „Spurningin er hvaða verk við förum meö, hvort viö æfum Saumastofuna upp aftur, eða setjum upp nýtt verk meö það fyrir augum aö sýna þaö hér heima i haust”. „Er mikill áhugi á Dalvík til aðstarfa meöykkur og til að sjá ykkur”. „Já, það er vaxandi áhugi”, svaraði Kristján. „Nýtt fólk hefur komið til starfa og er þar ungt fólk i meirihluta. Þetta er erfitt oft á tiöum, sérstaklega vegna þess að aöstaöan er ekki allt of góö. En meö áhuganum hefur okkur tekist aö kljúfa alla slika erfiöleika til þessa”. „Við höfum heldur ekki þurft að kvarta yfir undirtektum heimamanna. Aðsókn hefur verið góö og almenningur virð- ist spenntur fyrir þvi sem viö erum að gera. Þess vegna finn- um við að ekki er unnið fyrir blindum augum”, sagði Kristján i lok samtalsins. Alltaf sama fjörið í Sjalianum siguröur Sigurösson er hagvanur i Sjálfstæöis hdsinu „Sjallastemmingin er alltaf sú sama og aö sögn fólksins fær- ist hún heldur I aukana”, sagöi Siguröur Sigurösson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæöishúss- ins á Akureyri, I spjalli viö VIsi fyrir helgina. Sigurður tók viö fram- kvæmdastjórn hússins 1. mai sl. Hann er þó enginn nýgræðingur á staönum þeim, þaö liggur nefnilega nærri aö hann hafi veriö alinn þar upp. Foreldrar hans, þau Siguröur Sigurösson og Stefanla Þorbergsdóttir, stóöunefnilegaað rekstri Sjall- ans um árabil. Þau reka nú Glæsibæ I Reykjavik. Siguröur sagöi ýmislegt á döf- inni I Sjallanum á næstunni. A efstu hæöinni er diskótek og þar er breskur plötusnúöur, Brian Estcourt, sestur viö aö snúa fón- inn. Er þaö fyrsti árangurinn af samstarfi sem Sjálfstæöishúsið hefur tekiö upp viö Hollywood. Um næstu helgi leikur hljóm- sveit Finns Eydal fyrir dansi á miöhæðinni. Siöan koma Gaut- arnir frá Siglufiröi og fleiri hljóinsveitir, en um verslunar- mannaiielgina veröa Raggi Bjarna og félagar á ferðinni meö sumargleöina. Þennan mánuö veröur Sjall- inn opin öllkvöld vikunnar tilkl. 1 e.m. A föstudögum er opiö til 2 og á laugardögum til 3 e.m. Sagöi Sigurður aösóknina hafa veriö góöa aö undanförnu og væri hún alltaf aö aukast eftir nokkra lægö. A laugardags- kvöldum væri oftast uppselt, enda koma þá margir i mat og fólk passaöi sig á aö koma tim- anlega til aö komast hjá biöröö, eöa komast alls ekki inn. G.S. Mannlif Myndir og texti: Gfsli Sigur- geirsson, blaöa- maður

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.