Vísir - 09.07.1980, Blaðsíða 23

Vísir - 09.07.1980, Blaðsíða 23
Umsjtín: Kristln Þorsteinsdtíttir, | vtsm MiOvikudagur 9. júli 1980 Útvarpið (flag ki. 17.20: þáttarins veröur flutt byrjun leik- ritsins „Dýrin i Hálsaskógi” eftir Torbjðrn Egner. —AB. i þættinum „HvaO er aO frétta?” verOur m.a.fjallaO um þátttöku islendinga I Olympluleikunum I Moskvu. lítvarp kl. 20.00: Hvað er að frétta? Nýr Þáttur lyrír ungt fólk I kvöld hefur göngu sina, þáttur sem nefnist HvaO er aö frétta? Umsjónarmenn þáttarins eru Bjarni P. Magnússon og Ólafur Jóhannsson. Þátturinn, sem veröur vikulega á dagskrá út- varpsins, er frétta-og forvitnis- þáttur fyrir og um ungt fólk. Munu umsjónarmenn hans skýra efni, sem er I fréttum á hverjum tima. 1 þessum fyrsta þætti veröur fjallaö um Ólympiuleikana i Moskvu og veröur talaö viö Svein Björnsson forseta ISI og frjáls- iþróttamanninn kunna Agúst Asgeirsson, en þeir eru sem kunnugt er á öndveröum meiöi um réttmæti þátttöku tslendinga i leikunum. Þá veröur í þættinum talaö viö tvo fulltrúa úr tslensku andófs- nefndinni, þau Ingu Jónu Þóröar- dóttur og Hannes H. Gissurason sagnfræöing, um andófsmenn og bókina „Frelsisbaráttan I Ráö- stjórnarrlkjunum”, sem nýlega kom út, einnig munu þau Inga Jóna og Hannes segja álit sitt á þátttöku íslendinga i leikunum i Moskvu. MYSLA TlSLA Efniö i litla barnatimanum i dag er ýmis fróöleikur um mýs. Sigrún Björg Ingþórsdóttir stjórnandi þáttarins, tjáöi okkur aö þátturinn byrjaöi á lýsingu á músum, útliti þeirra og lifnaöar- háttum. Þá veröur einnig sagt frá tveimur tegundum músa á íslandi, hagamúsum og húsa- músum. Þá mun Oddfriöur Stein- þórsdóttir lesa söguna „Músa- feröin” I þýöingu Freysteins Gunnarssonar. Einnig verður lesin sagan „Ljóniö og músin” úr bókinni Ungi litli. Siöan veröur lesiö ljóö um mýs eftir Valdimar V. Snævar. 1 þættinum veröa einnig spiluö lög um mýs og I lok t litla barnatimanum Idag veröur sagtfrá músum. —AB. utvarp Miðvikudagur 9. júlí 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 14.30 Miödegissagan: 15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Slödegistónleikar. 17.20 Litli barnatfminn. Sigrún Björg Ingþórsdóttir stjórnar. Fluttar veröa sögur og ljóö um mýs. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Gestur I útvarpssal: Machiko Sakurai leikur plantíverk eftir Bach a. Svitu I e-moll, b. Prelúdiu og fúgu I g-moll. 20.00 Hvaö er aö frétta? Bjarni P. Magnússon og ölafur Jóhannsson stjórna frétta- og forvitnisþætti fyrir og um ungt fólk. 20.30 „Misræmur”, 21.10 „Hreyfing hinna reiöu”. Þáttur um baráttu fyrir um- bótum á sviöi geöheil- brigöismála i Danmörku. Umsjón: Andrés Ragnars- son, Baldvin Steindórsson og Sigriöar Lóa Jónsdóttir. 21.45 Utvarpssagan: „Fugla- fit” eftir Kurt Vonnegut. Hlynur Arnáson þýddi. Anna Guömundsdóttir les (15). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Kjarni máisins.Eru vis- indi og menning andstæöur? Ernir Snorrason ræöir viö Brynju Benediktsdóttur leikstjóra og Valgarö Egils- son lækni. Stjórnandi þáttarins: Sigmar B. Hauksson. 23.20 Frá listahátfö I Reykja- vlk 1980. Siöari hluti gitar- tónleika Göran Söllschers i Hásktílabiói 5. f.m. Kynnir: Baldur Pálmason. