Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 4
/Laugardagur 2. ágúst 1980. . v «•< 4 II /,Við stöndum á þessari stundu á þeim tímamót- um> aðnýr forseti Islands tekur við embætti. Sem einstaklingi verður mér fyrst að hugleiða það traust, sem mér hefur verið sýnt með kjöri mínu til mikils virðingar- embættis í íslensku sam- félagi, sem hefur verið nefnt sameiningartákn okkar allra", sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti Is- lands í upphaf i ræðu sinn- ar í þingsal Alþingis er hún hafði veitt kjörbréfi viðtöku. Athöfnin i gær er Vigdis Finn- bogadóttir tók viö embætti for- seta Islands hófst meö þvi aö kl. 15.15 komu saman á skrifstofu forseta Alþingis Vigdis Finn- bogadóttir, þá veröandi forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra Eldjárn, Björn Sveinbjörnsson forseti Hæsta- réttar, Gunnar Thoroddsen for- sætisráöherra, Jón Helgason forseti Sameinaös Alþingis, Sigurbjörn Einarsson biskup, Guömundur Benediktsson ráöu- neytisstjóri forsætisráöuneytis, Birgir Möller forsetaritari, Friöjón Sigurösson skrifstofu- stjóri Alþingis og Björn Helga- son hæstaréttarritari. Gengu þau þaöan til kirkju. Islenskur kirkjusöngur Islenskur kirkjusöngur hófst i Dómkirkjunni klukkan fimmtán en athöfnin I kirkjunni hófst tæpum tveimur stundarfjórö- ungum siöar. A meöan höföu prúöbúnir gestir streymt til kirkju, kjólfataklæddir fyrir- menn þjóöarinnar inn um suö- urdyr og aörir gestir um aöal- dyr vestanmegin. Til athafnar- innar haföi veriö boöiö ríkis- stjórn, dómendum Hæstaréttar, forsetum Alþingis og fulltrúum erlendra rikja, formönnum stjórnmálaflokkanna og þing- flokkanna, fulltrúum landssam- taka og stéttasamtaka, for- stööumönnum ýmissa stofnana og fulltrúum fjölmiöla. Auk þess var dómkirkjan opin öllum, sem þangaö vildu koma meðan rúm leyföi. Mikill mannfjöldi Strax uppúr klukkan 14.30 fór fólk aö safnast saman á Austur- velli og fyrir utan dómkirkjuna. Heitt var og mollulegt meöan athöfnin fór fram og nokkur væta. Mannfjöldinn fagnaöi Vigdisi er hún gekk til kirkju laust fyrir hálf fjögur meö inni- legu lófataki og kirkjugestir risu úr sætum viö komu hennar. „Mun hvorugan saka" 1 ræöu sinni viö embættistök- una lagöi hr. Sigurbjörn Einars- son biskup út frá oröum 4. kapitula Dómarabókar, „Fara mun ég, ef þú fer meö mér”, en þar segir frá konunni Debóru sem var eitt sinn höföingi fyrir þjóö sinni Israel. „Ekki er ég hér aö bera neitt saman”, sagöi biskup, „enga ósambærilega hluti, hvorki tima, þjóöir, menn né aöstæöur. En án alls sam- jafnaöar má rifja þetta upp, Debóra hét höföingi smárrar þjóöar og var kona. Sumir hér fræddust um þetta i barnaskóla. öörum kann aö koma þaö á óvart. Mun hvoruga saka, þótt nefnt sé”. Siöar i ræöu sinni sagöi biskup: „Islenska þjóöin hefur kjöriö sér forseta. Afangi í sögu lands- ins er framundan. Og meö niöurstööu þeirrar kosningar, sem afstaöin er, hefur þjóöin sagt viö þá konu, sem tekur viö forsetaembætti I dag: Fara vil ég meö þér. Þann veg, sem nú er framundan næst, vil ég fara meö þig i forsæti”. Og enn mælti biskup: „Forsetaskiptin eru aö þvi leyti sérleg timamót aö þessu sinni, aö þaö er kona, sem viö tekur. Þess skal hún hvorki njóta né gjalda. Hún er maöur. Sjálf hefur Vigdis Finnboga- dóttir réttilega minnt á þaö, aö islenska oröiö maöur tekur til beggja kynja jafnt. Mennsk vera er hvorki starfskraftur né önnur ónefna eöa ónáttúra, heldur blátt áfram maöur”. Lag eftir forsætisráð- herra Aö lokinni ræöu biskups var t ræöu sinni eftir undirskrift eiöstafsins minntist Vigdis Finnbogadóttir fyrirrennara sinna 1 starfi og Jóns Sigurössonar, sem „fyrstur naut þess heiöurs aö vera nefndur forseti af þjóö sinni”, eins og hún komst aö oröi. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands vid embættistökuna í gær: „Niðjar okkar ciga til- kall til aó vió séiim þeim til fyrirmyndar,, Vigdis Finnbogadóttir flytur fyrstu ræðu slna sem forseti tslands. Aö baki henni sitja handhafar for- setavaidsins. fluttur sálmurinn „Geföu aö móöurmáliö mitt” eftir Hallgrim Helgason viö tónlist Gunnars Thoroddsen forsætis- ráöherra. Þvi næst voru sungnir sálmarnir „Vist ertu Jesú kóng- ur klár” og „tsland ögrum skor- iö”. Aö kirkjuathöfninni lokinni fylgdu handhafar forsetavalds veröandi forseta úr kirkju I Alþingishúsiö og fagnaöi mann- fjöldinn Vigdisi ákaft á leiöinni milli húsanna. Fáar konur í hópi boðs- gesta. Nokkurn tima tók fyrir gesti aö koma sér fyrir I salarkynn- um Alþingis, þar haföi hverjum manni veriö skipaö sérstakt sæti og var áberandi hversu fá- ar konur voru í þessum hópi. Sætum haföi veriö skipaö í hálf- hring i salnum og sat Vigdis fyr- ir miöju meö handhafa forseta- valds, Gunnar Thoroddsen for- sætisráöherra, Björn Svein- björnsson forseta Hæstaréttar og Jón Helgason forseta Sameinaös Alþingis, fyrir aftan sig til hægri. Rikisstjórnin sat henni á hægri hönd svo og dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra og hr. Sigurbjörn Ein- arsson biskup. Vigdis verður forseti Er gestir höföu sest hóf Sig- riöur Ella Magnúsdóttir upp raust sfna og söng gamlan skólasöng frá Bessastööum, „Hliöin min friöa” en aö þvi búnu lýsti Björn Sveinbjörnsson forseti Hæstaréttar forsetakjöri og útgáfu kjörbréfs og mælti fram eiöstaf forseta Islands. Þessu næst undirskrifaöi Vigdis eiöstafinn I tviriti og Björn Helgason hæstaréttarritari, sem staöiö haföi fyrir aftan stól

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.