Vísir - 11.07.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 11.07.1980, Blaðsíða 8
8 VÍSIR Föstudagur 11. júli 1980. utgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Davfö GuSmundsson. " Ritstjórar: ólafur Ragnarsson og Ellert B. Schram. - Ritstjórnarfulltrúár: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Friða Astvaldsdóttir, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Kristin Porsteinsdóttlr, Magdalena Schram, Páll Magnusson, Sigurjón Valdimarsson, Sæmundur Guðvlnsson, Þórunn J. Hafstein. Blaðamaður á Akureyri: Gfsli Sigur- gelrsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson, Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson og Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14 simi 86611 7 linur. Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Askriftargjald er kr.5000 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 250 krónur ein- takið. Visirer prentaöur i Blaðaprenti h.f. Siðumúla 14. Verðbólgan stjórnar isiandl Verftbólgan hefur gert okkur vonlaus og andlaus. Vonleysift stafar af vanmætti stjórn- málamanna og andleysið er afleiðing margþvældrar efnahagsumræðu. Mikið lifandi skelfing er hægt að ímynda sér að fólk sé orðið þreytt á síbyljunni um verðbólg- una og efnahagsöngþveitið. í heilan áratug hefur enginn stjórnmálamaður tekið svo til máls, að hann geri ekki verðbólg- una að umræðuefni. Ekkert blað er svo opnað, að þetta ei- lífðarvandamál sé ekki á dag- skrá. Hvergi heyrist um vanda- mál eða viðfangsefni, að verð- bólgan komi ekki þar við sögu. Lífið á Islandi er orðin ein verð- bólguhít og það er alveg sama hversu lengi eða mikið menn brjóta hana til mergjar: áfram heldur hún að dafna og blómstra. Ríkisstjórnir koma og fara, og hvort sem það er viðurkennt eða ekki, þá er það verðbólgan sem leggur þær að velli. Sérf ræðingar eru kallaðir til, ef nahagsstofnan- ir eru settar á laggirnar, stefnu- yfirlýsingar eru samþykktar, en allt kemur fyrir ekki, verðbólgan heldur sínu striki. Ákafar deilur fara fram um orsakir og afleiðingar. Er verð- bólgan orsök verðhækkana eða afleiðing? Er verðbólgan orsök kauphækkana eða af leiðing? Eru vaxtahækkanir orsök verðbólgu eða af leiðing? Kann einhver svar við þessum spurningum, eða ert þú, háttvirti lesandi ,upplýstur um hvað verðbólga raunverulega er? Og svo eru það vísitölurnar, byggingarvísitalan, framfærslu- visitalan og kaupgjaldsvísitalan og allar þær reiknikúnstir sem sérf ræðingar og stjórnmálamenn hafa uppi hver I kapp við annan, sem gefa þeim svo tilefni til að deila enn um hina einu sönnu nið- urstöðu. Ekki má hækka hitaveitugjöld- in í Reykjavík og nágrenni um tvo milljarða, þá hefur það tuttugu milljarða króna hækkun í för með sér á framfærsluvísitöl- una. Ekki má hækka fargjöldin hjá reykvískum strætisvögnum, því þáhækkarkaupiðfyrir norðan Og ekki má gleyma margfræg- um vísitölubrauðum og varast ber að hækka andrésar andar blöðin, því það kanna að raska vísitöluútreikníngum. Þær láta ekki að sér hæða verð- bóigan og vísitalan. Ekki er til sá maður á Islandi, sem ekki hef ur f urðað sig á þess- ari hringavitleysu og lýst stuðningi sínumviðað þjóðin brjótist út úr þessum vítahring. En allt situr við það sama. Við virðumstfastir I netinu, f jötraðir fþau álög, sem hafa gert þjóðina andlausa og vonlausa. Það var að vísu snjöll hugdetta hjá núverandi rikisstjórn að visa verðbólguvandanum til nefndar og vera má að þar hafi ráðið stjórnmálareynsla forsætis- ráðherra, sem hefur lært það á löngum