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Genglsfelllng fyrlr mynlhreyilngu Rikisstjórnin á i erfiöleikum. Svo hefur veriö alveg sérstak- lega um allar rikisstjórnir frá því á árinu 1971. Sviptingar, leyndar og ljósar, innan stjórn- málaflokkanna, hafa ekki gert auöveldara aö stjórna landinu, en atkvæöaveiöar þeirra hafa fyrst og fremst miöast viö aö þjóna undir rifrildismenn i launþegahreyfingunni, sem róa að þvl öllum árum aö gera Al- þýöubandalagiö aö helsta flokki landsins, og þá um leiö aö helsta loforöasvikara flokkanna, vegna þess aö auövitaö getur Alþýöubandalagiö aldrei staöiö viö neitt af þvi sem þaö segir frekar en aörir flokkar. Sjálf- stæöisflokkurinn er mestmegnis skelfingu lostinn, og þorir ekki annað en hafa hægt um sig, enda er pólitik hans jafnharöan rekin heim til fööurhúsanna af harðvitugum andstæöingum á vinstri væng. Framsóknar- flokkurinn gengur villur vegar viö hliö Alþýöubandalagsins, og heidur aö vöxtur og viögangur frjálslyndisstefnu sé aö biöla til kommúnista um stuöning meö þeim afleiöingum aö fylgi hans streymir út úr honum til vinstri, þótt I einum kosningum takist meö loforöi um vinstri stjórn aö ná einhverju aftur af þvi fylgi, sem hélt aö þaö væri búiö aö yfirgefa Framsókn fyrir fullt og allt. Alþýöuflokkurinn hefur oröiö fyrir einu mesta stjörnu- hrapi Islenskra stjórnmála, og hefur i annaö sinn á skömmum tima verið lagöur til hliðar. Eini flokkurinn sem blaktir um þess- ar mundir er Alþýðubandalagiö, enda háværast, jafnvel þegar þaö þarf aö ganga á bak allra sinna oröa eins og núna. Vinstri stjórnin, sem Fram- sókn lofaði fyrir kosningar, hef- ur ráöiö málum um sinn. Þar eru þeir Alþýöubandalagsmenn valda og athafnamestir, svo sem vera ber. Launþegar I land- inu fá þessa dagana aö vita hvaö vinstri stjórn þýöir. Hér er kom- in atvinnukreppa, sem enginn sér fyrir endann á, og ber auövit aö aö þakka hana þeim flokki, sem hefur tekiö aö sér alla for- sjá landsmanna, AÍþýöubanda- laginu. Engum kommúnista dettur I hug aö halda aö hinir samstarfsflokkarnir tveir fái nokkru ráöiö I ríkisstjórninni. Þeir una svo viö þaö I Þjóövilj- anum meöan launþegum blæöir út Iatvinnukreppu kommúnista, aö maökur og maðkur kunni aö falla á sofandi farandverka- menn I Vestmannaeyjum. Þar skal þó haldiö uppi einhverju röfli um vondan aðbúnaö, þótt ekki sé minnst á kjarabætur eöa refsiaögeröir vegna þess hve seint gengur aö hækka launin. Rlkisstjórnin ætlar aö sjá til hvort hún getur ekki meö tilstilli kommúnista I launþegahreyf- ingunni, fengiö launamenn til aö hatda kjafti fram undir jól. Launamenn hafa veriö aidir upp viö sllkar forgjafir og treysta engum fyrir buddu sinni nema kommúnistum. Þegar þeir segja aö launahækkanir veröi aö blöa, hiýöa launþegar vegna þess aö þeim hefur veriö kennt aö trúa þvl, aö kommúnistar séu vinir þeirra, sem einir séu færir um aö veita þeim forsjá. Þaö kemur ekki tii mála fyrir laun- þega aö hugsa sjálfstætt þegar kommúnistar eru I rikisstjórn. t desember gefst svo timi til aö fella gengiö um svona fimm- tiu prósent. Sú gengisfelling kemur raunar hvergi fram, vegna þess aö myntbreytingin gengur I garö nokkrum dögum siðar. Viö þaö veröur sllk rösk- un á gjaldmiölinum, aö fimmtiu prósent gengisfelling skiptir engu máli. Þaö er einmitt slik gengisfelling sem kommúnistar geta samþykkt, af þvi þá er hægt aö ljúga þvi aö almenningi aö hún hafi horfið viö mynt- breytinguna. Og launþegar munu halda áfram aö trúa rauð- liðum fyrir hagsmunum sinum. Sumariö I sumar veröur bara einn af vondu draumunum, þeg- ar guðirnir brugöust jafnt i BSRB, meöal háskólamennt- aöra og I Verkamannasam- bandinu. Gengisfelling I desem- ber á svo aö koma I staðinn fyrir óheyrilega birgöasöfnun á freö- fiski, sem viö lifum ekki á leng- ur, heldur útreikningi tengdum honum. Svarthöföi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.