Vísir - 11.07.1980, Qupperneq 15
Föstudagur 11. jiill 1980.
19
HOFATAK
Gæðingakeppni I
Um tima hafa atvikin hagað
þvi svo aö þessir þættir hafa
falliö niður, þvi miöur. Nú hafa
aðstæður breyst aftur i þá veru,
að liklegt er að litlar eða engar
truflanir verði og vonandi tekst
að hafa þá vikulega eins og upp-
haflega var ætlað. Nú er stefnt
að þvi, að Hófatak verði fastur
þáttur i föstudagsblaði Visis og
svo verðum við bara að sjá hvað
Bleikur ber og vona það besta.
Svolítil saga
Siðast fjölluðum við litillega
um almennarútreiðar og þá var
á það minnst að þar væri besta
undirbúninginn að fá undir
hvers konar keppni. Við skulum
lita svolitið á gæðingakeppnina i
þessum þærri.
Gæðingakeppni á sér ekki
langa sögu á íslandi. Að sjálf-
sögðu hafa menn keppt á hest-
um sinum um aldir, þar sem
þeir hittust og metist á um hver
sæti besta gæðinginn. En form-
leg gæðingakeppni, með dóm-
nefnd og dómreglum verður
ekki til hér fyrr en á þessari öld,
og varla hægt að segja að veru-
legur skriður komist á slika
keppni, fyrr en með fyrsta
landsmótinu, sem háð var á
Þingvöllum árið 1950.
Gömul sjónarmiö
t fystu réö það sjónarmið að
finna alla kosti, sem i hestinum
bjuggu, hvort sem hann var
taminn til að nýta þá eða ekki.
Einnig var þá tekið tillit til
byggingar hestsins og þá var al-
gengt i reglum félaga að sá
hestur, sem sigraði mátti ekki
keppa aftur næsta ár og jafnvel
aldrei. Sennilega hefur legið að
baki sú hugmynd að búið væri
að leggja endanlegt mat á kosti
hestsins og það mundi ekki
breytast þótt hann kæmi aftur
til dóms. A þeim árum var
tamningu háttað mjög á annan
veg en nú er.
Reiðhesturinn var þá fyrst og
fremst samgöngutæki og tamn-
ingmiðaðistviöþað. Það verður
lika að segjast að þekking
manna á tamningum og þróaðri
reiðlist var þá almennt mjög
takmörkuð.
Nýjar hugmyndir
Það er ekki fyrr en um 1970 að
tekið er upp dómkerfi gæðinga,
Sigfinnur Pálsson á Skúm I keppni á siðasta landsmóti, þar sem
Skúmur var dæmdur bestur aihliða gæðinga.
Laus staða við Iðnskólann i Reykjavik:
Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Iðnskól-
ann I Reykjavík.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 20. júll.
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Staða lektors i munn- og kjálkaskurðlækningum I tannlækna-
deild Háskóla tslands er laus til umsóknar.
Staðan verður veitt til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu
um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil
sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavlk fyrir 10. ágúst 1980.
Menntamálaráðuneytið, 7. júli. 1980.
Matsveinn óskast
strax til sumarafleysinga
í mötuneyti Hafnarhússins.
Upplýsingar hjá
Reykjavíkurhöfn, sími 28211
Hópreið á hestamannamóti.
sem kallað hefur verið „Spjald-
dómar”. Að baki þvi lágu gjör-
breyttar hugmyndir um eðli
gæðingadóma. Þá var lögð á
hilluna hin sérfræðilega úttekt á
hvað i hestinum kann að búa, en
Istaðinn tekinn upp leikur, i ætt
við t.d. fimleikakeppni eða
danskeppni, þar sem dómarar
meta hver leikur best i dóm-
hring, án tillits til hver gæðing-
anna er gæddur bestum eðlis-
kostum. Auðvitaö eru mestar
likur á að það fari saman, að sá
sem býr yfir mestum kostum
leiki best. Það er þó engan veg-
inn öruggt og þar veldur tamn-
ing og hæfni knapa miklu.
Með tilkomu þessa sjónar-
miðs, má segja að reiðlistin hafi
verið viðurkennd sem iþrótt,
enda hafa geysimiklar framfar-
ir orðið á henni siðan. Þvi er þó
ekki að leyna, þessar hug-
myndir hafa mætt andstöðu
margra manna og enn i dag
finnast margir, sem eiga mjög
erfitt með að sætta sig við hið
breytta viðhorf.
Breytingar
Siðan spjaldadómakerfið var
tekið upp, hefur það legið undir
stöðugri gagnrýni og fyrir um
tveim árum voru gerðar á þvi
gagngerar breytingar. Og enn
er það I endurskoðun, og verður
svo vafalitið enn um sinn, enda
er mikill almennur áhugi á
keppninni og margir hafa til
málanna aö leggja.
Um þessar mundir eru eink-
um þrjár greinar dómanna til
endurskoðúnar. Tvær þeirra
miða að einföldun á dómstörf-
um og jafnframt að gera keppn-
ina skemmtilegri fyrir áhorf-
endur. Gera má ráð fyrir að þær
verði samþykktar án verulegra
umræðna, þar sem þær hafa
verið reyndar af hæfum mönn-
um og gefa góða raun. Hin
þriðja er öllu liklegri til að valda
miklum deilum. Þar er átt við
aðferðina til að dæma vilja og
mýkt hestsins.
Umdeild aðferð
Ýmsir telja útilokað að koma
nokkru raunhæfu mati
á þessa eiginleika með öðr-
um hætti en að fara á
bak hestinum og finna viðbrögð
hans. Þeir sem þessa skoöun
hafa fengu þvi framgengt að
sett var i reglur að sú aðferð
skyldi viðhöfð. Sá ókostur fylgir
þessari aðferð að hún er mjög
timafrek, og auk þess skapar
hún ýmis vandkvæöi við út-
reikning stiga. Aðrir, þar á
meðal flestir dómarar, telja að
nægilega öruggt sé að meta
þessa eiginleika með sjónskyni,
enda liggja fyrir kannanir sem
benda til að ekki sé marktækur
munur á einkunnum hesta sem
dæmdir hafa verið með báðum
aðferðum.
Hinir siðarnefndu vilja breyta
reglunum i samræmi við skoðun
sina, enda er það mjög til ein-
földunar á dómstörfum og skrif-
finnsku i sambandi við þau. En
hér er á ferð mál, sem nær til
tilfinninga margra, og þvi má
búast við átökum um það á
næsta ársþingi Landssambands
hestamanna.
SV
Texti og myndlr: Sigurjón Valdimarsson
Höfuóledur
Kr. 10.600.-
Sta/lmú/l
ekta /eður
Kr. 7.500.-
tygjum
Útilíf
Glæsibæ — Simi 82922.
Höfuð/eður
m/mú/
Kr. 18.800.-