þingmannsferli, að mörg málin má svæfa I nefndum. En þótt ráðherrann haf i níu líf I póli- tíkinni, þá hefur verðbólgan tíu líf I veruleikanum, og enn er hún á kreiki að því er best verður séð. Erlendir efnahagssérfræðing- ar hafa margsinnis lýst undrun sinni á því hvernig það megi vera að ein þjóð geti lifað við 50%. verðbólgu I heilan áratug, án þess að kollsteypa kreppu og upplausnareigisér stað. Áþessu eru ekki skýringar frekar en öðru, nema þá sú raunsanna lýs- ing að við búum i helsjúku þjóð- félagi, sem hefur ekki aðeins herleitt efnahag okkar heldur einnig hugarfar. Við skulum aðeins vona að enginn spyrji hvers vegna við kjósum okkur ríkisstjórnir og forseta, því það eru ekki þessir aðilar sem ríkja á Islandi. Það er verðbólgan sem ræður og stjórnar. Að kaupa bensln á útsölu er fyrir Islending aldeilis óhugsandi, allavega heima á ættjöröinni, þar sem hægri fóturinn er tvimælalaust dýrasturhinna fullorðinna á bif- reiðakstursaldri. Verðgildi fótarins lækkar til muna þegar ekið er um héruð frænda okkar, Svia. Hér er bensinið, gullið fljótandi, sett á útsölu um sumartimann. Astæð- an er aö öllum likindum sú að oliufélögin keppast um að ná I bensínpeninga Svianna, sem slá gjarnan undir nára blikkfáka sinna I sumarleyfinu. t nýlegri könnun sem gerö var kom I ljós að þeim Svium fer fjölgandi sem ætla aö eyða sumarleyfinu I heimalandinu I þess aö geysast til sólarlanda. Þetta er talið spara gjaldeyri sem nemur 300 milljónum sænskra (reikni núhversem vill yfir I Isl. krónur). Þessum sá- aurum munu sviarnir að öllum likindum eyða á eigin torfu og bæta þar með sinnar þjóðar hag. Þrátt fyrir þaö að bensinið sé á útsöluverði, þá býsnast Sviarnir yfir verðinu og þykir þaö nálgast 3 krónurnar með óhugnan’lejum hraða, en veröið er núna s.kr. 2.78 eða um það bil, allt eftir bensinstöðvum og I neöanmáls Bensín á útsölu Sigurður Jónsson skrifar frá Sviþjóð. þvl hvort viðskiptavinurinn er þjónustaöur eða ekki. Það leynir sér ekki áhyggjusvipur- inn á Svianum sem dælir þess- um dýra nauðsynjavökva á bll sinn þó svo um útsölu sé að ræða. Umferðin, sem ekið er út I með fullan tankinn, er á bata- vegi ef svo má að orði komast. Fram kemur að dauðaslysum hefur fækkað til muna og eru mun færri á fyrri hluta þessa árs, miðað við fyrri ár, þrátt fyrir aö bllum hafi fjölgað til muna. Þennan bata þakka Svlar auknum áróðri fyrir bættri um- ferðamenningu. Einnig er öryggisbeltaskyldan talin eiga sinn stóra þátt I umferðarbatan- um og reyndar fullyrt að ná megi betri árangur á þessu sviði með þvi að allir farþegar bllsins noti beltin. Aukin notkun al- menningsvagna á sinn þátt, en húnstafar m.a. af þvi að Svian- um finnst útsölubensinið dýrt. 1 fréttum hefur auk þess veriö iað að þvi aö I verkfallinu hafi menn komist að raun um að hægt var að f erðast á annan hátt en I einkabil. „Kjarnorkuvinnukraft vantar” Ekki veröur hjá kjarnorkunni komist þegar orkugjafar koma upp á yfirborðið. Staðan I sænska kjarnorkuheiminum er þannig að nú slást kjarorkuver- in um hæfan vinnukraft og ástandið er mjög alvarlegt. Það er nefnilega ekki hægt að gang- setja nýju orkuverin á réttum tima, sem leiðir af sér milljóna- tap. 1. júli var þá Ringhals 3. orkuveriö sett I gang en Ring- hals 4. tefst enn um sinn en i þvl orkuveri hafa fundist skemmdir sem valdið hafa miklu fjaöra- foki. Yfirmenn orkumála segja þó öllu óhætt með þetta orkuver, én eru áhyggjufullir yfir þvl hversu ungt fólkt er tregt til að leggja fyrir sig atvinnu innan kjarnorkuveranna. Blautasti