Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 11

Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 11
*V'i'>TVJ vtsm tLaugardagur 2. ágúst 1980. íréttagetioun krossgótan 1. „ Byggingin er gamall og ónýtur hjallur"/ var fyrirsögn á grein í mánu- dagsblaði Vísis. Um hvaða byggingu var verið að tala? 2. ölduselsskólinn í Breiðholti er orðinn of lít- ill fyrir allan nemenda- f jölda sinn, svo að senda verður 9. bekk í annan skóla. Hvaða skóli er það? 3. Bakkaselsbrekkan er löng og erfið brekka, en það er sjaldgæft að fólk sé sex tíma á leiðinni upp hana. Það gerðist samt í þessari viku. Hver var þar á ferð? 4. Á þriðjudag birti Vísir frétt um óvenjulegan at- burð, sem gerðist á Faxa- flóa á mánudag. Hvað var það sem gerðist þar? 5. Hvar verður næst keppt í ökuleikni '80? 6. Nýlega setti Akraborg nýtt met í flutningi á bíl- um á milli Akraness og Reykjavíkur á einum degi. Hvað flutti skipið marga bíla þennan eina dag? 7. Hvervarð sigurvegari i Rall-Kross keppninni sem haldin var á Kjalar- nesi um síðustu helgi? 8. Hreinn Halldórsson og Öskar Jakobsson kepptu til úrslita í kúluvarpi á Ölympíuleikunum í Moskvu í vikunni. í hvaða sætum lentu þeir? 9. Nýlega voru unnin skemmdarverk á sumar- bústaðabyggingum Llú að Hellnum. Hvað gerð- ist? 10. Pálmi Gunnarsson er nú á ferð um landið með nýstofnaðri hljómsveit sinni. Hvað heitir hljóm- sveitin? 11. Umræður hafa verið um það hvort titla eigi Vigdísi Finnbogadóttur sem „Forseta" eða „Frú Forseta". Hvað varð ofaná í þessum umræð- um? 12. Deila hef ur komið upp á milli tveggja samtaka vör ubif reiðast jóra í Keflavík. Hvað heita samtökin? 13. Hver var læknir í sjúkrafluginu sem farið var til Grænlands á þriðjudaginn? 14. Arnaldur Arnaldsson hélt tónleika í Norræna húsinu á miðvikudag. Á hvaða hljóðfæri spilar hann. 15. Steinunn Sæmunds- dóttir hefur nú lagt skíðin á hilluna og tekið upp golfkylfurnar í staðinn. Um síðustu helgi sigraði hún i einu golfmótinu enn, hvaða mót var það? Spurningarnar hér að ofan eru allar byggðar á ,f réttum I Visi síðustu daga. Svör eru á bls. 22. spurningalelkur 1. Hvar er Rauðamelsheiði? 2. Hvenær tók Bessa- staðaskólinn fyrst til starfa? 3. Hvaða ár var Kópa- vogsf undurinn haldinn? 4. Hvenær tók Kvenna- skólinn í Reykjavík til starfa? 5. Hvenær var í fyrsta skipti almennur fridagur verslunarmanna? 6. Hvenær var Elda- dagur? 7. Hvenær var fyrst f logið yfir Atlantshaf til islands? 8. Hvað heitir leið 6 hjá strætisvögnum Reykja- víkur? 9. Hvað er langt frá Reyðarfirði til Breiðdals- víkur? 10. Hver var forsætisráð- herra árið 1949.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.