júni i 100 ár Glöggir menn segja gjarnan að siðasta umræðuefni landans sé veðrið. Undanfarnar 3 vikur hefur hér I landi verið þétt- skýjað meö rigningu milli laga sina þjóðarskútu, það sýndi sjónvarpið fyrir skömmu þegar Mundebo ráðherra stökk fyrir borð og við tók flokksbróðir hans. Um orsakir og afleiðingar skal ósagt látiö en vist olli þetta þvl aö stormasamt var um- hverfis rikisstjórnina og meöal pólitikusa. Þó lögðu þeir ekki undir sig fjölmiðla llkt og starfsbræður þeirra Islenskir og skýfalli þar á ofan. Sum héruð Suöur-Sviþjóöar hafa orðið að þola þetta himnahrun dag eftir dag og nú i lok mánaðarins er svo komið að júni 80 er sá blautasti siðustu 100 árin, ekki litið það. Sumstaðar er ástandið svo slæmt að bændur barma sér gjarnan og er það helst um að ræða kartöflubændur sem ekki komast um akra sina til að taka upp jarðeplin. Þá hafa kjallarar húsa fyllst og vegum verið lokað vegna vatnagangs. Þrátt fyrir alla þessa bleytu vikum saman hafa menn ekki misst vonina um þurran og sólrikan júli. „Stormasamt á sænsku þjóðarskútunni” Svo sannarlega eiga Sviar með álika tilfelli og uppákomur. Auðvitað var gerð athugun sem sýndi aðPalme haföimeiri vind I sinum seglum en allir borgara- legu flokkarnir til samans og meirihluta var honum spáð ásamt kommúnistum (Vpk) væru kosningar á döfinni. „ísland vísar veginn” Já, kosningar. Hvernig fylgist stórbróðir Sviþjóð með þvi sem gerist hjá litlabróður íslandi? Sá sem brennur I skinninu eftir fréttum að heiman, af ekki ómerkari atburði en forseta- kosningum hann bölvar fjöl- miðlum og fer að efast um rétt- mæti þess að tala um frændur og bræöur þegar hinar Norður- landaþjóðirnar eru nefndar. Það þykir jú fréttnæmt ef landinn slæst við Bretann og gerir herskip hennar hátignar óvig I þorskastrlði eða ef ein- hverju eldfjallinu verður skyndilega óglatt — Hinn mann- legi þáttur er undanskilinn. — Það kitlar vissulega hégóma- girndina þegar hinn almenni Svii segir, eftir að kynni hafa tekist: „Mikið helviti var gaman hvað þið fóruð illa meö Bretann”. Það var ekki fyrr en tveim dögum fyrir kosningarnar að hinn almenni borgari I Sviþjóð var upplýstur um það að á Is- landi ætti að kjósa forseta. Sjón- varp og útvarp þögðu þunnu hljóöi og dagblöðin einnig. Fréttamatið er samt við sig, of- beldið hefur vinninginn, merki- legt út af fyrir sig. Hvað um það, vissulega vermdi það hjartaræturnar að sjá blessaða frambjóðendurna á sænskum skjá og heyra viðtal við okkar nýkjörna forseta sem sannar- lega stóð fyrir sinu eins og vera ber. Eitt dagblaðanna skartaði I opnu með mynd af Vigdisi Finnbogadóttur forseta og um- ræðuefni leiðarans var kjör hennar með vangaveltum um kvenréttindi og fordóma. Yfir- skriftin var: ísland visar veginn — ekki ónýtt það. Hughrifin sem þessir frétta- pistlar fjölmiðlanna ollu rifjuðu upp orð eins stórskálda okkar fyrir austan fjall er hann sagöi: „Það eru einhver trölla- og galdrabönd sem binda mann við landið, hingað vill maður alltaf aftur hvert svo sem maður þvælist”. Þessi orð aukast að innihaldi dvelji maður erlendis i hvild frá verðbólgunni. Þetta er vist köll- uö ættjarðarást á fifilbrekku- máli, en hvað um það, verðugt umhugsunarefni. Þegar dvalist er á erlendri grund i næði til að hugsa. Hver yrði annars ekki undrandi ef hann heyrði 16 ára júgóslavneskan ungling, uppal- inn i Sviþjóð, segja að Islend- ingar ættu að vera stoltasta þjóð heimsins og þar gæti hann vel hugsaö sér að eiga heima. S.J.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.